Morgunblaðið - 17.09.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 2020
Auðbrekku 6 · Kópavogi · Sími 565 8899 · normx@normx.is
ÍSLENSK
FRAMLEIÐSLA
Í YFIR 35 ÁR
Þökkum frábærar viðtökur í sumar!
Núna eru okkar vinsælustu pottar til á lager!
Snorralaug 2000 L
278.000 kr.
Grettislaug 1400 L
239.000 kr.
Unnarlaug 1850 L
285.000 kr.
Sigurlaug 550 L
124.500 kr.
Fasteignafélagið G1 ehf. hefur gert
samning við verktakafyrirtækið
Viðskiptavit ehf. um smíði 50 íbúða
á lóðinni við gatnamót Grens-
ásvegar og Suðurlandsbrautar.
Um er að ræða fyrsta áfanga af
fjórum en alls munu 186 íbúðir og
sjö hæða skrifstofubygging rísa á
þessum stað. Einnig er gert ráð
fyrir 900 fermetra verslunarhús-
næði á neðri hæðum.
Að undanförnu hafa vinnuvélar
verið að störfum við að rífa niður
byggingar á lóðinni, sem lengstum
hýsti starfsemi Hitaveitu Reykja-
víkur. Síðar var Mannvit þar til
húsa og nú síðast Kvikmyndaskóli
Íslands.
Áður voru uppi áform um að
reisa þarna 300 herbergja hótel en
hætt var við þau á síðasta ári og
ákveðið að fara í byggingu á íbúð-
um og skrifstofuhúsnæði. Mið-
svæðis á lóðinni er dælustöð en þar
sem hún er friðuð verður hún áfram
í notkun um sinn.
Eigendi Fasteignafélagsins G1 er
Miðjan hf., sem er í eigu Jóns Þórs
Hjaltasonar og Ragnhildar Guð-
jónsdóttur. Að sögn Jóns Þórs var
ákveðið að ganga til samninga við
Viðskiptavit, eftir að tilboð í verkið
höfðu verið yfirfarin. Aðrir verktak-
ar sem buðu voru Jáverk, ÞG verk
og Ístak. Byggingarleyfið fyrir
þennan fyrsta áfanga er nú þegar
útgefið og verklok verða í ágúst
2021. Bílakjallari á þremur hæðum
verður undir byggingunum, alls um
níu þúsund fermetrar að flatarmáli.
Arkitektar bygginganna eru Arc-
hus/Ríma arkitektar og Mannvit
mun sjá um verkfræðihönnun og
eftirlit. Framkvæmdastjóri og fjár-
málastjóri G1 er Stefán Á. Magn-
ússon. Eigandi og framkvæmda-
stjóri Viðskiptavits er Baldur
Ingvarsson og skrifaði hann undir
samninginn við G1 fyrir hönd síns
fyrirtækis.
Viðskiptavit
reisir íbúðirnar
við Grensásveg 1
50 íbúðir byggðar í fyrsta áfanga
af fjórum fyrir Fasteignafélagið G1
Tölvuteikning/Archus-Ríma arkitektar
Íbúðir Svona munu byggingarnar líta út við Grensásveg 1, þar sem verða íbúðir, skrifstofur og verslanir.
Ljósmynd/G1
Verksamningur Frá undirskrift samnings G1 og Viðskiptavits. Jón Þór Hjaltason frá G1 er fremst til hægri og
gegnt honum er Baldur Ingvarsson frá Viðskiptaviti. Framkvæmdir hefjast þegar í stað við fyrsta áfangann.
Grensásvegur 1
» Á næstu árum munu rísa
186 íbúðir, auk skrifstofu- og
verslunarhúsnæðis.
» Í fyrsta áfanga af fjórum
verða reistar 50 íbúðir.
» Bílakjallari verður á þremur
hæðum.