Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Byggingarverktakar sem rætt var við
í gær eru á einu máli um að víða megi
sjá þess merki að samdráttur sé að
verða á fyrstu byggingarstigum íbúða
á höfuðborgarsvæðinu. Þótt enn séu
mörg stór verkefni í gangi bendir allt
til að ekki verði byggðar nægilega
margar íbúðir á næstu árum til að
mæta mögulegri þörf.
Fram kemur í talningu Samtaka
iðnaðarsins á íbúðum í byggingu, sem
greint var frá í Morgunblaðinu í gær,
að um 78% íbúða í byggingu á höf-
uðborgarsvæðinu eru innan Reykja-
víkur og Kópavogs. Í Reykjavík nem-
ur samdráttur íbúða í byggingu á
milli ára tæpum 9%, en þar af er um
47% fækkun á íbúðum á fyrstu bygg-
ingarstigum. Hins vegar er fullgerð-
um íbúðum að fjölga stórlega eða um
179% frá september í fyrra. Í Kópa-
vogi var samdráttur bæði á íbúðum að
fokheldu og íbúðum sem eru þegar
orðnar fokheldar og tilbúnar til inn-
réttinga. Hins vegar fjölgaði þar full-
gerðum íbúðum frá sama tíma í fyrra
líkt og í borginni en í heildina nam
samdráttur íbúða í byggingu í Kópa-
vogi ríflega 31% á milli ára.
Ágætisframboð núna
„Það er ágætisframboð núna næstu
mánuðina að minnsta kosti en síðan
dregur augljóslega úr því. Það hafa
ekki verið sett af stað nægjanlega
mörg verkefni svo að það verði órofið
flæði í þessu öllu saman, þannig að
segja má að það verði gat í framleiðsl-
unni,“ segir Þorvaldur Gissurarson,
forstjóri ÞG Verks, sem á von á að
þetta muni koma í ljós innan árs. Hins
vegar blasi ekki eins við hver eftir-
spurnin verður þannig að ekki sé út-
séð með hvort þetta verður vandamál
þegar að því kemur. Verði nokkuð
þétt eftirspurn eftir nýju íbúðarhús-
næði þá sé augljóst að ekki verði til
íbúðir til að mæta þeirri þörf.
Verkefnastaðan hjá ÞG verktökum
í dag er prýðileg að sögn Þorvaldar en
fyrirtækið er með ríflega 200 íbúðir í
smíðum á miðju byggingarstigi og
framkvæmdir hefjast fljótlega við
aðrar 200 íbúðir á höfuðborgarsvæð-
inu. ,,Það er ágætisverkefnastaða hjá
okkur og ekki yfir neinu að kvarta,“
segir hann.
„Maður sér að nýjum verkefnum
sem eru í uppsteypu hefur fækkað,“
segr Ágúst Friðgeirsson, fram-
kvæmdastjóri byggingafyrirtækisins
ÁF húsa ehf. Hann segir verkefna-
stöðu fyrirtækisins þó góða. ,,Ég er
með verkefni í gangi við byggingu 86
íbúða sem koma inn á markaðinn á
næsta ári,“ segir Ágúst. Fyrirtækið
er að reisa fjölbýlishús við Vesturvör
við ströndina á Kársnesinu í Kópa-
vogi og eiga íbúðir að koma í sölu með
vorinu 2021.
Ágúst kveðst ekki hafa skoðað
stöðuna á byggingamarkaðinum ofan
í kjölinn en samdráttur sé fyrirsjáan-
legur í framkvæmdum sem eru að
fara af stað, við íbúðir sem ættu að
koma inn á markaðinn fullbúnar á
næsta og þarnæsta ári. Þá megi búast
við minna framboði á nýjum íbúðum.
Í nýbirtri þjóðhagsspá Hagstof-
unnar kemur fram að dregið hefur úr
innflutningi byggingarefna á árinu.
Innflutningur á krossvið og steypu-
styrktarjárni hefur t.a.m. dregist
saman um nær 25%. Er útlit fyrir að
samdráttur í byggingu íbúðarhús-
næðis á seinni hluta ársins verði svip-
aður og á þeim fyrri og hann muni
teygja sig yfir á næsta ár. Íbúðafjár-
festing muni dragast saman um rúm
14% á þessu ári en aðeins um 1% á því
næsta.
Fækkun nýrra íbúða blasir við
Byggingarverktakar segja verkefnastöðuna góða í dag en nýjum íbúðaframkvæmdum sé að fækka
„Það hafa ekki verið sett af stað nægjanlega mörg verkefni“ Minna flutt inn af byggingarefnum
Morgunblaðið/Eggert
Byggt í Urriðaholti Talning Samtaka iðnaðarins sýnir að á höfuðborgarsvæðinu eru 93% íbúða í byggingu í fjölbýli
en aðeins 4% í einbýli. Í nágrannasveitarfélögum eru 53% íbúða í byggingu í fjölbýli og 33% í rað- eða parhúsi.
Í baráttu við COVID-19 býður
Donnamaska, grímur og andlits-
hlífar sem eru gæða vara frá DACH
og notuð um allan heim.
Vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Sími 555 3100 www.donna.is
Öryggið í fyrirrúmi fyrir lærða sem leika
Heildsöludreifing
Type II 3ja laga
medical andlitsgríma
FFP3 Respirator Comfort
andlitsgríma með ventli
FFP3 High-Risk andlitsgríma Andlitshlífmóðufrí
Vinnueftirlitið hefur skoðað 214
byggingarkrana frá áramótum til
loka september. Á sama tímabili í
fyrra voru skoðaðir 205 kranar.
Fjöldi krana við byggingarfram-
kvæmdir virðist því hafa aukist á
árinu. Eftirlitið skoðar alla krana
við uppsetningu og svo á árs fresti
eftir það svo tölurnar ættu að gefa
nokkuð góða mynd af fjölda krana
sem í notkun eru hverju sinni.
Vísbendingar eru því um að
kranavísitala Vinnueftirlitsins gæti
orðið nokkru hærri í lok þessa árs
en í fyrra. Á öllu síðasta ári voru
284 kranar skoðaðir en þeim hafði
þá fækkað úr 385 á árinu 2018.
Kranavísitalan hefur
hækkað á árinu
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á
að úthluta hlutdeildarlánum til
íbúðakaupa sex sinnum á ári sam-
kvæmt drögum að reglugerð sem
félagsmálaráðherra birti í gær á
samráðsgátt. Eiga úthlutanir að
fara fram 20. febrúar, 20. apríl, 20.
júní, 20. ágúst, 20. október og 20.
desember. Ný lög um hlutdeildar-
lán sem eiga að auðvelda tekjulág-
um að kaupa sitt fyrsta húsnæði
taka gildi 1. nóvember. Á höfuð-
borgarsvæðinu má eingöngu nota
lánin til kaupa á nýjum íbúðum. Á
höfuðborgarsvæði getur hámarks-
verð íbúðanna verið á bilinu 32-58,5
milljónir skv. drögunum.
Lánunum úthlutað
sex sinnum á ári