Morgunblaðið - 07.10.2020, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020
FRÉTTASKÝRING
Andrés Magnússon
andres@mbl.is
Líkt og fram kom í Morgunblaðinu í
gær gátu aðeins 60,7% nemenda í 2.
bekk grunnskóla í Reykjavík lesið
sér til gagns í lesskimunarprófi, sem
skóla-og frístundasvið Reykjavíkur-
borgar gekkst fyrir vorið 2019. Það
er næstversti árangur í árlegri les-
skimun, sem fram hefur farið frá
árinu 2002. Að sögn Helga Gríms-
sonar, sviðsstjóra skóla- og frí-
stundasviðs, var ekki framkvæmd
slík lesskimun síðastliðið vor, þar
sem prófið hefði ekki þótt nægilega í
takt við tímann. Það er því ekki ljóst
hver þróunin hefur orðið síðan, en
þrátt fyrir að stakir skólar hafi
áfram lagt slík próf fyrir nemendur í
2. bekk hefur skólasvið borgarinnar
ekki fengið niðurstöðurnar og eng-
inn með yfirsýn yfir ástandið.
Áhersla á lestrarkennslu
litlu sem engu skilað
Skýrslan hlýtur að vekja ugg um
lestrarkennslu barna, en af henni
blasir við að þrátt fyrir verulega
áherslu á aukna lestrarkennslu á síð-
astliðnum árum hefur árangurinn
látið á sér standa. Raunar beinlínis
um afturför að ræða.
Í samtali við Morgunblaðið segir
Helgi Grímsson að kennslan hefði þó
ekki allt að segja í þessum efnum,
það væri margsannað mál að heim-
ilin skiptu miklu máli, árangur í próf-
um sem þessum gætu endurspeglað
félagslegan bakgrunn, menntun og
efnastöðu foreldra, auk uppruna.
Í fyrrgreindri skýrslu skóla- og
frístundasviðs, sem hefur ekki verið
gerð opinber en Morgunblaðið hefur
undir höndum, er greint frá niður-
stöðum lesskimunar í apríl 2019 úr
34 grunnskólum borgarinnar af þeim
36, sem eru með 2. bekk.
Í niðurstöðunum kom fram munur
á lesskilningi kynjanna, en um 62%
telpna og 59% drengja gátu lesið sér
til gagns. Sá munur er í minna lagi
miðað við niðurstöður fyrri ára.
Ástæðan er þó ekki sú að drengirnir
hafi bætt sig frá fyrri árum, heldur
var hlutfall telpna, sem gátu lesið sér
til gagns, hið lægsta í sögu lesskim-
unarinnar.
Lestrarstríðið um lestr-
arkennsluaðferðir
Hljóðlestraraðferðin ruddi sér
þannig mjög rúms upp úr miðbiki
liðinnar aldar, en þar var leitast við
að tengja lestrarnám eðlislægum
málþroska. Er leið á öldina öðlaðist
umdeild stefna, sem á íslensku hefur
verið nefnd byrjendalæsi (e. whole
language reading), töluverðar vin-
sældir, en þar er lögð áhersla á
merkingu texta og heildrænan mál-
skilning, fremur en hljóð bókstafa.
Aukinna efasemda tók þó að gæta
um byrjendalæsi um aldamótin eftir
að út kom bandarísk þingskýrsla
(NPR) um lestrarkennslu árið 2000.
Síðan hafa verið dregnar saman fjöl-
margar rannsóknir, sem benda ein-
dregið til þess að hljóðlestraraðferð-
in sé árangursríkari aðferð, einkum
á fyrstu stigum. Á öllu þessu hafa
menn ríkar skoðanir, svo heitar að
vestanhafs er deilan nefnd Lestrar-
stríðin.
Í grunnskólum Reykjavíkurborg-
ar var fyrir rúmum áratug tekið að
innleiða byrjendalæsi, starfsþróun-
arverkefni í umsjón Skólaþróunar-
sviðs Háskólans á Akureyri, og hefur
það víða verið tekið í gagnið síðan.
Helgi Grímsson kvaðst ekki hafa á
takteinum hvaða skólar notuðust við
þá aðferð, en taldi að það ætti við um
meirihluta skóla borgarinnar.
Ótrúlega misjöfn lestrar-
kunnátta eftir skólum
Það er því erfitt að átta sig á hvort
fylgni er milli kennsluaðferða í lestri
og lesskilningi samkvæmt lesskim-
uninni. Það hlýtur að koma til álita í
ljósi ákaflega mismunandi frammi-
stöðu skólanna. Á því má glöggva sig
af handritinu hér til hægri.
Munurinn er ótrúlega mikill, en
eins má greina eins konar deilda-
skiptingu.
Þannig skara fimm skólar fram úr,
Hamraskóli, Háteigsskóli, Mela-
skóli, Austurbæjarskóli og Granda-
skóli, en þar gátu um og yfir 75%
nemenda lesið sér til gagns.
Hins vegar voru Fellaskóli, Lang-
holtsskóli og Selásskóli í sérflokki á
hinn veginn, en þar gátu aðeins um
30% barna lesið sér til gagns í lok 2.
bekkjar.
Megnið af skólum liggur þar á
milli, en má gróflega skipta í tvo
flokka, frá 60-70% og 48-59%.
Líkt og Helgi Grímsson benti á
geta félagslegar aðstæður og bak-
grunnur ráðið miklu um námsárang-
ur og sennilega má draga einhverjar
slíkar línur milli skólahverfa. Eftir
sem áður er það vitaskuld hlutverk
skólanna að koma öllum til þroska,
óháð efnum eða öðrum aðstæðum, en
þar er þá greinilega verulegur mis-
brestur á. Ekki þá síður þar sem hér
ræðir um lestur, sem heita má lykill-
inn að nær öllu námi öðru.
