Morgunblaðið - 21.08.2020, Qupperneq 32
Jaðarlönd/Borderland nefnist sýning á vegum bók-
verkahópsins ARKIR sem opnuð verður í dag í Lands-
bókasafni Íslands – Háskólabókasafni í Þjóðarbókhlöð-
unni. Á sýningunni má sjá bókverk 16 listamanna frá
sjö löndum, þ.e. Íslandi og sex öðrum. Titill sýning-
arinnar vísar til heima á jaðri veraldar, jaðri sem er,
þegar að er gáð, síbreytilegur í veraldarsögunni, eins
og því er lýst í tilkynningu. Í fjölbreyttum bókverkum
skoða listamennirnir lönd og mæri, texta og tungumál,
náttúru og menningarheima frá ólíkum sjónarhornum.
Sýningin er annars vegar samsett úr nýlegum verkum
sem eingöngu hafa verið í sýnd í Bandaríkjunum á far-
andsýningunni Borderland og hins vegar úr nýjum og
eldri bókverkum Arka og gesta þeirra frá sex löndum.
Bókverk 16 listamanna á sýningu
FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 234. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
„Við erum búin að vera með þessa tilteknu landsleiki í
undirbúningi nokkuð lengi. Það er alveg óhætt að segja
að þetta sé með flóknari verkefnum sem við höfum far-
ið í og í raun á pari við að skipuleggja þátttöku Íslands í
lokakeppni HM,“ segir Klara Bjartmarz, framkvæmda-
stjóri KSÍ, meðal annars í samtali við Morgunblaðið í
dag um landsliðsverkefnin sem framundan eru í sept-
ember en þá eiga A-landsliðin tvo heimaleiki hvort.
Klara lýsir í samtalinu viðamiklum aðgerðum sem ráð-
ast þarf í til að leikirnir geti farið fram. »27
Ein flóknasta framkvæmd í sögu
Knattspyrnusambands Íslands
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Guðjón Ragnar Jónasson, nýr for-
stöðumaður háskólagáttar og sí-
menntunar Háskólans á Bifröst í
Norðurárdal í Borgarfirði, hefur að
undanförnu kynnt sér gönguleiðir út
frá Bifröst með útgáfu fyrir íbúa á
svæðinu í huga. „Leiðarlýsingin er
liður í því að byggja upp sterka sí-
menntunar- og nemendamiðstöð en
líka mín leið til að leiðrétta líf mitt
og fara að stunda einhverja hreyf-
ingu.“
Guðjón er í ársleyfi frá Mennta-
skólanum í Reykjavík, þar sem hann
hefur verið íslenskukennari undan-
farin 11 ár. „Mér hefur alltaf líkað
vel í MR og þar er gott að vera en
kennitala mín var farin að minna á
sig og mig langaði að breyta til áður
en hún úreltist,“ segir hann um
flutninginn í sumar. Hann er bú-
fræðingur frá Hvanneyri og þekkir
ágætlega til í Borgarfirði.
Fyrir tæplega ári kom út bókin
Kindasögur eftir Guðjón og Aðal-
stein Eyþórsson og Kindasögur 2 er
farin í umbrot. „Ég er sveitamaður í
hjarta mínu, á sterkar rætur í dreif-
býlinu og þegar ég fór um landið í
fyrra til þess að lesa upp úr bókinni
fann ég hvað sveitin var sterk í sálu
minni.“
Gott að hleypa heimdraganum
og flytja úr miðbæ Reykjavíkur
Undanfarna tvo áratugi hefur
Guðjón búið í gamla miðbænum í
Reykjavík. „Heimsmynd mín hefur
að miklu leyti markast af Melabúð-
inni í vestri og Sundhöllinni í austri
og þess vegna hef ég gott af því að
hleypa heimdraganum. Í gamla daga
hljóp ég bara á fjöll á eftir kindum
en nú er ég farinn að njóta náttúr-
unnar í auknum mæli.“
Guðjóni kom á óvart hvað gott er
að búa á Bifröst. „Svæðið er svo ró-
legt og fallegt og það er engin til-
viljun að Samvinnuskólinn hafi verið
fluttur hingað 1955,“ leggur hann
áherslu á. Samfélagið sé sterkt, þó
færri búi á staðnum en áður þegar
boðið hafi verið upp á fullt staðnám,
en það horfi vonandi til bóta. „Hug-
myndin er að fólk geti búið hérna,
ekki síst fólk með börn, stundað nám
sitt og unnið með ef vill. Mín sýn er
að hér muni þróast öflugt nám, bæði
stað- og fjarnám, og boðið verði upp
á nýjar brautir, sem byggi á menn-
ingu og sögu svæðisins.“
Efla stoðirnar
Margrét Jónsdóttir Njarðvík er
nýr rektor Háskólans á Bifröst. Í
samtali við blaðamann Skessuhorns
fyrir skömmu sagði hún mikilvægt
að halda áfram uppbyggingu há-
skólanámsins, fjölga íbúum á Bifröst
og efla þannig stoðir samfélagsins.
Guðjón tekur undir orð hennar og
segist leggja mikla áherslu á að
tengja Bifröst við samfélagið í
grennd. Meðal annars hafi rektor
ákveðið að endurvekja boð á aðvent-
unni fyrir íbúa í nærliggjandi sveit-
um. Kennarar séu mannréttinda-
frömuðir og eigi að opna öðrum
hópum leiðir til náms. „Draumur
minn er að opna fólki með íslensku
sem annað mál, hópum sem ekki
hafa fengið tækifæri til framhalds-
náms, dyr að háskólanámi hérna.“
Guðjón áréttar að svæðið sé frá-
bært til útivistar. Hann bendir á að
umhverfið og gott skólahúsnæði sé
kjörið fyrir símenntun enda vilji
hann byggja upp góða símenntunar-
miðstöð. Auk þess henti það vel fyrir
margs konar starfsemi eins og til
dæmis nýsköpunar- og sprotafyrir-
tæki. „Með allt þetta í huga byrjaði
ég að skrifa leiðarlýsingu á göngu-
leiðum héðan frá Bifröst. Héðan eru
þjóðleiðir til allra átta.“
Morgunblaðið/Steinþór Guðbjartsson
Á Bifröst Guðjón Ragnar Jónasson segir að allar leiðir liggi þangað og það-
an og gönguleiðir, sem séu í fallegu umhverfi, styrki svæðið.
Leiðarlýsing Guðjóns
liður í uppbyggingunni
Blásið til sóknar á Bifröst með símenntunarmiðstöð