Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 25.07.2020, Qupperneq 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 ✝ Finnfríður, eðaNinna eins og hún var alltaf köll- uð, fæddist í Sunn- dal í Kaldrananes- hreppi í Stranda- sýslu 2. febrúar 1933. Hún lést á Heilbrigðisstofnun Vesturlands á Hólmavík 15. júlí 2020. Foreldrar Finn- fríðar voru Guðrún Ottósdóttir, f. 14.12. 1899, d. 21.8. 1980, og Guðjón Hjörtur Samsonarson, f. 15.4. 1893, d. 19.7. 1971. Systkini Finnfríðar: Helga Halldóra, f. 1925, látin. Sigrún, f. 1926, látin. Drengur, f. 13.11. 1927, látinn sama dag. Halldór, f. 1930. Margrét, f. 1931, látin. Lilja, f. 1934. Unnur, f. 1936, látin. Hermann Heiðar, f. 1938, látinn. Fjóla, f. 1939. Finnfríður giftist Núma Leó Rósmundssyni 27.2. 1951. Hann var fæddur 1.4. 1907, d. 22.8. 1981. Númi var sonur hjónanna Rósmundar Jóhannssonar, f. 18.11. 1883, d. 11.2. 1971, og Jónínu G. Sigurðardóttur, f. 7.7. 1884, d. 4.8. 1963. Finnfríður eignaðist níu börn. Þau eru: 1) Gunnar Örn, f. 17.3. 1949, ókvæntur og barnlaus, býr á Hólmavík. 2) Jónína Rósa, f. 30.8. 1951, d. 14.7. 1952. 3) Rós- mundur, f. 16.9. 1953, sambýlis- kona Grazina Noerkeviciene, f. 11.9. 1972, búa á Hólmavík. Börn 29.3. 1995. Barnabörn Ingi- bjargar eru þrjú. 7) Jóhann Víðir, f. 2.11. 1968. Eiginkona hans er Ragna Kristín Árnadótt- ir, f. 29.1. 1979, búa í Reykja- nesbæ. Börn Jóhanns Víðis frá fyrra sambandi með Maríu Jóns- dóttur eru Óskar Freyr, f. 1.2. 2000, og Guðjón Fannar, f. 20.6. 2005. Börn Jóhanns Víðis og Rögnu eru Agnes Lovísa, f. 12.5. 2011, og Tómas Árni, f. 17.3. 2015. 8) Freyja Dís, f. 8.7. 1970, sambýlismaður Valentínus G. Baldvinsson, f. 16.3. 1960, búa í Reykjavík. Börn Freyju Dísar frá fyrri samböndum eru, með Þorvaldi G. Guðjónssyni: Adam Örn, f. 23.6. 1988; með Kristni Þ. Sigurjónssyni: Berglín Mist, f. 1.3. 1997, með Samúel G. Sigur- jónssyni: Hildur Elísabet, f. 28.6. 2000, og Finnfríður Rós, f. 28.6. 2000. Barnabörn Freyju Dísar eru fjögur. 9) Ólafur Freyr, f. 8.9. 1974. Eiginkona hans er Katrín Ágústa Thorarensen, f. 28.4. 1980, búa á Akureyri. Börn þeirra eru: Bríet Ósk, f. 20.6. 1998, og Helgi Sigurjón, f. 31.8. 2010. Finnfríður og Númi bjuggu á Gilsstöðum í Selárdal í Stranda- sýslu frá 1949 til 1970 er þau fluttu ásamt börnum sínum til Hólmavíkur. Þar bjó og starfaði Finnfríður síðan mestallan sinn aldur, við ýmis störf. Finnfríður var mikil hand- verkskona, saumaði, prjónaði og málaði myndir af mikilli list. Hún hafði mikið dálæti á blóma- rækt og söng. Söng um árabil með kirkjukórnum á Hólmavík og fleiri kórum. Útförin fer fram frá Hólma- víkurkirkju í dag, 25. júlí 2020, klukkan 14. Rósmundar frá fyrra hjónabandi með Jónu Rakel Jónsdóttur eru: Þórdís Andrea, f. 8.1. 1986, Jóhanna Guðbjörg, f. 21.8. 1991, Gunnhildur Telma, f. 30.7. 1995, Númi Leó, f. 22.5. 1998. Stjúpsonur Rósmundar, sonur Grazinu, Matas. Barnabörn Rósmundar eru fjögur. 4) Jónína, f. 26.5. 1956, sambýlismaður Jón Logi Sigur- björnsson, f. 19.5. 1956, búa í Reykjavík. Börn Jónínu frá fyrra hjónabandi með Guðna Þ. Walderhaug eru Vignir Örn, f. 30.5. 1975, og Hulda, f. 18.2. 1980. Barnabörn Jónínu eru sex. 5) Hjörtur, f. 3.6. 1958. Sambýlis- kona Hafdís Gunnarsdóttir, f. 15.1. 1965, búa á Hólmavík. Börn Hjartar frá fyrra hjónabandi með Sjöfn Þorsteinsdóttur eru Aðalheiður Jóhanna, f. 30.1. 