Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 24

Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 70 ára Sigríður fædd- ist í Neskaupstað og ólst þar upp til 5 ára aldurs en síðan í Reykjavík. Hún býr á Selfossi. Sigríður er sjúkraliði og vann bæði á bæklunardeild og húð- og kynsjúkdómadeild Landspítalans. Maki: Magnús Ingvar Þorgeirsson, f. 1949, bílamálarameistari. Synir: Ólafur, f. 1969, Stefán, f. 1972, Þorgeir, f. 1974, Gunnar, f. 1978, og Ás- geir, f. 1985. Barnabörnin eru tólf og langömmubörnin tvö. Foreldrar: Gunnar Guðmundsson, f. 1920, d. 1999, járnsmiður, og Ólöf Sigríð- ur Gísladóttir, f. 1927, d. 2015, húsmóðir. Sigríður Gunnarsdóttir sameinuð í einni ferð, með göngu í náttúru, jógaiðkun, söng, sund í ám, kvennagagnræðum og fallegum mat, frá íslenskum grænmetisbændum, enda tími uppskeru. Dýrmætastar eru skemmtilegar og hversdagslegar stundir með honum Stíg mínum, við erum búin að bar- dúsa margt saman gengið á fjöll, farið og vinum í mat og undirbúa veislur, finnst gaman að prófa nýjar leiðir í matargerð, en á erfitt með að fara eft- ir uppskriftum. „Mér finnst nauðsyn- legt að prófa nýja hluti, er t.d. núna á ukulele-námskeiði og fór um síðustu helgi í draumkennda kvennaferð á Lónsöræfi sem Berglind Björgúlfs- dóttir leiddi. Þar voru áhugamálin S igurlaug Arnardóttir er fædd 21. ágúst 1970 á Fæðingarheimilinu í Reykjavík árið 1970. Hún bjó fyrsta árið með for- eldrum sínum hjá föðurömmu og afa í Vesturbæ Reykjavíkur. Faðir hennar var kennari og á þessum árum tíðk- aðist að kennarar færu út á land að kenna, í boði var ódýrt húsnæði. Þau fluttu á Hvammstanga og síðan í Borgarnes. Fjölskyldan fluttist síðan í Kópavog og þaðan í suðurhlíðarnar í Reykjavík þar sem þau byggðu sér hús. Sigurlaug naut þess að fara á sumrin á Blönduós til móðuömmu og afa. „Það var dásamlegt frelsi að vera í sveitinni og láta ömmu dekra við sig, einnig vakti stórt plötusafn á heim- ilinu mikinn áhuga, þar var grunn- urinn að tónlistaráhuganum lagður.“ Sigurlaug varð stúdent frá Menntaskólanum við Hamrahlíð árið 1990, hún útskrifaðist frá Kennarahá- skóla Íslands árið 1998 með tónmennt sem valgrein. Hún útskrifaðist síðan með meistarapróf frá HÍ í hagnýtri menningarmiðlun árið 2012. Í náminu gerði hún rannsókn á stöðu íslenskra kvenna í tónlistarsögunni og skipu- lagði tónlistarviðburð þar sem sögð var saga „gleymdrar“ íslenskra tón- listarkvenna og tónlist þeirra flutt. Sigurlaug starfaði víða sem kenn- ari, kenndi tónmennt, stýrði söng- leikjum og kenndi samfélagsfræði á unglingastigi. Hún var sýningarstjóri á sýningu sem fjallaði um baráttu- söngva kvenna sem sett var upp í Gallerýi Gróttu í tilefni 100 ára kosn- ingarafmælis kvenna. Sigurlaug hóf störf hjá Landvernd árið 2019 sem sérfræðingur hjá Skólum á grænni grein, en það er leiðandi verkefni fyr- ir öll skólastig í umhverfis og sjálf- bærnimenntun. Helsta áhugamál Sigurlaugar er tónlist. Hún lauk burtfararprófi í klasssískum söng frá Nýja tónlistar- skólanum og hefur sungið með fjölda kóra bæði sem einsöngvari og í hóp m.a. Hamrahlíðarkórnum, Kamm- erkór Seltjarnarneskirkju, kór og kammerkór Dómkirkjunnar og Ljóta kór. Sigurlaug hefur mikinn áhuga á matargerð, elskar að bjóða fjölskyldu í jóga, hjólað vítt og breitt og gert upp 100 ára gamalt hús á Njálsgöt- unni, en líka hangið mikið í sófanum saman að gera ekkert sérstakt, í því liggur ákveðin fegurð.