Morgunblaðið - 23.10.2020, Blaðsíða 76
76 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. OKTÓBER 2020
Húðfegrun ehf | Vegmúli 2 | Sími 533 1320 | www.hudfegrun.is
Tímapantanir í síma 533 1320 Við tökumvel ámóti ykkur í Vegmúla 2
TILBOÐ
20%afmælis afslátturí október
Áhudfegrun.is máfinna upplýsingar umallarmeðferðirnar!
20 ára
farsæl
reynsla
Af því tilefni bjóðumvið ykkur
20% afsláttaf öllummeðferðum
Húðslípun – Laserlyfting –Gelísprautun
Dermapen –Húðþétting –Háreyðing...
...sannarlega eitthvað fyrir alla!
Nýttu þér afmælistilboð okkar
bókaðu þínameðferð núna!
Við köllum það stjörnuhrapþegar loftsteinar brennaupp í lofthjúpi jarðar,augnabliksblossi sem er
horfinn um leið og maður sér
hann. Loftsteinarnir eru á þvílíkri
ferð, allt að 40 km hraða á sek-
úndu, 144.000 km hraða á klukku-
stund, 116 földum hljóðhraða, að
þeir þjappa saman lofti fyrir fram-
an sig sem nær nokkur þúsund
gráðu hita og þaðan kemur birtan.
Það þarf ekki að horfa lengi á
nátthimininn til að sjá loftsteina, á
stjörnubjartri nóttu sjást að
meðaltali tíu stjörnuhröp á hverri
klukkustund.
Ekki er langt síðan árleg loft-
steinadrífa Persíta gekk yfir jörð-
ina, ísagnir sem sáldrast hafa af
halastjörnunni Swift-Tuttle sem
lendir líklega á jörðinni í fyllingu
tímans, kannski eftir heimsókn
sína í sólkerfið árið 4479, en þá
verð ég örugglega dauður, lesandi
góður, og þú líklega líka.
Stundum er blossinn veigameiri,
jafnvel vígahnöttur, og dæmi eru
um slíka á okkar tímum þegar
stærri steinar hafa birst í gufu-
hvolfinu og sundrast. Til að
mynda vígahnöttur sem sprakk í
30 kílómetra hæð yfir borginni
Tsjeljabinsk í febrúar fyrir sjö ár-
um með styrk 400 kílótonna af
TNT, þrjátíuföldum styrk sprengj-
unnar sem lagði Híroshíma í rúst.
Tsjeljabinsk-vígahnötturinn var
líklega 13.000 tonn að þyngd og
um tuttugu metrar í þvermál.
Dæmi eru þó um stærri víga-
hnetti, þar á meðal Chicxulub-
smástirnið, sem lenti á Yucatán-
skaga sumar eitt fyrir 65 millj-
ónum ára eða svo (chicxulub er
mayaorð sem snara má sem skott
andskotans).
Ummál Chicxulub, sem var
reyndar ekki eiginlegur vígahnött-
ur, enda sprakk það ekki, var lík-
lega allt að 80 kílómetrar, massinn
ca. 4.600 billjónir tonna og það var
líklega á um 144.000 km hraða á
klukkustund, fór svo hratt að það
ruddi andrúmsloftinu á undan sér
og þjappaði saman um leið —
kýldi gat á lofthjúpinn: Hnull-
ungur sem var stærri en Everest-
fjall lenti á jörðinni á tuttugu
sinnum meiri hraða en byssukúla.
Fór úr tíu kílómetra hæð, algengri
flughæð breiðþotu, til jarðar á 300
millisekúndum, 0,3 sekúndum.
Ógnarhraðinn þjappaði loftinu
saman fyrir neðan smástirnið og
hitinn þar varð margfaldur hiti á
yfirborði sólarinnar. Gat í loft-
hjúpinn, segi ég, lofttæmi mynd-
aðist eitt augnablik að baki
stirninu og þegar það lokaðist
þyrlaðist upp jarðvegur og annað
jarðneskt af svo miklum krafti að
hugsanlega mætti finna ummerki
á tunglinu. Jafnvel risaeðlubein.
Tsjeljabinsk-vígahnötturinn
sprakk með styrk 400 kílótonna af
TNT, Chicxulub með styrk 100
milljóna megatonna.
