Ægir - 2019, Síða 14
14
stórum stíl síðustu árin. Við einyrkjarnir
getum ekkert keppt við það. Á þessu
virðist ekkert lát vera og einyrkjarnir
verða hreinlega undir í þessari baráttu.“
Þungur rekstur síðustu ár
Þorlákur segir að síðustu árin hafi bar-
áttan vegna veiðigjaldanna verið mikil.
Þau hafi verið smábátaútgerðinni gríð-
arlega óhagstæð. Þær séu með kostnað-
arsamari rekstur en margir aðrir en lín-
útgerð er mjög dýr. Margir landi á fisk-
mörkuðum og veiðigjöldin á þennan flota
hafi verið reiknuð út frá endanlegu sölu-
verði, sem þeir voru ekki að fá. „Því er-
um við hlutfallslega að borga mun hærri
veiðigjöld heldur en bátarnir sem landa
fiski í eigin vinnslu og eru afurðirnar
svo seldar utan. Þetta hefur verið mjög
óhagstætt og hefur hreinlega verið svo
að sumar af þessum útgerðum hafa ekki
átt fyrir gjöldunum. Reksturinn hefur
ekki skilað meiru, sérstaklega síðustu
tvö árin.
En nú hefur orðið verulega viðsnún-
ingur vegna mikillar hækkunar á fisk-
verði. Við fengum líka lækkun á veiði-
gjaldinu á síðasta ári en það er svo stutt
síðan það gerðist að vandinn frá síðustu
tveimur árum áður hefur þegar sligað
marga.
Þegar þetta loksins kemur, fá allir
þennan afslátt, það var ekkert gert sér-
staklega fyrir smábátana. Það fá allir af-
slátt af fyrstu 6 milljónum gjaldsins. Út-
gerðir sem standa vel, njóta þess jafnt á
við litla trillukarlinn, sem er að berjast í
bökkum. Þessi staða gefur gullið tæki-
færi fyrir stórútgerðina til að kaupa upp
heimildir. Þeir ryksuga allt upp sem kem-
ur inn á markaðinn. Það eru bara þessir
stóru sem kaupa og þetta stefnir allt
Í útgerð og harð-
fiskvinnslu
Þorlákur Halldórsson er aðfluttur
Grindvíkingur sem búið hefur þar í 20
ár. Hann byrjaði í útgerð í Grindavík
um aldamótin síðustu og hefur verið
að meira og minna síðan, mest sem
skipstjóri en er tiltölulega nýkominn í
land. Hann gerir út línubeitningarbát-
inn Guðmund á Hópi, en áður var
hann einnig með Örninn. Hann var
seldur fyrir 6 til 7 árum síðan. Hann
keypti harðfiskverkunina Stjörnufisk í
Grindavík fyrir þremur árum og geng-
ur sá rekstur mjög vel. „Framtíðar-
vinna verður að stækka og efla þá
starfsemi. Við erum með átta manns í
vinnu þar og gengur bara vel.“
■ Guðmundir á Hópi GK er beitningavélarbátur og landa afla sínum á mörk-
uðum.
■ Bátar frá Sandgerði tilheyra svæði D, en þar er mest fiskigengd í apríl og maí og þar vilja menn færa veiðitímabilið fram
um einn mánuð.