Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 21
21 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Frá því að ég hóf þátttöku í stjórnmálum hef ég fjallað mikið um skaðleg áhrif pólitísks rétt- trúnaðar og svokölluð ímyndar- stjórnmál (e. identity politics). Þótt kenningar um að Covid- faraldurinn muni breyta heim- inum séu stundum heldur lang- sóttar leyfði ég mér að vona að þessi sameiginlega raun heims- byggðarinnar myndi minna á hvað skiptir raunverulega mestu máli. Hlutir á borð við samkennd, jafnræði, heilbrigðisþjónustu, verðmætasköpun atvinnulífsins, öryggi ríkja o.s.frv. Slíkir hlutir og mörg af grundvallar- gildum vestrænna samfélaga hafa átt mjög undir högg að sækja. Það horfir ekki vel með þær vonir. Um leið og dró úr árifum faraldursins á Vestur- löndum náðu áhrif óheillaþróunar samfélag- anna nýjum hæðum. Eftir að rétttrúnaðar- fylkingin hafði haft enn meiri tíma en áður til að liggja á netinu náði vitleysan nýjum lægð- um. Tilefnið Það eina sem vantaði var tilefni til að hefja byltingu. Það kom í formi hræðilegs mynd- bands þar sem lögreglumaður í Bandaríkj- unum murkaði lífið úr blökkumanni á ein- staklega grimmilegan hátt. Það var eðlilegt að slíkt vekti viðbrögð og kröfur um að lög- reglumanninum yrði refsað ásamt félögum hans sem stóðu aðgerðarlausir hjá. Lögreglumennirnir voru ákærðir en fljót- lega fóru ýmsir hópar að nýta sér málið í eig- in þágu. Fremst í flokki fór hreyfing sem kall- ar sig Black Lives Matter (BLM) eða „Svört líf skipta máli“. Allt vitiborið fólk hlýtur að vera sammála fullyrðingunni sem birtist í nafni samtakanna þótt það sé óneitanlega sérkennilegt að litgreina líf sem svört, hvít eða eitthvað annað. Bara nafnið BLM hafði verið þekkt sem herská samtök á jaðri stjórnmálanna. En nú skipti bara nafnið máli. Það er tilhneiging sem birtist víða í stjórnmálum samtímans, m.a. á Íslandi eins og ég hef fjallað um áður. Afstaða til samtaka, stofnana, starfa og jafnvel laga- frumvarpa skal byggð á nafninu en ekki inni- haldinu og aðferðinni. Það er ekki að ástæðu- lausu að ímyndarstjórnmál eru stundum kölluð merkimiðastjórnmál. Fyrr en varði fór fólk að klifra hvert yfir annað til að komast fremst í röð þeirra sem styddu BLM. Alþjóðafyrirtæki sem lengi hafa sýnt undirgefni gagnvart þeim tíðaranda sem hæst ber hverju sinni fóru þar framar- lega í flokki og fræga fólkið lét ekki sitt eftir liggja frekar en fyrri daginn. Þátttaka var reyndar skylda. Bresk leikkona fékk símtal frá umboðsmanni sínum sem spurði hvers vegna hún væri ekki búin að sverja BLM holl- ustu á samfélagsmiðlum. Hún útskýrði að það væri vegna þess að hana langaði ekki til þess. Umboðsmaðurinn kvaðst skilja það en þetta væri skylda ef hún vildi einhvern tímann fá vinnu aftur. Leikkonan lét því undan. Það þarf að sanna sig Í ofstopaástandi er nefnilega ekki nóg að halda sig til hlés. Það þarf að sanna að maður sé rétttrúaður en ekki efasemdanorn. „Hvít þögn er ofbeldi“ er vinsælt slagorð byltingar- innar. Byltingar sem nú hefur tekið á sig öll helstu einkenni kínversku menningarbylting- arinnar. Að vísu að undanskildum opinberum aftökum en lögreglumenn, hvítir og svartir, hafa verið skotnir í „að mestu friðsamlegum mótmælum“ eins og flestir fjölmiðlar kjósa jafnan að