Morgunblaðið - 11.09.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 2020
Aron Jóhannsson er kominn á tals-
vert flug með Hammarby í sænsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Hann
skoraði í gær fyrsta mark liðsins í
stórsigri á útivelli, 4:0, gegn Gauta-
borg og hefur nú gert fimm mörk í
síðustu fimm leikjunum. Fram að
því hafði Aron ekki skorað mark í
deildakeppni í rúmlega tvö ár en
hann var lengi frá vegna meiðsla
sem leikmaður Werder Bremen í
Þýskalandi. Þá var mark Arons það
60. sem hann gerir í deildakeppni
erlendis, frá því hann yfirgaf Fjölni
árið 2010.
Aron er kominn
á mikið flug
Ljósmynd/Hammarby
Svíþjóð Aron Jóhannsson kom til
Hammarby sumarið 2019.
Handknattleiksmaðurinn Rúnar
Kárason hélt áfram að láta að sér
kveða í dönsku úrvalsdeildinni í
gær en hann hefur byrjað tímabilið
af miklum krafti. Sama verður þó
ekki sagt um lið hans, Ribe-
Esbjerg. Rúnar skoraði 7 mörk í
gær þegar lið hans tók á móti Aal-
borg, þar sem Arnór Atlason er að-
stoðarþjálfari. Þar með hefur Rún-
ar gert 20 mörk í þremur fyrstu
leikjunum og er í hópi markahæstu
manna. Aalborg vann 35:30 og
Ribe-Esbjerg er enn án stiga eftir
þrjár umferðir.
Rúnar öflugur
en liðið án stiga
Morgunblaðið/Hari
7 mörk Rúnar Kárason raðar inn
mörkunum í Danmörku.
9. UMFERÐ
Bjarni Helgason
bjarnih@mbl.is
Valsarinn Hlín Eiríksdóttir reyndist
örlagavaldurinn fyrir sitt lið þegar
Valur heimsótti Selfoss í úrvalsdeild
kvenna í knattspyrnu, Pepsi Max-
deildinni, á Jáverksvöllinn á Selfossi
í frestuðum leik í 9. umferð deild-
arinnar á miðvikudaginn síðasta.
Hlín, sem er einungis tvítug, skor-
aði bæði mörk Vals í 2:1-sigri en sig-
urmarkið kom í uppbótartíma.
Hlín er uppalin á Hlíðarenda og
hefur leikið með liðinu allan sinn
meistaraflokksferil sem hófst þegar
hún var fimmtán ára gömul, 2015.
„Við vorum búnar að tapa fyrir
Selfoss tvisvar í röð þannig að það
var gott að vinna þær loksins,“ sagði
Hlín í samtali við Morgunblaðið.
„Við töpuðum fyrir þeim í Meist-
arakeppni KSÍ í byrjun tímabilsins
og svo aftur í átta liða úrslitum bik-
arkeppninnar á dögunum sem var
súrt. Ég ætla ekki að ganga svo
langt að segja að töpin hafi setið í
okkur en þau gáfu okkur klárlega
auka kraft til að fara með inn í leik-
inn.
Það er alltaf gaman að skora, sér-
staklega þegar að mörkin eru mik-
ilvæg og þau telja. Hvort þetta hafi
verið minn besti leikur í sumar skal
látið ósagt en ég verð að gefa Elínu
[Mettu Jensen] kredit fyrir þessi
mörk. Hún átti þau skuldlaust og
það er kannski frekar hægt að segja
að ég hafi verið réttur maður á rétt-
um stað.
Ég vil að sjálfsögðu reyna að bæta
mig á milli ára en samt sem áður er
ég ekki að setja of mikla pressu á
sjálfa mig með því að reyna að bæta
markafjölda minn ár frá ári. Þegar
allt kemur til alls þá finnst mér ég
vera að spila betur núna í ár en á síð-
asta keppnistímabili og ef ég horfi
yfir þetta sumar þá er ég bara nokk-
uð sátt við mína spilamennsku hing-
að til,“ sagði Hlín sem á að baki 77
leiki í efstu deild þar sem hún hefur
skorað 32 mörk.
Einn leikur í einu
Valskonur, sem eru ríkjandi Ís-
landsmeistarar, eru sem stendur í
efsta sæti deildarinnar með 34 stig
og eru með eins stigs forskot á
Breiðablik sem á leik til góða á Val.
