Morgunblaðið - 11.09.2020, Page 15

Morgunblaðið - 11.09.2020, Page 15
15 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020 Nasi Jarðborinn Nasi hófst handa í borholu Veitna við Bolholt 5 í fyrradag. Kristinn Magnússon Í gær var alþjóð- legur forvarnardagur sjálfsvíga. Á heimsvísu eru sjálfsvíg meðal 20 algengustu dánar- orsaka en um 800.000 einstaklinga deyja ár- lega í sjálfsvígi. Á síð- astliðnum áratug hefur árlegur fjöldi sjálfsvíga á Íslandi verið á bilinu 27-49, eða að meðaltali 39 á ári. Hvert dýrmætt líf sem við missum skilur eftir sig mikla sorg og tóma- rúm og verður fjöldi manns; fjöl- skylda, vinir, samstarfsfélagar, heilbrigðisstarfólk og allt nánasta umhverfi einstaklingsins fyrir mikl- um og langvarandi áhrifum í kjöl- farið. Eftir áralangar rannsóknir og forvarnarstarf þá komumst við nær því að skilja betur áhættuþætti sjálfsvíga. Það sem gerir forvarn- arstarf sjálfsvíga hins vegar flókið er að áhættuþættirnir eru margir og eru samspil líkamlegra, um- hverfis- og félagslegra þátta. Bak- grunnur og orsakaferli á bak við hvert sjálfsvíg er mismunandi rétt eins og saga hvers einstaklings er einstök á sinn hátt. Þess vegna er öflugasta leiðin í forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum talin vera fjöl- breytt og skilvirk samvinna lykil- aðila; stofnana, félagasamtaka, stjórnvalda og einstaklinga að sam- eiginlegu markmiði okkar allra. Þess vegna er þema alþjóðlega for- varnardags sjálfsvíga þriðja árið í röð „Stöndum saman gegn sjálfs- vígum“. Það er hægt að koma í veg fyrir sjálfsvíg Forvarnaraðgerðir sem eru ár- angursríkar í að lækka heildartíðni sjálfsvíga á heimsvísu eru nokkrar. Meðal annars er það að hefta að- gengi að hættulegum efnum og hlut- um í umhverfi okkar. Einnig skiptir máli að gæta að varkárni í umfjöllun sjálfsvíga í fjölmiðlum en það getur haft jákvæð áhrif að fjölmiðlar segi í auknum mæli frá úrræðum og bata- sögum sem geta gefið lesendum von og hugmyndir að uppbyggilegum leiðum. Embætti landlæknis birti þessar leiðbeiningar til fjölmiðla fyr- ir réttu ári. Þá skiptir máli að grípa einstaklinga sem líður illa snemma. Tryggja þarf gott og hindrunarlaust aðgengi að þjónustu ásamt því að tryggja snemmbúin inngrip til þeirra sem á þurfa að halda. Þessar aðgerðir ásamt mörgum fleirum eru nefndar í Aðgerðaráætlun til að fækka sjálfsvígum á Íslandi, en emb- ætti landlæknis vinnur nú að því að fylgja innleiðingu aðgerðanna eftir, ásamt fjölda samstarfsaðila. Aðgerð- aráætlunin tekur til eflingar geð- heilsu og seiglu í samfélaginu, geð- heilbrigðisþjónustu, aðgengis að hættulegum efnum og hlutum, að- gerða fyrir sérstaka áhættuhópa, stuðnings við eftirlifendur auk efl- ingar á þekkingu almennt um sjálfs- víg og sjálfsvígsforvarnir. Við getum öll haft áhrif Félagslegur stuðningur frá nán- asta umhverfi einstaklings getur einnig skipt sköpum. Á álagstímum eins og við upplifum í heimsfaraldri skiptir sérstaklega miklu máli að standa saman. Sem fjölskyldu- meðlimur, vinur, samstarfsfélagi eða nágranni getum við öll haft áhrif með því að staldra við og fylgjast með líðan okkar og líðan fólksins í kringum okkur. Það er í lagi að spyrja út í sjálfsvígshugsanir og það er í lagi að tala um þær. Það getur hjálpað einstaklingi í vanlíðan að finna að einhver er til staðar til að hlusta og sýna skilning. Munum öll eftir úrræðum eins og Hjálparsíma Rauða krossins 1717, Píetasímanum 552-2218 og netspjalli við hjúkrunar- fræðing á heilsuvera.is. Það er hjálp til staðar og það er alltaf von. Öll getum við átt þátt í að byggja upp vonina og styðja við fyrsta skrefið inn í hjálpina. Hvert skref getur skipt máli, stórt