Ægir - 2019, Page 11
11
Víða samdráttur
„Núna erum við með Friðrik
Sigurðsson, Sæfara og Þrist á
þessum veiðum. Við kaupum
líka sæbjúgu af Ebba AK. Við
höfum því verið að taka nokk-
uð mikið í gegn og í fyrra
voru það um 4.000 tonn. Þetta
hefur því skipt miklu máli hjá
okkur síðustu árin og því
kemur samdrátturinn núna
töluvert við okkur. En það er
víða samdráttur. Humarinn er
týndur og sárt er að vita til
þess. Rækjuveiðar hafa hrun-
ið. Einu sinni var veiði milli
60.000 og 70.000 tonn. Nú er
hún um 5.000 tonn og svo
virðist loðnan vera að yfir-
gefa okkur. Það er því víðar
en í sæbjúgunum sem er dá-
góð niðursveifla. Svo ofvernd-
um við þorskinn.
Svo kemur Hafró til sög-
unnar. Maður er nú ekki alveg
sammála þeim um niðurskurð-
inn á aflaheimildum eins og
hann hefur verið ákveðinn.
Það er allt í lagi að hlífa
Faxaflóanum um tíma en við
teljum að mikið sé um vannýtt
svæði víða annars staðar og
þar mætti sækja meiri afla.
Þeir eru að mínu mati of var-
kárir í þessum efnum.“
■ Hafnarnes Ver hefur veitt og unnið sæbjúgu í rúmlega áratug.
Sæbjúgnaveiðar
AVS rannsóknasjóður hefur að markmiði að styrkja verkefni, sem stuðla að auknu verðmæti
ís lensks sjávarfangs og styrkja samkeppnishæfni ís lensks sjávarútvegs og fiskeldis. Sjóðurinn
aug lýsir nú eftir umsóknum í verkefni 2020 með þetta að mark miði. Skilafrestur umsókna er
til kl. 20, 2. des ember 2019. Umsóknum ber að skila rafrænt á net fangið avs@byggdastofnun.
is og bréflega á póst fangið Byggðastofnun v/AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi, Ártorgi 1,
550 Sauðárkrókur. Vakin er at hygli á því að umsóknum þarf bæði að skila raf rænt og bréflega.
Styrkir sem sjóðurinn veitir
falla undir tvo flokka:
a. Styrkir til rannsókna- og þróunarverkefna
Styrkir til afmarkaðra rannsókna- og/eða þró unar-
verk efna, sem falla að markmiðum sjóðs ins. Veittur
er styrkur til eins árs í senn og skal í umsókn gera
grein fyrir verk þáttum og fjár mögnun. Hver styrkur
getur numið allt að tólf milljónum króna. Hægt er að sækja um styrki til umfangsmeiri verk-
efna (fram haldsverkefna), sem unnin eru á lengri
tíma, eða allt að þremur árum, en sækja þarf um
styrk á hverju ári. Hafi verk efnið áður verið styrkt,
þarf að gera grein fyrir fram vindu þess áður en
styrk umsókn er afgreidd.
b. Smá- eða forverkefni
Hægt er að sækja um styrki til smærri verkefna eða
til að undir búa stærri verkefni á sviði rann sókna
og/eða þró unar. Styrkupphæð getur numið allt að
þremur milljónum króna og skal verk efnið unnið
innan tólf mánaða.
Um alla styrki gildir að framlag
sjóðsins má ekki fara fram
yfir 50% af heildarkostnaði og
sjóðurinn tekur ekki þátt í að
styrkja fjárfestingar
Nánari upplýsingar og
umsóknarblað er að finna á
heimasíðu sjóðsins www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi ∙ Ártorgi 1 ∙ 550 Sauðárkrókur ∙ sími 455 5400 ∙ www.avs.is
AVS rannsóknasjóður í sjávar útvegi
starf ar á vegum Atvinnu vega- og
nýsköp unar ráðu neytis
AVS rannsóknasjóður í sjávarútvegi
auglýsir eftir umsóknum