Morgunblaðið - 04.11.2020, Page 18

Morgunblaðið - 04.11.2020, Page 18
18 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Ýmislegt Húsviðhald Hreinsa þakrennur fyrir veturinn, og tek að mér ýmis smærri verkefni. Uppl. í síma 847 8704 manninn@hotmail.com Raðauglýsingar Tilboð/útboð Breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og hafnarsvæðis á Grundartanga vestursvæði Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar samþykkti á fundi sínum þann 13. október að auglýsa breytingu á deiliskipulagi ásamt umhverfis- skýrslu á iðnaðar- og hafnarsvæði á Grund- artanga samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulags- laga nr. 123/2010. Sú breyting á deiliskipulagi iðnaðar- og hafn- arsvæðis sem hér um ræðir tekur til útvíkk- unar á losunarsvæði á núverandi flæðigryfju á vestursvæði, suðaustan (neðan) Grundar- tangavegar og einnig leiðréttingar á lóðar- stærðum. Kynning verður á skrifstofu Hvalfjarðarsveit- ar föstudaginn 6.nóvember á milli 10:00 og 12:00. Athugasemdum skal skilað til skrifstofu Hvalfjarðarsveitar, Innrimel 3, 301 Akranesi, eða á netfangið skipulag@hvalfjardarsveit.is merkt ,,Grundartangi”, fyrir 18. desember 2020. Bogi Kristinsson Magnusen skipulags- og umhverfisfulltrúi Hvalfjarðarsveitar skipulag@hvalfjardarsveit.is Félagsstarf eldri borgara Bústaðakirkja Hólmfríður djákni býður upp á göngutúr kl 13 á mið- vikudaginn 4. nóvember, um nágrenni Bústaðakirkju. Auðveld ganga um klukkustund. Ef þig langar í félagsskap í göngunni þinni þá væri gaman að sjá þig. Korpúlfar Opið í Borgum í dag frá kl. 8 til 16 en allt félagsstarf fellur niður. Virðum samfélagssáttmálann og allar sóttvarnir. Seltjarnarnes Þeir sem skráðir eru á ákveðin námskeið hafi sam- band við sína leiðbeinendur. Kaffikrókur og önnur samvera í aðstöð- unni á Skólabraut er eingöngu fyrir þá sem búa á Skólabraut. Önnur dagskrá og viðburðir falla niður meðan núverandi takmarkanir gilda. Virðum sóttvarnir, þ.e. handþvott, sprittun, fjarlægðamörk og að grímuskylda gildir. Hlýðum Víði. Við erum öll almannavarnir. 200 mílur ✝ Páll HalldórGuðmundsson fæddist á Höfða í Jökulfjörðum 22. júlí 1925. Hann lést á Landspítalanum 25. október 2020. Foreldrar Páls voru Elísa Ein- arsdóttir frá Dynj- anda, f. 1.7. 1900, d. 6.4. 1985, og Guðmundur Árna- son Pálsson frá Höfða, f. 24.1. 1895, d. 2.6. 1967. Systkini hans voru Aðalheiður, f. 7.1. 1923, d. 29.8. 1977, Steinunn, f. 11.5. 1924, d. 26.11. 2007, Haukur, f. 25.6. 1928, d. 16.9. 2020, og Gunnur, f. 15.3. 1934, d. 8.12. 2007. Fjölskylda Páls flutti að Oddsflöt í Grunnavík árið 1927 og bjó þar til 1942 þegar hún fluttist til Ísafjarðar. Páll stopp- aði þar stutt og flutti til Reykja- víkur 1944. Þar vann hann um tíma við smíðar en varð loks lærlingur í málaraiðn hjá Jósef Finnbjörnssyni. Páll lauk sveinsprófi 1951 og varð mál- arameistari 1959. Páll var virk- ur félagi í Málarameistarafélag- inu og stofnaði og rak eigið fyrirtæki. Reksturinn gekk vel Páls og Gígju Þórðardóttur eru Sölvi, f. 15.10. 1996, Lára, f. 13.8. 2002, og Laufey, f. 2.2. 