Morgunblaðið - 04.11.2020, Side 13

Morgunblaðið - 04.11.2020, Side 13
13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 Viðhald Mikilvægt er að tryggja landsmönnum heitt vatn í aðdraganda veturs. Starfsmenn Veitna leggja sitt af mörkum í þágu hlýrra heimila. Eggert Því er haldið fram að á tímum neyðar- ástands sé stjórnvöld- um heimilt að grípa til þeirra aðgerða sem taldar eru nauðsyn- legar. Ekki aðeins að þeim sé heimilt held- ur beri þeim skylda til að grípa inn í daglegt líf almennings til að verja líf og heilsu. Í varnarbaráttu gegn hættulegum vágesti sé stjórnvöldum frjálst að leggja ákvæði stjórnskip- unarlaga til hliðar og sniðganga hefðbundið ferli löggjafar sem er sögð of hægvirk og óskilvirk. Ég get ekki annað en hafnað þess- um sjónarmiðum. Þar er ég ekki einn. Um hitt verður ekki deilt að stjórnvöld bera skyldur til að bregð- ast við þegar samfélaginu er ógnað. Til lengri tíma litið skiptir meira máli að farið sé að meginreglum réttarríkisins og stjórnarskrár en hvernig glímt er við aðsteðjandi hættu. Á þetta benti Sumption lá- varður (Jonathan Philip Chadwick Sumption), fyrrverandi dómari við hæstarétt Bretlands, í fyrirlestri við Cambridge-háskóla í síðustu viku. Í frjálsu landi sé sérstaklega mikil- vægt að stjórnvöld á hverjum tíma virði grunnréttindi borgaranna og starfi innan þeirra valdmarka sem þeim eru mörkuð. Fordæmi fyrir framtíðina Sóttvarnalög veita ís- lenskum stjórnvöldum ákveðna heimild til að grípa til aðgerða. Í upp- hafi covid-faraldursins var þeim heimildum beitt. Almennur og víð- tækur stuðningur var við sóttvarnaaðgerðir í upphafi enda stóðu vonir til að þær væru tíma- bundnar. Þróun farald- ursins hefur hins vegar orðið með öðrum og verri hætti. Vonir sem vöknuðu í sumar rættust ekki. Á síðustu vikum hafa heilbrigð- isyfirvöld talið sig knúin til að herða aðgerðir og skerða athafna- og fé- lagafrelsi borgaranna. Tíu mánuðir eru frá því að óvissustigi var lýst yfir vegna kórónuveirunnar hér á landi. Fyrir tæpum átta mánuðum voru fyrst settar takmarkanir á sam- komur, framhalds- og háskólum var lokað og rekstur leik- og grunnskóla takmarkaður. Um það er deilt hversu víðtækar heimildir sóttvarnalög veiti heil- brigðisyfirvöldum til að skerða borg- araleg réttindi þegar barist er við vágest sem ógnar lífi og heilsu. Og jafnvel þótt þær heimildir séu taldar rúmar geta þær ekki gefið stjórn- völdum fullkomið vald til að gera það sem þau vilja – hefta frelsi fólks. Eftir því sem tíminn líður og þekk- ing á eðli hættulegrar veiru eykst verða möguleikar stjórnvalda til að ganga á borgaraleg réttindi ein- staklinga með tilvísun í sóttvarnalög enn þrengri. Og ekki má gleyma hvaða fordæmi verið er að setja fyrir framtíðina. Frelsi fólks og stjórnarskrárvarin mannréttindi má ekki skerða nema ýtrustu nauðsyn beri til. Endurmat á sóttvarnalögum er því brýnt. En það blasir einnig við að nauðsynlegt er að fram fari yfirvegað og ná- kvæmt áhættumat, ásamt kostn- aðar- og ábatagreiningu vegna að- gerða og ákvarðana stjórnvalda á hverjum tíma. Upplýsingar um áhrif sóttvarnaaðgerða á aðra starfsemi heilbrigðiskerfisins, og þar með á líf og heilsu landsmanna, verða að liggja fyrir. Innra samræmi í reglum verður að tryggja. Heilbrigðis- yfirvöldum ber skylda til að fara fram í öllum sínum aðgerðum þannig að meðalhófs sé gætt. Í grein hér í Morgunblaðinu 2. september síðastliðinn skrifaði ég meðal annars: „Rauði þráðurinn í hugmynda- baráttu okkar hægrimanna er mannhelgi einstaklingsins. Við lítum svo á að andlegt og efnahagslegt frelsi sé frumréttur hvers og eins. Virðing fyrir frumréttinum tryggir betur en nokkuð annað velsæld sam- félaga. Þegar stjórnvöld telja nauð- synlegt að ganga á þennan frumrétt, þó ekki sé nema í takmarkaðan tíma í nafni almannaheilla, er nauðsyn- legt að byggt sé á skýrum lagalegum grunni. Almenningur verður að skilja rökin sem liggja þar að baki og fá skýrar upplýsingar um hvenær og undir hvaða skilyrðum hömlum verður aflétt. Annars missa stjórn- völd trúverðugleika, samstaða sam- félagsins brestur og aðgerðir til varnar almenningi snúast upp í and- hverfu sína.