Morgunblaðið - 04.11.2020, Side 15

Morgunblaðið - 04.11.2020, Side 15
MINNINGAR 15 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 öll samankomin eftir erfiðan vet- ur og þessi helgi mun alltaf lifa í hjarta okkar. Elsku Milla mín, hvað ég sakna þín mikið og alls sem við áttum eftir að gera saman; fara á tónleika, ferðast, vera saman fyr- ir vestan, verða gamlar saman og tala um barnabörnin okkar, nú verður ekkert af þessu og það nístir hjarta mitt, þú varst líka alltaf til staðar og tilbúin að hlusta ef ég þurfti að leita ráða og ég gat treyst á að þú gæfir mér góð ráð. Elsku Milla mín, mamma og pabbi hafa örugglega tekið á móti þér og vafið þig örmum. Farðu í Guðs friði, ég mun allt- af elska þig og sakna. Ég kveð þig með bæninni sem mamma kenndi okkur: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Þín systir, Sigríður. Það er svo óendanlega sárt og óraunverulegt að þurfa að kveðja þig elsku Milla okkar. Þú varst tekin allt of snemma frá okkur eftir stutta baráttu við krabba- mein. En eftir sitja minningar og þakklæti um góða systur og ein- staka vinkonu. Harka, þrjóska og dugnaður dreif þig áfram í þessari baráttu. Þú neitaðir að gefast upp en gafst okkur alltaf von og barðist eins og hetja til síðasta dags. Já vonin er sterk og kemur manni langt. Við systurnar eigum ótal fal- legar minningar um ykkur Bjössa. Þið voruð byrjuð saman þegar við tvíburarnir fæddumst og voruð svo dugleg að vera með okkur frá því við vorum ungbörn. Þegar Inga Björk fæddist eign- uðumst við litla frænku sem var okkur eins og litla systir og sam- verustundunum fjölgaði. Þið tók- uð okkur með í allar sumarbú- staðarferðir, berjamó, sunnu- dagsrúnta og skíðaferðir. Eftir að Haraldur og Berglind fædd- ust vorum við orðnar nógu stórar til að passa þau. Við erum ykkur svo þakklát fyrir að hafa kennt okkur á skíði og farið með okkur nánast allar helgar upp í Bláfjöll. Þið smituðuð okkur svo sannar- lega af skíðabakteríunni. Í dag er þetta skemmtilegasta fjölskyldu- sportið okkar. Börnin okkar og Ingu Bjarkar æfa öll saman skíði með Ármanni, gamla skíðafélag- inu ykkar Bjössa og krakkanna. Samband ykkar Bjössa var fallegt og náið og einkenndist af mikilli vináttu og virðingu hvors fyrir öðru. Þið gerðuð allt saman og við höfum tekið ykkur til fyr- irmyndar í okkar hjónaböndum. Heimilið ykkar Bjössa er svo fallegt og endurspeglar hversu mikill fagurkeri og einstök hús- móðir þú varst. Gestrisni ykkar var rómuð og það var alltaf svo gott að koma til ykkar. Við höfum ekki tölu á öllum skemmtilegu veislunum og stundunum sem við áttum með ykkur á Nesbalanum. Áramóta- partíin standa svo sannarlega upp úr. Á hverju ári fjölmennti fjöl- skyldan og vinir barnanna ykkar á Nesbalann og fögnuðum við áramótunum saman og þökkuð- um fyrir gamla tíma. Síðasta samverustund okkar fjölskyldunnar var nýliðin versl- unarmannahelgi, sem var haldin hjá ykkur Siggu fyrir vestan þar sem við fjölmenntum og héldum þjóðhátíð saman. Það er skrýtið að hugsa til þess að aðeins fyrir tveimur mánuðum varstu dans- andi með okkur langt fram á nótt. Elsku Milla okkar. Við vorum svo vissar um að fá að eldast með þér. Við áttum eftir að gera svo margt saman. Við vorum búnar að ákveða hjólaferð saman, systraferð og tónleikaferðir. Já lífið er fljótt að breytast og nú þurfum við að lifa án þín. Það verður erfitt og tómlegt. Þú varst kletturinn okkar og við gátum leitað til þín með hvað sem var. Takk fyrir allt sem þú gerðir fyrir okkur og börnin okk- ar. Við elskum þig og guð geymi þig. Við vitum að þér líður vel núna, sameinuð mömmu og pabba. Við kveðjum þig elsku systir með bæninni sem mamma kenndi okkur systrum: Vertu yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. (Sigurður