2004. 2) Ólaf Heimi, f. 3.2. 1976, kvæntur Ingibjörgu Gunn- arsdóttur. Synir þeirra eru Elí- as Rafn, f. 11.3. 2000, Gunnar Heimir, f. 26.1. 2002, og Björg- vin Ingi, f. 20.4. 2004. 3) Erlu Rún, f. 22.5. 1989, í sambúð með Auðuni Inga Ásgeirssyni. Yngri sonur þeirra er Albert, f. 13.2. 1958, kvæntur Eddu Júl- íönu Georgsdóttur, f. 10.4. 1960. Saman eiga þau þrjá syni og Al- bert á eina dóttur af fyrra hjónabandi með Láru Ólafs- dóttur: 1) Sigurlilju, f. 16.2. 1977, í sambandi með Jóni Helga Egilssyni. Sonur Sig- urlilju og Gunnlaugs F. Ingi- bergssonar er Leó, f. 28.11. 2003. 2) Róbert Örn, f. 22.11. 1983. Róbert á fjórar stúlkur, Emblu Nótt, f. 4.7. 2004, Bjart- eyju Gyðu, f. 9.5. 2008, og Arn- eyju Frigg, f. 26.11. 2009, með Höllu Ósk Haraldsdóttur og Dagnýju Freyju, f. 27.1. 2016, með Björk Jómundsdóttur. 3) Albert Guðna, f. 25.4. 1987. Börn hans og Völu Daggar Sig- urðardóttur eru Viktoría Malen, f. 10.12. 2008, og Páll Halldór, f. 6.1. 2014. 4) Gilbert Daníel, f. 25.1. 1992. Útför Páls fer fram í Nes- kirkju í dag, 4. nóvember 2020, og hefst athöfnin kl. 13. Vegna aðstæðna verður athöfnin lokuð en hægt verður að fylgjast með streymi. og útskrifaði Páll þrettán málara- sveina, syni sína tvo þar á meðal. Þá eru ótaldir þeir lærlingar sem ekki luku sveinsprófi, meðal annars flest barnabörn Páls, sem unnu hjá afa sínum um tíma. Páll kynntist konu sinni, Gróu Sigurlilju Guðnadóttur, f. 24.11. 1930, kjólameistara frá Botni í Súgandafirði, á Jónsmessuhátíð á Þingvöllum árið 1949. For- eldrar hennar voru Guðni Jón Þorleifsson, f. 25.10. 1887, d. 1.4. 1970, og Albertína Jóhann- esdóttir, f. 19.9. 1893, d. 2.1. 1989. Páll og Gróa giftu sig 1952 og bjuggu sér heimili í Vesturbæ Reykjavíkur. Lengst voru þau á Reynimel 60, frá 1967 til 2015 þegar þau fluttu á Grandaveg 47. Eldri sonur þeirra var Guð- mundur Elías, f. 24.3. 1952, d. 13.1. 1998. Guðmundur var kvæntur Sigrúnu Erlu Há- konardóttur, f. 27.5. 1954, og eiga þau þrjú börn. 1) Pál Lilj- ar, f. 8.10. 1973, í sambandi með Guðnýju Þorsteinsdóttur. Börn Eftir langan og farsælan ævi- dag hefur minn kæri vinur, Palli tengdapabbi, kvatt þetta jarðlíf. Líf sem einkenndist af vinnu- semi, umhyggju, jafnlyndi og hóg- værð. Líf sem var bæði blítt og strítt eins og gengur. Þrjóskur var hann, stjórnsamur, ljúfur og kær- leiksríkur. Fáorður dugnaðar- forkur sem lét verkin tala. Það var fallegt að sjá þegar leið á ævina hvað hann var stoltur afi og langafi og fylgdist vel með hópnum þeirra Gróu ömmu. Palli var sem vestfirskur klett- ur úr Jökulfjörðum, klettur sinnar fjölskyldu og fyrirmynd afkom- endanna í mörgu. Að leiðarlokum minnumst ég og foreldrar mínir margra góðra fjöl- skyldustunda. Vertu kært kvaddur elsku Palli. Sigrún Erla Hákonardóttir. Elsku afi, þar kom að því. Eftir 95 ára langt ferðalag ertu farinn frá okkur. Ég sakna þín sárt en gleðst yfir lífshlaupi þínu, þakka fyrir allar góðu stundirnar og hugga mig við að pabbi hafi tekið vel á móti þér hinum megin við tjaldið. Ég á svo margar dásamlegar minningar af samverustundum með