Morgunblaðið - 30.07.2020, Page 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. JÚLÍ 2020
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • Selena undirfataverslun
Ný sending af
aðhaldssundbolum
Höfum opnað netverslun
www.selena.is
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Í dag eru liðnar fjórar vikur síðan
borgarráð tók ákvörðun um að
battavöllur við skóla Ísaks Jóns-
sonar skyldi fjarlægður enda óleyf-
isframkvæmd. Nágrannar höfðu ár-
um saman kvartað yfir ónæði frá
vellinum, ekki síst á kvöldin, þegar
„eldri“ iðkendur spila þar fótbolta.
Þegar leitað var skýringa hjá
Reykjavíkurborg hvers vegna ekki
væri búið að fjarlægja völlinn feng-
ust þau svör að málið væri enn í
skoðun. Ekki fékkst upplýst hvað
borgin væri að skoða í málinu.
Hjónin Hermann Jónasson og
Ingibjörg Halldórsdóttir búa í
Skaftahlíð 25, rétt við battavöllinn.
Þau hafa lengi barist fyrir því að
völlurinn yrði fjarlægður og sendu
inn mótmæli þegar til stóð að festa
völlinn í sessi með breytingu á
deiliskipulagi.
Ingibjörg tjáði Morgunblaðinu
að íbúarnir í næstu húsum við völl-
inn væru orðnir langeygir eftir því
að ákvörðun borgarráðs yrði fylgt
eftir og völlurinn fjarlægður.
Ónæðið af boltaleikjum hefur
haldið áfram. Í góða veðrinu um
síðustu helgi var mikið spilað og
varla vært útivið. Boltar lentu
ósjaldan inni á lóðinni og á bílum á
bílastæði og einn bolta fékk Ingi-
björg í öxlina þegar hún var úti í
garði að vökva.
Ingibjörg sagði að þau hjónin
hefðu fengið bréf frá borginni um
ákvörðun borgarráðs. Þegar ekkert
bólaði á mönnum til að taka niður
battavöllinn sendi hún fyrirspurnir
á nokkra starfsmenn hjá borginni
en fékk fyrst í stað aðeins sjálfvirk
svör frá þeim sem voru komnir í
sumarfrí. Um síðir fékk hún þau
svör að búið væri að senda eigna-
skrifstofu borgarinnar bréf og hún
hefði einn mánuð til að afgreiða
málið. Enginn frá borginni hefur
haft samband til að biðjast afsök-
unar á þessu máli öllu.
Blaðamaður sendi eftirfarandi
fyrirspurn til borgarinnar:
„Borgarráð ákvað á fundi 2.
júlí s.l. að battavöllur við skóla Ís-
aks Jónssonar skuli víkja. Hvenær
hyggst borgin ganga í þetta mál?
Og einnig. Í minnisblaði skipu-
lagsfulltrúa kemur fram að mjög
margt hafi farið úrskeiðis við fram-
kvæmd battavallarins. Stendur til
að fara yfir málið innan borgarkerf-
isins og skerpa verkferla?“
Svar borgarinnar var: „Sam-
kvæmt upplýsingum frá umhverfis-
og skipulagssviði er málið enn í
skoðun og verður þetta gert í sam-
ráði við fulltrúa skólans. Þá verður
jafnframt farið yfir ferlið innan
kerfisins og verklag verður skerpt.“
Blaðamaður spurði á ný:
„Hvað er það sem þarf að
skoða varðandi málið? Má skilja
svarið svo að það sé verkefni skól-
ans að fjarlægja völlinn?“
Seinna svar borgarinnar var:
„Málið er enn til skoðunar og
því lítið hægt að segja á þessu
stigi.“
Morgunblaðið/sisi
Battavöllurinn Myndin sýnir vel hina miklu nálægð vallarins og girðingar á lóð Ísaksskóla við húsið Skaftahlíð 25.
Borgin er enn
að skoða málið
Áfram er ónæði
að boltasparki
Ekkert fararsnið á óleyfisvelli
Litlar breytingar eru á milli mánaða
á fylgi stjórnmálaflokka og stuðningi
við ríkisstjórn. Ný könnun MMR
sýnir að fylgi Sjálfstæðisflokksins er
nú 24% og Vinstri-grænna 10,8%,
sem hvort tveggja er nær óbreytt
frá fyrri könnun. Þriðji stjórnar-
flokkurinn, Framsókn, bætir við sig
rúmlega tveimur prósentum og er
nú með 8,6%.
Aðrir flokkar sem bæta við sig eru
Píratar sem fara úr 13,2% í 15,4% og
Sósíalistar sem hækka úr 3,5% í
5,1%. Fylgi Miðflokks mælist 8,4%
sem er nær óbreytt. Þeir flokkar
sem missa fylgi eru Samfylkingin
sem fer úr 16,3% í 13,1% og Viðreisn
sem fer úr 10% í 8,4%. Lestina rekur
Flokkur fólksins með 4%, var síðast
með 5,4%.
Stuðningur við ríkisstjórn mælist
nú 47,7% og jókst um nær tvö pró-
sentustig.
Könnunin fór fram á tímabilinu
23.-28. júlí síðastliðinn og svarfjöld-
inn var 951 einstaklingur.
Morgunblaðið/Hari
Fylgi flokka Könnun MMR sýnir
litlar breytingar á milli mánaða.
Litlar sveifl-
ur í fylgi
flokka