Jónsson frá Presthólum) Elsku Bjössi, Inga Björk, Haraldur og Berglind, við vott- um ykkur okkar dýpstu samúð. Þínar systur, Berglind og Birna. Milla, eins og Amalía var al- mennt kölluð, var lífsglöð og fé- lagslynd kona sem átti eigin- mann og börn og barnabörn þegar hún féll frá í blóma lífsins. Hún var svilkona mín til 15 ára og þannig þekkti ég hana. Hún hafði mörg járn í eldinum í senn og sinnti fjölda hlutverka af eld- móði, ósérhlífni og óbilandi starfsorku. Hún byggði upp og rak fyrirtæki með Bjössa, manni sínum, og vann í mörg ár hjá Al- menna lífeyrissjóðnum. Ég trúi því að Milla hafi aldrei notað við- kvæðið „ég nenni því ekki“. Þau hjónin byggðu sér mynd- arlegt hús á Seltjarnarnesi, þar sem nánast allt var gert eigin hendi, og síðar keyptu þau með öðrum jörð í Syðridal við Bolung- arvík og endurbyggðu þar gam- alt býli sem þau nýttu sem annað heimili. Á báðum stöðum var Milla hrókur alls fagnaðar. Hún átti auðvelt með að laða að sér fólk og virðist hafa haldið sam- bandi við marga vini sína allt frá fornu fari. Hún tók sér hlutverk góða hirðisins sem gerði sér far um að hlynna vel að börnum, barnabörnum, vinum og skyld- mennum. Persóna hennar ein- kenndist af stórhug og rausnar- skap. En hún var ekki að útvarpa því sem hún tók sér fyrir hendur, hafði umsjón með og afkastaði, það tók því ekki að minnast á það. Ekki fremur en óþægindin sem veikindin og meðferðin ollu henni undir lokin. Hún ætlaði heldur ekki að gefast upp fyrir þessum vágesti og skömmu fyrir andlátið gaf hún ættingjum sín- um servíettur sem á voru rituð orð eins og „lifðu, varðveittu, njóttu, kannaðu, dansaðu, leiktu, brostu, skapaðu, lífið er núna“. Og hún ætlaði sér að lifa áfram í takt við þetta viðhorf. Hún hafði yndi af tónlist og myndlist og vildi njóta til hins ýtrasta en varð að láta í minni pokann fyrir ill- vígum súkdómnum. Núna eftir að hún er gengin kemur í ljós það skarð sem hefur skyndilega og óvænt myndast í lífi stórfjölskyldunnar. Skarðið er vitaskuld stærra en sem nem- ur þeim verkum sem hún sinnti af ósérhlífni. Nú vantar þann félaga sem hún var manni sínum í löngu hjónabandi, á margvíslegum ferðalögum þeirra og athöfnum daglegs lífs. Systur, vinkonur og tengdamóður vantar nú Millu til að deila hugðarefnum sínum með. Börn og barnabörn finna nú ekki lengur mömmu og ömmu á sínum stað þegar þau koma í heimsókn. En þetta er hópur sem sam- einast við að styðja hvert annað í sorginni. Söknuðurinn er sárari en tár- um taki og við Ingibjörg kona mín vottum þeim öllum okkar innilegustu samúð. Gretar L. Marinósson. Í dag kveðjum við góða vin- konu. Milla var vinur frá æsku og héldust böndin alla tíð. Margs er minnast frá skemmtilegum tímum á Nesinu. Unglingsárin voru líflegur og skemmtilegur tími og vinahópur- inn stór og skemmtilegur. Á þessum árum hittum við Bjössa og Otta sem urðu seinna eigin- menn okkar. Milla og Bjössi eignuðust fyrst af okkur barn, hana Ingu Björk sem var alltaf í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þeg- ar þau byggðu sér hús á Nesbal- anum var oft komið þar við og fylgst með dugnaði þeirra. Á Nesbala var oft glatt á hjalla þegar vinirnir hittust þar eða hjá okkur á Melabrautinni. Þegar árin liðu og börnin urðu fleiri hjá þeim og okkur minnkaði að sjálfsögðu samgangur þar sem Bjössi og Milla sinntu áhugamálum barnanna sinna og við okkar barna. Einn siður var að við fórum alltaf á vorin í ferð austur í Þrastarlund. Einnig þegar við skiptum um bíl þá var farið í bíl- túr á „nýja bílnum“ austur fyrir fjall. Tengslin héldust alltaf og Milla og Bjössi alltaf verið trygg- ir og góðir vinir okkar. Núna í ár fluttum við til Ís- lands eftir átta ára búsetu í Nor- egi og þá fyrir tilviljun