Morgunblaðið - 25.07.2020, Blaðsíða 30
30 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020
www.flugger.is
Facade Beton er
gæðamálning
fyrir stein
60 ára Guðrún er
Reykvíkingur, ólst upp í
Kleppsholti en býr í
Þingholtunum. Hún er
söngkona að mennt og
lærði í Boston Univers-
ity og Tónlistarskól-
anum í Ósló. Guðrún er
fulltrúi á Biskupsstofu.
Maki: Stefán Ólafsson, f. 1969, bók-
bindari og fornleifafræðingur.
Systkini: Oddur Kristján, f. 1959, Guð-
mundur Helgi, f. 1964, Jensína Helga, f.
1967, og Jón Hjörtur, f. 1972.
Foreldrar: Finnbjörn Hjartarson, f. 1937,
d. 1994, prentari, og Jósefína Helga Guð-
mundsdóttir, f. 1939, fv. fram-
kvæmdastjóri, búsett í Reykjavík.
Guðrún
Finnbjarnardóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur mikinn sjálfsaga og gerir
stundum of miklar kröfur til sjálfs þín. En
mundu að tvo þarf til að takast á. Að-
stæður eru kjörnar fyrir hópsamvinnu af
einhverju tagi.
20. apríl - 20. maí
Naut Gættu þess að fara ekki yfir strikið í
eyðsluseminni í dag. Best er að geta
stjórnað án þess að beita valdinu. Reyndu
samt að láta til þín taka.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er ekki ólíklegt að vandamál
komi upp í nánum samböndum þínum við
aðra. Ekki eru allir viðhlæjendur vinir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einhver nákominn ber hag þinn
fyrir brjósti í dag. Allir hafa gott af tilbreyt-
ingu svona öðru hvoru. Láttu ástvini vita
að þú þarfnist friðar til að geta einbeitt
þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samskipti þín ættu að verða auðveld
og ánægjuleg í dag. Reyndu að láta
strauminn bera þér tækifæri sem þú getur
notað.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú hefur góðar langtímafyrirætl-
anir um hvernig heimilið og fjölskyldan
getur notað fjárhaginn.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hlutirnir ganga oft betur og hraðar
fyrir sig ef þú reynir að verja þig fyrir um-
hverfinu. Hlustaðu á furðufuglinn.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Tilfinningar þínar eru svo
sterkar og vilji þinn til að fela þær svo lítill
að þú ert eiginlega opin bók. Fólk er ein-
staklega móttækilegt fyrir þér núna.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Hafirðu sótt um vinnu og ekki
fengið hana er kominn tími til að reyna
aftur. Hlustaðu á það sem sagt er við þig,
það gæti komið þér að góðum notum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Finnist þér að gengið hafi verið
á rétt þinn skaltu sýna festu og rétta þinn
hlut. Sýndu því tillitssemi og virtu tilfinn-
ingar annarra.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Dagurinn í dag felur í sér ýms-
ar gamalkunnar aðstæður. Hver er sinnar
gæfu smiður.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú hefur einbeitt þér að andlegri
líðan þinni og um leið vanrækt líkama
þinn. Samband sem er þér kært nýtur
góðs af yndislegri uppgötvun í kvöld.
frægu mótmælaaðgerðum ásamt
móður minni, systkinum og fjölda
manna og er stolt af því. Ég er enda
eldheitur náttúruverndarsinni og er
nú að taka saman bók um föður minn
og þátt hans í verndun Laxár og Mý-
vatnssvæðisins.“ Í ágúst 2010 þegar
40 ár voru liðin frá Miðkvíslarspreng-
ingunni var þess minnst með athöfn
við Miðkvísl þar sem minnisvarði var
afhjúpaður, á eftir var samsæti í
Skjólbrekku þar sem Hildur var
meðal ræðumanna.
Náttúruvernd er aðaláhugamál
ásamt bókmenntum, þjóðfélags-
málum og ferðalögum, en Hildur og
Jafet eiginmaður hennar hafa ferðast
nokkuð víða. Á seinni árum togar
Snæfellsnesið í þau hjón þar sem þau
eiga aðstöðu með skemmtilegu fólki á
Kóngsbakka, einnig hafa þau reist
sér sumarhús í Aðaldalnum þar sem
þau una sér best og eyða lunganum
úr sumrinu.
Fjölskylda
Eiginmaður Hildar er Jafet S.
Ólafsson, f. 29.4. 1951, viðskiptafræð-
Arð sem var stórt fyrirtæki á sinni tíð
sem gerði út jarðvinnuvélar.
Hann leiddi baráttuna fyrir vernd-
un Laxár og Mývatns og litaðist
heimilislíf í Árnesi mjög af þeirri bar-
áttu um árabil. Áður en samningar
náðust var gripið til ýmissa mót-
mælaaðgerða, svo sem aksturs mik-
illar bílalestar frá Laxá til Akureyrar
að ógleymdri Miðkvíslarsprenging-
unni. Faðir minn sat þá heima þar
sem ekki þótti skynsamlegt að for-
maður Landeigendafélagsins tæki
þátt í slíku en ég tók þátt í þeim víð-
H
ildur Hermóðsdóttir
fæddist 25. júlí 1950 í
Árnesi í Aðaldal og
ólst þar upp. „Ég vann
almenn sveitastörf
sem unglingur og sem aðstoðarstúlka
við Veiðiheimilið Árnesi og síðar á
Hótel Reynihlíð við Mývatn og á
sjúkrahúsi í Kaupmannahöfn.“
Hildur stundaði nám við Héraðs-
skólann á Laugum og síðan Kenn-
araskóla Íslands þar sem hún útskrif-
aðist 1972. Vorið 1980 lauk hún BA
prófi í bókmenntafræði frá Háskóla
Íslands með sögu og íslensku sem
aukagreinar.
