Morgunblaðið - 21.08.2020, Side 26
BAKSVIÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Þrír landsleikir eru á dagskrá í
september hjá A-landsliðum karla
og kvenna í knattspyrnu og fara
þeir allir fram á Laugardalsvelli.
Karlalandsliðið tekur á móti Eng-
landi í Þjóðadeild UEFA þann 5.
september og
kvennalandsliðið
fær Lettland í
heimsókn 17.
september og
Svíþjóð þann 22.
september í und-
ankeppni EM
2021.
Leikirnir eru
snúnir í fram-
kvæmd og á pari
við að skipu-
leggja þátttöku Íslands í lokekeppni
HM, að sögn Klöru Bjartmarz,
framkvæmdastjóra KSÍ.
„Við erum búin að vera með
þessa tilteknu landsleiki í undirbún-
ingi nokkuð lengi,“ sagði Klara í
samtali við Morgunblaðið.
„Það er alveg óhætt að segja að
þetta sé með flóknari verkefnum
sem við höfum farið í og í raun á
pari við að skipuleggja þátttöku Ís-
lands í lokakeppni HM.
Allir hitamældir
Til þess að leikirnir geti farið
fram þarf KSÍ að framfylgja
ströngum sóttvarnareglum frá
UEFA sem eru vægast sagt um-
fangsmiklar.
„Eitt af því sem við þurfum að
gera er að hitamæla alla sem koma
inn á leikvanginn og þá skiptir engu
máli hvort um er að ræða þjálfara
enska landsliðsins, Gareth South-
gate, eða bara ljósmyndara sem er
mættur til þess að vinna sína vinnu.
Allir sem munu starfa við leikinn
þurfa að fara í skimun fyrir kórónu-
veirunni og þá meina ég allir, líka
þeir sem keyra rúturnar sem skutla
leikmönnum og starfsliði til og frá
Laugardalsvelli. Þá þarf að tak-
marka allt aðgengi að leikmanna-
svæðinu sjálfu. Þá þarf að huga
mjög vel að allri öryggisgæslu á öllu
svæðinu í kringum Laugardalsvöll
þar sem engir áhorfendur eru leyfð-
ir á leiknum.
Erfitt að færa veggi
Þá ber leikmönnum að virða
tveggja metra regluna í búnings-
klefum KSÍ og það gæti reynst
þrautin þyngri.
„Laugardalsvelli verður skipt upp
í fjögur hólf og við þurfum að skila
ítarlegum teikningum af því hvernig
aðgangur á milli hólfa verði tak-
markaður. Þá þarf að fylgja
ákveðnum tímaramma í hverju hólfi
um það hversu lengi ljósmyndarar
mega vera á svæðinu til dæmis.
Við þurfum líka að stækka bún-
ingsklefana svo hægt sé að virða
tveggja metra regluna. Það er ekki
auðvelt að færa veggi og svo er auð-
vitað stærsta málið í þessu hvernig
við eigum að koma gestaliðunum og
eigin leikmönnum inn í landið.“
Vonast eftir undanþágu
Samkvæmt núverandi sóttvarna-
reglum þurfa allir þeir sem koma til
landsins að fara í fjögurra til sex
daga sóttkví.
„Málið er í vinnslu hjá viðkom-
andi yfirvöldum varðandi undan-
þágur og þá hefur þessi vinnu-
sóttkví verið nefnd sem dæmi. Það
eru fleiri lið sem bíða eftir svari
varðandi þetta, FH og KR sem
dæmi og eins og staðan er í dag bíð-
um við bara róleg eftir svörum.
„Okkar undirbúningur miðast all-
ur við það að þessir landsleikir muni
fara fram hér á landi. Það er alveg
ljóst að ef leikirnir geta ekki farið
fram á Íslandi þá ber okkur skylda
til þess að leigja völl annars staðar
þar sem leikurinn má og getur farið
fram.
UEFA mun þá senda okkur til-
lögur að völlum í löndum þar sem
hægt verður að spila,“ bætti Klara
við í samtali við Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Landsleikur Landsliðskonurnar munu ekki njóta stuðnings áhorfenda í
leikjunum tveimur sem fyrirhugaðir eru á Laugardalsvelli í september.