1980, Gunnar Númi, f. 1.12. 1981, Jónína Rósa, f. 29.10. 1986, Ingibjörg Benedikta, f. 27.8. 1989, og Hjördís Sjöfn, f. 15.9. 1993. Barnabörn Hjartar eru þrjú. 6) Ingibjörg, f. 20.4. 1963. Eiginmaður hennar Vignir Helgi Sigurþórsson, f. 25.5. 1952, búa í Borgarnesi. Barn Ingibjargar frá fyrra sambandi með Aðalbirni G. Sverrissyni: Númi Finnur, f. 11.6. 1986. Barn Ingibjargar og Vignis: Valdís, f. Ef ég rétt kann að því gæta, allar stundir það ég finn. Indælt vor og ilminn sæta, enn mér geymir faðmur þinn. Lífs frá napri norðan kælu, nýt ég skjóls við brjóstið þitt. Og þá hlýrri unaðs sælu, ætíð fyllist hjartað mitt. Glöð við saman fagnaðs fæti, fetum sléttan gæfuveg. Aldrei hélt ég ástin gæti, orðið svona guðdómleg. (Númi Rósmundsson) Til þín elsku mamma. Jónína, Rósmundur, Hjörtur, Gunnar, Víðir, Ingibjörg, Ólafur og Freyja. Amma Ninna var mesti töffari sem ég hef þekkt, gat allt og lét ekkert stoppa sig. Hún var af þeirri kynslóð sem bauð örlög- unum birginn og hafði betur. T.a.m. hefur eflaust verið erfitt að halda heimili og ala upp börn við þröngan kost á Gilsstöðum í Selárdal. Aldrei heyrði ég ömmu tala neikvætt um búsetuna í Dalnum heldur þvert á móti tal- aði hún alltaf fallega um þann tíma. Ég veit að nægjusemin og sá hæfileiki hennar að gera það besta úr því litla sem úr var að moða hefur eflaust gert gæfu- muninn í lífsbaráttunni. Amma Ninna lét sig málin varða og lá sjaldan á skoðunum sínum. Frá síðasta ættarmóti, sem haldið var á Gilsstöðum, er það eftir- minnilegt hvað það var skemmti- legt hjá þeim af heldri kynslóð Gillara, þar sem þau sátu inni í stofunni og rifjuðu upp sögur úr Dalnum. Hlátrasköllin bárust um alla sveitina. Var amma Ninna þar hrókur alls fagnaðar. Ég man líka þegar við vorum að gera upp Hafnarbrautina hvíta- sunnuna 2007. Þá stóð amma við hlóðirnar allan daginn og sá til þess að vinnandi fólkið fengi heitt að borða bæði í hádeginu og á kvöldin. Náði eldavélin vart að kólna milli máltíða. Maður fitnaði heldur frekar en hitt þá helgina þrátt fyrir mikið púlið. Við amma vorum miklir vinir og brölluðum margt saman. Hún kenndi mér ótal hluti um lífið og tilveruna enda mikið náttúru- barn og lífskúnstner. Þegar ég hitti hana á Hólmavík fyrir stuttu, ásamt Auði minni og Vig- dísi, rifjaði hún það upp með mér þegar hún kenndi mér á skíði á Hólmavík fyrir margt löngu. Þá sagði ég skólafélög- unum frá því með stolti að ég ætti ömmu sem kynni að renna sér á skíðum. Svo man ég eftir því, sumarið sem hún var að passa mig fyrir sunnan, þegar ég dró hana upp á Nónhæðina og sýndi með stolti fyrsta húsið sem ég smíðaði. Ömmu fannst mikið til hrörlegrar torf- og sprek- byggingarinnar koma og hvatti mig, eins og henni einni var lag- ið, til frekari afreka í bygging- arlistinni. Það sumar röltum við mikið um Kópavoginn og skoðuðum garða þar sem hún kenndi mér eitt og annað um heiti plantna og garðlist. Á listasviðinu var amma mér fyrirmynd og kenndi mér margt. Hún hjálpaði mér með forláta trefil sem ég átti að gera í handavinnu í skólanum. Þrátt fyrir ótvíræða hæfileika ömmu í prjónaskap tókst henni ekki að vekja hjá mér áhuga enda varð trefillinn breiðari en hann var langur. Talandi um þá hæfileika, þá eru vettlingar ömmu Ninnu frægir og hafa börnin mín og eiginkona notið þeirra. Fólk