“ Í tilefni afmælisins ætlaði Sigur- laug að halda tónleika með Margréti Arnardóttur harmonikuleikara og Gunnari Hilmarssyni gítarleikara. Sigurlaug Arnardóttir, sérfræðingur hjá Landvernd, kennari og söngkona – 50 ára Á Ítalíu Sigurlaug með móður sinni, börnum, bróður og tengdasyni í tilefni af 70 ára afmæli móður Sigurlaugar. Nauðsynlegt að prófa nýja hluti Fjölskyldan og vinir Sigurvegarar í Sandkastalakeppninni í Holti. Á Njálsgötunni Stígur og Silla. 40 ára Fanney fædd- ist á Akranesi, ólst upp á Hellnum á Snæ- fellsnesi en býr á Akranesi. Hún útskrif- aðist sem sjúkraliði frá Fjölbrautaskóla Vesturlands og er sjúkraliði á lyflækningadeild Heilbrigð- isstofnunar Vesturlands á Akranesi. Fanney situr í stjórn Vesturlandsdeildar Sjúkraliðafélags Íslands. Maki: Ingvar Ragnarsson, f. 1979 ofn- gæslumaður hjá Elkem á Grundartanga. Börn: Stefnir Snær, f. 2000, Laufey María, f. 2003 og Harpa Rós, f. 2010. Foreldrar: Reynir Bragason, f. 1947 og Jónasína Oddsdóttir, f. 1946, fyrrverandi bændur .Þau búa á Akranesi . Fanney Reynisdóttir Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú gætir fengið tækifæri til þess að sýna kunnáttu sem þú felur alla jafna frammi fyrir hópi fólks. Vertu því þol- inmóður. 20. apríl - 20. maí  Naut Sá er vinur er í raun reynist. Byrjaðu á því að leiðbeina þeim og sýndu þol- inmæði. Njóttu hans því þú átt allt það besta skilið. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Gættu þess að halda útgjöld- unum innan skynsamlegra marka og bíddu heldur með kaupin en að stofna til erfiðra skulda. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert skyldurækinn og góður, heldur hurðum fyrir fatlaða, og leiðbeinir týndum sálum. Reyndu að eyða aldrei orku til einskis. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Einhver er aðgangsharður og vill komast nær þér en þú kærir þig um. Mundu bara að hóf er best á hverjum hlut. Hafðu hægt um þig um sinn. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Dagurinn hentar vel til skemmt- anahalda, daðurs og samvista með börn- um. T.d hefur ástin er eitt sinn hafnaði þér, gert þig bæði elskulegri og þolinmóð- ari. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert í góðu skapi og hefur jákvæð áhrif á umhverfi þitt. Foreldri gæti krafist meiri athygli en endranær. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Skipulag og samskipti gera þennan dag fullkominn. Boð til að ferðast auðveldar þér að snerta á nýjum svæðum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert manneskja sem vilt láta hafa svolítið fyrir þér af og til. Færðu þig nær og treystu á hugboð þitt um menn og málefni. 22. des. - 19. janúar Steingeit Brettu upp ermarnar og láttu verða af að gera eitthvað inni á heimili þínu sem hefur dregist aðeins of lengi. Leggðu þig fram við vinnu þína í dag og þá muntu ná árangri á morgun. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Að vera innan um fólk sem trú- ir á þig og hvetur hefur áhrif á viðhorf þitt og þar með hæfileika og framleiðni. 19. feb. - 20. mars Fiskar Smávægilegar breytingar í vinnunni geta leitt til góðs. Gættu því allr- ar varúðar svo þú verðir ekki fyrir tjóni. 60 ára brúðkaupsafmæli eiga í dag, 21. ágúst, Eygló Jóna Gunnarsdóttir og Ingvar Daníel Eiríksson. Demantsbrúðkaup Til hamingju með daginn Boltayddari fyrir teina, rör og öxla

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.