Morgunblaðið - 05.08.2020, Page 20

Morgunblaðið - 05.08.2020, Page 20
20 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020 60 ára Helga er Reyk- víkingur, hjúkr- unarfræðingur, ljós- móðir, NLP-meðferðar- og markþjálfi og er með BA í myndlist. Helga er andlegur markþjálfi og frum- kvöðull SMILER, sem er gripur sem minnir á að við erum máttugir skaparar og að brosa þegar á móti blæs. Börn: Birgir Sverrisson, f. 1983, og Tara Sverrisdóttir, f. 1990. Foreldrar: Birgir Hólm Björgvinsson, f. 1939, fv. sjómaður á fraktskipum og starfsmaður Sjómannafélags Íslands, og Edda Svavarsdóttir, f. 1941, fv. starfs- maður Búnaðarbankans og Kaupþings. Þau eru búsett í Reykjavík. Helga Birgisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er eins og þú andir léttar í dag. Mundu bara að þú verður að vera sjálfum þér samkvæmur. 20. apríl - 20. maí  Naut Taktu ekki allt bókstaflega sem þú heyrir heldur sannreyndu það sjálfur. En það kemur annar dagur og sjálfsagt að halda þá áfram. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú þarft að vinna í því að ná tök- um á tilfinningum þínum. Og mundu að sá er líka vinur er til vamms segir. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þér vegnar vel ef þú vinnur undir- búningsvinnuna þína. Notfærðu þér það og komdu öllu því í verk sem þú hefur látið reka á reiðanum að undanförnu. Láttu ekkert trufla þig. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þetta er ekki rétti dagurinn til að hanga heima. Reyndu að finna einhvern skilningsríkan til að deila hugsunum þín- um með. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ýmis tækifæri bíða þín handan við hornið. Verkefnin eru kannski erfið við fyrstu sýn, en með áreynslu kemstu vel áleiðis. Gerðu það upp við þig með hverj- um þú vilt verja tímanum. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þótt þú skiljir ekki lífið til fulls er eng- in ástæða til þess að láta hugfallast. Með því ert þú að leggja grunn að betri og tryggari framtíð. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Tími þinn hefur alltaf verið mikils virði. Reiknaðu fólk út og farðu leið- ina þar sem hindranirnar eru fæstar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Mundu að þú getur aldrei gert svo vel að öllum líki. Láttu það eftir þér því að vilji er allt sem þarf til þess að stefna í rétta átt. 22. des. - 19. janúar Steingeit Dagurinn í dag er kjörinn til þess að ræða við yfirmanninn. Mundu að endurgjalda þá greiða sem þér eru gerðir. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Þér gæti fundist einhver vera að senda þér misvísandi skilaboð í dag. Reyndu að finna flöt á samkomulagsleið og fá hann til að ganga hana. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þér hefur tekist bærilega til á árinu og ert fullfær um að stjórna þínum málum áfram. En það er nú einmitt það sem þú verður að gefa þér tíma til. tókust hressilega á í sveitarstjórn- arkosningum en voru þokkalega samtaka þegar velja átti fólk til Al- þingis.“ Þórarinn fór síðan í stjórn Tannlæknafélagsins og var þar for- maður í þrjú ár og var einnig for- maður samninganefndar TFÍ. „Það má segja að tómstundir mín- ar hafi aðallega verið hestamennska. Fjölskyldan var samhent í því og síðan boðin innganga í Lionsklúbb Kjalarnesþings eins og hann hét þá. Hann gekk í Sjálfstæðisfélag Mos- fellinga og varð þar formaður. Hann var síðan formaður í fulltrúaráði Kjalarnesþings og varaformaður í kjördæmisráði Suðvesturkjör- dæmis. „Það voru skemmtilegir tímar og gaman að vinna með öllu þessu frábæra fólki. Mosfellingar Þ órarinn Jónsson fæddist 5. ágúst 1945 í Reykja- vík og ólst upp í Bú- staðahverfinu. „Þar var gott að vera. Hellingur af krökkum, fullt af húsum í bygg- ingu, stillansar og skurðir út um allt. Göturnar voru undirlagðar fyrir fótbolta og stórfiskaleik og svo var hægt að leggjast í langferðir eftir hitaveitustokknum vestur í Öskju- hlíð eða austur í Elliðaárdalinn. Ég var svo heppinn að smitast af berkl- um 7 ára og var bannað að vera í skóla. Ég gat því verið úti í fótbolta allan daginn.