Morgunblaðið - 07.10.2020, Qupperneq 24
24 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020
STOFNAÐ 1956
Mark30 plus
skrifstofustóll
7.418 kr. án arma
5.706 kr. með örmum
TILBOÐ
% afsláttur
6
7
0
Verð
Verð
3
Mjúk hjól
Hæðarstilling á baki
Armar hæða- og
dýptarstillanlegir,
fæst með og án arma
Pumpa í baki, stillir
stuðning við mjóhrygg
Hallastilling á baki
Hæðarstilling setu og baks
Samhæfð stilling setu
og baks fylgir hreyfingu
notandans
Dýptarstilling á setu
Hægt að stilla stífleika setu
og baks eftir þyngd notanda
Bæjarlind 8-10
201 Kópavogur
sími 510 7300
www.ag.is
ag@ag.is
Einnig til í bláu
Kvintett Ara Braga Kárasonar
trompetleikara kemur fram ásamt
franska píanóleikaranum Romain
Collin í Jazzklúbbnum Múlanum í
kvöld, miðvikudag, kl. 20 í Flóa á
jarðhæð Hörpu.
Á dagskrá sveitarinnar eru lög
úr ýmsum áttum djassheimsins en
auk þess lög eftir þá Collin og Ara
Braga en þeir mættust líka á dúett-
tónleikum í Hannesarholti á dög-
unum. Ásamt Ara Braga og Collin
koma fram þeir Ingimar Andersen
sem leikur á saxófón, bassaleik-
arinn Valdimar Kolbeinn Sigur-
jónsson og Einar Scheving sem
leikur á trommur.
Gestur Ara Braga, Romain Coll-
in, hefur notið sívaxandi athygli í
bandaríska djassheiminum en þar
er hann búsettur. Í umsögn um
hann í National Public Radio sagði
meðal annars: „Romain Collin er
framsýnt tónskáld, stórkostlegur
jazzpíanisti og rísandi stjarna sem
skín sannarlega skært í jazzheim-
inum.“ Hann hefur meðal annars
leikið með Wayne Shorter, Marcus
Miller, Jimmy Heath og Terence
Blanchard.
Kvartett Ara Braga og Collin í Múlanum
Samspil Romain Collin og Ari Bragi.
Vegna hertra samkomureglna hef-
ur tónleikum Víkings Heiðars
Ólafssonar í Eldborgarsal Hörpu
verið frestað einu sinni enn. Tón-
leikarnir, þar sem Víkingur hugðist
flytja tónlistina af plötu sinni, Ra-
meau Debussy, auk Mynda á sýn-
ingu eftir Mussorgsky, áttu að vera
opnunarviðburður Listahátíðar í
júní. Vegna veirufaraldursins var
þeim fyrst frestað þar til í sept-
ember, þá þar til í október og voru
þrennir tónleikar fyrirhugaðir um
næstu helgi og nær uppselt á alla.
Í tilkynningu Víkings Heiðars á
samfélags-
miðlum kemur
fram að tónleik-
unum hafi nú
verið frestað til
5., 7. og 9. mars.
Hann segist
mögulega hafa
getað haft fáa í
salnum um næstu
helgi, haldið til
að mynda sjö
tónleika, „en ég er ekki viss um að
ég hefði getað það, líkamlega eða
listrænt,“ segir hann.