þér. Margar þeirra frá Reynimelnum og svo auðvitað Hrafnabjörgum, þangað sem ég fylgdi ykkur ömmu oft í helgar- og sumarferðir til að veiða, spila og leika, ýmist ein eða með frændum mínum, Alberti Guðna og Gilberti. Eftir því sem ég eltist bættust langafabörnin smátt og smátt í hópinn og þá fékk ég oft að njóta þess að fylgjast með þér í essinu þínu að kenna þeim að veiða. Stundirnar í Botni voru einnig margar og góðar og svo munu afmælisferðin og samtölin okkar um æskuslóðir þínar í Grunnavík alltaf eiga sérstakan stað í hjarta mér, svo dýrmætt þótti mér að fara þangað með þér og fá að heyra sögur um smala- mennsku, draughrædda vinnu- menn, kirkjuna og sundkennslu- ferðalag. Lífið var ekki alltaf dans á rós- um og þegar pabbi minn, sonur þinn, var skyndilega tekinn frá okkur allt of snemma tóku við gríðarlega erfiðir mánuðir og ár. Ég var bara átta ára og áttaði mig ekki á því fyrr en síðar hvað ég var þó lánsöm að samband ykkar og mömmu var og hefur alla tíð verið gott. Öll lögðuð þið ykkur fram við að passa að ég fengi áfram að halda góðum tengslum við föðurfjölskylduna og það hef ég svo sannarlega gert. Í sumar, stuttu eftir að ég til- kynnti ykkur ömmu að ég ætti von á barni, hafðirðu orð á því við mig að nú hefðir þú sko eitthvað að hlakka til, þú ætlaðir að ná að hitta nýjustu afastelpuna þína áð- ur en þú færir. Elsku Páll afi, þú sem hafðir þá í nokkurn tíma tal- að um að nú væri þetta komið gott, þú værir tilbúinn að kveðja. Mér þótti svo óskaplega vænt um þessi orð og það er svo sárt að þið hafið ekki náð að hittast. Ég kýs þó að trúa því sem amma segir, að þú munir sjá stelpuna mína frá öðru sjónarhorni í staðinn. Hún fær svo auðvitað að heyra sögur af merkilega langafa hennar sem fæddist í torfbæ á hjara veraldar snemma á síðustu öld. Ég er gríðarlega stolt af jök- ulfirsku rótunum og af því að geta kallað mig sonardóttur þína. Þú varst mér svo mikilvægur. Góð fyrirmynd, hörkuduglegur og hlýr. Góður afi, alltaf til staðar án þess þó að vera mikið að skipta þér af mér. Þrjóskur varstu líka inn að beini og fylginn þér. Árin sem við fengum saman voru ekki nema tæpur þriðjungur af ævi þinni og það er merkilegt að hugsa til alls þess sem þú upp- lifðir áður en ég kom til sögunnar. Fyrir mér verður þú þó alltaf hálfsköllótti þolinmóði töffarinn sem ég þekkti og elskaði. Takk fyrir allt og allt, elsku afi. Þína skál! Erla Rún Guðmundsdóttir. Elsku afi minn, það er með miklum söknuði og sting í hjarta sem ég kveð þig nú. Þú varst mín stoð og stytta alla tíð. Hvergi leið mér betur en hjá ykkur ömmu á Reynimel 60. Ég man svo vel þegar við tók- um okkar fyrstu spor saman í líf- inu á jólaballi Oddfellow, síðan þá eru sporin orðin mörg enda eð- aldansari á ferð hvort sem er á dansgólfinu eða í lífi barnabarna og barnabarnabarna ykkar ömmu. Ég sakna þess dýrmæta tíma þegar þú vaktir mig á morgnana (þrátt fyrir þrjár vekjaraklukk- ur) og beiðst þolinmóður til að keyra mig á hverjum morgni í Verslunarskólann, við horfðum og hlógum saman að Yes Minister eftir kvöldmat og þú