Morgunblaðið - 21.08.2020, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
B Æ J A R L I N D 1 4 - 1 6 2 0 1 K Ó P AV O G U R S Í M I 5 5 3 7 1 0 0 L I N A N . I S
O P I Ð M Á N T I L F Ö S T U D A G A 1 1 - 1 8 I L A U G A R D A G A 1 1 - 1 6
Nýjar sendingar
sierra borðstofustóll kr. 23.900 lipp skenkur kr. 75.500
Eyþór Arnalds, oddviti sjálf-stæðismanna í borgarstjórn,
benti á það í grein hér í blaðinu í
gær hve dýr rekstur Reykjavíkur-
borgar er miðað við nágrannasveit-
arfélögin. Þetta
skyti skökku við þar
sem stærðar-
hagkvæmni ætti að
hjálpa borginni í
þessum samanburði.
Hann benti á aðværi launa-
kostnaður hjá borg-
inni á hvern íbúa
hinn sami og hjá ná-
grannasveitarfélög-
unum væri hann níu
milljörðum lægri
hjá Reykjavík en nú
er, eða 287 þúsund
krónum fyrir hverja fjögurra
manna fjölskyldu.
Þetta eru sláandi tölur, en hvern-ig má þetta vera? Á því eru ef-
laust ýmsar skýringar en líklega
hægt að draga þær saman í tvö orð;
stjórnleysi og bruðl.
Lítið dæmi um þetta má finna ískýrslu með ársreikningi
borgarinnar fyrir árið í fyrra. Þar
kemur fram að rekstur skrifstofa
miðlægrar stjórnsýslu, sem sagt
skrifstofu borgarstjóra og tengdra
skrifstofa, hafi í fyrra kostað 4,7
milljarða króna.
Sennilega er þó ekki rétt að kallaþetta lítið dæmi, meðal annars
í ljósi þess að þessi kostnaður jókst
um meira en milljarð króna á milli
ára!
Borgin þarf auðvitað skrifstofuyfirstjórnar, en þarf hún að
kosta nær fimm milljarða króna og
þarf kostnaðurinn að vaxa á slíkum
hraða? Varla.
Eyþór Arnalds
Stjórnleysi
og bruðl
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Aron Þórður Albertsson
aronthordur@mbl.is
Ákveðið hefur verið að loka tjald-
svæðinu við Þórunnarstræti á Ak-
ureyri frá og með deginum í dag.
Aldrei hefur tjaldsvæðinu verið lok-
að eins snemma árs. Þetta kemur
fram í tilkynningu á vef Akureyr-
arbæjar.
Þótt svæðinu við Þórunnarstræti
verði lokað gefst ferðalöngum áfram
tækifæri til að gista á tjaldsvæði fyr-
ir norðan. Áfram er opið á tjald-
svæðinu að Hömrum á Akureyri og
verður full þjónusta veitt þar.
Síðustu ár hefur tjaldsvæðið við
Þórunnarstræti lokað um miðjan
september. Hefur talsverð ásókn
verið í svæðið á þessum tíma. Þeir
sem komið hafa á þessum tíma hafa
flestir verið erlendir ferðamenn.
Sökum aðstæðna í þjóðfélaginu var
ákveðið að bregðast við og loka. Var í
því samhengi sérstaklega horft til
takmarkana á komur erlendra ferða-
manna vegna faraldurs kórónuveiru
auk ferðavenja Íslendinga. Skellt
verður í lás dag og verður svæðið ekki
opnað að nýju fyrr en á næsta ári.
Vilji fólk sækja Akureyri heim
benda bæjaryfirvöld á tjaldsvæðið að
Hömrum þar sem nægt pláss á að
vera fyrir alla.
Tjaldsvæðinu verður lokað í dag
Tjaldsvæði við Þórunnarstræti
á Akureyri lokað fyrr en síðustu ár
Ljósmynd/Akureyrarbær
Tjaldsvæði Svæðinu hefur aldrei
verið lokað eins snemma árs.
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Enn stendur til að reyna að fá gerða
afsteypu af verki listakonunnar
Nínu Sæmundsson Spirit of Ac-
hievement (Afrekshugur) og setja
upp í Nínulundi í Fljótshlíð. For-
göngumaður hugmyndarinnar,
Friðrik Erlingsson rithöfundur, sem
situr í menningarnefnd Rangár-
þings eystra, segir öll gögn tilbúin í
höndum sveitarstjórnar, þótt ekki
sé búið að fullfjármagna fram-
kvæmdina. Ef til vill megi kenna
núverandi Covid-rekstrarerfið-
leikum um tafir á því að afsteypa af
verkinu verði sett upp í héraðinu.
Listaverk Nínu hefur verið yfir
aðaldyrum hins glæsilega Waldorf
Astoria-hótels við Park Avenue í
New York frá því að byggingin var
reist í byrjun fjórða áratugar síð-
ustu aldar. Nú stendur yfir endur-
bygging hótelsins og er listaverkið í
geymslu á meðan. Friðrik hefur
verið sambandi við forráðamenn
hótelsins sem tekið hafa erindinu
vel.
Menningarnefnd Rangárþings
eystra hefur látið sér annt um Nínu-
lund. Friðrik segir að nefndin vilji
að sveitarfélagið taki að sér um-
hirðu svæðisins og telji að á því hafi
verið óþarfa seinagangur. Var málið
rætt í nefndinni fyrir nokkrum dög-
um og sveitarstjórn send áskorun
þessa efnis. Friðrik segir að það
hafi verið frænka Nínu, Ríkey Rík-
harðsdóttir, sem haft hafi forgöngu
um að koma Nínulundi upp fyrir
tuttugu árum. Nú sé komið að því
að sveitarfélagið taki verkefnið að
sér.
Vilja fá afsteypu af
verki Nínu Sæm
Nínulundur í
Fljótshlíð verði í
umsjá sveitarfélags
Waldorf Astoria Verk Nínu hefur
verið yfir aðaldyrum hótelsins.