Morgunblaðið - 07.10.2020, Side 25

Morgunblaðið - 07.10.2020, Side 25
MENNING 25 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 2020 SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI AÐRAR MYNDIR Í SÝNINGU: * Harry Potter * Hvolpasveitin (ísl. tal) * The Secret : Dare to dream * The New Mutants * Unhinged * A Hidden Life SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Frábær ný teiknimynd fyrir alla fjölskylduna. FYRSTA STÓRMYND ÁRSINS Nýjasta Meistaraverk Christopher Nolan ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ The Guardian The Times The Telegraph Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is MÖGNUÐ MYND SEM GAGNRÝNENDUR HLAÐA LOFI : ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ Roger Ebert.com San Fransisco Cronicle The Playlist 88% Leikhópurinn Perlan hefur þurft að takast á við áskoranir kórónuveiru- faraldursins eins og allir aðrir leik- hópar. Liðsmenn eru í áhættuhópi enda búa allir Perluleikarar við fötlun. Þau láta þó ekki deigan síga og mæta á æfingar í hvert sinn sem hægt er og í vikunni kynntu þau starfsemi vetrarins fyrir fjöl- miðlum, klædd í leikbúninga. Að sögn Bergljótar Arnalds leik- stjóra Perlunnar er mikilvægasta verkefnið fyrir hópinn að komast í gegnum þennan erfiða tíma við góða andlega og líkamlega heilsu. „Ég mun reyna að sníða starfsem- ina að reglum hverju sinni. Leik- ararnir eru 10 og í hópnum eru pör og hjálpar það mikið. Ég sem leik- stjóri mun leggja meiri áherslu á að efla sviðsframkomu einstaklinga og persónusköpun í verkum á meðan staðan er svona. Þá notum við grímu á æfingum. Við gerum grín að því að nú fái allir leikarar grím- una í ár,“ segir Bergljót. Næsta sýning Perlunnar ber nafnið „Draumasýningin okkar“. Vegna samkomutakmarkana er frumsýn- ingu frestað fram á næsta ár. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Leikhópurinn Perlan hefur þurft að takast á við áskoranir Covid eins og allir aðrir leikhópar. Liðsmenn hópsins hittu fulltrúa fjölmiðla, kynntu verkefni vetrarins og útskýrðu að þau létu ekki deigan síga og mættu á æfingar. Segja alla fá grímuna í ár Bókaútgáfan Hólar gefur á þessu ári út á annan tug bóka. Nokkrar þeirra eru komnar út, þar á meðal Spurningabókin 2020, eftir Guðjón Inga Eiríksson, Fótboltaspurn- ingar 2020, eftir Bjarna Þór Guðjónsson og Guðjón Inga Eiríksson, og annað hefti Fimmaurabrandara frá Fimmaura- brandarafélaginu. Meðal þeirra bóka sem eru vænt- anlegar er Látra-Björg eftir Helga Jónsson frá Þverá í Dalsmynni (1890-1969). Þetta er endurútgáfa bókarinnar sem kom fyrst út 1949 með umtalsverðum viðbótum. Í bók- inni eru öll helstu kvæði Látra- Bjargar með skýringum Helga og samantekt hans á æviferli hennar. Í viðauka er svo að finna Látrabréfð sem líkur eru á að sé eini varðveitti prósatextinn eftir Látra-Björgu, sagður hafa fund- ist á skemmuvegg á Látrum árið 1740. Einnig er væntanleg bókin Ís- lensku fuglarnir og þjóðtrúin eftir Sigurð Ægisson, sem er afrakstur 25 ára heimildasöfnunar. Í bókinni eru teknir til skoðunar allir íslenskir, reglubundnir varpfuglar og greint frá hérlendri og erlendri þjóðtrú sem snýst um þá. arnim@mbl.is Guðjón Ingi Eiríksson Sigurður Ægisson Látra-Björg og fuglasögur Íslandsstofa hef- ur fyrir hönd markaðs- verkefnisins Ís- land saman í sókn gert samkomulag við