Morgunblaðið - 07.10.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020
Biskup Íslands, sr. Agnes M. Sigurð-
ardóttir, hefur ritað bréf til starfs-
manna kirkjunnar. Þar mælist hún
til þess að kirkjustarfi verði hagað
með vissum hætti í ljósi hertra að-
gerða stjórnvalda við heimsfaraldr-
inum, sem miðast við 20 manna sam-
komutakmörk. Þetta kemur fram á
vefnum kirkjan.is.
Mælst er til þess að opið helgihald
falli niður í október en jafnframt er
hvatt til þess að hugað verði að boð-
un fagnaðarerindisins í gegnum
streymi. Þá óskar biskup þess að all-
ar kóræfingar falli niður í október og
hvetur organista og kórstjóra til að
halda æfingum upp í gegnum fjar-
fundabúnað.
Biskup minnir á að 50 manna
fjöldatakmörkun er við útfarir. Þau
sem eru með undirliggjandi sjúkdóm
vísi frá sér athöfnum. Tuttugu
manna fjöldatakmörkun gildir við
kirkjulegar athafnir eins og skírn og
hjónavígslur.
Áfram heldur barna- og æskulýðs-
starf þeirra sem fædd eru árið 2005
og sömuleiðis fermingarstarf í sam-
ræmi við sóttvarnareglur.
Allt eldriborgarastarf fellur niður
í október og eru prestar og djáknar
hvattir til að huga að þeim hópi með
símtölum og sálgæslu, segir biskup.
sisi@mbl.is
Helgihald fellur niður næstu vikur
Mikil röskun verður á kirkjustarfi
vegna útbreiðslu kórónuveirunnar
Morgunblaðið/Ómar
Biskupsbréf Séra Agnes hvetur til
að helgihald falli niður tímabundið.
Umferðin á hringvegi í september
dróst saman um heil 16,3 prósent frá
sama mánuði í fyrra. Þetta er sjöfalt
meiri samdráttur en áður hefur
mælst.
„Hér stýrir kórónufaraldurinn för
og fækkun ferðamanna enda hefur
umferð á ferðamannaleiðum dregist
saman um t.d. 75 prósent á hring-
vegi í Lóni. Þar munar væntanlega
mest um ferðamennina,“ segir í frétt
á heimasíðu Vegagerðarinnar. Útlit
er fyrir 11-12 prósenta samdrátt í ár,
sem hefur ekki áður mælst svo mik-
ill.
Þetta er langmesti samdráttur
sem orðið hefur milli september-
mánaða á 16 lykilteljurum Vega-
gerðarinnar á hringvegi. Áður hafði
mest mælst 2,6% samdráttur milli
áranna 2007 og 2008. Leita þarf aft-
ur til ársins 2015 til að finna minni
umferð í september á hringvegi.
Samdráttur varð í öllum land-
svæðum en mest dróst umferð sam-
an um mælisnið á Austurlandi eða
um tæp 49% en minnst við höf-
uðborgarsvæðið eða tæp 4%.
Af einstaka mælisniðum er það að
frétta að 75% samdráttur varð um
hringveg í Lóni en minnst dróst um-
ferð saman á hringvegi við Úlfarsfell
eða um rétt rúmlega 1%.
Nú stefnir í metsamdrátt milli ára
á hringvegi eða 11-12%. Mesti sam-
dráttur á umræddum mælisniðum
hefur fram til þessa verið milli ár-
anna 2010 og 2011 eða 5,3%. Þannig
að nú stefnir í rúmlega tvöfalt meiri
samdrátt á hringvegi en áður hefur
mælst. Umferðin í umræddum 16
mælisniðum hefur dregist saman um
12,5% frá áramótum frá sama tíma-
bili á síðasta ári. Þetta er sömuleiðis
nýtt met. sisi@mbl.is
Mesti samdráttur
sem mælst hefur
Umferðin á hring-
vegi í september
minnkaði um 16,3%
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Hringvegurinn Umferðin hefur
aldrei dregist jafn mikið saman.
Samtök iðnaðarins, SI, teljareglulega íbúðir í byggingu,
sem gefur góða vísbendingu um
væntanlegt fram-
boð íbúða á
markaði. Veru-
legur samdráttur
kom fram í nýj-
ustu talningunni
á höfuðborg-
arsvæðinu sem
Morgunblaðið
sagði frá í gær og
í umfjöllun SI
kemur fram að leita þurfi „aftur til
eftirhrunsáranna 2010-2011 til að
finna viðlíka samdrátt í byggingu
íbúðarhúsnæðis á umræddu svæði.“
Þetta er vísbending um að umtals-
vert færri fullgerðar íbúðir komi
inn á íbúðamarkaðinn á næstu ár-
um sem er verulegt áhyggjuefni því
landsmönnum fer fjölgandi og
framboðið sem tölurnar nú benda
til er mun minna en talið var áður
að það yrði og mun minna en það
þyrfti að vera.
Eftirspurn á húsnæðismarkaðihefur verið töluverð þrátt fyr-
ir efnahagssamdrátt og skýrist það
að sögn aðalhagfræðings SI af
fjölgun fólks, lækkun vaxta og vax-
andi kaupmætti. Fækkun nýbygg-
inga skýrist þá ekki af því að eft-
irspurn hafi dottið niður. Vandinn
er þvert á móti væntanlega sá að
skortur er á tækifærum til að
byggja og þá má leiða líkum að því
að hann sé að verulegu leyti heima-
tilbúinn.
Í gegnum tíðina hefur Reykjavík-urborg til að mynda verið dug-
leg við að brjóta nýtt land undir
byggingar og bjóða þannig hag-
stæðar lóðir. Á liðnum árum hefur
verið breytt um stefnu og allt kapp
verið lagt á þéttingu byggðar með
dýrum íbúðum og mun hægari
framkvæmdum. Það skyldi þó ekki
vera að borgarbúar standi brátt
frammi fyrir alvarlegum íbúða-
skorti af þessum sökum?
Heimatilbúinn
íbúðaskortur
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
DUXIANA Reykjavik | Ármuli 10 | Reykjavik | +354 5 68 99 50 | www.duxiana.is
GÆÐI OG ÞÆGINDI
SÍÐAN 1926
DUX 6006 - SVÆÐISMEÐFERÐ
Í örfáum einföldum skrefum geturðu sett upp rúmið þitt til að mæta þörfum þínum.