trú- ir því varla að þeir séu hand- prjónaðir enda prjónaðir úr ein- þátta garni á prjóna númer eitt. Mér eru líka kærar allar þær stundir sem við amma Ninna áttum á Hólmavík og þótt það verði öðruvísi að koma á Hafn- arbrautina núna er ég viss um að hennar góði andi muni lifa í ömmuhúsi því þar var ávallt glatt á hjalla og stutt í sönginn. Ég vildi óska þess að ég gæti setið með þér í eldhúsinu þínu yfir kaffibolla og ömmukleinum og rætt um ættfræði eða hlustað á þig rifja upp sögur frá þinni merku ævi en það verður að bíða betri tíma. Hvíl þú í friði, amma mín. Vignir Örn Guðnason. Elsku amma Ninna er fallin frá. Mikið var nú alltaf gaman að heimsækja ömmu. Hún elskaði að hafa fólkið sitt hjá sér og gera vel við það í mat og drykk þann- ig að borðið svignaði oft undan kræsingunum. Ein eftirminni- legasta og kærasta minning sem ég á af ömmu var þegar við Að- alheiður frænka vorum smá- stelpur og vorum í næturpössun hjá henni. Það gerði mikið óveð- ur og rafmagnið fór af. Við kúrð- um þá hjá ömmu undir teppi, kveiktum á kerti og gæddum okkur á Royal-karamellubúðingi sem amma hafði búið til. Það var alltaf svo gaman að heimsækja ömmu. Við krakkarn- ir fengum alltaf að leika lausum hala, klæðast gömlum fötum, róta í dótinu hennar, búa til kastala úr teppum og stólum og amma átti alltaf eitthvað gott (og sætt!) að borða handa okkur. Amma var svo stolt af öllum barnabörnunum sínum og henni þótti svo vænt um allt sem við bjuggum til handa henni. Hún hafði alltaf allt til sýnis og mundi hvað hver og einn krakki gaf henni og hvenær. Elsku amma mín, minning- arnar eru svo ótal margar um þig. Þú varst einstakur persónu- leiki og góð fyrirmynd. Þú áttir erfiða æsku og þið afi höfðuð ekki mikið á milli handanna. En neyðin kennir naktri konu að spinna og þú gerðir alltaf allt frá grunni, sápur, föt, mat o.s.frv. Það var ekkert sem þú kunnir ekki að gera (nema kannski mar- engs, en það var af því að þú vildir aldrei fara eftir uppskrift- um!). Þú varst svo mikil hann- yrðakona og þú hafðir yndi af því að hugsa um blómin þín enda voru þau alltaf svo falleg og flott. Takk fyrir allt elsku amma. Takk fyrir gleðistundirnar með okkur og börnunum okkar sem þótti svo vænt um þig. Mikið er ég þakklát fyrir að við gátum kvatt þig. Hulda, Jón Hafliði, Baldur Hrafn, Nína Dýrleif og Vala Dröfn. Það er gæfa að kynnast fólki sem fylgir manni upp frá því, jafnvel þegar leiðir hafa löngu skilið, fylgir manni í minningum sem lifa og hlýja eins og sólar- geislar sem brjótast í gegnum þunna skýjahulu. Ninna var svo- leiðis manneskja. Við kynntumst á Hólmavík, þegar ég var sýslu- maður þar um tíma fyrir margt löngu. Ung og óreynd með tvö lítil börn hafði ég búist við að ekki yrði erfitt að fá aðstoð við heimilishaldið, en það reyndist flóknara. Loks birtist Ninna og festa komst á hlutina. Jákvæðni hennar og lífsviska var fjöl- skyldu minni ómetanleg, og alla tíð síðan hefur hún búið í hjört- um okkar allra, líka eftir að sam- bandið rofnaði vegna flutninga annarrar hvorrar milli lands- hluta og landa. Hún kenndi mér margt um æðruleysi og vináttu, og um það hvernig hægt er að komast í gegnum erfiða lífs- reynslu án þess að brotna. Hún átti ævi sem vert væri að segja frá, en aðrir kunna betri skil á en ég. Hvíl í friði kæra Ninna. Ég og fjölskylda mín sendum