Morgunblaðið - 25.07.2020, Síða 36

Morgunblaðið - 25.07.2020, Síða 36
36 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ 2020 RITZENHOFF Ilmkerti Verð frá 1.490,- Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is KARTELL COMPONIBILI Hirslur 3ja hæða – fleiri litir Verð frá 18.900,- Vandaðar gjafavörur Allir sem gera gjafalista hjá okkur fá kaupauka að verðmæti 15% af öllu því sem keypt er af gjafalistanum. RITZENHOFF Vínglös Verð frá 2.550,- stk. KARTELL CINDY Borðlampi – fleiri litir Verð 32.900,- KARTELL BOURGIE Borðlampi – fleiri litir Verð frá 39.900,- STOFF NAGEL Kertastjaki – fleiri litir Verð frá 5.750,- stk. SPECKTRUM SAVANNA Vasi H 20,5 cm – fleiri litir Verð 6.790,- KARTELL ABBRACCIAIO Kertastjaki Verð frá 25.390,- RITZENHOFF ASPERGO Bjórglös 6 stk. í pakka Verð 4.900,- SPECKTRUM SHADOW Kertastjaki - fleiri litir Verð 7.490,- stk. hús og garð, það var svo gott veður og þarna eru vinir þeirra og fjölskylda. Fólk skilur hell- ing eftir þegar það flytur og börn hafa oft ekkert um þetta að segja og verða að fylgja fjölskyldunni. Mér fannst spennandi að kanna hvernig það er að vera fluttur á þessa köldu og vindasömu eyju.“ Söguhetjan Sara, sem byggist að einhverju leyti á frásögnum Kleu og fjölskyldu hennar, sér Ísland að ýmsu leyti með öðrum augum en krakkarnir í kringum hana sem hafa alist hér upp. Hún vekur til dæmis athygli á því að Íslendingar setji tómatsósu á allt og þykir það frekar skrítið. Lesendur geti samsamað sig „Ég held að það sé gríðarlega mik- ilvægt að bækur takist á við allt lit- rófið, hvort sem það á við uppruna eða persónuleika eða hvað sem er,“ segir Bergrún og að það skipti máli að lesendur geti samsamað sig per- sónunum. „Bara hafa þetta sem fjöl- breyttast.“ Í fyrri bókinni um 6.BÖ höfðu krakkarnir ekkert nema símana til að leysa gátuna um hvarf kennara síns. Í skíðaferðalaginu í seinni bókinni fá þau hins vegar ekki að hafa símana hjá sér. „Það er yfirleitt regla á skólaferðalögum að þau séu ekki með snjalltæki og það getur verið krefjandi og skrítið fyrir suma. Mér fannst tími til kominn að taka símana alveg af þeim. Þau eru í það hættulegum aðstæðum að ef þau væru í símasambandi væru þau búin að hringja í lögregluna. En krakk- arnir spjara sig. Nú hafa þau bóka- safn, þar sem eru til dæmis orða- bækur. Það er hægt að bjarga sér öðruvísi en með símunum.“ Bergrún lýsir heimi krakkanna vel og veltir upp ýmsum vanda- málum sem geta komið upp á þess- um aldri. Hún þekkir líka ágætlega til. „Ég hef unnið heilmikið með krökkum, hef lagst í mikla rann- sóknarvinnu og svo á ég tíu ára strák.“ Rosalega svart og hvítt Það hefur vakið eftirtekt Berg- rúnar hvað krakkar á þessum aldri geta verið fljótir að mynda sér skoð- un á bekkjarfélögunum. „Í grunn- skólanum er allt rosalega svart og hvítt,“ segir hún. Þar geti maður verið fljótur að fá á sig einhvern stimpil sem maður losnar ekki við. „Það er kannski boðskapurinn í bók- inni að enginn sé bara eitthvað eitt.“ Bergrún nefnir að meira að segja sú persóna sem standi á bak við mannshvörfin sé ekki bara illmenni. „Við erum öll alls konar og við eigum neikvæðar og jákvæðar hliðar. Vin- sælasti strákurinn er kannski að glíma við eitthvað sem við getum ekki séð. Það eiga sér allir einhverja baksögu.“ Henni finnst við mega vera dug- legri að kynnast fólki og kafa undir yfirborðið. „Við verðum að gefa fólki smá svigrúm til þess að vera alls konar. Við eigum öll góða daga og slæma daga. Við erum bara mann- leg.“ Myndirnar í bókunum eru eftir Bergrúnu sjálfa. „Mér fannst rosa- lega gaman að gera þessa bók því það eru ýmis tæknileg atriði í henni. Til dæmis kemur björgunarsveitin til sögunnar og ég vildi teikna ákveðna björgun og græjurnar sem til þarf. Ég er svo heppin að ein af mínum æskuvinkonum er björg- unarsveitarkona svo hún las allt yfir og við reyndum að finna bestu leið- ina til þess að þetta yrði sem mest sannfærandi. Mér finnst það skipta máli.“ Bergrún undirstrikar einnig veðrið í bókinni með myndunum. „Myndirnar eru allar rosalega drungalegar og kaldar. Það er kannski smá skrítið að vera með svona snjóþunga bók um sumar en ég er að vona að hún hafi þau áhrif, sé svolítið hrollvekjandi.