Starfaði Hildur síðan meira og
minna sem grunnskólakennari frá
árinu 1972 auk dagskrárgerðar við
RÚV og umfjöllunar um bækur í dag-
blöðum. Hún kenndi íslensku og bók-
menntir við Fóstruskóla Íslands árin
1982-1986 en starfaði eftir það sem
ritstjóri hjá Bókaútgáfu Máls og
menningar frá 1986 til ársins 2000 að
hún stofnaði Bókaútgáfuna Sölku
ásamt Þóru Ingólfsdóttur. Hildur tók
síðan alfarið við Sölku árið 2002 og
rak umfangsmikla útgáfu til hausts-
ins 2015 að hún seldi fyrirtækið og
stofnaði Textasmiðjuna. „Þar tek ég
að mér ritstjórn og yfirlestur á hand-
ritum auk þess að fást við eigin skrif.“
Hildur sat í stjórn Máls og menn-
ingar þegar hún starfaði þar, sat
einnig mörg ár í stjórn Félags ís-
lenskra bókaútgefenda, nokkur ár í
stjórn IBBÝ-samtakanna og nokkur
ár í stjórn Náttúruverndarsamtaka
Íslands. Um árabil sat hún í stjórn
Þingeyingafélagsins í Reykjavík og
var þar um skeið gjaldkeri og síðan
formaður.
„Báðir foreldrar mínir tóku mikinn
þátt í félagsmálum. Jóhanna móðir
mín var lengi formaður í ýmsum fé-
lagasamtökum, m.a. Kvenfélaga-
sambandi Suður-Þingeyinga og
Kvennakórnum Lissý sem hún stofn-
aði og vísnafélaginu Kveðanda. Hún
skrifaði þónokkrar bækur og var gott
skáld, væntanleg er ljóðabók eftir
hana í tilefni þess að 100 ár eru liðin
frá fæðingu hennar. Hermóður faðir
minn stóð ætíð í stórframkvæmdum
og umfangsmiklum félagsmála-
störfum og rak Ræktunarsambandið
ingur, forseti Bridgesambandsins og
konsúll Rúmeníu á Íslandi. Þau eru
búsett í Reykjavík. Foreldrar Jafets
voru hjónin Ólafur Magnússon hús-
gagnasmíðameistari frá Stykkis-
hólmi, f. 22.9. 1920, d. 18.6. 1991, og
Sigríður Jafetsdóttir húsmóðir, f .
5.11. 1916, d. 27.12. 1980. Þau voru
búsett í Reykjavík.
Börn Hildar og Jafets eru 1) Jó-
hanna Sigurborg Jafetsdóttir f. 12.3.
1975, MBA, maki er Jón Björgvin
Stefánsson, f. 10.6. 1973, frumkvöðull,
þau eru búsett í Reykjavík. Þeirra
börn eru Matthildur María, f. 2004 og
Jafet Stefán, f. 2016; 2) Ari Hermóður
Jafetsson, f. 16.4. 1982, MBA, maki er
Sonja Wiium, f. 24.1. 1986, lögfræð-
ingur, þeirra börn eru Arney Tinna, f.
2011, Katrín Tanja, f. 2015 og Hildur
Karen, f. 2019. Þau eru búsett í
Reykjavík; 3) Sigríður Þóra Jafets-
dóttir, f. 22.1. 1991, viðskiptafræð-
ingur, búsett í Reykjavík.
Systkini Hildar: Völundur Þor-
steinn Hermóðsson, f. 8.11. 1940, leið-
sögumaður og fyrrverandi verktaki,
búsettur í Álftanesi í Aðaldal; Sig-
Hildur Hermóðsdóttir, bókaútgefandi og áður kennari – 70 ára
Fjölskyldan Í brúðkaupi sonarins Ara Hermóðs og Sonju Wiium. Hildi Karenu og Jafet Stefán vantar á myndina.
Eldheitur náttúruverndarsinni
Afmælisbarnið Hildur við
minnisvarðann við Miðkvísl.
Ljósmynd/Stefán I. Guðmundsson
50 ára Linda fæddist
á Akureyri en ólst upp
í Reykjavík og býr þar.
Hún er grafískur
hönnuður að mennt
frá Listaháskólanum
og húsgagnasmiður
frá Tækniskólanum.
Linda er húsgagnasmiður hjá Tul ehf.
Maki: Harpa Elísa Þórsdóttir, f. 1978,
aðstoðarleikstjóri.
Hálfsystur: Karen Hulda, f. 1976, Lis
Ruth, f. 1979, og Nína, f. 1983.
Foreldrar: Kristján Gunnlaugsson, f.
1952, d. 2018, pípulagningamaður, sjó-
maður og rak veitingahús á Hellnum, og
Klara Sigríður Sigurðardóttir, f. 1952, fv.
skrifstofumaður, búsett á Akureyri.
Linda Hrönn
Kristjánsdóttir
Til hamingju með daginn
Kópavogur Elvar Már Jónsson
fæddist 17. september 2019 á
Akranesi. Hann vó 2.714 g og var
48 cm að lengd. Foreldrar hans
eru Eva Þóra Hartmannsdóttir
og Jón Gunnar Sæmundsson.
Nýr borgari