Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
Bláu húsin Faxafeni ◊ S. 588 4499 ◊ Opið mán.-fös. 11-18, lau. 11-16 ◊ www.mostc.is
Vefverslun
komin í loftið!
mostc.is
Gerið verðsamanburð
10.900 kr.
Kjólar
Nýtt frá
Angelle
Milan
Inga Sæland alþingismaður skrif-aði pistil í Morgunblaðið í gær
sem vakið hefur verðskuldaða eft-
irtekt. Þar segir hún meðal annars:
Það er dapurt aðsjá hvernig
æðstu embættis-
menn þjóðkirkj-
unnar, með bisk-
upinn sjálfan í
broddi fylkingar,
ala á upplausn og
sundrungu trúbræðra sinna og
-systra.
Seint hefði ég trúað því að égætti eftir að sjá frelsarann Jesú
Krist með varalit, kinnalit og
brjóst. Sjálf þjóðkirkjan hefur blás-
ið til auglýsingaherferðar þar sem
sú mynd sem dregin er upp af frels-
aranum særir og hryggir marga þá
sem trúa í einlægni á hann.“ Og síð-
ar í sama pistli segir:
Ég horfi á þessa nýjustu áróð-ursteikningu þjóðkirkjunnar
og velti fyrir mér hvílíkt dóm-
greindarleysi hljóti að ráða för hjá
bisupi Íslands og starfsfólki bisk-
upsstofu. Boðun kirkjunnar á að
vera almenn, ekki sértæk. Til hvers
þarf að ráðast að trúarvitund fólks
með þessum hætti og um leið að
brjóta niður þá ímynd sem Jesús
Kristur hefur haft í huga flestra
þeirra sem telja sig til kristinnar
trúar?“
Samkvæmt nýjustu fréttum erljóst að herferðin hefur tekist
og ört fækkar nú í flokki þjóðkirkj-
unnar.
Ekki er líklegt að þjóðkirkjaneigi til iðran, en upplýsa
mætti hvað hver og einn brott-
rekstur úr kirkjunni nú kostaði
hana og hver séu næstu skref í
fækkunarferlinu.
Inga Sæland
Sjálfsmörkin
sárgrætileg
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
„Við tókum undir þau sjónarmið sem
foreldrafélagið setti fram og það var
einhugur um þessa ákvörðun í bæj-
arstjórn. Það hefði mátt kynna þetta
mál betur,“ segir Magnús Örn Guð-
mundsson, forseti bæjarstjórnar á
Seltjarnarnesi, en ákveðið hefur ver-
ið að endurskoða ákvörðun um að
hætta niðurgreiðslu skólamatar í
bænum. Mikil óánægja hefur verið
meðal foreldra grunnskólabarna.
Eins og komið hefur fram í Morg-
unblaðinu og á mbl.is var framleiðsla
og framreiðsla skólamatar á Sel-
tjarnarnesi boðin út í vor og samfara
þeim breytingum var ákveðið að
hætta niðurgreiðslu í sparnaðar-
skyni. Sú ákvörðun var ekki kynnt
foreldrum sérstaklega og brá því
mörgum í brún í haust þegar fyrsti
reikningur fyrir þjónustuna barst.
Kostaði hver máltíð 655 krónur og
nam hækkunin tugum prósenta á
milli ára. Eftir ákvörðun bæjar-
stjórnar mun hádegismatur kosta
532 krónur.
„Oft þarf að endurskoða erfiðar
ákvarðanir og breyta. Það var það
sem við gerðum nú. Staðreyndin er
samt sú að þessi aðgerð kostar ellefu
milljónir króna og þá peninga þarf
auðvitað að finna annars staðar því
það er halli á rekstri bæjarins,“ segir
Magnús Örn. hdm@mbl.is
Endurskoða hækkun á skólamat
Einhugur í bæjarstjórn Seltjarnar-
ness Kostar ellefu milljónir króna
Morgunblaðið/Golli
Breytingar Bæjarstjórn Seltjarn-
arness lækkar verð á skólamat.
Eysteinn Þorvaldsson,
prófessor emeritus í ís-
lenskum bókmenntum,
lést á hjúkrunarheim-
ilinu Skjóli í Reykjavík
8. september sl., 88 ára
að aldri.
Eysteinn fæddist 23.
júní 1932 í Hafnarfirði.
Hann bjó þar fyrstu ár-
in með foreldrum sín-
um, Þorvaldi Guð-
mundssyni og Lovísu
Aðalbjörgu Egilsdóttur,
en fluttist svo með þeim
austur fyrir fjall en þar
voru þau um árabil bændur á Syðri-
Gróf í Flóa, en settust síðar að á Sel-
fossi. Eysteinn gekk í Héraðsskólann
að Laugarvatni og hóf mennta-
skólanám þar en útskrifaðist sem
stúdent úr MR árið 1954.
Eysteinn stundaði nám í fjölmiðla-
fræði við háskólann í Leipzig í Aust-
ur-Þýskalandi, á síðari hluta sjötta
áratugarins og starfaði um hríð sem
blaðamaður við Þjóðviljann eftir að
hann sneri heim. Hann tók einnig
snemma að fást við kennslu og starf-
aði við Réttarholtsskóla og Gagn-
fræðaskóla Garðabæjar. Hann var
fréttastjóri Þjóðviljans 1973-1974, en
gerðist síðan íslenskukennari í
menntaskóla, fyrst við Mennta-
skólann við Tjörnina og síðan MH.
Meðfram kennslu stundaði Eysteinn
nám í íslensku og þýsku við Háskóla
Íslands og lauk þaðan cand.mag.-
prófi í íslenskum bók-
menntum árið 1977, en
þá var hann einnig far-
inn að kenna íslenskar
bókmenntir við Kenn-
araháskóla Íslands þar
sem hann var síðar
fastráðinn og varð þar
prófessor árið 1993.
Eftir Eystein liggur
fjöldi fræðiritgerða en
einnig bækurnar At-
ómskáldin (1980),
Ljóðalærdómur (1988),
Ljóðaþing (2002) og
Grunað vængjatak. Um
skáldskap Stefáns Harðar Gríms-
sonar (2010). Hann ritstýrði nokkrum
ljóðasöfnum, m.a. í tvígang úrvali
ljóða eftir ung skáld, og hann skrifaði
ritdóma fyrir Þjóðviljann um árabil,
einkum um ljóðabækur. Hann var
einnig ötull þýðandi og þýddi m.a.
lungann af sagnaverkum Franz
Kafka ásamt Ástráði Eysteinssyni.
Eysteinn var virkur í íþróttahreyf-
ingunni frá unga aldri, bæði sem iðk-
andi og stjórnandi. Sem ungur maður
stundaði hann íslenska glímu en
færði sig síðar yfir í júdó og var einn
af frumkvöðlum þeirrar íþróttar á Ís-
landi og fyrsti formaður Júdó-
sambands Íslands. Kominn undir
sextugt gerðist hann ötull víðavangs-
hlaupari og keppti í fjölmörgum
hlaupum næstu tvo áratugina.
Börn Eysteins eru Drífa, Ástráður,
Heiður, Oddgeir, Björg og Úlfhildur.
Andlát
Eysteinn Þorvaldsson