kalla það. Öðrum fremur eru það hvítir „aðgerða- sinnar“ sem viðhafa mestu ólætin sem eins og jafnan snúast um sjálfsupphafningu fremur en málstaðinn. Mörg myndbönd hafa birst af ungu hvítu menntafólki öskra á þeldökka lög- reglumenn og kalla þá svikara fyrir það eitt að vinna vinnuna sína og halda uppi lögum og reglu. Nýja menningarbyltingin felur í sér endur- vakningu kynþáttahyggju, þess að flokka fólk eftir húðlit. Hún ber líka með sér öll einkenni öfgatrúar, þ.m.t. trúarathafnir sem fólki er ætlað að undirgangast til að sanna undirgefni sína gagnvart rétttrúnaðinum. Fljótlega myndaðist sú krafa að fólk „tæki hné“, þ.e. færi niður á annað hnéð, til að sýna stuðning við BLM. Allir á hnéð Fyrr en varði fór fólk að „taka hné“ um allt. Leiðtogar Demókrataflokksins, sem á langa sögu stórkostlegra afreka áður en hann var yfirtek- in af ímyndarpólitíkinni, tóku hné og báru sérstaka trefla til að fullkomna athöfnina. Þótt erfitt sé að átta sig á því hvað enski boltinn hefur með lögreglumál í Minneapolis að gera samþykktu öll liðin að spila með áletrunina „Black lives matter“ á bakinu í stað nafna leikmannanna og auð- vitað að taka hné fyrir leik. Kappakstursmenn þurfa eðli máls samkvæmt að vera hug- rakkir. En þegar farið var fram á að ökumenn í Formúlu 1 tækju hné fyrir kappakstur þorðu aðeins sex þeirra að standa. Þeir hinir sömu voru að sjálfsögðu fordæmdir fyrir fordómafulla (ofbeldisfulla) hegðun. Þó höfðu allir klæðst bolum með áletrunum gegn kynþáttahyggju. Breskur ráðherra sem ekki hlýddi kröfu um að krjúpa á kné þurfti dögum saman að verjast sams konar árásum. Bandaríski NASCAR-kappaksturinn er ekki síst vinsæll í Suðurríkjunum. Þar varð uppi fótur og fit eftir að birt var mynd af snöru í bílskúr þeldökks ökumanns. FBI mætti með 15 vopnaða menn í bílskúrinn og fordæmingar og kröfur um aðgerðir tröllriðu íþróttinni þar til í ljós kom að snaran hefði hangið í bílskúrnum löngu áður en ökuþórinn fékk hann til ráðstöfunar og að um væri að ræða spotta til að loka bílskúrshurðinni. Fyrst rætt er um kappakstursmenn má líka nefna ökumann sem missti stuðning bak- hjarla sinna eftir að einhver benti á að látinn faðir hans hefði notað óviðeigandi frasa í út- varpi áður en sonurinn fæddist. Stuðningur við hvað? Fjármagn streymir nú til BLM, ekki síst frá fyrirtækjum og fræga fólkinu. En að hverju er það að stuðla með fjárframlögum sínum og helgiathöfnum? Breskir blaðamenn höfðu fyrir því að kynna sér stefnu samtak- anna og bentu á að hún snerist um að brjóta á bak aftur vestræna menningu og kapítalisma, fjölskylduformið, stjórnkerfið og sérstaklega að leggja niður lögreglu og dómstóla. Víða um lönd létu lögreglumenn sig hafa það að krjúpa fyrir samtökum sem berjast gegn þeim reglum sem þeir starfa við að verja og raunar þeim sjálfum. Lögreglustjór- ar virtust enda margir logandi hræddir við að verja sitt fólk og sitt hlutverk. Í Minneapolis var lögreglustöðin þar sem manndráparinn hafði starfað yfirgefin og eftirlátin óeirða- seggjum sem fóru þar um brjótandi og braml- andi og kveiktu í eftir að hafa tæmt vopna- búrið. Fríríki Í Seattle, sem nú er undir oki menningar- byltingarinnar, var stofnað nýtt fríríki. Borgarstjórnin, sem minnir um sumt á þá reykvísku, lagði það helst til mála að færa