Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 35

Morgunblaðið - 25.07.2020, Side 35
MENNING 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is ©2019 Disney/Pixar SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Hörkuspennandi þriller byggð á sögu eftir Lizu Marklund og James Patterson Sýnd með íslensku tali Í TILEFNI AF 40 ÁRA AFMÆLI 90% S P LÚNKUNÝ OG STÓRSKEMMT I L EG RÓMANT Í SK GAMANMYND. KAT I E HOLMES JOSH LUCAS FRÁBÆR NÝ MYND FYRIR ALLA FJÖLSKYLDUNA. SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI. Magnús Guðmundsson magnusg@mbl.is Fyrir tólf árum tók hópur mynd- listarmanna sig saman og gang- setti löngu yfirgefna síldarverk- smiðju á Hjalteyri við Eyjafjörð, í aðeins 20 mínútna akstursfjarlægð frá Akureyri. Síðan þá hefur listin átt sér þar heillandi samastað og í dag, laugardag, verður opnuð þar spennandi samsýning undir yfir- skriftinni Gæsahúð/Fleur de Peau/ Facetime. Á sýningunni er að finna verk eftir þau Margréti Helgu Sesseljudóttur, Paolu Sal- erno, Guillaume Paris, Serge Comte, Séverine Gorlie og Harald Jónsson, sem jafnframt er sýning- arstjóri. Drög að ginnungagapi Haraldur segir að þau sem að sýningunni standa þekkist úr ýms- um áttum. „Kveikjuna að sýning- unni má rekja til þess að ég var staddur hér ásamt Guillaume Par- is og við heilluðumst af þessari gömlu síldarverksmiðju. Byggingu sem er í senn einhvers konar rúst- ir og minnisvarði hrynjandi kap- ítalisma. Þegar hugmyndin að sýn- ingunni byrjaði að gerjast fundum við líka sterkt fyrir því hvernig sýningarstaðurinn endurspeglar á vissan hátt ástandið í heiminum og þetta stöðuga hrun rótgróinna heimsmynda og hengiflugið sem við stöndum öll á og iðar undir okkur. Yfirskrift sýningarinnar er vísun í það en á sama tíma einnig í þennan áþreifanlega líkamleika byggingarinnar. Þetta leiddi okkur að klassíska þemanu maður/náttúra og þá ekki síður í hugleiðingar um þetta ginn- ungagap sem ríkir á milli okkar. Og það er svo fallegt hvernig það kjarnaðist í tveggja metra regl- unni í kófinu sem var svona ein- hvers konar drög að gapi.“ Allt út frá rýminu Haraldur segir að verkin á sýn- ingunni séu frá ýmsum tímum og sjálfur sé hann með ný verk og þar af eitt sem byggist á því að hann lét skanna úr sér blóðið í málningarvöruverslun til þess að fá nákvæmlega sama blóðrauða lit- inn á málninguna. „Með þessu mála ég gáttir á veggina og bý með því til einhvers konar blóð- göng gegnum bygginguna.“ Haraldur segir að það sé gaman að sjá hversu ólíkir listamennirnir eru og þar með verkin sem er að finna á sýningunni. „Þannig er Paola Salerno kvikmyndagerðar- kona í grunninn og hún sendi okk- ur verk sem sýna það vel. Þetta eru útprentaðar stillimyndir úr kvikmyndum, gríðarlega falleg verk í anda ítalska nýraunsæisins. Guillaume Paris er svo með verk þar sem hann tekur fyrir birt- ingarmyndir manneskjunnar á matvælaumbúðum og vinnur þær áfram. Í einu verkinu fær hann til að mynda kínverska málara í París til þess að mála þær á striga, eins og fólk lætur mála af sér upphafin portrett, og vinnur þannig með hringrás neyslunnar, auk þess sem það er forvitnilegt að sjá hvernig undirliggjandi kyn- þáttafordómar birtast í neyslu- hyggjunni. Serge Comte er með áhrifamikið og stórt verk þar sem gefur að líta dýr á borð við ísbirni, kamelljón og nashyrning sem hann setur inn í lokuð rými sem kallast með áhrifaríkum hætti á við bygg- inguna. Margrét Helga nýtir einnig bygginguna vel í mjög fallegu verki þar sem hún hefur byggt hluti sem mynda samtímis um- hverfi inni í byggingunni. Eitthvað brothætt og viðkvæmt sem hún er búin að flétta algjörlega saman við staðhætti. Séverine Gorlier, frönsk lista- kona sem vinnur með keramik og teikningar, er með verk sem hún hefur verið að vinna með og okkur fannst passa alveg sérstaklega vel inn. Það er eins konar líkan af byggingunni sem er á sama tíma eins og hruninn heimur, algjörlega á þessum mörkum sem við erum að vinna með.“ Útsýnið á heimsenda Þrátt fyrir að hér séu á ferðinni ólík verk er Haraldur á því að það takist vel til við að ná heildar- yfirbragði. „Þau fara frá því að vera áþreif- anleg inngrip inn í rýmið og önnur sem verða ósjálfrátt hluti af um- hverfinu. Hljóðverk sem leggja undir sig alla bygginguna með reglulegu millibili, yfir í varpanir Serge og rústir Margrétar Helgu sem eru nánast eins og einhver sé búinn að koma sér fyrir innan rýmisins. Mér finnst verkin tengjast mjög fallega og óvænt saman út frá könnun okkar á rústum, enda- mörkum, skynjun okkar og útsýn- inu sem við njótum af þeim heims- enda sem við stöndum á.“ Haraldur bætir því við að það séu töfrar fólgnir í því að sýna verk á stað sem þessum. „Maður opnast allur í víðáttunum þegar maður fer svona um landið og skynjunin þenst ósjálfrátt í allar áttir. Og einmitt þá er svo gaman að geta labbað beint inn á mynd- listarsýningu, hvað þá inn á stað eins og þessa verksmiðju þar sem er að finna minjar úr borginni og hverfandi veröld á sama stað,“ segir Haraldur. Heimsendinn sem við stöndum á  Listamaðurinn Haraldur Jónsson er sýningarstjóri yfir Gæsahúð í Síldarverksmiðjunni á Hjalteyri  Þar tekst hópur listamanna á við sýningarstað sem endurspeglar um margt ástandið í heiminum Ljósmyndir/Gústav Geir Bollason Á Hjalteyri Serge Comte, Haraldur Jónsson, Séverine Gorlier og Margrét Helga Sesseljudóttir í Síldarverksmiðjunni. 37°C Verk eftir Harald Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.