Morgunblaðið - 05.08.2020, Qupperneq 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020
TWIN LIGHT RÚLLUGARDÍNA
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
alnabaer.is
Bókhald & ráðgjöf
- Eignaskiptayfirlýsingar
& skráningartöflur
Numerus – bókhald og ráðgjöf / Suðurlandsbraut 22 / S. 896 4040
Fjöldi fólks sem á rætur að rekja
til Íslands fagnaði Íslendingadeg-
inum á mánudaginn, sem árlega
fer fram í Manitoba í Kanada.
Guðmundur Árni Stefánsson,
sem er nýtekinn við sem ræð-
ismaður Íslands í Winnipeg, segir
að mikið sé lagt í tengslamyndun
milli landanna tveggja.
„Nú verður mitt hlutverk að
sinna þeim tengslum,“ segir Guð-
mundur en í því felast fjölþætt
verkefni, meðal þeirra aðstoð við
kanadíska skiptinema sem hyggj-
ast dvelja á Íslandi.
Fjöldi íbúa sem eiga rætur að
rekja til Íslands kemst nærri íbúa-
fjölda á Íslandi, að sögn Guð-
mundar.
„Enn þann dag í dag er fjöldi
fólks á þessu svæði sem talar ís-
lensku,“ segir hann.
Hátíðardagskrá fór fram á
mánudaginn þar sem fjallkonan
var krýnd, Anna Stevens, sem á
rætur að rekja til Eyjafjarðar.
Anna, sem er fædd 1923, hefur
búið í Gimli í Manitoba allt sitt líf
en foreldrar hennar fluttu frá
Syðri-Villingadal í Eyjafirði til
Gimlis þegar búferlaflutningarnir
stóðu sem hæst.
Vegna samkomutakmarkana
fóru hátíðarhöldin í ár fram á
samfélagsmiðlum hátíðarinnar þar
sem efnt var til ýmissa viðburða
yfir helgina, svo sem smásagna-
og ljóðakeppni, listasýningar og
tískusýningar svo fátt eitt sé
nefnt.
Saga staðfestu og drifkrafts
„Saga forferða ykkar er saga
staðfestu og drifkrafts.[...] Þessir
Íslendingar vildu leita nýrrar og
betri framtíðar. Þeir horfðust í
augu við erfiðleika, vonbrigði og
stundum jafnvel mistök, en þeir
héldu áfram,“ sagði Guðni Th. Jó-
hannesson, forseti Íslands, í
ávarpi sem streymt var á síðu há-
tíðarinnar, á Íslendingadaginn
sjálfan.
„Þessi viðburður, sem er núna
haldinn í 131. skipti, táknar sterk
tengsl milli okkar, sem teygjast
frá eyjunni okkar til ykkar stóru
heimsálfu,“ sagði hann.
Minnast upprunans á Íslendingadegi
Íslendingadagurinn haldinn hátíðlegur á mánudag Anna Stevens krýnd fjallkona Litlir við-
burðir á samfélagsmiðlum vegna samkomutakmarkana Guðni Th. ávarpaði Vestur-Íslendinga
Skjáskot/Youtube
Fjallkona Anne Stevens var sæmd fjallkonutitlinum. Hún á rætur að rekja
til Syðri-Villingadals í Eyjafirði en hefur búið í Gimli frá barnsaldri.
Ljósmynd/Leif Norman
Útrás Víkingaþorp hafa verið fastur liður á Íslendingadegi í gegnum tíðina,
en ekkert víkingaþorp var í ár sökum kórónuveirunnar.
lagsfulltrúa að framkvæmdin kalli á
rask, svo sem jarðvegsskipti (gróður
fjarlægður) og malbik/steypt stétt
verður brotið upp og fjarlægt. Verk-
inu verður skipt í tvo áfanga. „Fram-
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Skrifstofa framkvæmda og viðhalds
hjá Reykjavíkurborg hefur sótt um
framkvæmdaleyfi vegna hjólastígs á
Eiðsgranda.
Framkvæmdin felst í gerð áfram-
haldandi hjólastígs og tengingar við
núverandi hjólastíg á móts við Boða-
granda og tengingu við núverandi
göngustíg við hringtorg á mótum
Eiðsgranda, Hringbrautar og Ána-
nausta. Þegar verkinu lýkur, sem
væntanlega verður seinna í haust,
verður búið að aðskilja umferð hjól-
andi og gangandi meðfram Eiðs-
granda öllum. Þessi leið er afar vin-
sæl göngu- og hjólreiðaleið.
Alls bárust sex tilboð í verkið og
átti Urð og grjót ehf. lægsta boð, 36,5
milljónir króna. Var það 65% af
kostnaðaráætlun, sem hljóðaði upp á
55,8 milljónir. Umhverfis- og skipu-
lagssvið Reykjavíkurborgar sam-
þykkti að taka tilboði lægstbjóðanda.
Fram kemur í greinargerð skipu-
kvæmdin er í meðallagi umfangsmikil
en mun auka til muna öryggi gang-
andi og hjólandi vegfarenda eftir
Eiðsgranda,“ segir skipulagsfulltrúi.
Gæti ýtrustu varúðar
Skipulagsfulltrúi bendir á að verk-
takinn skuli gæta ýtrustu varúðar við
verkið næst umferð gangandi og hjól-
andi. Merkingar eiga að vera áber-
andi og allt svæðið afgirt með tveggja
metra háum vírnetsgirðingum.
Lengst af var aðeins einn malbik-
aður stígur meðfram Eiðsgrandanum
og hann notaður bæði af göngufólki
og hjólreiðamönnum.
Oft var hætta á ferðum þegar hrað-
skreiðir hjólreiðamenn áttu þarna
ferð um. Fyrir nokkrum árum voru
stígarnir tvöfaldaðir á Seltjarnarnesi.
Í fyrrahaust var svo lagður hjólastíg-
ur frá bæjarmörkum Seltjarnarness
að Boðagranda. Nú verður ráðist í
næsta áfanga verksins.
Morgunblaðið/sisi
Stígur endar Í fyrrahaust var lagður nýr hjólastígur frá bæjarmörkum Sel-
tjarnarness til móts við Boðagranda. Nú verður haldið áfram með verkið.
Nýr hjólastígur
á Eiðsgranda
Umferð gangandi og hjólandi verð-
ur aðskilin þegar framkvæmdum lýkur
„Við bara fylgjumst með og tökum
þetta frá degi til dags, mátum allar
sviðsmyndir og högum okkur í sam-
ræmi við það sem verður leyft á
þessum tíma. Við ætluðum að fara
af stað með 10 daga dagskrá 13.
ágúst en eins og útlitið er núna er
líklegt að það muni eitthvað breyt-
ast. Það liggja engar ákvarðanir
fyrir að svo stöddu,“ segir Arna
Schram, sviðsstjóri menningar- og
ferðamálasviðs Reykjavíkurborgar.
Óvíst er hvort og með hvaða hætti
menningarnótt verði haldin í ár í
ljósi hertra aðgerða vegna kór-
ónuveirunnar.
Tilkynnt var í gær að Músíktil-
raunum í ár hafi verið aflýst.
Óvissa um menningarnótt vegna veirunnar