frí- ríkinu vegtálma til að marka landamærin með áfestum spjöldum fyrir veggjakrot. Fljótlega kárnaði þó gamanið í litla landinu sem bar hið skammstafaða nafn CHAZ þegar hópur fólks vildi endurskíra það með skammstöfuninni CHOP. Deilurnar snerust um hvernig ætti að skilgreina svæðið. Þó var fljótt komið á landa- mæravörslu þungvopnaðra manna með hríð- skotariffla. Eflaust hafa þeir verið dyggir stuðningsmenn samtakanna „No Borders“. Svartklæddir og álíka vel vopnaðir meðlimir Antifa (svokallaðra and-fasista) munu hafa sinnt gæslu innan landamæranna. Eigendur íbúða eða fyrirtækja á svæðinu þurftu að sýna skilríki til að komast heim. Fræðimaður á sviði einhvers konar vistvænnar borgar- fræði (sem hlýtur fljótlega að verða ráðinn í Reykjavík) mætti á svæðið til að hefja rækt- un matjurta sem sérstaklega voru merktar fólki af tilteknum húðlit. Sjálfskipað sam- félagsráð leitaðist við að leysa dómstóla af hólmi. En allt kom fyrir ekki og fríríkið flosn- aði upp en eftirlét skattgreiðendum að hreinsa til. Fórnarlambamenning Menningarbylting Vesturlanda er byggð á því sem kallað hefur verið fórnarlambamenn- ing. Tilhneigingu til að skipa fólki í hópa sem njóta mismikilla réttinda eftir því hversu hátt þeir skora á óformlegum fórnarlambaskala. Röðun á listann kallar svo stundum á inn- byrðisátök innan rétttrúnaðarhreyfingar- innar. Í því samhengi er mikilvægt að hafa hugfast að allar öfgahreyfingar segjast vera að verja hagsmuni þeirra sem hallar á og réttlæta þannig aðgerðir sínar. Umræðan er alltaf um yfirlýst markmið. Ekki um aðferð- irnar sem jafnan bitna fyrir rest á þeim sem barist er fyrir. „Byltingin étur börnin sín“ eins og Frakkar uppgötvuðu fyrir nærri 230 árum. Smátt og smátt hefur komið í ljós að vest- ræna menningarbyltingin snýst í grunninn um andúð á vestrænni siðmenningu, rétt eins og sú kínverska sem snerist reyndar bæði um andúð á gömlum kínverskum gildum og vest- rænni menningu. Aftökumenning Þótt leiðtogar nýju menningarbyltingar- innar hafi ekki vald til að taka fólk af lífi eru þó aftökur eitt helsta einkenni hreyfingar- innar. Þ.e. samfélagslegar aftökur. Enda er þróunin nú kölluð aftökumenning í ensku- mælandi löndum (e. Cancel culture). Sú þró- un hófst raunar löngu áður en menningar- byltingin sem fylgdi Covid fór af stað og lagði grunninn að því sem koma skyldi. Allir sem fjalla á gagnrýninn hátt um at- burðarásina geta vænst þess að verða „teknir af lífi“ á samfélagsmiðlum og í fjölmiðlum. Þar er enginn óhultur. Rithöfundurinn J.K. Rowling sem er þekktust fyrir sögurnar um Harry Potter var lengst af einn af öflugustu stuðningsmönnum ríkjandi rétttrúnaðar. Ég skrifaði um raunir Rowling í greinum við síðustu áramót en eftir upphaf nýju menningarbyltingarinnar hefur hún mátt þola ágjöf sem aldrei fyrr. Rowling er hlynnt réttindum transfólks en hún er líka femínisti og hefur lýst áhyggjum af því að ákveðnir transaktívistar séu að vega að kven- frelsi. Fyrir vikið hefur hún verið stimpluð „terfa“ (e. TERF – trans-exclusionary radical feminist). Rowling og á annað hundrað þekktra Breta skrifuðu einstaklega hófstillta og á köflum afsakandi grein til að andmæla af- tökumenningunni. Ekki leið á löngu þar til fólk bað um að verða tekið af lista greinar- höfunda eftir