Morgunblaðið - 11.09.2020, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 11.09.2020, Qupperneq 1
F Ö S T U D A G U R 1 1. S E P T E M B E R 2 0 2 0 Stofnað 1913  214. tölublað  108. árgangur  GAMAN AÐ SJÁ BÖRNIN VAXA ÚR GRASI VERK EFTIR 37 LISTAMENN TVÍTUGUR ÖRLAGA- VALDUR VALS Í 2-1 SIGRI LISTÞRÆÐIR 28 GOTT AÐ VINNA 26SÉRBLAÐ 32 SÍÐUR „Þessi saga hefur fylgt fjölskyld- unni nánast alla mína tíð og það er vægast sagt sérkennilegt að skips- bjallan hafi komið upp með trolli skips, sem er nátengt okkur,“ segir Torfi Björnsson á Ísafirði. Hann vísar til þess að skipsbjalla úr gufuskipinu Erni GK kom upp með rækjutrolli Klakks ÍS á föstu- dag, en skipið var þá á rækjuveiðum á utanverðum Skjálfanda. Þar sást síðast til Arnarins 9. ágúst 1936, en skipið fórst þann dag með 19 manna áhöfn. Meðal skipverja var Jóhann Rósinkrans Símonarson, afi Torfa, en útgerðarmaður Klakks er Gunn- ar, sonur Torfa. Einhvers konar fyrirboði? „Pabbi var á öðrum síldarbát sem var á austurleið og þeir mættu Ern- inum fyrir miðjum Skjálfanda. Talið var að Örninn væri á leið til Siglu- fjarðar með fullfermi af síld. Þarna mættust þeir feðgarnir og veifuðu hvor öðrum, það var í síðasta skipti sem þeir sáust. Skömmu síðar gerð- ist eitthvað sem olli því að skipið sökk með manni og mús. Eðlilega vöknuðu margar spurningar um hvers vegna skipið sökk og þessi fundur svarar þeim ekki. Það er hins vegar stórfurðulegt að skips- bjallan finnist á þennna hátt og ég velti fyrir mér hvort þetta sé ein- hvers konar fyrirboði,“ segir Torfi Björnsson, tæplega 93 ára gamall Ísfirðingur. Örninn var smíðaður í Noregi 1903 og bar nafnið Batalder. Skipið var selt til Færeyja og síðan til Ís- lands 1927. aij@mbl.is »10 Nátengt fjölskyldunni  Skipsbjalla af hafsbotni  Síðasta kveðja feðganna Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Tengingar Torfi Björnsson með skipsbjölluna úr Erni GK, sem fórst á Skjálfanda 1936. Í bakgrunni er bátur með sama nafni, sem Torfi gerði út. Hildur Hjálmarsdóttir í Borgarási var meðal þeirra fjallmanna úr Hrunamannahreppi sem ráku fjársafnið þar í sveit til byggða eldsnemma í gærmorgun. Afréttur sveitarinnar nær úr byggð alla leið inn að Hofsjökli og Kerlingar- fjöllum og tók fjallferðin alls sex daga hjá þeim sem lengst fóru. Í ferðinni reyndu rigning og þoka nokkuð á fjallmenn, sem voru 38 talsins og sumir með nokkra hesta til reiðar. Alltaf þarf sama úthald í fjallferðina þó fé fækki, en um 3.800 fjár verða í dag dregin í dilka í Hrunarétt- um. Hefur það aldrei verið færra að sögn kunn- ugra en þegar best lét fyrr á tíð voru um 15.000 fjár í þessum réttum á Suðurlandi. Vegna gild- andi reglna um sóttvarnir og fjöldamakmark- anir verða réttir nú heldur ekki sá vettvangur mannamóta og gleði sem hefð er fyrir, þó haust- störf þessi séu heillandi á sinn hátt. Hrunamenn reka féð í réttirnar í rigningarsudda Morgunblaðið/Sigurður Bogi  Heimsókn Róberts Spanós, for- seta Mannréttindadómstóls Evr- ópu, til Tyrklands, hvar hann tók við heiðursdoktorsnafnbót, virðist