Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 21.08.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 2020 » Árleg listahátíð í franska bænum Nantes sem nefnist Voyage a Nantes var sett fyrr í þessum mán- uði og stendur í tvo mánuði. Fjöldi lista- manna, arkitekta, hönn- uða og garðyrkufræð- inga setja svip sinn á bæinn með verkum sín- um sem öll eru unnin í opinberum rýmum og ætluð almenningi til yndisauka. Meðal þess sem fyrir augu ber eru vatnslistaverk þar sem snúið er upp á skynjun áhorfenda. Listahátíðin Voyage a Nantes hafin í Frakklandi AFP Foss Listaverkið Rideau eða Tjald eftir Stephane Thidet setur svip sinn á Graslin-leikhúsið í Nantes. Listamað- urinn lætur vatn falla fram af byggingunni og býður vegfarendum að ganga í gegnum vatnsúðann. Snúið upp á hefðina Listaverkið Fontaine eða Gosbrunnur eftir Elsa Sahal kallast á við gosbrunninn sem fyrir er á Konunglega torginu í Nantes. Tónlistarmaðurinn Logi Pedro sendir í dag frá sér plötuna Undir bláu tungli og er það önnur breið- skífa hans en sú fyrsta, Litlir svart- ir strákar, kom út sumarið 2018. Hlaut sú góðar viðtökur og til- nefningar til Íslensku tónlistar- verðlaunanna. Undir bláu tungli var hljóðrituð í Síerra Leóne í Vestur-Afríku og einnig á Íslandi, að því er fram kemur í tilkynningu. „Haustið 2018 og vorið 2019 fór Logi Pedro í upp- tökuverkefni á vegum Aurora Foundation til Síerra Leóne. Þar stýrði hann upptökum á nokkrum lögum með breskum (Nabihah Iqbal, Brother Portrait), íslenskum (Hildur, Cell7) og síerraleónskum (Drizilik) tónlistarmönnum. Þau lög komu út á síðasta ári á safnplötunni Osusu,“ segir um tilurð plötunnar. Í ferðinni kynntist Logi nútíma- legri afrískri popptónlist, sem í daglegu tali er kölluð Afrobeats eða Afropop og úr varð íslensk poppplata, runnin undan rifjum afrískrar popptónlistar, segir þar einnig. Platan er sögð bragðarefur íslenskrar og afrískrar menningar og snerta jafnt á íslenskri dægur- menningu sem og á afrískum upp- runa Loga sem á ættir að rekja til Angóla. Logi Pedro sá sjálfur um upptökustjórn en naut liðsinnis Magnúsar Jóhanns Ragnarssonar og Arnars Inga Ingasonar við tvö lög en Sæþór Kristjánsson sá um hljóðblöndun. Platan er gefin út af Les Freres Stefson og dreift af Sony Music Denmark. Önnur breiðskífa Loga Pedro komin út Platan Logi með norrænan krossfána í pan-afrísku litunum á umslagi plötunnar. Bandaríski leikarinn Cuba Gooding Jr. er sakaður um að hafa nauðgað konu í tvígang á hótelherbergi í New York 2013. Þetta kemur fram málsgögnum einkamáls sem höfðað var gegn honum í vikunni. Þar kemur fram að konan hafi hitt Gooding á bar og verið boðið að fá sér drykk með honum á nærliggjandi hóteli. Þegar þangað var komið sagðist leikarinn þurfa að skipta um föt og bauð konunni með sér upp á hótelherbergi sitt þar sem ofbeldið á að hafa átt sér stað. Lögmaður leikarans segir ekkert til í ásökununum. Í frétt BBC kemur fram að að- eins er ár síðan þrjár konur kærðu Gooding fyrir að þukla á þeim á skemmtistað í New York, en réttarhöldum vegna þess máls var frestað í vor vegna kórónuveirufaraldursins. Sakaður um nauðgun fyrir sjö árum Cuba Gooding Jr. Samtök kvikmyndaleikstjóra í Bretlandi hvetja félagsmenn sína til að sækja sér innblástur í klass- ískum kvikmyndum á borð við Casablanca til að sýna nánd persóna í kvikmyndum og sleppa alfarið kynlífssenum í myndum sínum meðan kórónuveiru- faraldurinn gengur yfir. Frá þessu greinir The Guardian. Bill Anderson, leikstjóri og einn höfunda nýju tilmælanna, segir að leikstjórar og handritshöf- undar verði að beita skapandi lausnum til að sýna nánd persóna. Hvetur hann listræna stjórnendur til að velta því fyrir sér hvort kynlífssenur séu bráðnauðsynlegar fyrir fram- vinduna. „Nánd er ekki aðeins líkamleg. Hún snýst um gagnkvæmt varnar- leysi, einlægni og traust milli manneskja. Kynlífssena án nándar er klám.“ Beita þarf skapandi lausnum Þrá Humphrey Bogart og Ingrid Bergman í myndinni Casablanca.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.