Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020  Handknattleiksmaðurinn Kristján Örn Kristjánsson, sem gekk til liðs við franska félagið Aix frá ÍBV í sumar, hefur farið gríðarlega vel af stað með nýja liðinu. Hann skoraði sjö mörk í fyrstu umferðinni gegn Frakklands- meisturum París og var aftur drjúgur í gær í 27:21-sigri á Istres í annarri um- ferðinni. Kristján var markahæstur í liði Aix, skoraði sex mörk úr sjö skotum, og er hann því samanlagt búinn að skora 13 mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum. Kristján er eini íslenski leikmaðurinn í frönsku 1. deildinni í vetur en mark- vörðurinn Grétar Ari Guðjónsson leik- ur með Nice í 2. deild.  Slóvenski knattspyrnudómarinn Damir Skomina mun dæma leik Ís- lands og Rúmeníu í undanúrslitum umspils um laust sæti á EM næsta sumar. Skomina er talinn vera á meðal bestu dómara í heiminum í dag og er mjög reyndur en hann er 44 ára gam- all. Skomina dæmdi úrslitaleik Liverpool og Tottenham í Meistaradeild Evrópu í Madríd á síðasta ári og þá var hann með flautuna þegar Ísland vann 2:1- sigur gegn Englandi í sextán liða úr- slitum EM í Nice í Frakklandi 2016.  Ítalska knattspyrnufélagið Inter Mílanó hefur hafnað þremur tilboðum í danska landsliðsmanninn Christian Eriksen og virðist staðráðið í að halda honum, jafnvel þótt hann eigi ekki sæti í byrjunarliðinu. Eriksen gekk til liðs við Inter frá Tottenham á Englandi í janúar en hefur síðan þá verið not- aður heldur sparlega af þjálfaranum Antonio Conte. Gazzetta dello Sport segir að franska stórliðið París St. Germain hafi viljað fá kappann að láni en Atlético Madríd og Hertha Berlín séu einnig áhugasöm.  Eftir að hafa sigrað á Sanderson Farms-mótinu í PGA-mótaröðinni í golfi á sunnudagskvöld hefur Spán- verjanum Sergio Garcia tekist að vinna mót í stærstu mótaröðunum á þremur mismunandi áratugum. Hefur honum auk þess tekist að vinna mót á hverju ári í annaðhvort PGA-eða Evrópumótaröðinni í áratug. Eftir slæmt gengi á árinu hristi Garcia af sér slenið og lék á 19 höggum undir pari á mótinu í Mississippi.  Xherdan Shaqiri, leikmaður enska knattspyrnufélagsins Liverpool, er með kórónuveiruna en þetta staðfesti svissneska knattspyrnusambandið í gær. Shaqiri mun því ekki taka þátt í landsleikjum Sviss í þessu landsleikjahléi en liðið mætir Króatíu í vin- áttulands- leik í dag og svo Spáni og Þýska- landi í Þjóðadeild UEFA. Shaqiri er þriðji leik- maður Liverpool sem greinist með veiruna en bæði Thiago og Sadio Mané greindust með hana í september. Eitt ogannað sæti á EM á næsta ári. Rúmenska landsliðið er mætt til landsins og Knattspyrnusambandið var búið að selja um þúsund miða á leikinn í samræmi við gildandi lög og reglur í fyrradag. Fljótt skipast veður í lofti. Sólarhring síðar var öll framkvæmd leiksins í uppnámi. Katrín Jak- obsdóttir forsætisráðherra sefaði líklega marga í kvöldfréttum Stöðv- ar 2: „Ég vænti þess að leikurinn geti farið fram en að við þurfum að horfa á hann í sjónvarpinu,“ sagði Katrín. Þá hafði Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri KSÍ, sagt í sam- tali við mbl.is að sambandið biði eftir fyrirmælum frá yfirvöldum. UEFA greiðir hverju knatt- spyrnusambandi, sem nær liði á EM, rúmar níu milljónir evra sem er um einn og hálfur milljarður króna. Gæti leikurinn ekki farið fram á morgun væri þó ekki öll von úti, en honum hefur nú þegar verið frestað tvisvar. Í nýrri reglugerð UEFA segir að hægt sé að fresta umspils- leikjum alveg fram að Evrópumeist- aramótinu sjálfu eða til 8. júní á næsta ári, en mótið hefst þremur