Við í Val tökum einn leik fyrir í
einu og einbeitingin okkar er öll á
Stjörnuleikinn um helgina í dag. Við
vitum hins vegar alveg af því sem er
að gerast í Kópavoginum og þegar
þær töpuðu fyrir Selfossi um daginn.
Eins og staðan er í dag erum við
með örlögin í okkar höndum sem er
jákvætt því þá þurfum við ekki að
pæla í neinum öðrum nema sjálfum
okkur.
Ég fann klárlega fyrir meiri
pressu núna, fyrir þetta tímabil,
heldur en tímabilið 2019. Það er
áskorun að fara inn í sumarið sem
ríkjandi meistarar og ætla sér að
verja Íslandsmeistaratitilinn því það
hefur ekki mörgum liðum tekist það
í gegnum tíðina.
Tímabilið er líka meiri áskorun
fyrir mig persónulega því bæði ég,
þjálfarateymið og svo fjölmiðlar
gera meiri kröfur til mín núna en á
síðustu leiktíð. Það er bara jákvætt
og þannig vil ég hafa það.“
Góðar vinkonur utan vallar
Hlín leikur með tveimur systrum
sínum í Val, þeim Málfríði Önnu Ei-
ríksdóttur og Örnu Eiríksdóttir en
fjórða systir, Bryndís Eiríksdóttir
er fædd árið 2005 og leikur með 3.
flokki Vals.
„Það var aldrei neitt sérstakt
markmið hjá okkur systrum að spila
allar saman og við fjölskyldan höfum
ekki beint rætt þetta okkar á milli í
gegnum tíðina. Maður hefur hins
vegar heyrt aðra ræða þetta fram og
til baka. Ástæðan fyrir því að Arna
ákvað að ganga til liðs við Val var
ekki sú að hana langaði að spila eitt-
hvað sérstaklega með okkur.
Hún ákvað að koma í Val því hún
taldi þetta vera gott skref fyrir
sjálfa sig. Bryndís er svo í 3. flokkn-
um og hún á alveg góða möguleika á
því að spila með meistaraflokknum
einhvern tímann í komandi framtíð.
Við erum fyrst og fremst þrír ein-
staklingar í meistaraflokki Vals, all-
ar með okkar markmið, en að sjálf-
sögðu er gaman að spila með
systrum sínum enda erum við allar
mjög góðar vinkonur.“
Áskorun að fara inn í
tímabilið sem meistarar
Hlín Eiríksdóttir átti stórleik á Selfossi og skoraði bæði mörk meistaranna
Morgunblaðið/Eggert
Samstilltar Hlín Eiríksdóttir og Elín Metta Jensen ná afar vel saman í framlínu Valsliðsins.
Sveindís Jane Jónsdóttir framherji Breiðabliks er í sjötta sinn í liði umferð-
arinnar í Pepsi Max-deild kvenna í fótbolta hjá Morgunblaðinu í ár og hef-
ur verið valin oftast allra í liðið. Hún fékk tvö M fyrir frammistöðu sína í
3:1 sigri Blika á Stjörnunni í 9. umferðinni sem var leikin í fyrrakvöld og
jók þar með enn forskot sitt í M-einkunnagjöf blaðsins.
Sveindís er nú komin með 16 M samanlagt í 12 leikjum Breiðabliks. Næst
kemur samherji hennar Agla María Albertsdóttir með 13 M og þar á eftir
Elín Metta Jensen úr Val með 12, Berglind Rós Ágústsdóttir úr Fylki og
Hlín Eiríksdóttir úr Val með 11 og þær Alexandra Jóhannsdóttir úr
Breiðabliki og Laura Hughes úr Þrótti eru með 10 M hvor.