aftur í sama hverfi og Bjössi og Milla. Þá sáum við fyrir okkur að við gætum átt skemmtilegar stundir fram undan með góða vini í göngufæri að heiman. En lífið tekur stundum aðrar vendingar en maður hefur séð fyrir sér og nú kveðjum við yndislega vin- konu og þökkum henni fyrir sam- fylgdina. Við munum sakna Millu, sem var blátt áfram og kraftmikil kona sem kom alltaf fram af fullkominni hreinskilni. Við njótum þess áfram að hafa Bjössa æskuvin okkar sem ná- granna, það er ómetanlegt. Það var yndislegt að koma til þeirra í sumar í nýju íbúðina og eiga með þeim einn eftirmiðdag í spjalli um liðna tíð. Við eigum margar góðar minningar sem eru ómetanlegar og gott að hugsa til baka til góðu stundanna. Við sendum Bjössa og fjöl- skyldunni innilegar samúðar- kveðjur. Ykkar vinir, Elín (Ella) og Otti.  Fleiri minningargreinar um Amalíu Berndsen bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Stella Magnús-dóttir fæddist í Reykjavík 23. júní 1946. Hún lést á Landspítalanum 25. október 2020. Foreldrar Stellu voru Magnús Magn- ússon, f. 21.1. 1910, d. 30.10. 1971, og Jó- hanna Árnadóttir, f. 4.10. 1912, d. 5.11. 1987. Systkini Stellu eru Aðalsteinn, d. 1.4. 1982, hann var kvæntur Erlu Lárusdóttur. Þau áttu þrjú börn og eitt er lát- ið. Bryndís, gift Guðmundi Jó- hannssyni, d. 17.10. 2014, Bryn- dís á fjögur börn. Elísabet, hún á þrjú börn, hún er búsett í Ástr- alíu. Ingibjörg, d. 24.11. 2011. Magnús, kvæntur Jóhönnu Freyju Björnsdóttur, þau eiga þrjú börn. Stella giftist 19.3. 1967 Ragn- ari Svafarssyni, f. 7.2. 1947 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Svafar Steindórsson, f. 8.2. 1915, d. 15.8. 1991, og Guðrún Aradótt- ir, f. 27.4. 1909, d. 2.1. 1984. Synir þeirra eru: 1) Svafar, f. 23.5. 1967, í sam- búð með Svövu Mar- gréti Blöndal Ás- geirsdóttur, f. 27.1. 1974. Sonur þeirra er Patrekur, f. 2008. Sonur Svövu og stjúpsonur Svafars er Anton Pétur, f. 1996. 2) Magnús Örn, f. 21.1. 1970, d. 2.12. 2010, giftur Piu Kousgaard, f. 13.5. 1975. Börn þeirra Selma, f. 2001, og Alex, f. 2005. 3) Gunnar Már, f. 20.5. 1973, giftur Hrafnhildi H.K. Friðriksdóttur, f. 10.10. 1967. Börn þeirra Eiður Örn, f. 1996, og Sara Sif, f. 1999. 4) Stefán, f. 8.6. 1977, giftur Árnýju Láru Karvelsdóttur, f. 14.6. 1981. Börn þeirra Valur Freyr, f. 2015, og Freydís Stella, f. 2019. Stella ólst upp á Bergstaða- stræti í Reykjavík ásamt systk- inum sínum. Hún var hárgreiðslu- kona og vann við þá iðn í stuttan tíma en vann einnig við heima- þjónustu í nokkur ár. Meirihluta ævi sinnar var Stella þó húsmóðir og bjuggu þau hjónin í Breiðholt- inu ásamt strákunum sínum. Síðustu árin settu veikindi mark sitt á líf Stellu en hún tók á þeim með yfirvegun og þraut- seigju. Útför Stellu fer fram frá Fella- og Hólakirkju í dag, 4. nóvember 2020, klukkan 13. Vegna að- stæðna verða aðeins nánustu að- standendur viðstaddir en streymt verður frá athöfninni. Stytt slóð á streymi: https://tinyurl.com/ y6kul9jv Virkan hlekk á streymi má finna á: www.mbl.is/andlat Elsku amma Við kveðjum þig, kæra amma, með kinnar votar af tárum. Á ást þinni enginn vafi, til okkar, við gæfu þá bárum. Horfin er hönd þín sem leiddi á hamingju- og gleðifundum, ástúð er sorgunum eyddi, athvarf á reynslustundum. Margt er í minninga heimi mun þar ljósið þitt skína. Englar hjá guði þig geymi, við geymum svo minningu þína. (Höf. ók.) Valur Freyr og Freydís Stella. Það er örugglega alltaf dálítið stressandi að hitta tengdafor- eldra sína í fyrsta sinn og mér var algjörlega hent út í djúpu laugina þar sem fyrsta heimsóknin mín til Stellu og Ragnars var í miðju fjölskylduboði. Stofan á Ferju- bakkanum var ekki stór og þarna sat ég skjálfandi á beinunum en reyndi þó að heilla nýju