Morgunblaðið - 11.09.2020, Qupperneq 32
BALDURSNES 6 – AKUREYRI LISTHÚSIÐ – REYKJAVÍK
LOKAÐ
UM
HELGINA
Í VERSLUNUM
SVEFN&HEILSU
Föstudagur
Opið 10-14
Laugardagur
LOKAÐ
Vefverslun okkar er
að sjálfsögðu opin
allan sólarhringinn
Kynntu þér vöruúrvalið og
verslaðu í rólegheitum á
svefnogheilsa.is
Í fyrsta skipti í sögu Félags íslenskra bókaútgefenda
efnir það til bókamarkaðar félagsins að hausti. Bóka-
markaðurinn verður opnaður í Hörpu í dag og opinn til
27. september milli kl. 12 og 20 alla daga. Samkvæmt
upplýsingum frá félaginu taka um 60 útgefendur þátt
að þessu sinni og boðið verður upp á ríflega 5.100 bæk-
ur sem skiptast líkt og oft áður í þrjá álíka stóra flokka,
sem eru barnabækur, skáldverk og fræðibækur og rit
almenns efnis.
Bókamarkaðurinn opnaður í Hörpu
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 255. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Valur dróst gegn KR og ÍBV dróst gegn FH í undan-
úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta en dregið var til
þeirra seint í gærkvöld. KR vann Breiðablik 4:2, FH
lagði Stjörnuna 3:0 og Valur lagði HK í framlengdum
leik, 2:1, í átta liða úrslitum keppninnar í gærkvöld. Í
undanúrslitum kvenna leikur Selfoss við Breiðablik og
KR mætir Þór/KA. »27
Valur dróst gegn KR í bikarnum
ÍÞRÓTTIR MENNING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Stuðningsmenn enska fótbolta-
félagsins Leeds United önduðu létt-
ar þegar liðið tryggði sér í sumar
sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir 16
ára fjarveru. Eðlilega bíða þeir, eins
og annað áhugafólk um enska fót-
boltann, spenntir eftir tímabilinu,
en víst er að einhverjir þeirra eru
ekki mjög bjartsýnir fyrir fyrsta
leik, á móti Englandsmeisturum
Liverpool á Anfield á morgun. „Við
vonum það besta en búumst ekki
við miklu,“ segir Árni Þór Birgis-
son, formaður Leeds-klúbbsins á Ís-
landi. „Aðalatriðið er að sýna að
„við“ eigum heima í þessari deild og
allt umfram það er bónus.“
Árni Þór segir að undanfarin ár
hafi oft verið erfið, þegar horft sé til
gengis Leeds. „Mikið hefur gengið
á undanfarin 15 ár og við höfum
lært af reynslunni að ekkert er
öruggt fyrr en síðasti leikur hefur
verið flautaður af.“
Félagar í Leeds-klúbbnum fylgj-
ast með leikjum sinna manna í Öl-
veri í Reykjavík. Árni Þór segir að
allir leikir séu erfiðir og hann bend-
ir réttilega á að Leeds þurfi að
mæta öllum öðrum liðum í deildinni
heima og að heiman. „Það er ágætt
að byrja á mjög krefjandi verkefni
eins og Englandsmeisturunum á
þeirra heimavelli.“
Leeds var eitt af öflugustu liðum
Englands á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Árni Þór bendir á að þá
hafi margir Íslendingar byrjað að
halda með liðinu og sá stuðningur
hafi almennt haldist síðan, þó ekki
hafi alltaf farið mikið fyrir honum.
„Ótrúlega margir Leedsarar eru úti
um allt land,“ segir hann og bendir
á að þeir séu á öllum aldri enda sé
algengt að stuðningurinn berist frá
kynslóð til kynslóðar. „Ég er til
dæmis af annarri kynslóð Leeds-
ara.“
Sáði fræjum á Húsavík
Don Revie var stjóri Leeds á
gullaldartíma félagsins 1961-1974.
Þá stukku margir á vagninn, ekki
síst Húsvíkingar, og hafa haldið
tryggð við félagið síðan. Einn þeirra
er Arnar Björnsson, fyrrverandi
íþróttafréttamaður. „Bræður mínir
stríddu mér gjarnan á því að ég gat
ekki sagt Manchester United, en ég
gat sagt Leeds og hef haldið mig
við það,“ segir hann um stuðning-
inn. Leggur áherslu á að engar
tengingar hafi verið við félagið og
hann hafi ekki átt keppnisbúning-
inn, hvað þá annað. „Það er af sem
áður var því algengt er að börn séu
nú gerð að stuðningsmönnum félaga
nánast við fæðingu og það staðfest
með treyju, buxum og sokkum, þau
fái keppnisbúninginn eins og hann
leggur sig.“
Arnar segir að Leeds hafi átt
miklu fylgi að fagna á Húsavík á
sjöunda áratugnum og hann og fé-
lagar hans hafi unnið ötullega að
því að afla liðinu fylgismanna. „Um
tíma held ég að ég hafi gert flesta
ef ekki alla bekkjarfélaga mína að
Leedsurum.“
Eftir að hafa tekið ástfóstri við
Leeds segist Arnar hafa notað
hvert tækifæri sem gafst til þess að
fylgjast með árangri liðsins í breska
útvarpinu, BBC World Service.
„Við áttum gamalt, stórt útvarp og
ég tengdi vír úr því upp í þakið til
þess að ná útsendingunum,“ rifjar
hann upp. „Ég átti það meira að
segja til að hlaupa heim af góðum
Völsungs-leik til þess að hlusta á
BBC og heyra hvað væri að gerast
hjá mínum mönnum. Þetta var mik-
ið ævintýri, yndislegur og skemmti-
legur tími, og frá því ég gat sagt
Leeds hefur mér alltaf þótt vænt
um liðið.“
Nóg að geta sagt Leeds
Spenntur Árni Þór Birgisson, formaður Leeds-klúbbsins.
Arnar Björnsson reyndi ekki við „stóru“ nöfnin og heldur
sig við gamla stórveldið Leeds-klúbburinn í viðbragðsstöðu
Leeds Arnar Björnsson er Leedsari af guðs náð.