Morgunblaðið - 21.08.2020, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 21.08.2020, Qupperneq 25
„Ég ætlaði að syngja uppáhaldslögin mín á tónleikunum en það verður að bíða betri tíma, þar til Covid líður hjá.“ Fjölskylda Sambýlismaður Sigurlaugar er Stígur Steinþórsson, f. 18.1. 1960, leikmyndahönnuður. Þau eru búsett í Reykjavík. Móðir Stígs er Gerður Sigurðardóttir, f. 2.11. 1940, skrif- stofumaður, býr nú í Reykjavík. Eig- inmaður hennar og stjúpfaðir Stígs var Tryggvi Ólafsson, f. 1.6. 1940, d. 3.1. 2019, listmálari. Faðir Stígs er Steinþór Sigurðsson, f. 14.2. 1933, leikmyndahönnuður. Fyrri makar Sigurlaugar eru Mörður Áslaugar- son, f. 26.3. 1970, framkvæmdastjóri, og Jóhann Kristinsson, f. 2.12. 1961, grafískur miðlari. Börn Sigurlaugar eru Kormákur Marðarson, f. 18.4. 1993, hljóðmaður í Reykjavík, og Hekla Bryndís Jó- hannsdóttir, f. 21.8. 1997, verkfræð- ingur í Reykjavík, maki: Jóhann Ingi Guðmundsson flugumferðarstjóra- nemi. Stjúpbörn Sigurlaugar eru Una Stígsdótttir, f. 28.12. 1982, listakona í Reykjavík, maki: Anik Todd lista- maður; Grímur Stígsson, f. 14.11. 1989, smiður í Reykjavík, maki: Védís Pálsdóttir vöruhönnuður; Kolbeinn Stígsson, f. 29.10. 1992, kokkur í Reykjavík, maki: Hólmfríður Krist- jánsdóttir grafískur hönnuður; Úlfur Stígsson, f. 6.7. 2000, kokkur í Reykjavík; Freyja Stígsdóttir, f. 1.3. 2002, menntaskólanemi í Reykjavík, maki. Bergur Orri menntaskólanemi. Bónusbarnabörn Sigurlaugar eru Óðinn, Æsa, Finnur og Áshildur. Bróðir Sigurlaugar er Guðmundur Ingi Arnarson, f. 26.6. 1979, starfs- maður hjá Össuri, búsettur í Reykja- vík. Foreldrar Sigurlaugar: Hjónin Örn Sigurbergsson, f. 13.12. 1950, d. 19.8. 2001, aðstoðarskólameistari Menntaskólans í Kópavogi, og Krist- ín Jónsdóttir, f. 7.8. 1949, fyrrverandi verslunarmaður, búsett í Reykjavík. Sigurlaug Arnardóttir Sigurborg Þórðardóttir húsfreyja á Markeyri Hjalti Einarson bóndi á Markeyri í Ögursveit Sigurbergur Hjaltason sjómaður og verkamaður í Reykjavík Ingveldur Guðmundsdóttir húsmóðir í Reykjavík Örn Sigurbergsson aðstoðarskólameistari í Reykjavík Theódóra Jakobsdóttir húsfreyja á Vífilsmýrum Guðmundur Mikael Einarsson bóndi á Vífilsmýrum í Önundarfirði Ólafur Þórðarson bóndi á Strandseljum í Ögursveit Valur Sigurbergsson fv. verslunarmaður í Reykjavík Ólafur Hannibalsson blaðamaður í Reykjavík Sólveig Ólafsdótttir húsfreyja á Ísafirði og í Rvík Jakobína Jónsdóttir húsfreyja á Blönduósi Sumarliði Tómason verkamaður á Blönduósi Jón Sumarliðason bóndi á Blönduósi Sigurlaug Valdimarsdóttir húsmóðir og starfsmaður í bakaríi á Blönduósi Sigríður Helga Jónsdóttir húsfreyja á Blönduósi Valdimar Jóhannsson verkamaður á Blönduósi Úr frændgarði Sigurlaugar Arnardóttur Kristín Jónsdóttir fv. verslunamaður í Reykjavík DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 Við Fellsmúla | Sími: 585 2888 „HÉRNA … SEGÐU MÖMMU ÞINNI AÐ VIÐ SÉUM EKKI HEIMA. HÚN TRÚIR MÉR EKKI.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann ... það sem mamma gefur. Í RAUN ER ÉG Í FJARSKA GÓÐU SKAPI ÉG ER EKKI BÚINN AÐ LÁTA ANDLITIÐ VITA ÞESSI MOLDARGÓLF TORVELDA TILFLUTNING Á HÚSGÖGNUM! NÚ? HVERNIG? BORÐIÐ SKAUT RÓTUM! „ÉG ER EKKI SANNFÆRÐUR UM AÐ ÞÚ HAFIR SKILIÐ BJÖRGUNARPAKKANN RÉTT.” ÁBoðnarmiði yrkir Anton HelgiJónsson „Góðkunningjalimru dagsins“ sem hann kallar raunar „Íslenska góðkunningjalimru“ og hefur lög að mæla: Þú færð aldrei sakleysið sannað þótt sérhvert þitt spor verði kannað því að siðvenjan er að sekur telst hver uns samböndin vitna um annað. Hallmundur Guðmundsson yrkir „Tilviljunarljóð“: Þegar Lauga frá Laugabóli laugaði sig í smá skjóli, hjólaði hjá hann Óli frá Ljá á spánnýju hlaupahjóli. Á Leirnum hafa hagyrðingar verið að rifja upp menntaskólaárin og yrkja latínuskotið eða á hreinni latínu, - og leiði ég það hjá mér vegna vankunnáttu minnar. En tek undir með Jóni Helga Arnljótssyni þegar hann yrkir: Nú dotta ættu og draga síðan ýsur, af drykkju sýnast vera meira en hálfir og yrkja sífellt undarlegri vísur, sem ekki veit ég hvort þeir skilja sjálfir. Og þetta þykir mér vel að orði komist hjá Skírni Garðarssyni: „Go dag“: Á ýmsu sem er oss til lofs, enn er á leirnum klifað, en auðvitað skil ég ekki bofs, af því sem ég hefi skrifað. Á Boðnarmiði veltir Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson fyrir sér líf- inu og tilverunni: Dásamlegt lífið en dagar of fáir, dugleysið sannast hér enn. Uppskeran verður sem eigandinn sáir, á það við konur og menn. Það er bjart yfir Guðmundi Arn- finnssyni á sólskinsdegi: Glampaði sól á láði og legi, lét í eyrum fuglahjal, fagnað gat nú góðum degi á gönguför í Mosfellsdal. Og hér yrkir Guðmundur um „Dagslok“: Sól í öllu sínu veldi sígur brátt í hafsins skaut, er á björtum bárufeldi blikar fagurt litaskraut. Enn yrkir Guðmundur og nú um „Heilnæma útivist“: Sundin bláu sólin gyllti, á sumardegi laus við geig loft ég svalg og lungun fyllti, úr lækjarsytru fékk mér teyg. Indriði á Skjaldfönn rifjaði upp vísu um „Viðhorf samferðamanna“ eftir Káinn: Óviljandi aldrei laug oft við Bakkus riðinn, af flestum sem að fælast spaug, fremur illa liðinn. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Upp á grín sekur eða saklaus

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.