eða smátt, og stund- um þarf kannski ekki annað en bros. Eitt bros getur dimmu í dagsljós breytt. Eftir Ölmu D. Möll- er og Hildi Guðnýju Ásgeirsdóttur » Á álagstímum eins og við upplifum í heimsfaraldri skiptir sérstaklega miklu máli að standa saman. Alma D. Möller Alma er landlæknir. Hildur Guðný er verkefnisstjóri. Við erum öll sjálfsvígsforvarnir Hildur Guðný Ásgeirsdóttir Hverjum finnst sinn fugl fagur. Þannig finnast mér fjármál vera göfugust fræði- greina innan við- skiptafræða. Fjármál eru undirgrein stærð- fræði. Forsenda feg- urðar fjármála er sú að vera efnahagslega læs á fortíðina með þekkingu á reiknings- haldi. Það læsi nær fyrst og fremst til lestrar og skiln- ings ársreikninga. Píratar virðast ekki efnahagslega læsir. Ársreikningar byggjast á skipu- legri skráningu á fjárhagslegum upplýsingum. Ársreikningur nær aldrei til framtíðar að öðru leyti en því að lýsa hvaða skuldbindingar hvíla á rekstrinum. Það eru mikil verðmæti fólgin í því að hafa staðið við fjárhagslegar skuldbindingar í fortíðinni. Bankar, tannlæknar og hárskerar Það er fróðlegt að velta fyrir sér trúnaðarsambandi þeirra sem eiga viðskipti. Allur trúnaður er líkur þeim sem ríkir á milli læknis og sjúklings, eins og í Hippocrates- areiði. Aðeins má rjúfa ef alþjóðar- heill krefst. Trúnaðarsamband fjármálafyr- irtækisins og viðskiptavinar er al- gjört og verður aðeins rofið með úrskurði dómstóla. Trúnaðarsam- band tannlækna og hárskera er svipað. Það nær þó ekki til þess sem látið er vaða í samtölum þegar skjólstæðingurinn situr í stólnum. Það fylgir trúnaðarsambandi banka og fyrirtækis að bankinn stendur með fyrirtækinu í gegnum erfiðleika, á grundvelli raunsærra áætlana um framtíð- ina. Það eru aðeins glæpabankar sem ráð- ast á fyrirtæki; fyrir- tæki í heiðvirðum við- skiptum. Nærtækt er að minnast þess þegar Landsbanki Íslands réðst á Eimskipafélag Íslands árið 2003. Þar var trúnaður rofinn og bankinn fór í glötun. Landsbanki Íslands, árin 1980 til 2003, stóð með Icelandair! Það var ekki alltaf góðæri á þeim tíma, verðbólga á Íslandi og einnig í Bandaríkjunum og vextir háir. Flugleiðir hf. höfðu einnig traust Boeing og bandarískra og japanskra banka. Lán til flugvéla- kaupa voru með 0,375% álagi á LI- BOR-vaxtakjör á þeim tíma. Það traust var undirstaða og for- senda fyrir kaupum félagsins á 7 nýjum flugvélum á árunum 1985- 1990, þrátt fyrir laka eiginfjárstöðu samkvæmt ársreikningi. Traustið byggðist á trúverðugum áætlunum um framtíð flugs til og frá Íslandi. Bankar, sem koma á svæði með gróin viðskiptasambönd, fá aðeins hrakval viðskiptavina. Fyrirtæki, sem staðin eru að ósannsögli lenda í hrakvali banka og njóta ekki trausts. Geta til að afla tekna Í sinni einföldustu mynd segir kenning Franco Modigliani og Mer- ton Miller að fjármagnssamsetning skipti ekki máli, það sem skiptir fyrst og fremst máli er geta fyrir- tækis til að afla tekna til að standa við skuldbindingar. Á þeirri for- sendu byggðust lánveitingar vegna flugvélakaupa þegar flugvélaflotinn var endurnýjaður. Vissulega er hugsanlegur kostnaður vegna gjald- þrots ekki með í kenningu MM og ýmsar aðrar einfaldanir. Aðstæður í dag eru um margt svipaðar þeim sem uppi voru þegar flugvélaflotinn var endurnýjaður á árunum 1985-1990. Ríkisábyrgðir Sú var tíð að ráðamenn fóru frjálslega með ríkisábyrgðir. Togarakaup voru fjármögnuð með ábyrgð ríkissjóðs og jafnvel frysti- húsabyggingar. Að auki voru eig- endaábyrgðir vegna fjármálafyrir- tækja og Landsvirkjunar. Það er rétt og eðlilegt að fara varlega með ríkisábyrgðir vegna fyrirtækja á frjálsum markaði. En, upp kunna að koma aðstæður sem meta þarf