Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 07.10.2020, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020 Tilboð/útboð Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Kæru gestir, félagsstarfið okkar er enn opið en vegna fjöldatakmarkana verður að skrá fyrirfram á viðburði til að tryggja að ekki séu fleiri en 20 manns í rými. Við munum halda áfram að passa upp á 1-2 metra regluna. Nánari upplýsingar og skráning í síma 4112701 / 4112702. Tilkynningar um breytingar koma líka fram á face- booksíðu okkar; Samfélagshúsið Aflagranda. Árbæjarkirkja Kyrrðarstund og Opið hús, félagsstarf fullorðinna, fellur niður í dag og út október vegna sóttvarnareglna. Förum vel með okkur og tökum stöðuna í nóvember. Árskógar Opin vinnustofa kl. 9 -12. Opin smíðastofa kl. 9-15. Stóla- dans með Þóreyju kl. 10.30. Spænskukennsla kl. 14. Bónusbíllinn, fer frá Árskógum 6-8 kl. 12.55. Innipútt Skógarmanna kl. 13 -14. Kennsla í s kl. 14. Hádegismatur kl. 11.40-12.50. Kaffisala kl. 14.45-15.30. Heitt á könnunni, allir velkomnir. S. 411-2600. Boðinn Hádegismatur kl. 11.20-12.30. Handavinnustofa opnar kl. 12.30. Miðdagskaffi kl. 14.30-15.30. Alltaf heitt á könnunni og allir velkomnir í Boðann. Breiðholtskirkja Félagsstarf eldri borgara í Breiðholtskirkju ,,Maður er manns gaman" er alla miðvikudaga kl. 13.15. Byrjum kl. 12 með kyrrðarstund, eftir hana er súpa og brauð. Allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja Ekkert félagsstarf fyrir eldri borgara verður í Bústaða- kirkju í október vegna covid-19. Guð blessi ykkur öll og við sjáumst hress þegar að öllu er óhætt. Hólmfríður djákni. Bústaðakirkja Hádegistónleikar í kirkju kl. 12.05, Tenórar í blíðu og stríðu, Jóhann Friðgeir og vinir syngja við undirleik Jónasar Þóris, súpa í safnaðarsal á eftir. Félgasstarfið heldur áfram og Halldóra kemur og kynnir Avon snyrtivörur kl. 14, kaffi og gúmmulaði frá Sigurbjörgu, allir hjartanlega velkomnir. Bústaðakirkja. Félagsmiðstöðin Hæðargarði 31 Kaffisopi og spjall kl. 8.10-11. Línudans kl. 10. Upplestrarhópur Soffíu kl. 10-12. Hádegismatur kl. 11.30-12.30. Tálgun með Valdóri kl. 13-15.30. Síðdegiskaffi kl. 14.30- 15.30. Allir velkomnir óháð aldri og búsetu. Nánari uppl. i s. 411-2790. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 8.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 13.45 -15.15. Gönguhópur fer frá Jónshúsi kl. 10. Gönguhópur fer frá Smiðju kl. 13. Stólajóga í Jóns- húsi kl. 11, grímuskylda. Leir í Smiðju kl. 13. Zumba í Kirkjuhvoli kl. 16.30 og 17.15. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 13 postulínsmálun. Gullsmári Myndlist kl. 9. Postulínsmálun og silfursmíði kl. 13. Línu- dans kl. 14. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Útskurður og tálgun með leiðbeinanda frá kl. 9-12, 500 kr. dagurinn og allir velkomnir. Hádegismatur kl. 11.30–12:30. Dansleikfimi með Auði Hörpu kl. 13– 13.45. Hvassaleiti 56-58 Morgunkaffi og spjall frá kl. 8.30-10.30. Útvarps- leikfimi kl. 9.45. Framhaldssaga kl. 10.30. Handavinnuhópur kl. 13-16. Korpúlfar Glerlistanámskeið með Fríðu í Borgum kl. 9, þátttöku- skráning, Gönguhópar kl. 10, gengið frá Borgum og inni í Egilshöll. Stjórnar- og nefndarfundur Korpúlfa kl. 10 í Borgum. Gaman saman í Borgum kl. 13. og kvikmyndasýning í umsjón