tengda- fjölskylduna sem best ég gat. Ég þurfti þó ekki að hafa miklar áhyggjur, Stella tók mér algjör- lega opnum örmum og þannig hefur það verið síðastliðin tíu ár. Við höfum alltaf átt virkilega góð samtöl um allt og ekkert. Oft ræddum við hina ýmsu sjón- varpsþætti, enda sameiginlegt áhugamál, fórum yfir hver stóð sig best í danskri bökunarkeppni, hver hefði átt að fara heim í raun- veruleikaþætti eða um skemmti- legar persónur í gömlum bresk- um sjónvarpsþáttum. Stella hafði líka þá eiginleika að láta manni finnast maður vera rosalega hæf- ur í hin ýmsu verk, í mínu tilviki t.d. handavinnu. Allt í einu var ég komin með einhver stærðarinnar verkefni sem hún hafði byrjað á fyrir einhverjum árum en ekki náð að klára. Stella sannfærði mig um að þetta færi ég létt með og ég fór heim alveg klár í verkið. Þegar ég var komin í flækju og búin að binda á mig hnút þá varð ég þó að viðurkenna að líklega var það bara þessi góði kostur Stellu sem hafði fengið mig til að halda að þetta gæti ég. Barna- börnin áttu alltaf sinn stað hjá Stellu og Valur Freyr gekk alveg að því vísu að hjá ömmu Stellu væri hægt að leika sér og það var alltaf í boði eitthvert góðgæti til að kæta. Amma Stella kom svo og gisti hjá okkur nokkrum sinnum sem var svakalega mikið sport fyrir lítinn gutta. Við verðum svo að vera dugleg að segja Freydísi Stellu frá ömmu sinni og nöfnu. Elsku Stella mín, þín verður sannarlega sárt saknað af okkur öllum en það er gott að ylja sér við minningarnar sem við eigum margar. Ég sendi allri fjölskyld- unni mínar dýpstu samúðar- kveðjur. Árný Lára Karvelsdóttir. Stella Magnúsdóttir Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar sambýliskonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, FRÍÐAR ESTERAR PÉTURSDÓTTUR, Sóltúni 29, Selfossi, áður Laugargerði í Biskupstungum. Reynir Ásberg Níelsson Pétur Hjaltason Rut Fjölnisdóttir Erlingur Hjaltason Sjöfn Ólafsdóttir Hafsteinn Hjaltason Anna Kristín Kjartansdóttir Jakob Hjaltason Alice Petersen Guðbjörg Hjaltadóttir Björgvin Snorrason Marta Hjaltadóttir Þór Guðnason og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI HELGI ÁRNASON, Boðaþingi 18, Kópavogi, lést á heimili sínu aðfaranótt sunnudagsins 1. nóvember. Útförin verður auglýst síðar. Anna Konráðsdóttir Kristín Helga Gísladóttir George Sebastian Mikaelsson Guðmundur Víðir Gíslason Ellen Elíasdóttir Konráð Valur Gíslason Sif Sveinsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, SIGURBORG BENEDIKTSDÓTTIR, Hlíðarvegi 10, Ísafirði, sem lést 31. október, verður jarðsungin frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 14. Útförinni verður streymt á youtube-rás Viðburðastofu Vestfjarða. Fyrir hönd aðstandenda, Jónas Björnsson Móðir okkar, amma, langamma og langalangamma, EMELÍA KRISTBJÖRNSDÓTTIR frá Vorsabæ, Skeiðum, lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum, Selfossi, þriðjudaginn 27. október. Útförin fer fram frá Ólafsvallakirkju laugardaginn 7. nóvember klukkan 14. Vegna aðstæðna í þjóðfélaginu verða aðeins nánustu aðstandendur viðstaddir. Streymt verður frá athöfninni á þessari slóð: https://promynd.is/live/ Valgerður Jónsdóttir Eiríkur Jónsson Hulda Nóadóttir Björn Jónsson Stefanía Sigurðardóttir Ingveldur Jónsdóttir Guðmundur Ásmundsson ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓN ÞÓR JÓHANNSSON, fv. framkvæmdastjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Sóltúni mánudaginn 2. nóvember. Jarðarförin verður auglýst síðar. Þorleifur Þór Jónsson Þórdís H. Pálsdóttir Stefanía Gyða Jónsdóttir Jóhann Þór Jónsson Þórunn Marinósdóttir Bergrún Svava Jónsdóttir Rafnar Baldursson barnabörn og barnabarnabarn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.