sérstaklega til að lágmarka tjón í samfélagi. Það á við um kerfislega mikilvæg fyrirtæki. Fyrirtæki, sem leggur til um 3,5% af landsframleiðslu og greiðir há laun er kerfislega mikil- vægt. Ríkisábyrgð er aðeins veitt gegn gjaldi. Stuðningurinn felst í sölu á lánstrausti ríkissjóðs. Ef allt er með felldu og vel gengur er það ríkissjóður sem fær gjaldið án út- láta. Ummæli ráðamanna þess efnis að önnur fyrirtæki komi í stað þeirra sem hverfa eru ómarktæk kennisetning um kerfislega mikil- væg fyrirtæki. Ríkisábyrgð nú er langt innan við framlag þýska ríkisins til LUFT- HANSA. Aðgerðir ríkisstjórnar í Covid Hver kreppa og hvert bakslag er nýtt af nálinni. Aðgerðir þessarar ríkisstjórnar til að takast á við þær aðstæður sem upp hafa komið í heimsfaraldrinum byggjast fyrst og fremst á því að viðhalda vinnurétt- arsambandi launtaka og atvinnu- rekenda. Atvinnuleysisbætur eru þrautavaraleið. Aðgerðirnar miða einnig að því að lágmarka þann kostnað sem verða mun við að endurræsa hag- kerfið þegar faraldri lýkur eða þeg- ar sóttvarnir leyfa. Það kann að vera að íslenskir bankar fari á mis við hagnað að sinni, en bankar reyna að lágmarka sín töp með því að standa með sínum viðskiptavin- um í von um að úr rætist. Forsendur í rekstri Samkvæmt M&M skiptir fjár- magnssamsetning ekki máli. Það eru rekstrarforsendur sem fyrir- tæki stendur og fellur með. Hver er geta fyrirtækis til að afla tekna? Hvernig mun sjóðstreymi fyrir- tækis þróast? Allar skuldir skulu að lokum greiðast með peningum í þeim gjaldmiðli sem lánin voru tek- in í. Ef Icelandair kemst í gegnum hrakfarir vegna Covid – Covid er ekki heimatilbúið vandamál Ice- landair – þá kemst fyrirtækið í gegnum hrakfarirnar jafnt með lánsfé sem eigin fé. Það að veita ríkisábyrgð á 100% fjárþörf fyrir- tækisins er ekki goðgá ef rekstr- arforsendur eru rétt metnar. Að ríkisvæða og einkavæða Það eru klisjur þeirra sem ekki þekkja til reksturs Icelandair og erfiðleika félagsins í Covid-faraldri að það eigi að ríkisvæða tapið en einkavæða hagnaðinn. Á það skal minnst að íslenska ríkið hefur komið upp umfangs- miklu tryggingakerfi til atvinnu- leysisbóta. Það er markmið að lágmarka það tjón sem verður af völdum Covid. Með ríkisábyrgð á lánum og væntum jákvæðum árangri eru það ekki feitir kallar sem hljóta ávinninginn. Það verður hópur vinnandi fólks, sem greitt hefur í lífeyrissjóði. Ríkissjóður mun hafa ávinning af því með skatt- greiðslum af lífeyrisbótum og skerðingum á bótum almanna- trygginga. Það verður einnig starfsfólk Icelandair, sem nýtur jákvæðs ár- angurs. Það verður ferðaþjón- ustan í heild, sem nýtur árangurs af leiðakerfi Icelandair, því það mun taka mjög skamman tíma að endurræsa markaðsstarf Iceland- air. Vert er að minnast orða Jón- asar Haralz bankastjóra þegar illa gekk hjá Flugleiðum og hugmynd kom um að ríkisvæða Flugleiðir. „Þetta er það vitlausasta sem þið getið gert. Hvaða vanda haldið þið að það leysi að ríkið yfirtaki félag- ið? Til hvers haldið þið að það leiði?“ Að lokum má minna á að stór hluti af rekstrarforsendum Flug- stöðvar Leifs Eiríkssonar er tengiflug Icelandair. Slíkt tengi- flug tekur mörg ár að byggja upp að nýju. Reikningsdæmi og stærðfræði Ríkisábyrgð á lánum er reikn- ingsdæmi. „Stærðfræði er aungri námsgrein lík. Að reikna, það er eins og að sjá sólina koma upp mörgum sinnum á dag.“ Eftir Vilhjálm Bjarnason »Ríkisábyrgð á lánum er reikningsdæmi. „Stærðfræði er aungri námsgrein lík. Að reikna, það er eins og að sjá sólina koma upp mörgum sinnum á dag.“ Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Modigliani & Miller

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.