dögum síðar. Þá áskilur sambandið sér einnig réttinn til að færa leikinn til annars lands á hlutlausan völl, gerist þess þörf. Biðin eftir leiknum hefur hins vegar nú þegar verið ansi löng. Von var á rúmenska landsliðinu til landsins síðdegis í gær eða í gær- kvöldi. KSÍ þarf í sjálfu sér ekki að búa til vinnulag vegna fram- kvæmdar leiksins þar sem það kem- ur frá UEFA. Voru til dæmis stífar sóttvarnareglur þegar leikið var gegn Englandi og Belgíu í síðasta mánuði. Hlé á keppni innandyra Samkvæmt nýju reglunum verða keppnisviðburðir innandyra ekki leyfðir, alla vega til 19. október, og munu sérsamböndin þurfa að gera hlé á sínu mótahaldi þangað til. Körfuknattleikssambandið var eitt þeirra sem fundaði um stöðuna í gær og má vænta frekari upplýsinga um stöðuna í dag. Íslandsmótið í knatt- spyrnu getur væntanlega haldið áfram en þó eru uppi spurningar um þau lið sem spila heimaleiki sína í knattspyrnuhúsum. Úrvalsdeildarlið HK spilar til að mynda í Kórnum í Kópavoginum. Þessi mál munu væntanlega öll skýrast á komandi dögum. Sóttvarnir eru handfelldar  Landsleikirnir og Íslandsmótið fara væntanlega fram þrátt fyrir hertar að- gerðir stjórnvalda  Íþróttir innandyra sem krefjast snertingar óheimilar Morgunblaðið/Eggert Stuðningur Birkir Bjarnason og íslenska liðið verða ekki aðnjótandi stuðn- ings Tólfunnar á næstu landsleikjum vegna hertra sóttvarnaaðgerða. FRÉTTASKÝRING Kristófer Kristjánsson kristofer@mbl.is Íþróttir utandyra verða áfram leyfð- ar eftir að heilbrigðisráðherra féllst að hluta til á tillögur sóttvarnalækn- is um hertar samkomutakmarkanir á höfuðborgarsvæðinu til að sporna við útbreiðslu kórónuveirunnar en þær tóku gildi í dag. Í minnisblaði Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis var mælst til að öllu keppnisstarfi í íþróttum yrði frestað um tvær vikur og mun það eiga við um íþróttir og líkamsrækt innandyra sem krefst snertingar eða mikillar nálægðar fólks. Íþróttir utandyra verða hins veg- ar áfram heimilaðar og örfáir áhorf- endur leyfðir á hverjum viðburði. Þeir mega ekki vera fleiri en tuttugu í hverju rými, skulu bera grímu og sitja í merktum sætum. Gildistími þessara takmarkana er til og með 19. október. Mikið í húfi Uppi varð fótur og fit í gær þegar Þórólfur boðaði hertar aðgerðir á blaðamannafundi almannavarna. Var farið fram á að öllum viðburðum á höfuðborgarsvæðinu yrði frestað næstu tvær vikurnar en á dagskrá næstu vikuna eru þrír landsleikir karlaliðs Íslands á Laugardalsvell- inum. Annað kvöld stendur til að Ís- land spili við Rúmeníu í umspili um Lærisveinar Guðmundar Guð- mundssonar í Melsungen unnu 27:21-sigur á Lemgo í þýsku 1. deildinni í handknattleik en Arnar Freyr Arnarsson var í liði heima- manna. Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir gestina en Bjarki varð markakóngur deildarinnar á síðustu leiktíð. Alexander Petersson skoraði tvö mörk og Ýmir Örn Gíslason eitt er RN Löwen vann 26:24-útisigur á Ludwigshafen en Löwen og Mel- sungen hafa unnið báða leiki sína til þessa. sport@mbl.is Melsungen og Löwen byrja vel Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sigur Guðmundur hefur náð í 4 stig með Melsungen í upphafi móts. Tveir leikmenn karlaliðs Fjölnis hafa verið úrskurðaðir í leikbann og tveir leikmenn kvennaliðs Þrótt- ar eftir að aga- og úrskurðanefnd KSÍ kom saman í gær. Hjá Þrótti eru það Laura Hughes og Sóley María Steinarsdóttir og hjá Fjölni þeir Hans Viktor Guð- mundsson og Grétar Snær Gunn- arsson. Daði Ólafsson úr Fylki, Pét- ur Viðarsson FH, Guðjón Pétur Lýðsson Stjörnunni, Ísak