“ Öryggi óttans Öll þráum við öryggi. Flest setj- um við traust okkar á stjórnvöld. Við lítum svo á að grunnskylda ríkis- valdsins sé að vernda borgarana gegn utanaðkomandi ógnunum, jafnt og ógnunum innanlands, tryggja eignarréttinn og frelsi til orðs og æðis. Í umboði okkar og í krafti þingræðis setur ríkisvaldið al- mennar leikreglur og ber ábyrgð á að þeim sé framfylgt. Hættan er hins vegar sú að óttinn geri okkur sljó í varðstöðunni fyrir borgaralegum réttindum – að við af- hendum frelsið af fúsum og frjálsum vilja – sættum okkur við að mikilvæg borgaraleg réttindi séu lögð til hlið- ar. Í fyrrnefndum fyrirlestri bendir Sumption lávarður á að óttinn sé og hafi verið öflugasta verkfæri þeirra sem virða frelsi borgaranna lítils. Forræðishyggjan nærist á ótta. Í skugga óttans sé þess krafist að stjórnvöld grípi til aðgerða, sem sumar geta verið gagnlegar en aðrar skaðlegar í viðleitni allra að verja líf og heilsu. Í þessum efnum sé ekki aðeins við stjórnvöld að sakast held- ur ekki síður okkur sjálf. Frelsið verður fórnarlamb óttans og um- burðarlyndi gagnvart ólíkum skoð- unum hverfur. Ég hef haft efasemdir um að heil- brigðisyfirvöld geti sótt rökstuðning í sóttvarnalög fyrir öllum sínum að- gerðum – óháð því hversu skynsam- legar þær kunna að vera. Í besta falli eru yfirvöld komin á bjargbrún hins lögmæta. Borgaraleg réttindi, sem eru varin í stjórnarskrá, verða ekki afnumin tímabundið (og enginn veit hvað sá tími er langur) með reglugerðum og án nokkurs atbeina löggjafans eða undir ströngu eftirliti hans. En jafnvel Alþingi hefur verið lamað með sóttvarnaaðgerðum, sem dregur úr möguleikum þess að veita stjórnvöldum aðhald, spyrja spurn- inga og, ef þörf er á; setja heilbrigð- isyfirvöldum stólinn fyrir dyrnar. Og þannig molnar undan þingræðinu og ríkisstjórn reglugerða og tilskipana verður til. Slíkt getur aldrei orðið með samþykki Sjálfstæðisflokksins. Eftir Óla Björn Kárason »Hætta er á að óttinn geri okkur sljó í varðstöðunni fyrir borg- aralegum réttindum – að við afhendum frelsið stjórnvöldum af fúsum og frjálsum vilja. Óli Björn Kárason Höfundur er alþingismaður Sjálfstæðisflokksins. Á bjargbrún hins lögmæta Í nýrri húsnæðisáætlun Reykjavík- urborgar er gert ráð fyrir því að meira en 4.000 íbúðir séu byggðar þar sem nú er Reykjavíkurflugvöllur. Ekkert liggur fyrir um að flugvöll- urinn sé á förum. Þvert á móti hafa borgin og ríkið gert samkomulag um að hann verði áfram í Vatnsmýri á meðan enginn jafn góður kostur eða betri finnst. Áhrif kórónu- kreppunar minnka auk þess líkur á nýjum flugvelli í Hvassahrauni. Að ekki sé minnst á jarðhræringar. Það eru því engar haldbærar for- sendur fyrir því að gera ráð fyrir íbúðum á flug- brautunum. Það þýðir að húsnæð- isáætlun borg- arinnar er stór- gölluð. Hér er gat upp á 4.000 íbúð- ir. Þá vekur at- hygli að borgin telur þörf fyrir 24.200 íbúðir á næstu tuttugu ár- um. Til að mæta þeirri þörf er stefnt að bygg- ingu 1.100 íbúða á ári. Það gera 22 þúsund íbúðir. Hér er annað gat í áætluninni upp á meira en tvö þúsund íbúðir í viðbót. Munar um minna. Það vantar með öðrum orðum íbúðir sem eru á við þrjú Seltjarnarnes. Er nema von að aðvör- unarljósin bliki? Það vantar þrjú Sel- tjarnarnes Eftir Eyþór Laxdal Arnalds Eyþór Arnalds »Ekkert ligg- ur fyrir um að flugvöllurinn sé á förum. Þvert á móti hafa borgin og ríkið gert sam- komulag um að hann verði áfram í Vatns- mýri á meðan enginn jafn góð- ur kostur eða betri finnst. Höfundur er oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.