Ísidórs. Myndin Land og synir eftir Indriða G. kl. 13. í Borgum með virðingu fyrir öllum sóttvarnareglum. Qigong með Þóru kl. 16.30 í Borgum. Velkomin. Samfélagshúsið Vitatorgi Í dag er postulínsmálun kl. 9-12. Bók- band verður á sínum stað fyrir og eftir hádegi kl. 9-13 og 13-17. Eftir hádegi, kl. 13.30, hlustum við á hlaðvarp í handverksstofu 2. hæðar. Athugið að dagskrá fer fram með hertari sóttvörnum um þessar mundir, við minnum gesti því á að gæta sóttvarna og hvetjum til grímunotkunar í félagsstarfi. Hlökkum til að sjá ykkur á Lindargötu 59! Seltjarnarnes Gler kl. 9 og 13 á neðri hæð félagsheimilisins og leir á Skólabraut kl. 9. Námskeiðin eru í samráði við leiðbeinendur sem hópaskipta nemendum ef á þarf að halda.Kaffispjall í króknum kl. 10.30 og handavinna í salnum kl. 13. Botsía á Skólabraut og Timbur- menn í Valhúsaskóla fellur niður. Athugið að nú er grímuskylda bæði hjá gestum og starfsfólki. Virðum reglur um almennar sóttvarnir. Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er opið frá kl. 10–16. Heitt á könnunni frá kl. 10–11 og hægt er að líta í blöðin. Hádegismatur er frá kl. 11.30-12.15, panta þarf matinn daginn áður. Handavinnuhópur hitt- ist kl. 13. Kaffi og meðlæti er til sölu frá kl. 14.30–15.30. Velkomin. Síminn í Selinu er 568-2586. Hlíðarbær - deiliskipulag Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 22. september að auglýsa nýtt deili- skipulag Hlíðarbæjar samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Deiliskipulag fyrir Hlíðarbæ var unnið árið 2006 og var þá gert ráð fyrir 29 lóðum fyrir utan þær 9 íbúðahúsalóðir sem nú þegar eru byggðar. Hér er því sett fram nýtt deiliskipulag sem fellir eldra skipulag úr gildi. Í nýju deiliskipulagi er svæðið töluvert minna og ekki gert ráð fyrir frekari upp- byggingu á svæðinu. Melahverfi II – br. deiliskipulag Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 22. september að auglýsa deiliskipu- lagsbreytingar á Melahverfi II samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Deiliskipulagsbreytingin felst í meginatriðum að breyta skipulagsmörkum með hliðsjón af skóg- ræktarsvæðinu og draga úr umfangi íbúðarbyggðar þar. Innan breyttra deiliskipulagsmarka Melahverfis II er fyrirkomulagi lóða og skilmálum um íbúðalóðir breytt. Helstu markmið deiliskipulagsins eru: - að mæta eftirspurn fyrir nýjar íbúðahúsalóðir í Hvalfjarðarsveit. - að fella fyrirhugaða byggð að núverandi byggð í Melahverfi og mynda sterka bæjarheild. - að bjóða upp á fjölbreytni í búsetuformi og skapa búsetuskilyrði fyrir breiðan og ólíkan samfélags- hóp. Krossland – deiliskipulag Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínu þann 22.september að auglýsa deiliskipu- lagstillögu Krosslands samkvæmt 40. og 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 m.s.br. Í gildandi deiliskipulagi sem fellur úr gildi við samþykkt nýs deiliskipulags eru nokkrar breytingar sem hafa verið gerðar á því og talin er þörf á að taka saman þær breytingar og gera fyrirhugaðar breytingar í nýju endurskoðuðu skipulagi. Tillagan gerir ráð fyrir frekari uppbyggingu á svæðinu með mismunandi húsagerðum til að mæta auknum kröfum varðandi uppbyggingu og stækkun í kringum þéttbýlið í nálægð við Akranes og höfuðborgarsvæði. Gert er ráð fyrir allt að 126 íbúðum á 31 lóð. Deiliskipulagstillögurnar eru til sýnis á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar og á heimasíðu sveitarfélagsins www.hvalfjardarsveit.is. Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveitar fö- studaginn 9. október á milli kl. 10:00 og 12:00. Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar að Innrimel 3, 301 Akranesi, eða netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is fyrir 20. nóvember 2020. Virðingarfyllst, Bogi Kristinsson Magnusen Skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar skipulag@hvalfjardarsveit.is Rað- og smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt     fasteignir Vantar þig fagmann? FINNA.is ✝ Svanur Bjark-ar Auðunsson fæddist 17. júní 1944 á Dverga- steini, Álftafirði í Ísafjarðardjúpi. Hann ólst þar upp með foreldrum sín- um Sigríði Guð- mundsdóttur frá Byrgissvík Strönd- um og Auðuni Guð- mundi Árnasyni, fæddum að Folafæti í Seyð- isfirði, Ísafjarðardjúpi. Svanur lést 22. september 2020. Svanur átti þrjú systkini þau: Hjalta Sigurð, Sigríði Guð- mundu og Erling Steinar – þau eru öll látin. Svanur lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum á Laug- arvatni 1961. Svanur flutti til Reykjavíkur 1967 og lauk far- mannaprófi frá Stýrimannaskól- anum 1971. Svanur giftist Stein- unni Arnórsdóttur 28. desember 1968 og fékk með henni soninn Karl sem fæddist í febrúar 1967. Svanur og Steinunn fluttu í Vesturberg og eignuðust þar dæt- urnar Eyrúnu Björk 1971 og Ólaf- íu Erlu 1977. Karl er giftur Michelle Garnado og búa þau í Moss í Noregi. Eyrún Björk er gift Gunnari Gylfasyni og eiga þau börnin Glódísi Björt, f. 1991, Martein Úlf, f. 2001, Hugrúnu Erlu, f. 2006, og Steinunni Mar- íu, f. 2007. Þau búa í Kópavogi. Ólafía á börnin Svan Áskel, f. 2007 og Anniku, f. 2009, með Ólafi Jónssyni. Útför hans fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 7. október 2020, klukkan 13. Pabbi minn; prins Álftafjarð- ar, landnemi í Breiðholti, unn- andi gömlu dansanna, frænd- rækni frændinn og áhugasami afinn, lést 22. september 2020. Dánardagurinn er vissulega mun lágstemmdari dagsetning en fæðingardagurinn hans, en samt sem áður þýðingarmikill því þar er settur punktur við ævi manns. Þegar ég fæddist var pabbi ný- hættur á sjó og byrjaður að vinna í landi. Það þýddi að ég fékk – að mati systkina minna – mun meiri at- hygli en ég hafði gott af. En það þýddi líka að hann var alltaf til staðar, þegar hann var ekki að vinna, þá var hann heima að hlusta á fréttir, allar fréttir, á hæsta styrk, vaska upp eða að dytta að einhverju. Hann sýndi öllu því sem ég tók mér fyrir hendur áhuga og reyndi aldrei að hafa áhrif á ákvarðanir mínar. Öll samskipti voru hrein og bein og eins Vestfirðingum sæmir þá kunni hann að blóta. Hann gat hljómað höstugur en sjaldan lá alvara að baki og eftir blótið kom yfirleitt bros. Hann var mér og börnum mín- um mikils virði og var stór hluti af lífi okkar. Við fórum reglulega í heimsókn til hans, krakkarnir löbbuðu beint í frystinn hjá hon- um og náðu sér í ís, hann hitaði kaffi fyrir mig og við spjölluðum. Hann hafði áhuga á öllu sem að okkur laut og spurði samvisku- samlega um gamla vini mína og ættingja, sagði mér frá ferðum sínum til annarra landa þegar hann vann á farskipi og býsnaðist yfir þjóðfélagsmálunum. Við