Snær Þor- valdsson ÍA og Ólafur Örn Eyjólfs- son HK eru einnig í leikbanni. Öll eru þau í eins leiks banni. Níu úrskurðuð í leikbann í gær Morgunblaðið/Eggert Leikbann Daði Ólafsson fékk brott- vísun í leiknum gegn Breiðabliki. ÍSLAND Kristófer Kristjánsson kristoferk@mbl.is Ísland mætir Rúmeníu á Laugardals- vellinum á fimmtudaginn í umspili um sæti á EM karla í knattspyrnu á næsta ári. Íslenska landsliðið hefur safnað saman vopnum sínum á ný eft- ir leikina gegn Englandi og Belgíu í Þjóðadeildinni í síðasta mánuði. Þar vantaði marga af mikilvægustu og reyndustu leikmönnum liðsins en á fimmtudaginn mætum við til leiks með okkar sterkasta lið. Þeir Aron Einar Gunnarsson, Gylfi Þór Sigurðsson, Ragnar Sigurðsson, Jóhann Berg Guðmundsson, Kol- beinn Sigþórsson og Alfreð Finn- bogason koma allir aftur í hópinn og þá er Birkir Már Sævarson snúinn aftur eftir að hafa farið á kostum með Völsurum undanfarið. Það verður að teljast ansi líklegt að Erik Hamrén leggi traust sitt á reyndustu leikmenn liðsins, enda byrjunarliðið frá Evr- ópukeppninni sögufrægu í Frakk- landi sumarið 2016 allt saman komið. „Við höfum náð saman okkar bestu leikmönnum aftur, eitthvað sem við gátum ekki í síðustu leikjum,“ sagði Brynjar Björn Gunnarsson, fyrrver- andi landsliðsmaður og þjálfari HK í efstu deild, í samtali við Morg- unblaðið í gær. „Það var alltaf mik- ilvægasta atriðið, að menn væru til- búnir í þennan leik en ekki endilega fyrir mánuði síðan.“ Að öllum líkindum verður Laug- ardalsvöllurinn tómur annað kvöld vegna hertra aðgerða yfirvalda til að sporna við útbreiðslu kórónuveir- unnar. Brynjar segir það auðvitað hafa áhrif, að spila leik af þessari stærðargráðu fyrir luktum dyrum. „Heimavöllur, útivöllur, það virðist ekki skipta máli í dag þegar engir áhorfendur eru. Það sést bæði á leikj- unum hérna heima og úti í deildunum í Evrópu, það virðist draga niður ákefðina og menn verða aðeins minna áræðnir án áhorfenda. Þetta breytir auðvitað ásýnd leiksins í heildina en þetta er 50/50 úrslitaleikur og okkar menn láta það ekki á sig fá.“ Það hefur ekki verið mikil end- urnýjun í landsliðinu undanfarin ár og hafa mikilvægustu mennirnir ver- ið þeir sömu. Gylfi Þór og Jóhann Berg og Kolbeinn hafa verið drjúgir í sóknarlínunni og þeir Aron Einar, Ragnar og Kári Árnason mátt- arstólpar í varnarleiknum. Brynjar segir það ekki áhyggjuefni út af fyrir sig, enda eigi bestu leikmennirnir hverju sinni að spila fyrir landsliðið. „Þetta er að stórum hluta liðið sem spilaði á EM en í hvaða formi á end- urnýjunin að vera? Ef þetta eru okk- ar bestu leikmenn þá er það bara þannig. Í landsliði eiga bestu leik- mennirnir hverju sinni að spila, hvort sem þeir eru tvítugir eða að verða 37 ára. Aldur á ekki að skipta máli. Þetta er kannski líka besta blandan okkar, góðir leikmenn sem þekkja hver ann- an. Þessi hópur hefur reynst okkur vel.“ Þá telur Brynjar að lítið verði hróflað við upplegginu sem hefur reynst íslenska liðinu vel í gegnum árin; verjast vel, gera sem fæst mis- tök og sækja svo hratt þegar tæki- færi gefst. „Það er það upplegg sem hefur reynst okkur vel og við erum góðir í. Við höfum á tímapunktum í leikjunum farið upp í smá pressu til að koma liðum að óvörum. En í heild- ina er öflugur varnarleikur lykillinn að því að vinna þennan leik á fimmtu- daginn.“ Þetta er okkar besta blanda  Brynjar Björn segir Ísland tefla fram hópnum sem hefur reynst okkur vel Morgunblaðið/Hari Þjálfarinn Erik Hamrén getur valið úr sínu besta liði á morgun.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.