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020
Hilmar Örn Jónsson kastaði tvíveg-
is yfir 75 metra á Origo-móti FH í
frjálsum íþróttum í Kaplakrika.
Samkvæmt því sem fram kemur hjá
Frjálsíþróttasambandinu þá kast-
aði Hilmar lengst 75,09 metra.
Hilmar er Íslandsmethafi í grein-
inni en metið er 75,26 metrar og er
frá árinu 2019.
Hilmar var því nærri sínum besta
árangri og stendur framarlega í
heiminum í ár með þessu kasti. Er
þetta 19. besti árangurinn í heim-
inum á árinu og sá 17. besti í Evr-
ópu á árinu. kris@mbl.is
Hilmar kastaði
yfir 75 metra
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Methafinn Hilmar Örn virðist lík-
legur til að slá Íslandsmetið.
Handknattleikskappinn Elliði Snær
Viðarsson er genginn til liðs við
þýska B-deildarfélagið Gummers-
bach en þetta staðfesti ÍBV á
heimasíðu sinni í gær.
Elliði Snær er 21 árs línumaður
og uppalinn í Vestmannaeyjum en
Guðjón Valur Sigurðsson, fyrrver-
andi fyrirliði íslenska landsliðsins,
er þjálfari Gummersbach. Hann
hefur verið viðloðandi íslenska A-
landsliðið undanfarin tvö tímabil og
þá hefur hann orðið bæði Íslands-
og bikarmeistari með ÍBV en hann
hefur spilað með liðinu frá 2016.
Elliði til liðs við
Guðjón Val
Morgunblaðið/Hari
Þýskaland Elliði Snær mun reyna
fyrir sér með liði Gummersbach.
Pepsi Max-deild karla
Fjölnir – Víkingur R. ............................... 1:1
Staðan:
Valur 10 7 1 2 22:8 22
Stjarnan 8 5 3 0 16:7 18
Breiðablik 10 5 2 3 23:17 17
KR 9 5 2 2 14:9 17
FH 10 5 2 3 18:16 17
Fylkir 10 5 0 5 16:17 15
Víkingur R. 11 3 5 3 19:18 14
ÍA 10 4 1 5 24:23 13
HK 10 3 2 5 18:23 11
KA 9 1 5 3 6:11 8
Grótta 10 1 3 6 10:21 6
Fjölnir 11 0 4 7 10:26 4
Ítalía
B-deild:
Leikur um sæti í efstu deild:
Spezia – Frosinone .................................. 0:1
Sveinn Aron Guðjohnsen sat allan tím-
ann á varamannabekk Spezia.
Spezia leikur í A-deildinni á næsta tíma-
bili.
NBA-deildin
Úrslitakeppni, 1. umferð:
Boston – Philadelphia ...................... 128:101
Staðan er 2:0 fyrir Boston.
LA Clippers – Dallas........................ 114:127
Staðan er 1:1
Indiana – Miami................................ 100:109
Staðan er 2:0 fyrir Miami.
Houston – Oklahoma.......................... 111:98
Staðan er 2:0 fyrir Houston.
Houston og
Miami eru í væn-
legri stöðu í úr-
slitakeppni NBA-
deildarinnar í
körfuknattleik.
Bæði lið eru 2:0-
yfir í einvígum
sínum í Orlando.
Houston vann
111:98-sigur á
Oklahoma þar
sem Shai Gilgeous-Alexander skor-
aði 31 stig fyrir tapliðið en James
Harden skoraði 21 fyrir Houston.
Þá vann Miami 109:100-sigur á
Indiana þökk sé m.a. góðum leik
Duncan Robinson sem var stiga-
hæstur með 24 stig en Goran Dra-
gic var næstur með tuttugu.