af- komendum samúðarkveðjur. Hjördís Hákonardóttir. Finnfríður B. Hjartardóttir Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, EMMU KOLBEINSDÓTTUR, Eyvík, Grímsnesi, sem lést föstudaginn 3. júlí. Sigrún Reynisdóttir, Þórarinn Magnússon Kolbeinn Reynisson, Guðrún Bergmann Guðmundur Kristinn Pétursson, Sólveig Wium Reynir Viðar Pétursson, Duan Buakrathok Lilja Nótt Þórarinsdóttir, Ólafur Gauti Guðmundsson Magnús Þórarinsson, Hallgerður Lind Kristjánsdóttir Steinunn Erla Kolbeinsdóttir, Einar Þorgeirsson Smári Bergmann Kolbeinsson, Íris Gunnarsdóttir Bjarki Kolbeinsson, Karen Daðadóttir og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, AÐALBJÖRG GUÐMUNDSDÓTTIR kennari, frá Harðbak á Melrakkasléttu, Lindarseli 7, Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni 10. júlí. Útför hennar fer fram frá Hjallakirkju í Kópavogi mánudaginn 27. júlí klukkan 13. Vinsamlegast athugið breytta staðsetningu á útförinni. Sæmundur Rögnvaldsson Ingibjörg Axelsdóttir Elín Rögnvaldsdóttir Björgvin Guðmundsson Margrét Rögnvaldsdóttir Magnús H. Ingþórsson barnabörn og barnabarnabörn Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, sonar, bróður, mágs, tengdasonar og frænda, BALDVINS HRÓARS JÓNSSONAR Vogagerði 33, Vogum. Viktoría Ólafsdóttir Jón Hilmar Baldvinsson Ólína Auður Baldvinsdóttir Jón Ingi Baldvinsson Guðrún Egilsdóttir Magnea Jónsdóttir Weseloh Friedhelm Weseloh Erna Margrét Gunnlaugsd. Kristinn Þór Guðbjartsson Arnar Daníel Jónsson Binný Skagfjörð Ólafur Auðunn Þórðarson Hilda Emilía Hilmarsdóttir og frændsystkini Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem hjálpuðu okkur, sýndu samúð og hlýju við andlát og útför okkar ástkæru eiginkonu, móður, dóttur og systur, UNNAR LEU PÁLSDÓTTUR. Pétur H. Pétursson Sara Rós Pétursdóttir Rósa Björk Pétursdóttir Páll Kristjánsson Rósa Helgadóttir Bjarnveig Pálsdóttir Viktor Pálsson Íris Björk Pálsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HRAFNHILDUR SIGURÐARDÓTTIR, Silfurtúni, Búðardal, sem lést 17. júlí, verður jarðsungin frá Hjarðarholtskirkju í Dölum 27. júlí klukkan 14. Sigurður Ólafsson Guðlaug Kristinsdóttir Pálmi Ólafsson Guðrún E. Magnúsdóttir Steinunn Lilja Ólafsdóttir Erling Þ. Kristinsson Páll Reynir Ólafsson barnabörn og langömmubörn Þökkum öllum sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar og móður minnar, VALGERÐAR MARINÓSDÓTTUR hagfræðings, sem andaðist 23. júní. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Hjúkrunarheimilisins Sóltúns. Guðmundur Sigurðsson Guðbjörg Erla Guðmundsdóttir Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, KRISTBJÖRG HARALDSDÓTTIR, Dodda frá Sandhólum, sem lést á Droplaugarstöðum miðvikudaginn 22. júlí, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 30. júlí klukkan 13. Gréta, Unnur, Birna og Jenný Sigfúsdætur og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGÞÓR SIGURÐSSON netagerðarmeistari, Sóleyjarima 3, lést mánudaginn 20. júlí á Landspítalanum við Hringbraut. Útförin fer fram frá Digraneskirkju fimmtudaginn 30. júlí klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarfélög. Ingigerður Anna Guðmundsdóttir Ragnheiður Guðrún Sigþórsdóttir Bjarki Sigþórsson Björk Valdimarsdóttir Sigríður Sigþórsdóttir Hilmar K. Lyngmo barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.