Morgunblaðið - 05.08.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. ÁGÚST 2020
Enski kvikmyndaleikstjórinn Alan
Parker lést á föstudaginn, 76 ára
að aldri, eftir langvarandi veik-
indi. Parker var meðal virtustu
kvikmyndaleikstjóra samtímans og
hlaut fjölda verðlauna og viður-
kenninga á ferli sínum, m.a. Ósk-
arsverðlaun fyrir kvikmyndina
Midnight Express frá árinu 1978
og tíu árum síðar fyrir Mississippi
Burning. Parker leikstýrði fjölda
annarra merkra kvikmynda og
vinsælla, m.a. Fame frá árinu
1980, Birdy frá 1984, Angel Heart
frá 1987 og Angela’s Ashes frá
1999. Fyrsta kvikmynd hans í
fullri lengd var hin sígilda Bugsy
Malone frá árinu 1976 þar sem
börn brugðu sér í hlutverk fullorð-
inna og þá m.a. glæpamanna.
Kvikmynd hans Pink Floyd: The
Wall er ekki minna þekkt en það
var forsprakki hljómsveitarinnar
Pink Floyd, Roger Waters, sem
skrifaði handritið. Og tónlist-
armyndirnar voru fleiri sem Par-
ker leikstýrði, The Commitments
frá árinu 1991 og Evita frá árinu
1996.
Kvikmyndir Parkers voru sumar
umdeildar og þótti t.d. dregin upp
ansi dökk mynd af Tyrklandi og
réttarkerfinu þar í Midnight Ex-
press og Mississippi Burning var
gagnrýnd fyrir hversu fáir þel-
dökkir væru í aðalhlutverkum en
myndin fjallar um kynþáttahatur í
suðurríkjum Bandaríkjanna.
AFP
Merkur Alan Parker árið 2013.
Alan Park-
er látinn
Myndlistarmarkaður heimsins hef-
ur tekið krappa dýfu síðan heims-
faraldur Covid-veirunnar brast á,
ekki síst sala í galleríum og beint
frá listamönnum sjálfum, auk þess
sem allar stóru listkaupstefnurnar
sem fyrirhugaðar voru á árinu voru
blásnar af. Í samantekt frá öðru
hinna stóru alþjóðlegu uppboðs-
húsa, Sotheby’s, bera stjórnendur
þess sig þó nokkuð vel og segjast
hafa selt listmuni og aðra safngripi
fyrir um 2,5 milljarða dala á árinu,
um 340 milljarða króna, við gjör-
breyttar aðstæður.
Talsmenn Sotheby’s segja töl-
urnar sýna þolgóðan markað þrátt
fyrir veirufaraldurinn. En frétta-
skýrendur, sem vitnað er til í The
New York Times, segja tölurnar þó
sýna um fjórðungs samdrátt í sölu á
uppboðum fyrirtækisins.
Tölurnar sýna að verk fyrir hátt í
300 milljónir dala hafi verið seld á
vefuppboðum, þar sem gripirnir
hafi jafnframt einungis verið sýndir
á netinu en ekki í sýningarsölum
fyrirtækisins, og þá hafi verk verið
seld kaupendum beint, utan upp-
boða, fyrir nær 600 milljónir dala.
AFP
Verðmæt Lítil sjálfsmynd Rembrandts var slegin hæstbjóðanda á einu vef-
uppboða Sotheby’s í liðinni viku fyrir um 2,6 milljarða króna.
Hafa selt safngripi
fyrir um 340 milljarða
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Hópur ungra námsmanna hefur far-
ið um borgina í sumar undir heitinu
Gleðismiðjan og skemmt ýmsum
samfélagshópum á vegum velferðar-
sviðs Reykjavíkurborgar. Þau hafa
meðal annars heimsótt félagsheimili
fyrir eldri borgara, íbúðakjarna og
sambýli.
Þau eru fimm sem standa að
Gleðismiðjunni: Hugrún Elfa Sig-
urðardóttir, Anna Róshildur Bene-
diktsdóttir, Valbjörn Snær Lillien-
dahl, Björk Ásgrímsdóttir og
Valgerður Marija Purusic.