Houston og
Miami standa
vel að vígi
James
Harden
KNATTSPYRNA
Pepsí Max-deild karla:
Würth völlurinn: Fylkir – Stjarnan.....19:15
Vivaldivöllurinn: Grótta – Breiðablik..19:15
3. deild karla:
Þorlákshöfn: Ægir – KFG.........................18
Fagrilundur: Augnablik – Reynir S. ........18
Lengjudeild kvenna:
Ásvellir: Haukar – Fjölnir....................19:15
Víkingsvöllur: Víkingur–Afturelding..19:15
2. deild kvenna:
Hertz-völlurinn: ÍR – Fram .................19:15
Í KVÖLD!
Klara
Bjartmarz
Ein flóknasta fram-
kvæmd í sögu KSÍ
Knattspyrnusambandið þarf að taka á móti fjórum landsliðum í september
Kristján Jónsson
Bjarni Helgason
Ekki ætlar það að ganga vel hjá
kvennaliði KR að komast í gegnum
Íslandsmótið í knattspyrnu í ár.
Leikmenn liðsins og starfsfólkið
virðast vera á leið í sóttkví í þriðja
sinn í sumar eftir að starfsmaður í
kringum liðið smitaðist af kór-
ónuveirunni. RÚV greindi frá þessu
í gær og staðfesti Páll Kristjánsson,
formaður knattspyrnudeildar fé-
lagsins, tíðindin.
Í gærkvöldi áttu KR-konur að
fara á Selfoss og mæta Selfyssingum
í leik sem átti að vera í 5. umferð
Pepsí Max-deildarinnar. Hafði hon-
um áður verið frestað í júní og var
aftur frestað í gær.
Bæði KR-liðin gætu því þurft að
vera í sóttkví á næstu dögum því
leikmenn karlaliðsins eru í sóttkví
eftir Skotlandsförina en liðið keppti í
Glasgow gegn Celtic í Meistaradeild
Evrópu á þriðjudagskvöldið.
Kvennalið KR fór í sóttkví eftir
leik Breiðabliks og KR þar sem leik-
maður Breiðabliks var með veiruna.
Þá þurfti liðið einnig að fara í
sóttkví á dögunum eftir að smit
greindist hjá aðila sem var tengdur
liðinu.
Ingunn Haraldsdóttir, fyrirliði
KR, er því á leið í sína fjórðu sóttkví
á sex mánuðum en hún þurfti einnig
að fara í sóttkví í mars þegar hún
sneri aftur til landsins frá Malaví
þar sem hún tók þátt í skólaverkefni
á vegum læknadeildar HÍ.
„Við erum í raun bara búnar að
vera að meðtaka þessar fréttir í
morgun. Að sama skapi vitum við
hvað við erum að fara út í sem er já-
kvætt en ég get alveg viðurkennt
það að þetta er ákveðið sjokk að
vera að lenda í þessu í þriðja skiptið
núna á tveimur mánuðum og maður
orðinn hálfgerður reynslubolti í
þessu öllu saman,“ sagði Ingunn
meðal annars í samtali við mbl.is í
gær en þar er að finna lengra spjall
við hana um þá stöðu sem upp er
komin.
Fyrirliðinn í sóttkví í fjórða sinn
Ekki á af KR-liðinu að ganga Á leið í sóttkví vegna kórónuveirunnar í þriðja
sinn á tveimur mánuðum Leiknum gegn Selfyssingum frestað fyrir vikið í gær
Morgunblaðið/Eggert
Skallaeinvígi Ingunn Haraldsdóttir stekkur hæst í leik KR og Vals.
Handboltamað-
urinn Daníel Örn
Griffin er geng-
inn til liðs við
Gróttu en Sel-
tirningar sögðu
frá því á heima-
síðu sinni í gær.
Daníel kemur frá
KA og skrifaði
undir tveggja
ára samning við
nýliðana sem leika í efstu deild í
vetur.
Hann er uppalinn hjá ÍBV í Vest-
mannaeyjum og á að baki fjölda
landsleikja fyrir yngri landslið Ís-
lands. Hann er örvhent skytta og
þykir öflugur varnarmaður.
Daníel Örn til
liðs við nýliða
Gróttu
Daníel Örn
Griffin