Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 Hin árlega Hólahátíð, sem halda átti 15. til 16. ágúst næstkomandi, hefur verið felld niður vegna kórónuveiru- faraldursins. Þó verður messan tek- in upp í kirkjunni og útvarpað viku seinna eins og til stóð. Þetta kemur fram í frétt á kirkjan.is. Hólahátíð er jafnan fjölmenn há- tíð og því talið ástæðulaust að efna til hennar í ljósi samkomubannsins sem miðast nú við 100 manns og tveggja metra nálægðarreglu milli fólks. Hólahátíð átti að þessu sinni að hefjast á laugardagsmorgni með pílagrímagöngu eftir Hallgrímsveg- inum frá Gröf á Höfðaströnd að Hól- um. Á sunnudeginum stóð til að halda tónleika í Hóladómkirkju. Þar átti ennfremur að vera hátíðarmessa klukkan 14 og hátíðarsamkoma á sama stað klukkan 17. Solveig Lára Guðmundsdóttir, vígslubiskup á Hólum, kveðst hafa verið farin að hlakka mikið til hátíð- arinnar en til hafi staðið að mikið yrði um dýrðir enda dagskrá hátíð- arinnar alltaf vönduð og vegleg. Jafnframt vonist hún til að hitta alla að ári og verði faraldurinn þá von- andi að baki. „Ég er mjög leið yfir þessu,“ segir sr. Solveig Lára á vef kirkjunnar, „en þetta var það eina skynsamlega í stöðunni. Þó að reglur ráðherrans gildi aðeins til 13. ágúst verður að hafa í huga að það er mjög mikill undirbúningur hjá fjölda fólks fyrir svona hátíð og því var ekki annað hægt en að fella hana niður.“ sisi@mbl.is Hólastaður Ekkert verður af hinni árlegu Hólahátíð að þessu sinni. Hólahátíð felld niður vegna kórónuveiru  Messan tekin upp í kirkjunni og útvarpað seinna Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Halldóru Þorsteinsdóttur lektor í embætti dómara með fasta starfs- stöð við Héraðsdóm Reykjaness frá 1. ágúst 2020. Fimmtán sóttu um embættið þegar það var auglýst í maí sl. Þá hefur Ingi Tryggvason lög- maður jafnframt verið skipaður í embætti dómara við sama dómstól frá 31. ágúst 2020. Fjórtán sóttu um það embætti en það var einnig aug- lýst í maí. Fram kemur á vef dómsmála- ráðuneytisins, að Halldóra Þor- steinsdóttir lauk lagaprófi frá Há- skóla Íslands árið 2010 og hefur síðan þá m.a. starfað sem aðstoð- armaður dómara við Hæstarétt Ís- lands 2014-2017 og sem lektor við lagadeild Háskólans í Reykjavík frá 2017. Þá hefur hún gegnt starfi for- manns áfrýjunarnefndar neytenda- mála og ritað fræðigreinar á ýmsum sviðum lögfræðinnar. Ingi Tryggvason lauk lagaprófi frá Háskóla Íslands árið 1989 og hefur m.a. starfað sem fulltrúi við Héraðsdóms Vesturlands 1994-1998 og á því tímabili verið í nokkur skipti settur héraðsdómari. Frá árinu 1999 hefur hann rekið eigin lögmannsstofu og fasteignasölu og samhliða því sinnt ýmsum stjórn- sýslustörfum. Tvö skipuð í embætti héraðsdómara Halldóra Þorsteinsdóttir Ingi Tryggvason Sighvatur Bjarnason sighvaturb@mbl.is Í ár eru 75 ár liðin frá því að kjarn- orkusprengjum var varpað á jap- önsku borgirnar Hiroshima og Nagasaki. Árásanna hefur verið minnst með kertafleytingu hér á landi frá árinu 1985, en vegna reglna um fjöldatakmarkanir verð- ur minningarathöfn ekki með hefð- bundnu sniði þetta árið. Að sögn Stefáns Pálssonar, eins forsvarsmanna samstarfshóps frið- arhreyfinga, hefur hin árlega athöfn jafnan verið vel sótt, þótt veður og ástand heimsmála hafi ráðið nokkru þar um. Fáeinir talsmenn samtak- anna munu koma saman í óform- legri en táknrænni athöfn við bakka Tjarnarinnar. Sigurður Skúlason leikari mun fara með minningarorð, ásamt því sem fáeinum kertum og blómum verður fleytt. Athöfnin verður tekin upp og gerð almenn- ingi aðgengileg sólahring síðar á heimasíðunni friður.is. Tímasetn- inguna ber upp á þann rauntíma sem sprengjunum var varpað fyrir 75 árum, en vegna tímamismunar er dagsins jafnan minnst þann sjötta ágúst ár hvert. Mikil þörf á árvekni Stefán segir að með athöfninni sé ekki eingöngu verið að minnast sagnfræðilegs viðburðar, heldur sé einnig verið að halda á lofti kröf- unni um afnám kjarnorkuvopna, sem hann telur að séu síst minni ógn núna en á dögum kalda stríðs- ins. Hann bendir á að stórveldin hafi kynnt áform um eflingu kjarnorku- vopnabúra. Þar fari Rússar fram ásamt aðildarríkjum Atlantshafs- bandalagsins í þróun á nýjum teg- undum kjarnavopna sem hafi aðra getu og tilgang en hin hefðbundnu. Þannig megi skynja nýja tegund hugmyndafræði um að þeim megi beita á afmarkaðan hátt í hefð- bundnum stríðsrekstri, án þess að til þurfi að koma keðjuverkun sem leiða myndi til tortímingar mann- kyns í allsherjarkjarnorkustríði. Ákall um afvopnun er því miður jafn brýn og áður segir Stefán. Rafræn kerta- fleyting á netinu  75 ár liðin frá kjarnorkuárás á Japan  Krafan um afvopnun brýn sem áður Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Friðarkrafa Ekki verður af hefðbundinni fleytingu í ár vegna sótt- varnafjöldatakmarkana en táknræn athöfn verður þess í stað sýnd á netinu. Brúðargjafir Kartell planet borðlampi 54.900,- Mette Ditmer Butterfly púði Frá 6.490,- Bialetti Moka Espress kaffikanna 9 bolla 6.990,- Dutchdeluxes skurðarbretti 34x78cm reykt eik. 15.990,- Robert Welch tertusett 5.990,- Vorhús Garðveisla sængur- verasett 140x200 cm 17.990,- Hekla skúlptúr kind stór 29.900,- Aida RAW hnífapara- sett 16 stk. 8.990,- Duka Floramatarstell Specktrum Scarlett vasi 25cm 6.990,- Kahla Update ílangt eldfast mót 32cm 5.990,- Aida Raw tertudiskur 34,5 cm 2.990,- Mette Ditmer Butterfly rúmteppi 240x250 cm 10.900,- 260x250 cm 12.900,- SMÁRALIND – KRINGLAN – DÚKA.IS Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Skiltagerð Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.