Morgunblaðið - 11.09.2020, Side 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík. S. 588 5900 ■ Tjarnargötu 17, Keflavík. S. 421 2061 ■ Glerárgötu 32, Akureyri. S. 462 5900 ■ alnabaer.is
Við erum sérhæfð í gluggatjöldum
PLÍ-SÓL GARDÍNUR
alnabaer.is
„ÞETTA ER JÓNAS, NÝI MEÐEIGANDINN!”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
... stundum rétt utan
seilingar.
JÓN TREYSTIR
MÉR EKKI
HVAÐ ERTU AÐ
PLOTTA NÚNA?!
FYRIRHAFNARLAUS
SKEMMTUN
HRÓLFUR, KÆRASTINN MINN
ÚR GAGGÓ ER HÉRNA
OG ER AÐ REYNA
VIÐ MIG!
EN HAFÐU
EKKI
ÁHYGGJUR,
ÉG HUNDSA
HANN!
EF ÞAÐ
GAGNAST
ÞÉR!
ÞETTA GAGNAST MÉR!
„ÞETTA ER OKKAR Á MILLI. MÉR FINNST
ÓÞARFI HJÁ ÞÉR AÐ DRAGA HANN Á
ASNAEYRUNUM.”
KLOM
P
Þegar alvara lífsins tók við með
íbúðakaupum og fjölskyldu hætti
Halldór í hljómsveitinni. Frá 36 ára
aldri stundaði hann skotfimi og gekk
mjög vel. Síðan tók golfáhuginn yfir.
„Árið 2010 fórum við konan að spila
golf saman. Þá átti að stofna golf-
klúbb í Skorradalnum, þar sem við
eigum sumarbústað, en ekki varð þó
úr því en búið var að tendra neistann.
Við höfum ekki hætt því enn enda
golfið virkilega skemmtilegt og held-
ur manni í góðu formi.“
Fjölskylda
Eiginkona Halldórs er Selma
Antonsdóttir skrifstofumaður, f.
26.8. 1954. Foreldrar hennar eru
Anton Guðmundsson vélvirki, f.
1929, d. 10.8. 2013, og Úlfhildur Úlf-
arsdóttir verslunarmaður, f. 1931.
Börn Halldórs og Selmu eru 1) Hall-
dór Óskar, f. 20.4. 1970, starfsmaður
Eimskipa í Hamborg. Eiginkona
hans er Andrea Herz og sonur þeirra
er Emil Kári Herz. 2) Soffía, f. 28.5.
1976, innkaupastjóri hjá Össuri. Eig-
inmaður hennar er Ingi Jóhannes
Erlingsson. Dætur Soffíu og Inga
Jóhannesar eru Selma, María og
Stella Ingadætur. 3) Lára Antonía, f.
5.8. 1982, kennari í Klébergsskóla.
Eiginmaður hennar er Kristinn
Snorri Sigurgíslason og eiga þau
dótturina Freyju Sól Kristinsdóttur.
Systkini Halldórs eru Vigdís
Helgadóttir, vann við verslunarstörf,
f. 17.10. 1951, d. 19.1. 2017, Ómar
leigubílstjóri, f. 26.9. 1953 og Ásgeir,
f. 26.9. 1953, deildarstjóri hjá Orku
náttúrunnar.
Foreldrar Halldórs eru Helgi K.
Pálmarsson, fv. flugumferðarstjóri,
f. 9.1. 1924, d.12.10. 1989, og Soffía
Pétursdóttir, fv. matráður, f. 1.9.
1928.
Halldór Helgason
Halldóra Sigríður Einarsdóttir
húsfreyja í Leynimýri í Reykjavík
Kristinn Helgi Sigurðsson
bóndi í Leynimýri í Reykjavík
Anna Helgadóttir
húsfrú í Reykjavík
Helgi K. Pálmarsson
fl ugumferðarstjóri
Jón Pálmar Sigurðsson
starfsmaður hjá
Rafmagnsveitum Reykjavíkur
Þuríður Jónsdóttir
húsfreyja á Berustöðum
á Rangárvöllum
Sigurður Jósefsson
bóndi á Berustöðum á Rangárvöllum
Guðrún Brynjólfsdóttir
húsfreyja á Kirkjubóli, Hvítársíðu
Eyjólfur Andrésson
bóndi á Kirkjubóli,
Hvítársíðu
Vigdís Eyjólfsdóttir
húsfreyja á Nautafl ötum í Ölfusi
Pétur Þorbergsson
bóndi á Nautafl ötum í Ölfusi
Kristín Pálsdóttir
ljósmóðir frá
Valdastöðum í Kjós,
húsmóðir í Syðri-
Hraundal í Álftaneshreppi
Þorbergur Pétursson
bóndi í Syðri-Hraundal í Álftaneshreppi á Mýrum
Úr frændgarði Halldórs Helgasonar
Soffía Pétursdóttir
matráður
Á feisbók yrkir Þórarinn Eldjárnog kallar „Flughug“:
Að fara í hugmyndaflug
með flugmyndahug
er passlegt fyrir Pegasus
en pínlegt fyrir Íkarus.
Helgi R. Einarsson hefur orð á
því, að sjóndepra geti ruglað fólk í
ríminu:
Rak mig í rogastans
er réðst á mig konan hans.
Hátt að mér hló,
mig hæddi og sló.
Hélt víst að ég væri Hans.
Síðan segir Helgi, að það sé um
að gera að fara fínt í hlutina, -
„Klókindi“:
Viltu’ ekki með mér vaka,
ég vandræði engin baka.
Sestu mér hjá
sængina á
og syngjum „Bí, bí og blaka“.
Á Boðnarmiði rifjaði Indriði á
Skjaldfönn upp snjalla stöku, sem
reyndist eftir Rósberg G. Snædal:
Hræðist varla veður stór
vog þó falla taki
sá er alla ævi fór
einn að Fjallabaki.
Hér fer Hallmundur Guðmunds-
son með fréttir úr sveitinni og þær
snúast vitaskuld um veðrið:
Heldur var fátt nú í fréttunum
og fáir að detta í klettunum.
Þó var endemi eitt
sem alltaf er leitt;
en það mikið rigndi í réttunum.
Ármann Þorgrímsson ber saman
„gangnamenn fyrr og nú“:
Á gangnahestum höfðu trú
það held ég margir trega.
Á fjórhjólum þeir fara nú
um fjöllin, utan vega.
Og á föstudaginn hafði Indriði á
Skjaldfönn áhyggjur af næt-
urfrosti:
Úti í bili er veðravá,
víst skal þó að öllu gá.
Næturfrost í nótt að fer,
nú er ráð að tína ber.
Bryndís Halldóra Bjartmars-
dóttir kvað:
Enn er sólríkt sumar gengið
sölna lauf og fölnar engið
berin frjósa í brekku og mó.
Skarður máni um loftið líður
lítur vart á jörð sem bíður
vetrarkomu í værri ró.
Og í lokin gamall húsgangur:
Auminginn sem ekkert á
einatt kinn má væta.
Sæll er sá sem sjálfur má
sína nauðsyn bæta.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Flughugur, sjóndepra
og veðrið