Iceland Airwaves um framkvæmd tón- listarhátíðarinnar Live from Reykjavík, í sam- starfi við RÚV, Reykjavíkurborg, Icelandair og Landsbankann, að því er fram kemur í frétt á heimasíðu Stjórnarráðs Íslands. „Hátíðin verður send út beint á RÚV og Rás 2 hér á Íslandi, en að- gengileg í gegnum streymisþjónustu á vefnum erlendis,“ segir þar og að tilgangurinn sé að styðja við sköpun íslenskra tónlistarmanna, þróa tækni til streymis sem nýtast muni íslenskum hátíðum til framtíðar og einnig að efla markaðs- og kynning- arstarf íslenskrar tónlistar á erlend- um vettvangi í samstarfi við Útflutn- ingsmiðstöð tónlistar, ÚTÓN. 25 milljónir króna „Hægt verður að kaupa aðgang að hátíðinni utan landsteinanna í gegn- um vefinn Dice.fm og munu 60% af öllum tekjum renna beint til þeirra listamanna sem spila á hátíðinni. Samhliða Live from Reykjavík mun ÚTÓN standa fyrir rafrænni ráð- stefnu fyrir áhrifafólk úr tónlistar- geiranum til að kynna íslenska tón- list og listamenn. Íslensk tónlist er einn af þremur áhersluþáttum í markaðsaðgerðum Ísland saman í sókn sem koma til framkvæmda á næstu vikum. Efni sem framleitt verður í tengslum við hátíðina verð- ur nýtt til kynningar á íslenskri tón- list og tónlistarstarfsemi og Íslandi sem áfangastað. Samkomulagið er einnig hluti af aðgerðapakka stjórn- valda til að styðja við menningu og listir á tímum COVID-19, sem mennta- og menningarmálaráðherra mun kynna á næstu dögum. Alls hljóðar samningurinn upp á 25 millj- ónir kr,“ segir í fréttinni en mark- aðsverkefnið Ísland saman í sókn er hluti af efnahagsaðgerðum stjórn- valda vegna COVID-19, fjármagnað af atvinnuvega- og nýsköpunarráðu- neytinu, og er ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, Þórdís Kol- brún Reykfjörð Gylfadóttir, formað- ur stýrihóps átaksins. Íslandsstofa semur við Airwaves Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Fyrirtækið Cineworld Group, sem rekur Regal-kvikmyndahúsin, hefur ákveðið að loka öllum kvikmynda- húsum sínum í Bandaríkjunum og Bretlandi frá og með morgundeg- inum. Lokanirnar munu hafa áhrif á um 45 þúsund starfsmenn fyrir- tækisins en ástæðan er útbreiðsla kórónuveirunnar og enn ein frestun frumsýningar á nýjustu kvikmynd- inni um James Bond, No Time to Die. Verður hún næsta vor, um ári eftir að upphaflega átti að frumsýna. Í yfirlýsingu frá fyrirtækinu, sem send var út á mánudag, kemur fram að það geti ekki boðið upp á kvik- myndir af þeirri gerð sem laði fólk að kvikmyndahúsum á tímum Co- vid-19. Fyrirtækið rekur 127 kvik- myndahús í Bretlandi, m.a. Picture- house-kvikmyndahúsin, og 536 kvikmyndahús í Bandaríkjunum. Í frétt á vef CNN kemur fram að hlutabréf í Cineworld Group hafi stórlækkað í verði við tíðindin og að fréttirnar hafi komið mörgum starfsmönnum fyrirtækisins í opna skjöldu. Í september tilkynnti fyrir- tækið að það hefði tapað 1,6 millj- örðum bandaríkjadala á fyrri helm- ingi ársins. Frumsýningum á fjölmörgum kvikmyndum hefur verið frestað á árinu, kvikmyndum sem hefðu í eðli- legu árferði skilað bíóhúsum mikilli aðsókn og tekjum. Má þar nefna ofurhetjumyndirnar Black Widow og Wonder Woman 1984. Beðið Frestun Bond-myndarinnar No Time To Die er kornið sem fyllti mælinn hjá fyrir- tækinu Cineworld. Loka hundruðum kvikmyndahúsa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.