fórum í bíltúra og útilegur og m.a. næstsíðasta sumar ferð- uðumst við með Kalla norður á Strandir að vitja heimkynna Siggu ömmu og athuga í leiðinni hvort litli Byrgisvíkurbærinn sem afi smíðaði væri ekki örugg- lega á byggðasafninu þar, en hann hafði haft milligöngu um að gripurinn yrði gefinn þangað. Hann var þar ekki – var víst í við- gerð. Pabbi var mjög frændrækinn og var í stöðugu sambandi við ættingja sína út um allt land. Hann skipulagði þorrablót fyrir Dvergasteinsfólkið og fannst ekkert skemmtilegra en að sitja yfir bjór og súrmat með ættingj- um sínum, syngja samsöng og dansa svo við gömul dægurlög. Oftar en ekki dönsuðum við og hann var alltaf jafn hissa á að ég kynni ekki sporin. Í mínum huga er eiginlega ekki til neinn staður á Íslandi annar en Dvergasteinn, þannig var ég alin upp. Þangað fórum við hvert ein- asta sumar þegar ég var barn og með pabba alveg þangað til í fyrra. Þar var hann eins og dvergasteinninn – sat svo vel í sér og var akkúrat þar sem hann átti að vera. Hann þekkti hverja þúfu og hvern hól. Við börnin mín munum alltaf minnast hans með söknuði við þá iðju sem hann undi sér best við; sitjandi við eldhús- borðið, sláandi með fingrunum í borðið að hlusta á tónlist á meðan hann spilaði við okkur. Pabbi minn var pabbi barnanna sinna, frændi ættingja sinna og vinur vina sinna. Hávax- inn, rólegur, stríðinn og elskuleg- ur. Ég mun sakna hans. Sofðu lengi, sofðu rótt, seint mun bezt að vakna. Mæðan kenna mun þér fljótt, meðan hallar degi skjótt, að mennirnir elska, missa, gráta og sakna (Jóhann Sigurjónsson 1880-1919.) Ólafía (Olla). Afi hefur alltaf verið ein af mínum uppáhaldsmanneskjum. Þegar ég var lítil leyfði hann mér að hanga utan í sér á meðan hann horfði á fréttir eða sneri snú-snú- bandinu á meðan hann las blöðin. Allra skemmtilegast var þó þegar afi lék úlfinn í Rauðhettu vegna þess að hann var með svo ein- staklega stór eyru, sem hann heyrði þó lítið sem ekkert með. Síðustu daga hef ég verið að rifja upp stundir sem ég átti með honum og alltaf leitar á hug minn hversu þægilega og góða nær- veru hann hafði. Það var gott að sitja með honum, en hann sat mjög mikið. Við sátum til dæmis oft við eld- húsborðið og hlustuðum saman á útvarpið, hann að gera krossgát- ur á meðan við drukkum upphit- að örbylgjukaffi. Við sátum líka mikið saman á Dvergasteini, þar sem honum fannst best að vera, drukkum bjór og spjölluðum. Þá lifnaði hann allur við og gerði góðlátlegt grín að mér. Eitt af því skemmtilega við afa var hvað hann hafði svartan húm- or. Þegar ég var byrjuð að hafa áhyggjur af því að hann væri að eldast sagði hann mér að hafa engar áhyggjur: „Þú átt eftir að deyja langt á undan mér.“ Hann reyndi líka að sannfæra mig um að ég væri með alveg eins eyru og hann, sem ég var ekki alveg til í að sætta mig við. Afi var alltaf til í að hjálpa mér, hann var laghentur og gjafmild- ur. Hann lánaði mér til dæmis bíl sem hann gerði síðan við, og sá til þess að ég kæmist í útskriftar- ferðina mína eftir menntaskóla. Ég verð alltaf þakklát fyrir að hafa átt hann að og fyrir allt sem hann skilur eftir sig í hjarta mér. Ég á eftir að sakna hans um ókomna tíð. Hvíldu í friði og guð geymi þig afi. Glódís Björt Eyrúnardóttir Svanur Bjarkar Auðunsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.