um margt sniðin að þörfum stjórn- arflokks Erdogans, AKP. Ekki síð- ur virðist hún sniðin að persónu- legum hagsmunum Saadet Yüksel, dómara Tyrklands við MDE. Hún fylgdi Róberti í ferðinni, en leiðin lá ekki aðeins til Ankara og Istanbúl eins og eðlilegt er, heldur einnig til smáborgarinnar Mardin, sem er skammt frá landamærum Sýrlands. Það er heimaborg Yüksel, en fjöl- skylda hennar er mjög holl Erdog- an og í innsta hring AKP. Ekki verður séð að heimsóknin þangað hafi átt sér annað tilefni en nána persónulega vináttu dóm- aranna tveggja, en þar sem annars staðar lét Róbert sér nægja að ræða við flokksbrodda AKP. »14 Heimsókn Róberts virðist sniðin að AKP  Áform menntamálaráðuneytisins um að rýmka í reglugerð heimildir til heimakennslu grunnskólabarna, þar sem fallið verði frá þeirri kröfu að foreldri hafi kennsluréttindi til að annast kennsluna heima, fá mis- jafnar undirtektir. Félag grunn- skólakennara gagnrýnir hugmynd- ina og segir m.a. í umsögn að aukin heimaskólun geti haft í för með sér einsleitara skólasamfélag og aukið einangrun viðkvæmra hópa. Menntamálastofnun er einnig með marga fyrirvara. Talið er að í dag séu sárafá dæmi um að foreldrar sjái um að kenna börnum sínum heima en Guðjón Bragason hjá Sambandi ísl. sveitarfélaga telur ekki ólíklegt að ef dregið verði úr kröfum um kennsluréttindi til heimakennslu muni verða meiri eft- irspurn eftir heimakennslu. »6 Áform um heima- kennslu eru umdeild Skóli Félag grunnskólakennara hefur gagnrýnt hugmyndir um heimakennslu. Þóroddur Bjarnason Baldur Arnarson Snædís Ögn Flosadóttir, fram- kvæmdastjóri Eftirlaunasjóðs Fé- lags íslenskra atvinnuflugmanna (EFÍA), segir stjórn sjóðsins hafa metið kosti þess að fjárfesta í Ice- landair. Með hlutafénu á að endur- reisa félagið sem rær nú lífróður. Rúmlega 1.000 sjóðfélagar eru hjá EFÍA og er hrein eign sjóðsins um 48 milljarðar króna. „Nú erum við eins og aðrir fjár- festar og lífeyrissjóðir á fullu að greina fjárfestinguna í þaula og nið- urstaða liggur ekki fyrir. Það er hins vegar ljóst að þessi hópur þekkir vel til og sér heilmikil tækifæri.“ Biðin ekki réttlætanleg Það er á fleiri vígstöðum sem líf- eyrissjóðir meta fjárfestingarkosti. M.a. á erlendum mörkuðum. Þórey S. Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr- issjóða, telur „ekki réttlætanlegt að lífeyrissjóðirnir standi einir að því að fara ekki út með fé“. Hún eigi þó ekki von á að þeir verði stórtækir í gjaldeyriskaupum. Tilefnið er þau ummæli Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra í Morg- unblaðinu í gær að sjóðunum beri að sýna ábyrgð í erlendri fjárfestingu með hliðsjón af veikingu krónunnar og verðstöðugleika. Sjá tækifæri í Icelandair  Stjórn 48 milljarða sjóðs flugmanna íhugar fjárfestingu  Útþrá lífeyrissjóða MHafa til skoðunar … »12 Veiktist eftir lokun » Krónan veiktist eftir hertar sóttvarnir á landamærunum 19. ágúst. » Seðlabanki Íslands kynnti í fyrradag aðgerðir til að verja krónuna og styrktist hún í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.