Morgunblaðið - 05.08.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 05.08.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Óseyrarbraut 12, 220 Hafnarfirði | Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla z Árstíðabundinn lager z Lager z Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla z Kæligeymsla z Leiga til skemmri eða lengri tíma Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Jarðböðin á Mývatni hafa getað tekið á móti rétt um fjórðungi þeirra sem vilja koma. Er fjöldatak- mörkunum og tveggja metra reglu þar um að kenna, en mikil ásókn hefur verið í jarðböðin síðustu vik- ur. Að sögn Guðmundar Þórs Birgis- sonar, framkvæmdastjóra fyrir- tækisins, hefur eftirspurnin verið vonum framar. „Þetta er betra en menn þorðu að vona þannig að við erum mjög ánægð. Við höfum þó þurft að takmarka framboðið hjá okkur vegna sóttvarnareglna sem hefur takmarkað þann fjölda sem hingað getur komið. Við erum að taka á móti kannski 25% þess fjölda sem annars væri að koma, en það er bara ánægja og gleði með að geta haft opið,“ segir Guðmundur, en rétt um 400 manns koma í jarðböðin á degi hverjum. Fyrr í júlímánuði var sá fjöldi rétt um 1.600 á dag og því er ljóst að fyrirtækið verður fyrir umtalsverðu höggi sökum framangreindra reglna. Margir nýta ferðagjöfina Til að laða Íslendinga að hafa for- svarsmenn jarðbaðanna brugðið á það ráð að bjóða landsmönnum helmingsafslátt gegn því að ferða- gjöfin sé nýtt á svæðinu. Að sögn Guðmundar hefur ráðstöfunin gefið góða raun. Þannig hefur heimsókn- um Íslendinga fjölgað svo um mun- ar. „Við fögnum öllum Íslendingum sem ákveða að koma og þeir hafa verið mjög margir. Það er auðvitað talsverður fjöldi að nýta sér tilboðið og fer fjölgandi. Við fórum rólega af stað í byrjun sumars en höfum verið að vaxa mjög mikið frá þeim tíma, bæði í flokki innlendra og erlendra ferðamanna,“ segir Guðmundur. Líkt og önnur fyrirtæki í ferða- þjónustu hafa Jarðböðin á Mývatni ekki farið varhluta af ástandinu. Hefur reksturinn orðið fyrir tals- verðu höggi enda voru nær engar flugsamgöngur hingað til lands fyrr á árinu. Nú bendir margt til þess að önnur bylgja kórónuveirusmita sé í farvatninu. Aðspurður kveðst Guð- mundur áhyggjufullur yfir vetr- inum. „Maður hefur áhyggjur af því hvernig þetta verður. Það mun í raun allt velta á því hvernig til tekst með að halda veirunni í skefjum. Ef það tekst vel þá erum við í ágæt- ismálum,“ segir Guðmundur og bætir við að stærstur hluti kúnna jarðbaðanna á veturna komi erlend- is frá. Af þeim sökum kemur eft- irspurnin til með að ráðast af því hversu viljugir erlendir ferðamenn eru til þess að ferðast. „Það hefur verið meira um erlenda ferðamenn á veturna og þá eru innlendir minna að koma. Við bindum því vonir við að vel takist til í baráttunni.“ Þurfa að vísa fólki frá jarðböðunum  Sökum takmark- ana komast færri að en vilja í jarðböð- unum á Mývatni Jarðböðin Færri komast að en vilja í jarðböðunum á Mývatni. Sökum fjöldatakmarkana og tveggja metra reglu er nú hægt að taka á móti 400 manns á dag. Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is Met var slegið í lánum til bíla- og tækjakaupa einstaklinga hjá Landsbankanum í júnímánuði. Aldrei hefur eins mikið verið lánað í framangreindum flokki, en upp- hæðin nam 1.198 milljónum króna. Vekur slíkt athygli í ljósi þess að á tímabilinu var bylgja heimsfarald- urs kórónuveiru nýyfirstaðin. Að- spurður segir Arnbjörn M. Rafns- son, forstöðumaður bíla- og tækjafjármögnunar Landsbank- ans, að ástæðurnar þar að baki séu margþættar. Þó megi rekja aukn- inguna að mestu til uppsafnaðrar eftirspurnar sem skapaðist í kjölfar faraldursins. 80% vegna notaðra bifreiða „Við fundum fyrir miklum sam- drætti í apríl og svo aftur í maí. Hins vegar tók þetta aðeins við sér um miðjan maímánuð og því skýrist aukningin að hluta af tilfærslu. Fólk hélt að sér höndum á þessum tíma,“ segir Arn- björn. Lán til bíla- og tækjakaupa í júlímánuði voru ekki síður mikil og námu þá rétt um 1.008 milljón- um króna. Er skýringin þar að baki mikil aukn- ing í sölu notaðra bifreiða. Segir Arnbjörn að um 80% af fjármögnun bankans í flokki bíla og tækja megi rekja til notaðra bif- reiða. „Þetta skýrist einvörðungu af aukningu í sölu notaðra bíla. Það kemur kannski til af því að fólk var hvatt til að ferðast innanlands og ákvað þess vegna að endurnýja bíl- inn. Framboð af slíkum bílum er mikið enda eru bílaleigur að skera niður flotana. Mér heyrist á bílasöl- um að það vanti nýlega bíla í sölu,“ segir Arnbjörn og bætir við að sala notaðra bifreiða sé oft á tíðum góð- ur mælikvarði á ástandið í sam- félaginu. Þó sé fyrri hluti þessa árs að mörgu leyti ólíkur sambæri- legum tímabilum síðustu ára. Útlán aukast milli ára Að því er fram kemur í tölum Landsbankans var mestur sam- dráttur í bíla- og tækjalánum í apríl þegar heimsfaraldurinn stóð sem hæst. Eins og sjá má á grafinu hér til hliðar er heildarupphæð lána fyrstu fimm mánuðia ársins álíka há og einungis samanlögð útlán júní- og júlímánaðar. Alls nema heildarlán í umræddum flokki rétt um 4,6 milljörðum króna það sem af er ári. Það er rétt ríflega 21% aukning frá sama tímabili í fyrra. Að sögn Arnbjörns hefur sala not- aðra bifreiða yfirleitt dregist sam- an þegar óvissa ríkir í samfélaginu. Ljóst er að talsverð óvissa ríkir nú þar sem fjöldi fyrirtækja í ferða- þjónustu stendur höllum fæti auk þess sem atvinnuleysi hefur mælst umtalsvert síðustu mánuði. Það virðist þó litlu skipta. „Við höfum alltaf upplifað það að salan dragist saman þegar það er óvissa, til dæmis fyrir kosningar eða í kreppu. Það hefur ekki átt sér stað núna, en neikvæð áhrif gætu komið fram með áframhaldandi óvissu. Ætli það megi ekki rekja aukn- inguna að mestu til tilflutnings frekar en annarra þátta,“ segir Arnbjörn sem tekur fram að inni- stæða sé fyrir kaupunum. „Fólk virðist þurfa að endurnýja bílinn og það eru kannski margir sem ákveða að kaupa nýlega bíla.“ Met slegið í bíla- og tækjalánum  Gríðarlega mikið lánað til bíla- og tækjakaupa einstaklinga  Met slegið í júnímánuði  Uppsöfnuð eftirspurn sökum heimsfaraldurs hugsanleg skýring  Mögulegt að neikvæð áhrif komi fram síðar 359 496 559 353 653 1.198 1.008 Bíla- og tækjalán til einstaklinga árið 2020 Milljónir kr. 1.200 1.000 800 600 400 200 0 Heimild: Landsbankinn janúar febrúar mars apríl maí júní júlí Arnbjörn M. Rafnsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.