Tónleikum Víkings frestað þar til í mars
Víkingur Heiðar
Ólafsson
Kvikmynd
Agnes Joy
Leikstjórn
Hlynur Pálmason fyrir Hvítur,
hvítur dagur
Handrit
Silja Hauksdóttir, Gagga Jónsdóttir
og Jóhanna Friðrika Sæmunds-
dóttir fyrir Agnes Joy
Leikari í aðalhlutverki
Ingvar E. Sigurðsson fyrir Hvítur,
hvítur dagur
Leikkona í aðalhlutverki
Katla Margrét Þorgeirsdóttir fyrir
Agnes Joy
Leikari í aukahlutverki
Björn Hlynur Haraldsson fyrir
Agnes Joy
Leikkona í aukahlutverki
Ída Mekkín Hlynsdóttir fyrir
Hvítur, hvítur dagur
Barnaefni
Goðheimar
Heimildarmynd
Vasulka-áhrifin
Stuttmynd
Blaðberinn
Sjónvarpsmaður ársins
Helgi Seljan fyrir Kveik
Frétta- eða viðtalsþáttur
Kveikur
Íþróttaefni
HM-stofan
Leikið sjónvarpsefni
Pabbahelgar
Mannlífsþáttur
Svona fólk
Menningarþáttur
Kiljan
Skemmtiþáttur
Áramótaskaup 2019
Upptöku- eða útsendingarstjórn
Salóme Þorkelsdóttir og Gísli Berg
fyrir Söngvakeppnina 2019
Kvikmyndataka
Maria von Hausswolff fyrir Hvítur,
hvítur dagur
Klipping
Kristján Loðmfjörð og Lína
Thoroddsen fyrir Agnes Joy
Leikmynd
Hulda Helgadóttir fyrir Hvítur,
hvítur dagur
Búningar
Margrét Einarsdóttir fyrir
Goðheimar
Tónlist
Edmund Finnis fyrir Hvítur, hvítur
dagur
Hljóð
Gunnar Árnason fyrir Agnes Joy
Gervi
Áslaug Dröfn Sigurðardóttir fyrir
Ófærð 2
Brellur
Pétur Karlsson, Eva Sólveig Þórðar-
dóttir og Haukur Karlsson fyrir
Ófærð 2
Heiðursverðlaun
Spaugstofan
Sigursæl Katla Margrét Þorgeirs-
dóttir var verðlaunuð fyrir leik sinn
í kvikmyndinni í Agnes Joy.
Sex Eddur hvor mynd
Agnes Joy og Hvítur, hvítur dagur
hlutu flest Edduverðlaun árið 2020
Von Ída Mekkín Hlynsdóttir og Ingv-
ar E. Sigurðsson voru bæði verðlaun-
uð fyrir leik í Hvítur, hvítur dagur.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þessi viðurkenning kemur skemmti-
lega á óvart og yljar manni aðallega
um hjartað,“ segir Karl Ágúst Úlfs-
son, einn höfunda, leikstjóra og leik-
ara í Spaugstofunni sem hann stofn-
aði árið 1985 ásamt fjórum félögum
sínum. Spaugstofan hlaut í gærkvöldi
heiðursverðlaun Eddunnar 2020 fyrir
ævistarf sitt, en það er Íslenska sjón-
varps- og kvikmyndaakademían
(ÍKSA) sem stendur fyrir verðlaun-
unum. Auk heiðursverðlaunanna
voru verðlaun veitt í 26 flokkum og
má sjá heildarlista verðlaunahafa hér
til hliðar.
„Mér finnst það mikils virði að ævi-
starf okkar skuli vera metið á þennan
hátt af kollegum okkar og jafningjum
í bransanum. Mér finnst þetta líka
vera mikilvæg viðurkenning á menn-
ingarlegu gildi efnisins sem við fram-
leiddum, það er gamanefnis og sam-
félagsádeilu,“ segir Karl Ágúst og
viðurkennir fúslega að þeir Spaug-
stofufélagar hafi vafalítið komið við
kaunin á mörgum í gegnum tíðina.
„Fólk kunni auðvitað misvel að taka
gríninu, en ég hef alltaf haldið því
fram að maður verði að hafa húmor
fyrir sjálfum sér til að vera hamingju-
samur í þessu lífi.“
Fullkomið fólk leiðinlegt
Klæjar þig ekki stundum í puttana
að fá að gera grín að því sem efst er á
baugi í samfélaginu?