“ Hún minnist þess þegar hún sjálf fór á vídeóleigu ásamt manni sínum og þau leigðu mynd þar sem var gríðarlegt fannfergi. „Þegar við ætl- uðum að fara að skila henni klæddi ég mig í úlpu, vettlinga og húfu og svo opnuðum við dyrnar og áttuðum okkur á því að það var júlí. Við vor- um búin að lifa okkur svo inn í myndina. Mig langar svo að sjá hvort það sama geti ekki gerst ef krakkarnir virkilega leyfa sér að sökkva sér í bókina, að þau upplifi þennan kulda þótt það sé sumar.“ Fyrst og fremst fyrir krakkana Bergrún hefur hlotið verðlaun fyrir bækur sínar, bæði Fjöruverð- launin og Barnabókaverðlaun Guð- rúnar Helgadóttur fyrir Kennarann sem hvarf og Íslensku bókmennta- verðlaunin fyrir Langelstur að eilífu í flokki barna- og unglinga- bókmennta. „Eftir Íslensku bók- menntaverðlaunin líður mér eins og ég sé undir smásjá en ég ætla að reyna að gera þetta eins og ég hef alltaf gert; með einlægnina að leið- arljósi. Á meðan ég skrifa þannig verð ég alltaf sátt. Ég skrifa fyrst og fremst fyrir krakkana. Ef þetta fell- ur í kramið hjá gagnrýnendum og dómnefndum þá er það náttúrlega yndislegt en þau eru ekki markhóp- urinn minn. Krakkarnir eru mark- hópurinn minn og mér finnst það skipta miklu máli.“ Bergrún segist fá góð viðbrögð frá börnum, til dæmis hafi ungur aðdáandi, fimm ára stelpa, hringt í sig um daginn og lýst því hvað henni þætti skemmtilegt hvað bækurnar væru óhugnanlegar. „Mér finnst svo gaman að heyra það beint frá krökk- unum hvað þeim finnst bækurnar spennandi. Þá veit ég að þetta virkar.“ Farið er að bera á eftirspurn eftir þriðju bókinni meðal ungra aðdá- enda. „Nú er þess krafist að ég fari inn í hausinn á Fannari, sem er reyndar ein af mínum uppáhalds- persónum. Ég var til dæmis að kenna ritlistarnámskeið um daginn þar sem voru fimmtán nemendur og þau vildu öll fá Fannar í söguhetju- sætið næst. Þannig að við sjáum hvað gerist.“ Með einlægnina að leiðarljósi  Barnabókin Kennarinn sem hvarf – sporlaust! eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur er komin út  Byggist á frásögnum albanskrar fjölskyldu  „Mikilvægt að bækur takist á við allt litrófið“ VIÐTAL Ragnheiður Birgisdóttir ragnheidurb@mbl.is „Ég hef haft bak við eyrað að sýna Ísland eins og það er í bókunum mín- um og að sem flest börn geti speglað sig í sögupersónunum,“ segir rithöf- undurinn og teiknarinn Bergrún Íris Sævarsdóttir. Hún gaf nýverið út barnabókina Kennarinn sem hvarf – sporlaust! sem er framhald hinnar vinsælu bókar Kennarinn sem hvarf. Þetta eru spennandi sögur um bekkjarfélagana í 6. BÖ. Fyrri bókin átti upphaflega að standa stök en það breyttist þegar höfundurinn var hálfpartinn krafinn um framhald og fyrirmynd að nýrri aðalpersónu birt- ist. Bergrún heimsækir gjarnan skóla og les upp úr bókum sínum. Í einni slíkri heimsókn gaf stelpa sig á tal við Bergrúnu sem hún segir hafa brosað sínu breiðasta og verið ánægða með að ein persónan í Kenn- arinn sem hvarf sé frá Albaníu því þaðan sé hún sjálf. Stúlkan reyndist heita Klea og hafa komið hingað sem hælisleitandi ásamt foreldrum sínum og yngri bróður, Kevin. Bergrún fór þá að velta fyrir sér hvort þessi sögupersóna frá Albaníu mætti ekki fá meira pláss, hún hafi þegar verið farin að hugsa um að leyfa öðrum krakka í bekknum að segja söguna. Hún setti sig í sam- band við fjölskylduna, kynntist henni vel og fékk að heyra sögu hennar. Ekki löngun heldur nauðsyn „Maður hefur gert sér í hugarlund að fólk vilji vera á Íslandi af því það sé einhvern veginn betra en heima- landið en í þeirra tilfelli er þetta ekk- ert spurning um löngun heldur nauð- syn,“ segir Bergrún. Staðan sé einfaldlega sú að hér á landi geti son- ur þeirra fengið lyf við lungna- sjúkdómi sem eru ófáanleg í heima- landinu. „Saga þeirra er alveg ótrúlega merkileg. “ Það er margt við heimalandið sem þau sakna. „Þau áttu mjög fallegt Fögnuður Klea og Kevin ásamt foreldrum sínum Kastriot og Xhuliu og barnabókahöfundinum Bergrúnu Írisi í útgáfuhófinu þar sem var skíðaferðaþema.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.