“ Þórarinn gekk í Laugarnesskóla, Háagerðisskóla, Breiðagerðisskóla, Víkingsheimilið og síðan Réttar- holtsskóla. Hann varð stúdent frá MR 1966 og þá tók við tannlækn- anám í Vestur-Berlín í Freie Uni- verstität. „Þá var í Berlín fámennur hópur íslenskra námsmanna, innan við 20 manns, en samhentur og nán- ast eins og fjölskylda. Mikið var um að vera í samfélaginu þá. Svokall- aðar stúdentaóeirðir voru daglegt brauð. Mótmæli og átök við lögreglu settu svip sinn á hið daglega líf. Og það kom oftar en ekki fyrir að eftir langan vinnudag í skólanum var far- ið niður á Kúdamm til að fylgjast með látunum. Og helst láta ekki öfl- ugar vatnsbyssur lögreglunnar sópa sér í burtu. En við gerðum meira. Við afrekuðum það að gera ramm- íslenska kvikmynd á erlendri grund, Skuggasvein. Það var svolítið skrítið að vera á grasafjalli í 30 stiga hita en það var gaman. Svo vorum við líka með gott fótboltalið.“ Eftir að hafa lokið prófum 1972 hóf Þórarinn störf hjá Ólafi G. Karlssyni tannlækni á Laugavegi 24. Eftir eitt og hálft ár opnaði hann tannlæknastofu að Laugavegi 25 og þar var Þórarinn þar til hann flutti tannlæknastofuna í Faxafen 14, í Skeifunni þar sem hann er enn að störfum. Þórarinn og fjölskylda bjuggu fyrst í Reykjavík en fluttu í Mos- fellsbæ 1979. Í sveitinni tóku við fé- lagsmál af ýmsum toga hjá Þórarni. Hann sat í stjórn knattspyrnudeild- ar Aftureldingar í nokkur ár og var mikið var um lengri og skemmri hestaferðalög á sumrin með góðum vinum. Svo var það fyrir um það bil tólf árum að það hringdi í mig góður vin- ur og sagði: „Þórarinn , þú ert að fara að syngja með mér í kór , það er æfing í kvöld.““ Þetta var kórinn Vox academica undir stjórn Há- konar Leifssonar. Síðan tók við þátttaka í Stefni og öðrum kórum með Julian Hewlett og nú hefur Þórarinn verið í Óperukórnum í Reykjavík hjá Garðari Cortes í nokkur ár. Samhliða þessu skellti hann sér í söngnám í Söngskólanum Þórarinn Jónsson tannlæknir– 75 ára Ljósmynd/Indriði Þorláksson Í hestaferð Vernharður bóndi í Möðrudal á Fjöllum syngur fyrir hesta og menn í Hvanngili „Í dag er ég ríkur“. Fylgdist með stúdentaóeirðunum Berlínarárin Efri röð frá vinstri: Þórarinn Jónsson, Sigurður Þórðarson, Stefán Einarsson, Jón Björnsson, Indriði Þorláksson og Kjartan Guð- jónsson. Fremri röð frá vinstri: Þórður Vigfússon, Samúel Örn Erlingsson, Björn Kristleifsson, Jón Jónasson og Elmar Geirsson. Tannlæknirinn Þórarinn. Laufey Elsa Þorsteinsdóttir húsmóðir á 65 ára afmæli í dag. Eiginmaður hennar er Friðrik Friðriksson. Þau búa í Reykjavík og eiga fimm börn og fimm barnabörn. Laufey ætlar að njóta dagsins í faðmi fjölskyldunnar og háma í sig vöfflur. Árnað heilla 65 ára 50 ára Andrés Einar er ættaður úr Reykjavík og undan Eyjafjöllum, ólst upp í Reykjavík og Þorlákshöfn, og býr í Kópavogi. Hann er lög- giltur endurskoðandi og annar tveggja eig- enda Löggiltra endurskoðenda ehf. í Kópavogi. Maki: Jóna Þóra Jensdóttir, f. 1972, að- stoðarleikskólakennari og bókari hjá Lög- giltum endurskoðendum. Börn: Kristín Svala Andrésdóttir, f. 1999, Hilmar Andrésson, f. 2002, og Atli Hrafn Andrésson, f. 2006. Foreldrar: Hilmar Andrésson, f. 1941, vél- virki, og Kristín Júlíusdóttir, f. 1946, fv. verslunarkona. Þau eru búsett í Reykjavík. Andrés Einar Hilmarsson Til hamingju með daginn Skólar & námskeið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 14. ágúst 2020 NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA fyrir klukkan 12 þriðjudaginn 11. ágúst. SÉRBLAÐ Í blaðinu verður fjallað um þá fjölbreyttu flóru sem í boði er fyrir þá sem stefna á frekara nám. –– Meira fyrir lesendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.