að hafa verið spurt hvort það ætlaði virkilega að skrifa grein með fólki á borð við J.K.Rowling. En það eru ekki allir í sömu stöðu og Rowl- ing að geta látið sér fátt um finnast þegar öfgafólk ræðst til atlögu. Margir hafa misst vinnuna eða lifibrauð sitt að miklu leyti eftir samfélagslegar aftökur, oft af litlu eða engu tilefni. Dæmin væru í mörgum tilvikum hlægileg ef þau væru ekki of sorgleg og því miður of mörg til að hægt sé að rekja þau í stuttri grein. Það er líka hættulegt að vera með Þegar öfgamenn efna til byltingar líður ekki á löngu áður en innbyrðissamkeppni um að vera rétttrúaðri en aðrir kemur jafnvel þeim sem vilja taka þátt í vandræði. Ritstjóri þekkts matreiðslutímarits taldi rétt að tíma- ritið lýsti yfir stuðningi við byltinguna. Ein- hverjir töldu hann hins vegar ekki hafa geng- ið nógu langt og því var þess krafist að hann hætti störfum. Forstöðumaður listasafns San Francisco- borgar ákvað að skýra frá því að aukin áhersla yrði lögð á að safna list eftir fólk með annan húðlit en hvítan en lét fylgja sögunni að safnið myndi þó einnig kaupa verk eftir hvíta listamenn. Honum varð ekki sætt í starfi. Eigendum fjölskyldurekinnar bókaversl- unar í Denver varð það á að nefna það á sam- félagsmiðli að bókabúðin yrði ópólitísk og myndi áfram selja alls konar bækur. Ofstopa- fólkið brást illa við. Eigendur verslunarinnar gáfu eftir og lýstu yfir fullum stuðningi við BLM. Það dugði ekki og fólk sem sagðist ým- ist vera viðskiptavinir eða rithöfundar birti langan lista af kröfum sem bókabúðin þyrfti að uppfylla. Félag bandarískra ljóðskálda birti stuðn- ingsyfirlýsingu en þrátt fyrir að hún kæmi úr réttri átt var hún ekki nógu róttæk og því var félaginu sendur langur listi krafna. Eins kostulegur og sá listi var er ekki svigrúm til að rekja hann hér. En í ofanálag var krafist fjárframlags frá skáldafélaginu með vísan til þess að það hefði drýgt þá synd að safna aurum í sjóð. Félagið lét auðvitað undan og fyrsta greiðsla í málstað menningarbylting- arinnar nemur milljón bandaríkjadölum. Háskólar og fjölmiðlar Langur listi 48 krafna, auk undirkrafna, undirritaður af meira en 350 starfsmönnum Stanford-háskóla til skólastjórnenda, slær þó líklega flest met. Listinn tekur á öllu frá kvöð um sérstakar hárgreiðslustofur og veitinga- staði fólks af afrískum uppruna að umfangs- mikilli endurmenntun starfsfólks og refs- ingum við hugsanaglæpum. Auk 25 milljóna dollara framlags. Stanford-háskóli er sem stendur í miklum fjárhagsþrengingum og hafði sett á ráðningarbann þannig að erfitt er að segja til um hvernig þessum kröfum verð- ur mætt. Fjölmiðlar fara auðvitað ekki varhluta af menningarbyltingunni og sumir þeirra eru virkir þátttakendur í baráttunni. Ákveðnar sjónvarpsstöðvar gerðu kröfu um að frétta- skýrendur bæru nælu til að sýna stuðning sinn við BLM. Bandaríska blaðið New York Times sem eitt sinn studdist við kjörorðið „óttalaust og hlutlaust“ (e. without fear or favour) er fyrir löngu orðið áróðursblað og varð loks að grínútgáfu þess sama áróðurs. Þar missti ritstjóri aðsendra greina vinnuna eftir að hann birti grein frá öldungadeildar- þingmanni sem taldi rétt að hafa herinn í við- bragðsstöðu vegna óeirða í landinu. Það var ekki síst að kröfu samstarfsfólks sem fór hamförum