9. umferð
í Pepsi Max-deild kvenna 2020
3-4-3 Hversu oft leikmaður hefur verið valinn í lið
umferðarinnar
2
Ingibjörg Valgeirsdóttir
KR
Hulda Ósk
Jónsdóttir
Þór/KA
Sveindís Jane Jónsdóttir
Breiðabliki
Katrín
Ómarsdóttir
KR
Hlín Eiríksdóttir
Val
Stephanie Ribeiro
Þrótti
Phoenetia Browne
FH
Taylor Sekyra
FH
Berglind Rós
Ágústsdóttir
Fylki
Elín Metta Jensen
Val
Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
KR
3
3
4
4
5
2
2 2
6
Sveindís eykur forystuna
Mjólkurbikar karla
8-liða úrslit:
FH – Stjarnan........................................... 3:0
Valur – HK ....................................... (frl.) 2:1
Breiðablik – KR........................................ 2:4
2. deild kvenna
Fram – Hamar.......................................... 2:1
Staðan:
HK 12 10 0 2 42:7 30
Grindavík 10 6 2 2 23:10 20
FHL 11 6 2 3 24:19 20
Hamrarnir 12 5 3 4 18:17 18
Álftanes 9 4 1 4 16:25 13
ÍR 12 2 4 6 23:29 10
Sindri 11 3 1 7 16:25 10
Hamar 11 3 1 7 15:29 10
Fram 12 2 4 6 22:38 10
Svíþjóð
Örebro – Malmö....................................... 3:2
Arnór Ingvi Traustason lék ekki með
Malmö.
Gautaborg – Hammarby......................... 0:4
Aron Jóhannsson lék í 70 mínútur með
Hammarby og skoraði eitt mark.
Norrköping – Östersund ........................ 2:2
Ísak B. Jóhannesson lék allan leikinn
með Norrköping og lagði upp mark.
Staðan:
Malmö 19 11 6 2 38:20 39
Häcken 18 9 6 3 31:17 33
Elfsborg 18 8 8 2 30:24 32
Djurgården 18 9 3 6 28:20 30
Norrköping 19 8 5 6 40:30 29
Sirius 18 7 7 4 32:29 28
Hammarby 19 7 7 5 28:26 28
Östersund 19 6 7 6 19:21 25
Mjällby 18 6 6 6 25:27 24
Varberg 18 6 5 7 27:26 23
Örebro 19 6 5 8 23:28 23
AIK 18 4 5 9 16:25 17
Gautaborg 19 2 11 6 21:32 17
Helsingborg 19 3 8 8 19:31 17
Kalmar 19 3 6 10 22:33 15
Falkenberg 18 2 7 9 20:30 13
Danmörk
B-deild:
Hobro – Viborg ........................................ 1:1
Patrik Sigurður Gunnarsson var vara-
markvörður Viborg í leiknum.
Evrópudeild karla
1. umferð:
Nömme Kalju – Mura .............................. 0:4
Mura mætir AGF frá Danmörku.
Olísdeild karla
ÍR– ÍBV................................................. 31:38
Grótta – Haukar ................................... 19:20
Afturelding – Þór ................................. 24:22
Danmörk
Ribe-Esbjerg – Aalborg...................... 30:35
Rúnar Kárason skoraði 7 mörk fyrir
Ribe-Esbjerg, Gunnar Steinn Jónsson eitt
en Daníel Þór Ingason ekkert.
Arnór Atlason er aðstoðarþjálfari Aal-
borg.
Úrslitakeppni NBA
Austurdeild, undanúrslit:
Boston – Toronto .................... (2frl) 122:125
Staðan er 3:3 og oddaleikur í nótt. Sig-
urliðið mætir Miami í úrslitum.
Vesturdeild, undanúrslit:
Denver – LA Clippers.......................... 85:96
Staðan er 3:1 fyrir Clippers.
Nýliðar Lens gerðu sér lítið fyrir
og sigruðu Frakklandsmeistara
París SG, 1:0, í fyrsta leik frönsku
1. deildarinnar í gær. Ignatius Ga-
nago skoraði sigurmarkið á 57.
mínútu og Lens gat því fagnað
óskabyrjun eftir fimm ára fjarveru
frá efstu deild. Sjö af þekktustu
leikmönnum PSG greindust með
kórónuveiruna á dögunum.
Lens vann
meistarana
HANDKNATTLEIKUR
Úrvalsdeild kvenna, Olísdeildin:
TM-höllin: Stjarnan – Selfoss ............. 17.45
Framhús: Fram – HK.......................... 18.30
Úrvalsdeild karla, Olísdeildin:
KA-heimilið: KA – Fram ..................... 19.30
TM-höllin: Stjarnan – Selfoss ............. 20.30
KNATTSPYRNA
1. deild kvenna, Lengjudeildin:
Kópavogsvöllur: Augnablik – ÍA ............. 20
Í KVÖLD!