Ægir - 2019, Page 26
„Það hefur verið talað um endurnýjun
í ýmsum starfsgreinum. Sá sem hér
talar er einn af yngstu skipahönnuð-
um í landinu. Maður sem er að detta í
sextugt.“ Þannig byrjaði Alfreð Tul-
inius, stjórnarformaður Nautic ehf.,
erindi sitt á málstofu Sjávarútvegs-
ráðstefnunnar 2019 um framtíðina í
íslenskum sjávarútvegi. Fyrirtæki
hans hefur hannað meira en tvo tugi
fiskiskipa á undanförnum árum fyrir
íslenskar og rússneskar útgerðir. Skip
með gjörbreyttu útlit og hönnun frá
þeirri sem hefur verið nánast óbreytt
í áratugi. En hvernig verður fiskiskip
framtíðarinnar?
„Auðlind er í sjálfu sér fallegt saman-
sett orð. Fiskur sem syndir í makindum
sínum í sjónum skapar ekki þennan auð.
Það er ekki ekki fyrr en þessi lind, sem er
uppsprettan með samsettum aðgerðum,
veiðum vinnslu og markaðssetningu,
skilar þjóðarbúinu auði. Það er virðis-
keðjan frá veiðum til markaðar,“ sagði
Alfreð.
Hann bar fiskiskip saman við fjölgun
róbóta í fiskvinnslu. Huga þurfi að
mönnun fiskiskipa. Það sé viðvarandi
samfélagslegt verkefni að bæta orkuhag-
kvæmni og vöruþróun óháð þeim orku-
gjöfum eða skipakostum sem notuð eru
en mikilvægt sé að skapa þannig ramma
að hægt sé að vinna afla úti á sjó til full-
eða frumvinnslu til að auka hagkvæmni
og skila hágæða afurðum til neytenda.
Alfreð sagðist sjá fyrir sér þróun á
stærra og fullkomnara skipi en nú eru til,
skipi sem hann gaf nafnið Utopia. Um
borð verði fullvinnsla á flökum til mann-
eldis, skammtaskurður, skammtavigtun
og pökkun beint í neytendapakkningar,
frystar og lofttæmdar. Niðursuða á
hrognum lifur og sviljum, fiskimjölsfram-
leiðsla, gæludýrafóðursframleiðsla og
fleira. Mikil fjárfesting sé nauðsynleg í
vinnsluskipum, flota skipa sem hafi setið
eftir.
Loftbólusmölun og
neðansjávardrónar
„En svo ætla ég að fara í algjört hugrenn-
ingaferðalag. Ég veit ekki hvernig tíminn
mun dæma það. Hver segir að besta leiðin
í veiðum sé að draga mismunandi inn-
Fiskiskip
framtíðarinnar?
Sjávarútvegsráðstefnan 2019
26
■ Eitt af þeim skipum sem Nautic ehf. hefur hannað á allra síðustu árum. Form þessara skipa er talsvert frábrugðið því sem
menn hafa átt að venjast í skipahönnun um langt skeið.