„Við erum með tónlist og alls kon-
ar listasmiðjur og útivist. Við erum
til dæmis búin að vera mikið með
svona náttúrubingó,“ segir Valgerð-
ur Marija. Í náttúrubingói eru spjöld
sem eru eins og hefðbundin bingó-
spjöld nema í staðinn fyrir að þátt-
takendur safni tölum eiga þeir að
finna fyrirbæri sem á vegi þeirra
gætu orðið utandyra. Hlaupari, ský
eða skilti af einhverju tagi eru meðal
þess sem þátttakendur gætu átt að
reyna að reka augun í. Gleðismiðjan
leiðir ferðina um Elliðaárdalinn og
endar ferðina oft hjá rafstöðinni eða
Hinu húsinu og tekur þar lagið. „Það
er rosa mikil stemning í kringum
það,“ segir Valgerður.
Alveg í skýjunum
Valgerður rifjar upp eftirminni-
legt atvik sem stendur upp úr þetta
sumarið í huga hópsins. Þá var
Gleðismiðjan í heimsókn í neyð-
arskýli fyrir heimilislausa karlmenn.
Hún segir hópinn ekki hafa búist við
því að sú heimsókn yrði svona vel
heppnuð og nefnir að nokkrir í hópn-
um hafi verið örlítið smeykir fyrir
fram. „Það endaði á að vera bara
besti staðurinn sem við heimsótt-
um.“
Þar var staddur maður sem kall-
aður er Gummi og reyndist eiga af-
mæli. „Það var afmæliskaka og tekið
rosa vel á móti okkur. Hann er rosa-
lega mikill KK-aðdáandi svo við tók-
um nokkur KK-lög fyrir hann, til
dæmis „Vegbúann“ , og hann fór að
gráta. Honum fannst þetta svo fal-
legt og sagði að þetta hefði verið
besta afmælisgjöf sem hann hefði
fengið. Hann var alveg í skýjunum,“
segir Valgerður.
Gleðismiðjan hefur heimsótt neyð-
arskýlið aftur og var heimsóknin
jafn vel heppnuð. „Við spiluðum til
dæmis „Summer of ’69“ og það var
ótrúleg mikil stemning,“ segir Val-
gerður.
Koma úr öllum áttum
Flestir í hópnum eru í listnámi af
einhverju tagi eða stefna á það. Val-
björn er gítarleikari og er í námi við
Konunglega tónlistarskólanum í Den
Haag. Anna Róshildur stundar nám
á sviðshöfundabraut í Listaháskóla
Íslands. Hugrún spilar á básúnu og
þverflautu og er að klára Mennta-
skólann í tónlist. Björk hefur síðan
nám við LHÍ í haust. Valgerður er
hins vegar að læra íþróttafræði í Há-
skólanum í Reykjavík. „Ég sé um
tölvupóst, bókanir og geri skemmti-
leg myndbönd, og síðan sé ég um
náttúrubingóið og alla útivistina.“
Meðlimirnir fimm sóttu öll um
starfið hvert í sínu lagi og síðan var
þessi bráðskemmtilegi hópur mynd-
aður. „Við komum úr öllum áttum og
þekktumst ekkert fyrir. Svo kom
reyndar í ljós að við Anna og Hugrún
vorum allar í MH á sama tíma,“ seg-
ir Valgerður.
Gleðismiðjan hefur haft í nógu að
snúast í sumar og dagskráin verið
þétt. „Við aðlögum okkur að öllum
hópum. Við höfum verið að fara
virka daga, á kvöldin og um helgar.“
Valgerður segir mikla eftirspurn
hafa verið eftir að fá hópinn í heim-
sókn „Við erum alveg búin að vera að
taka nokkur gigg á dag. Gleðismiðj-
an er mjög vinsæl og það er rosalega
skemmtilegt.“
Gleðismiðjan Valbjörn, Björk, Hugrún Elfa, Anna Róshildur og Valgerður.
Skemmtileg Hópurinn Gleðismiðjan skemmtir með söng í félagsmiðstöð eldri borgara á Vesturgötu.
Besta afmælisgjöfin
Gleðismiðjan fer um borgina og skemmtir hinum ýmsu samfélagshópum
Afmælisveisla í neyðarskýli reyndist vera skemmtilegasta heimsóknin