Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 28
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Togarinn Clyne Castle strandaði við sandrif á Bakkafjöru við Kvíá í Öræfasveit 17. apríl 1919. Flakið er á sama stað, en hefur látið mikið á sjá vegna veðurs. Í lok september var spili togarans komið fyrir í landi Hnappavalla vestan Kvíár við hlið- ina á upplýsingaskilti um togarann og öðru um skipströnd á suðaustur- ströndinni. Verið er að útbúa upp- lýsingaskilti um spilið og verður það sett á sinn stað innan skamms. Félagið Bóasson/Clyne Castle undir forystu Ólafíu Herborgar Jó- hannesdóttur stóð fyrir fram- kvæmdunum. Hún sá um hönnun og samdi textana á skiltin, sem tengj- ast togaranum, en skiltið um skip- ströndin er verk Kvískerjabræðra, sem nutu aðstoðar Sigurgeirs Skúlasonar kortagerðarmanns og Ragnars Franks Kristjánssonar, fyrrverandi þjóðgarðsvarðar. Ólafía segir að þegar skiltið um Clyne Castle hafi verið sett upp í fyrrahaust hafi hún verið ákveðin í því að bjarga spilinu úr flakinu og eftir að hafa aflað tilskilinna leyfa hafi Haukur Gíslason, eigandi Jökulfells, sem sér um brúarsmíðina við Kvíá, tekið að sér að flytja spilið á áningarstaðinn. Sorgleg saga forfeðranna „Málið er mér skylt, en föðurafi minn, Valdór Bóasson, keypti skipið á strandstað ásamt Jóhanni Hans- syni.“ Hún rifjar upp að kostnaður þeirra og erfiði við að reyna að bjarga nýlegu skipinu hafi reynst þeim ofviða og þeir gefist upp 14. ágúst 1923. Valdór hafi notað vél- bátinn Jennýju við verkefnið og lán- að bátinn ásamt áhöfn til að flytja einn þeirra, sem vann við að reyna að koma togaranum á flot vestur yf- ir vötnin. Frásögnum beri ekki sam- an um hvað síðan gerðist, en áhöfnin hafi verið tekin um borð í breskan togara og farið með honum til Hull. Jenný hafi verið skilin eftir í reiði- leysi og endað uppi í Fossfjöru. „Lífsbjörgin var farin og mennirnir voru taldir af.“ Þegar fjölskyldan hafi haldið ætt- armót á þessum slóðum 2005 segist Ólafía hafa ásamt öðrum ættingjum skoðað flakið í sandinum og orðið heltekin af sögunni. „Við undirbún- ing ættarmótsins árið áður heim- sótti ég Kvískerjabræður, sem höfðu hitt afa minn, sem ég gerði ekki, og þeir báru honum vel sög- una. Þá byrjaði ég að grafa upp til- tækt efni um björgunartilraunirnar og naut mikillar velvildar hjá Öræf- ingum og fleirum, fékk meðal ann- ars styrk frá Kvískerjasjóði og Menningarstyrk Hornafjarðar til að vinna að verkefninu, auk þess sem Reynir Gunnarsson og hans menn hjá Vegagerðinni voru mér innan handar. Gísli Jónsson frá Hnappa- völlum hefur líka veitt mér mikla aðstoð, alltaf verið til staðar og ver- ið helsta bakland mitt, rétt eins og Jóhann Viðar, bróðir minn og eig- andi Stuðlastáls í Reykjanesbæ.“ Hún segir að styrkirnir standi straum af verkefninu og er ánægð með framgang mála. „Þetta er samt sorgleg saga,“ segir hún og vísar í Herborgarsögu, bók sem hún skrif- aði um föðurömmu sína og kom út 2015. „Spilið er ótrúlega heilt miðað við að það hefur legið í sandinum í 100 ár,“ heldur Ólafía áfram og leggur áherslu á tengingu sína við skipið. „Þetta er saga forfeðra minna og ég er að ljúka við að hanna skiltið, sem verður sett við spilið til að útskýra hvaðan það kemur og hvers vegna það er þarna.“ Spilið við hlið skiltanna Systkinin við spilið Ásdís, Jóhann Viðar, Ólafía Herborg og Eðvald.  Minningu togarans Clyne Castle haldið á lofti við Kvíá Flutningur Haukur Gíslason lagði til menn og tæki við að losa spilið. Höfðabakka 9, 110 Rvk | Sími 561 9200 run@run.is | www.run.is Gísli, sölu- og markaðsstjóri vinnufatnaðar | Sími 766 5555 | gisli@run.is VANDAÐUR VINNU FATNAÐUR ÖRYGGISSKÓR Sjáum um allar merkingar MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 281. DAGUR ÁRSINS 2020 Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is Í lausasölu 697 kr. Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr. PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr. „Þetta er að stórum hluta liðið sem spilaði á EM en í hvaða formi á endurnýjunin að vera? Ef þetta eru okkar bestu leikmenn þá er það bara þannig. Í landsliði eiga bestu leikmennirnir hverju sinni að spila, hvort sem þeir eru tvítugir eða að verða 37 ára. Aldur á ekki að skipta máli. Þetta er kannski líka besta blandan okkar, góðir leikmenn sem þekkja hver annan. Þessi hópur hefur reynst okkur vel,“ segir Brynjar Björn Gunn- arsson, fyrrverandi landsliðsmaður, meðal annars um landsliðið í knattspyrnu í blaðinu í dag. »23 „Í landsliði eiga bestu leikmenn- irnir hverju sinni að spila“ ÍÞRÓTTIR MENNING Sérstök spurt-og-svarað-sýning verður haldin í Bíó Paradís í kvöld kl. 20 á kvikmyndinni Seberg sem ástr- alski leikstjórinn Benedict Andrews leikstýrði en hann hefur búið á Íslandi til fjölda ára. Andrews mun svara spurningum gesta og mun starfsbróðir hans Hafsteinn Gunnar Sigurðsson stýra viðburðinum. Seberg er byggð á sannsögulegum atburðum úr lífi bandarísku leikkonunnar Jean Seberg sem lenti undir smásjá bandarísku alríkislögreglunnar FBI undir lok sjöunda áratugarins vegna sambands síns við einn af lykil- mönnum Svörtu pardusanna, Hakim Jamal. Andrews situr fyrir svörum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.