Ægir - 2019, Qupperneq 20
20
Nú um miðjan nóvember tók Út-
gerðarfélag Akureyringa hf., dótt-
urfélag Samherja hf., við nýjum tog-
ara, Harðbak EA 3. Akureyringar
eignast því togara á nýjan leik með
þessu nafni, þann þriðja í röðinni en
sá fyrsti með þessu nafni var síðu-
togari sem kom til ÚA árið 1950 og
var smíðaður í Skotlandi. Síðan fékk
fyrirtækið í hans stað skuttogara
sem smíðaður var á Spáni árið 1974,
einn Spánartogaranna svokölluðu,
en árið 2008 var skipið selt eftir far-
sæla þjónustu í flota ÚA og breytt í
rannsóknarskip og fékk nafnið Po-
seidon. Nýjasti Harðbakur EA 3 var
smíðaður hjá skipasmíðastöðinni
Vard í Noregi, einn sjö samskonar
togara sem íslenskar útgerðir hafa
fengið afhenta síðustu vikur. Harð-
bakur er sá fimmti sem kemur til
landsins frá því í sumar en síðustu
tvö skipin fær Skinney Þinganes nú
í desember.
Góð heimferð
„Sú reynsla sem fengum af skipinu á
heimsiglingunni var bara mjög góð.
Skipið fór afar vel með okkur,“ segir
Hjörtur Valsson, skipstjóri á Harðbak um
heimsiglinguna frá Noregi. Strax eftir
heimkomuna var hafist handa við loka-
áfanga smíðinnar hjá Slippnum Akureyri
en þar verður settur upp vinnslubúnað-
ur á milliþilfar skipsins. Slippurinn Akur-
eyri er um það bil að ljúka uppsetningu
búnaðar í systurskipið Bergey VE og
lauk fyrr í haust við hliðstætt verkefni í
Vestmannaey VE sem kom fyrst skip-
anna sjö frá Vard hingað til lands.
Vinnslubúnaður á milliþilfarinu er eins í
þeim skipum tveimur en verður að hluta
með öðrum hætti í Harðbak EA en skipið
verður útfært til bolfiskveiða.
Skipin eru 29 metra löng og 12 metra
breið, búin tveimur skrúfum og taka um
80 tonn af afla í lest. Aflinn verður
krapakældur með kerfi frá Kapp ehf.
Slippurinn Akureyri hannaði og smíðar
vinnslubúnaðinn, í lestinni er snúnings-
band frá Vélsmiðjunni Þór í Vestmanna-
eyjum, aðalvélar eru frá Yanmar, afla-
nemakerfi frá Marport, málningarkerfi
frá International, sem Sérefni er um-
Nýr Harðbakur EA 3
til heimahafnar
„skipið fór vel með okkur á heimleiðinni,“ segir Hjörtur Valsson, skipstjóri
■ Harðbakur EA 3 á Pollinum á Akureyri í fyrsta sinn. Á næstu vikum verður settur vinnslubúnaður á milliþilfar og að því
loknu heldur skipið á veiðar.
Ný fiskiskip