Gígurinn eftir smástirnið, sem
nú er hulinn seti, var þrjátíu kíló-
metra djúpur og nærfellt hundrað
kílómetrar að þvermáli, náði í
gegnum jarðskorpuna og niður í
möttul jarðar. Stærsti hluti hans
var neðansjávar og í botni hans
sauð sjórinn í tvær milljónir ára.
Um leið og risaeðlurnar sáu
blossann hættu þær að vera til,
heimsendir á mettíma. Gleymum
því ekki að það tók smástirnið
ekki nema 0,3 sekúndur að ná til
jarðar úr tíu kílómetra hæð.
Ekki var þó bara að nærstaddar
risaeðlur ýmist stiknuðu á svip-
stundu eða sundruðust af högg-
bylgjunni heldur fór illa fyrir þeim
lífverum sem eigruðu um heiminn.
Allur sá gríðarlegi massi af jarð-
vegi sem þyrlaðist upp á sporbaug
sáldraðist síðan sem loftsteinar til
jarðar, svo margir að himinninn
logaði. Það hlýnaði því hratt og
svo meira og svo enn meira — tíu
kílóvött á fermetra. Í tuttugu mín-
útur. „Hversu mikið er það?“
spurði einhver. Jú, með grillstill-
ingu á ofninum þínum nærðu sjö
kílóvöttum.
Næstu mánuðir voru myrkur
tími í jarðsögunni, í orðsins fyllstu
merkingu, því svo mikið var af
ryki í andrúmloftinu að varla
gætti sólar. Kuldinn drap lungann
af þeim eðlum sem eftir voru, en
myrkrið gerði út af við þörunga
hafsins. Eftirlifendur voru flögr-
andi eðlur sem dvöldu við árbakka
og vötn, lifðu í holum og byrgjum,
risaeðlur sem við köllum fugla. Já,
og spendýrsgrey sem sá sér leik á
borði.
Fimm milljónum ára síðar tók
hraun að streyma upp úr glufu á
flekaskilum í Norður-Atlantshafi
og á endanum varð Ísland til.
Löngu eftir það Grísalappalísa.
Sem er hætt.
Skott andskotans og Týnda rásin
Morgunblaðið/Eggert
Vínylplata
Týnda rásin bbbbb
Þriðja og síðasta breiðskífa Grísalappa-
lísu. Grísalappalísu skipuðu Albert Finn-
bogason, Baldur Baldursson, Bergur
Thomas Anderson, Gunnar Ragnarsson,
Rúnar Örn Jóhönnu Marinósson, Sig-
urður Möller Sívertsen og Tumi Árna-
son. Upptökustjórn, hljóðritun og hljóð-
blöndun Albert Finnbogason. Annar
stýrimaður Tumi Árnason. Hljóðritað á
ýmsum stöðum frá 2016 til 2018.
Gefin út 2019.
ÁRNI
MATTHÍASSON
TÓNLIST Bless, bless Frá
tónleikum Grísa-
lappalísu í Iðnó á Ice-
land Airwaves í fyrra.
Málverk eftir huldumanninn
Banksy, „Show Me The Monet“, var
selt á uppboði hjá Sotheby’s í fyrra-
dag fyrir sjö og hálfa milljón sterl-
ingspunda, jafnvirði um 1.377 millj-
óna króna. Var það langt yfir
matsverði verksins.
Verkið gerði Banksy árið 2005 og
endurskapaði verk eftir Claude Mo-
net en bætti við umferðarkeilu og
innkaupakerru. Fimm safnarar
buðu í verkið en búist var við að það
myndi seljast á 3,5-5 milljónir sterl-
ingspunda. Aðeins eitt verk eftir
Banksy hefur verið selt fyrir hærri
upphæð, verkið „Devolved Parlia-
ment“ sem slegið var hæstbjóðanda
í fyrra á 9,9 milljónir sterlingspunda,
jafnvirði tæpra 1,4 milljarða króna.
„Show Me The Monet“ er ádeila á
neyslumenningu samtímans á kostn-
að umhverfisins.
AFP
Selt „Show Me The Monet“ í sýningarsal Sotheby’s í London í september.
Ádeiluverk Banksy selt
fyrir 7,5 milljónir punda