á Twitter sem maðurinn fór frá. Skömmu síðar sagði kona á sömu deild upp störfum. Hún var þekktur blaðamaður og birti magnaða grein þar sem hún lýsti einelti af hálfu samstarfsmanna og því hvernig NYT væri nú ritstýrt af Twitter. Hún bætti því við að „það ætti ekki að þurfa hugrekki til að mæta í vinnuna á bandarísku dagblaði sem miðjumaður“. Nú skal tryggt að sjónarmið sem ganga gegn nýjustu uppfærslunni af reglum rétt- trúnaðarins heyrist ekki. Fólk sem gæti vilj- að taka þátt í gagnrýninni umræðu fær ekki að halda erindi, greinar þess mega ekki birt- ast og samfélagsmiðlar færa sig jafnt og þétt upp á skaftið við ritskoðun. Eyðing sögunnar Til viðbótar við ritskoðun samtímaumræðu felst mikilvægur þáttur menningarbyltingar- innar í því að endurskrifa söguna. Sígildar kvikmyndir og gamanþættir hafa verið afmáð hjá efnisveitum. Meðal fórnarlambanna var þáttur um Golden girls þar sem aðalleikkon- urnar höfðu farið í leirbað og þóttu þar með hafa svert sig í framan. Svo eru það stytturnar og minnismerkin. Rétt eins og talíbanar í Afganistan og ISIS- liðar í Sýrlandi og Írak leggja herskarar rétttrúnaðarfólks áherslu á að eyðileggja minnismerki frá liðinni tíð sem eru þeim ekki að skapi. Eins og alltaf þegar öfga- hreyfing kemst á skrið færa þær sig upp á skaftið þegar hreinsanirnar hefjast. Ráðist var á minnismerki um Breta sem féllu í heimsstyrjöldunum. Styttan af Winston Churchill var ekki óhult og næst var ráðist á styttur af Gandhi og sjálfum Abraham Lin- coln, manninum sem háði borgarastyrjöld til að afnema þrælahald. Í Bandaríkjunum var sótt að styttu Lincolns sem fjármögnuð var með samskotum fyrrverandi þræla. Þegar einn afkomenda þeirra sem reistu styttuna bað fólk að sýna forfeðrum sínum virðingu var hann hrópaður niður af hvítum aðgerðasinnum. Niðurstaðan Menningarbyltingin snýst ekki bara um kynþáttamál en með henni er endurvakin ein- hver galnasta hugmynd sem komið hefur upp í mannkynssögunni. Hugmyndin um að flokka beri fólk eftir litbrigðum húðarinnar. Þegar langt var komið með að útrýma þeirri bábilju er hún nú endurvakin og fólk aftur skilgreint út frá húðlit. Nú þarf að standa vörð um grunngildi vestrænnar siðmenningar. Þau gildi sem skilað hafa samfélögum meiri árangri en nokkuð annað í mannkynssögunni. Þar ber hæst hugsjónina um að allir skuli teljast jafnréttháir óháð líkamlegum einkennum. Hugsjónina sem kirkjumaðurinn og mann- réttindaleiðtoginn Martin Luther King orð- aði í frægri ræðu. Þar sagðist hann eiga sér draum um að dag einn yrðu börn hans ekki dæmd út frá húðlit sínum heldur mann- kostum. Sá boðskapur hefur náð stórkost- legum árangri. Byggjum áfram á því besta sem síðustu árþúsund hafa skilað okkur en köstum því ekki á glæ til að þóknast þver- sagnakenndum og gölnum tíðaranda sumarsins 2020. Eftir Sigmund Davíð Gunnlaugsson »Nýja menningarbyltingin felur í sér endurvakningu kynþáttahyggju, þess að flokka fólk eftir húðlit. Hún ber líka með sér öll einkenni öfgatrúar, þ.m.t. athafnir sem fólki er ætlað að undirgangast til að sanna undirgefni sína gagnvart rétttrúnaðinum. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Höfundur er formaður Miðflokksins. Sumarið 2020 og nýja menningarbyltingin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.