„Jú, það gerist næstum því viku-
lega að ég hugsa að það hefði verið
gaman að taka á einhverju málefni
líðandi stundar,“ segir Karl Ágúst.
Hann rifjar upp að fyrstu verkefni
Spaugstofunnar hafi verið tvö ára-
mótaskaupa RÚV árin 1985 og 1986
og útvarpsþættir af ýmsu tagi. Á
þessum tíma skipuðu hópinn auk
hans þeir Randver Þorláksson, Sig-
urður Sigurjónsson, Örn Árnason og
Þórhallur Sigurðsson, betur þekktur
sem Laddi. Stuttu seinna kom Pálmi
Gestsson í stað Ladda og þannig hélst
hópurinn lengst af. Árið 1989 hófu
Spaugstofufélagar að senda út viku-
lega sjónvarpsþætti, sem fljótlega
urðu vinsælasta sjónvarpsefni
íslenskrar sjónvarpssögu. Í nafni
Spaugstofunnar voru framleiddir
hátt í 500 þættir auk þess sem þeir fé-
lagar gerðu mikið af útvarpsefni.
„Haustið 2015 frumsýndum við í
Þjóðleikhúsinu sýninguna Yfir til þín
í tilefni af 30 ára starfsafmæli okkar
sem formlega séð var hugsuð sem
kveðjusýning hópsins,“ segir Karl
Ágúst og tekur fram að hópurinn
hittist þó alltaf reglulega yfir kaffi-
bolla. „Þannig varð hlaðvarpið Móðir
menn í kví kví til í kófinu í vor sem við
unnum í samstarfi við RÚV og Þjóð-
leikhúsið.“
Áttu þér einhverja uppáhalds-
persónu í litskrúðugu persónugalleríi
Spaugstofunnar?
„Það elska allir Boga og Örvar,
Ragnar Reykás og Kristján Ólafsson.
Af mínum eigin persónum þykir mér
nú alltaf vænt um leigubílstjórann og
nirfilinn, sem gat alltaf kríað út af-
slátt og endurgreiðslur fyrir allt sem
hann keypti eða leigði,“ segir Karl
Ágúst og jánkar því að skemmtilegra
sé að leika breyska menn. „Fullkomið
fólk er ofboðslega leiðinlegt og það er
ekki efni í gamanleik. Ég held að lyk-
illinn að því að skrifa gamanefni sé að
fjalla um gallað fólk.“
Alltaf með margs konar húmor
En kanntu skýringu á vinsældum
Spaugstofunnar í gegnum tíðina?
„Það er oft talað um Spaugstofu-
húmor eins og það sé eitthvert ákveð-
ið fyrirbæri. Ég held að það sé ekki
rétt. Ég held að ástæða þess að við
héldum svona miklum vinsældum all-
an þennan tíma hafi verið að við vor-
um alltaf með margs konar húmor í
gangi. Við vorum með ádeilu, eftir-
hermur, gamanvísur, orðaleiki og
slap-stick eða ærslafenginn gaman-
leik. Við höfum oft fengið að heyra
það í gegnum tíðina að við höfum ver-
ið svo mikið sameiginingarafl, því
fjölskyldur horfðu saman á Spaug-
stofuna. Það var ekki af því að börnin
kynnu svona vel að meta pólitískt
grín. Það var vegna þess að við vorum
líka með húmor sem hæfði öðrum
hópum en þeim sem höfðu mestan
áhuga á þjóðfélagsmálum,“ segir
Karl Ágúst að lokum.
„Yljar um hjartað“
Gleði Pálmi Gestsson, Randver Þorláksson, Sigurður Sigurjónsson, Örn
Árnason og Karl Ágúst Úlfsson árið 1995 þegar Spaugstofan var 10 ára.
Spaugstofan hlýtur heiðursverðlaun Eddunnar 2020
Verðlaun veitt í 26 flokkum auk heiðursverðlauna
Eddan 2020