Lestur í ólestri í borginni
Lestrarkunnáttu barna í Reykjavík
hrakar enn Mikill munur á skólum Dreifing nemenda eftir árangri og skólumLesskimun 34 grunnskóla í Reykjavík 2019
0% 20% 40% 60% 80% 100%
Selásskóli
Langholtsskóli
Fellaskóli
Dalskóli
Klébergsskóli
Húsaskóli
Norðlingaskóli
Vogaskóli
Ártúnsskóli
Hólabrekkuskóli
Fossvogsskóli
Sæmundarskóli
Breiðholtsskóli
Rimaskóli
Ölduselsskóli
Vættaskóli
Hlíðaskóli
Seljaskóli
Kelduskóli
◊ Hjallastefnan
Breiðagerðisskóli
Laugarnesskóli
Ingunnarskóli
Árbæjarskóli
◊ Landakotsskóli
Háaleitisskóli
Vesturbæjarskóli
Foldaskóli
◊ Ísaksskóli
Grandaskóli
Austurbæjarskóli
Melaskóli
Háteigsskóli
Hamraskóli
65-100% 50-64% 0-49%
85%
83%
82%
79%
76%
70%
69%
69%
68%
67%
67%
67%
66%
65%
65%
63%
59%
58%
57%
57%
56%
55%
55%
53%
53%
52%
52%
51%
50%
50%
48%
32%
31%
30%
11%
8%
10%
10%
13%
13%
10%
13%
10%
14%
15%
13%
13%
16%
23%
17%
21%
18%
19%
23%
27%
29%
23%
16%
22%
24%
19%
26%
31%
17%
37%
48%
35%
35%
Heimild: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur
◊ Sjálfstætt starfandi skólar.
Þróun í lesskilningi frá 2002 til 2019
Lesskimun grunnskóla í Reykjavík 2019 Heimild: Skóla- og frístundasvið Reykjavíkur
60%
71%
61%
58%
60%
62%
64%
66%
68%
70%
72%
2019’18’17’162015’14’13’12’112010’09’08’07’062005’04’03’02
Miðgildi
„Þetta lesskimunarpróf í 2. bekk hef-
ur fyrst og fremst verið notað til þess
að finna þá nemendur, sem þurfa sér-
stakan stuðning og veita þeim hann.
Við lítum ekki á það sem einhvern
stóradóm yfir námsárangri barna í
borginni,“ segir Skúli Helgason,
borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og
formaður skóla- og frístundaráðs
Reykjavíkurborgar. „Samkvæmt
PISA-könnunum stendur borgin og
nágrannasveitarfélög marktækt bet-
ur en aðrir landshlutar og hefur frek-
ar verið að lyftast og stendur hæst af
þessum landshlutum öllum. En svo er
þessi munur á námsárangri
kynjanna, misjafn eftir námsgreinum
raunar, sem við þurfum að athuga
betur og ekki síður hvernig við get-
um stutt enn betur við bakið á börn-
um með annað móðurmál en ís-
lensku.“
Morgunblaðið/Hari
Ekki stóridómur Skúli segir niðurstöð-
urnar engan stóradóm yfir námsárangri.
Enginn stóridómur
„Þessi útkoma er óviðunandi,“ seg-
ir Eyþór Arnalds, oddviti sjálfstæð-
ismanna í borgarstjórn Reykjavík-
ur. „Við áttum að vera að bæta
okkur frá árinu 2015, þegar
Reykjavíkurborg gerðist aðili að
sáttmála um betra læsi, en síðan
hefur okkur hrakað. Það er óvið-
unandi. Það þarf bæði að hafa betri
mælingar og vinna með þeim, sem
dragast aftur úr, svo þessi hlutföll
sjáist ekki framar. Þessi mikli mun-
ur á skólum vekur síðan athygli og
sjálfstæðar spurningar. Þar að baki
búa stórir hópar, sem þurfa meiri
aðstoð, svo mikið er víst. Ég vil hins
vegar ekki tjá mig um einstaka
skóla. Það geta verið ýmsar mál-
efnalegar skýringar á þeim mun, en
þessi þróun og þessi staða er óþol-
andi.
Morgunblaðið/Eggert
Óviðunandi Eyþór segir óviðunandi að lestri
hafi hrakað eftir sáttmála um bætt læsi.
Óviðunandi staða
Draghálsi 14 -16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Þú finnur
gæðin!
Skoðaðu úrvalið
í netverslun
isleifur.is
Fæddur árið 1936
Ranghermt var í frétt í Morgun-
blaðinu í gær, þriðjudag, að Heiðar
Ástvaldsson danskennari, sem lést
sl. sunnudag, 4. október, hefði fæðst
árið 1940. Heiðar Róbert, eins og
hann var skírður, fæddist 1936 og
lést á 84. afmælisdegi sínum. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
Þjóðskrá Íslands hefur tekið í notk-
un snjallmenni í netspjalli á vef
stofnunarinnar www.skra.is. Snjall-
mennið getur svarað ýmsum spurn-
ingum um starfsemi Þjóðskrár Ís-
lands og bent viðskiptavinum á
gagnlegar slóðir.
Hægt er að fá samband við ráð-
gjafa í þjónustuveri milli klukkan 9
og 15 alla virka daga ef snjallmennið
getur ekki svarað spurningum við-
skiptavina, segir í tilkynningu. Utan
afgreiðslutíma tekur snjallmennið
við fyrirspurnum og svarar eftir
fremstu getu en annars tekur það
við skilaboðum sem bíða afgreiðslu
næsta virka dag.
Snjallmenni svarar