skutlaðir mér svo um allar trissur suður í Hafnarfjörð til að hitta vinkonur mínar. Þolinmæði þín og rólyndi er fyrirmynd að eðaltöffara sem þú svo sannarlega varst. Þú kenndir mér svo margt, ert og munt alltaf vera hetja mín og stjarna. Án þín væri ég ekki sú sem ég er í dag. Þinn stuðningur og hvatning í gegnum árin eru ómet- anleg og ég vona innilega að ég hafi náð að sýna þér það í verki og orðum hversu þakklát ég er fyrir að hafa átt þig að. Ég elska þig afi minn og ég veit að við sjáumst aftur, en þangað til pössum við upp á ástina þína hana ömmu og höldum áfram að dansa í gegnum lífið undir þinni stjörnu. Þín Sigurlilja (Silja) Albertsdóttir. Páll Halldór Guðmundsson Víkingaskipið Íslendingur hélt úr Rvk.höfn til Vest- urheims með rá og reiða 17. júní 2000; íslensk smíð og áhöfn; níu manns – flestir Eyjamenn; landfestar bundnar í New York 5.10. 2000; 110 daga sigling; 3 mánuðir og 18 dagar. Kokkur: Eyjamaðurinn Hörð- ur; lífskúnstner, sjóari, mat- reiðslumeistari og fjölhagi. Hvorki var hann skítkokkur né Hörður Adolfsson ✝ HörðurAdolfsson fæddist 28. mars 1950. Hann lést 6. október 2020. Hörður var jarð- sunginn 16. októ- ber 2020. eiturbrasari, heldur tær matsnillingur, „Chef de cusine“ er gerþekkti allt hrá- efni; fisk, kjöt, krydd og alla leyndardóma fræðanna; Hann lagði áherzlu á hollan og lystugan mat. Hand- bragð hans og gald- ur leyndu sér hvergi. Siglingin var metn- aðar- og dirfskufullt ævintýri, er átti rætur í eðlislund og vökulli útþrá sjómannsins. Loginn hefur lifað og logað í ýmsum myndum frá upphafi landnáms fram á vora daga. Dýrt ævintýri og tekjutap – en Nanna hló; kyssti þann er lagði á hafið en kom heim þreyttur, sterkur, sporléttur og sigur- þrunginn. Nanna kyssti hann, Hörður brosti; fjölskyldan faðmaði hann. Hörður var aldrei einn. Allir vöktu yfir honum af ást, virðingu. Hann var þá þegar þrautreyndur í lífins ólgusjó, sæfari, knúinn lífsþorsta og ævintýraþrá. Sigl- ing Íslendings var ekki afþreying sporgöngumanna, heldur eldheit ástríða dirfskufullra frumkvöðla. Lífið er sjóferð. Á því méli þekkti ég Hörð ekki, en kynntist hjónunum óvænt, er við urðum óvænt kærleiksgrann- ar í Fellahvarfi 7-15 í Kópavogi árið 2004. Þá þegar myndaðist sterk og einæg vinátta – sumsé þessi: Hlöðver Kjartansson hrl. og k.h. Herdís Jónsdóttir hjúkrun- arfr. á 7, Garðar Siggeirsson stórkaupm. og k.h. Erla Ólöf Ólafsdóttir kennari; Blöndal og k.h. María Aldís hjúkrunarfr.; Guðmundur S. Guðmundsson byggingaverkfr. og k.h. Fríða Björg Aðalsteinsdóttir TR- fulltrúi á 13 og loks Hörður og Nanna á 15 – að ógleymdum Helgu Jónsdóttur gullsmið og Hallgrími Tómasi Sveinsyni kaupm. á 26. Helga og Fríða eru systur. Fyrstu kynni 2004: Andlitið svipúðugt; brúnamik- ill, sambrýndur, brosmildur, handtakið þéttingsfast og hlýtt; lagði vinstri hönd yfir handa- bandið, sterklegar hendur og fal- legar. Ég þekkti þetta handa- band og einlægnina að baki þess; er hann leit í augu mín og spurði án orða: „Hver ert þú?“ Hann var Oddfellow og þau hjónin bæði. Meðalmaður á hæð, knárlegur á vöxt, verksnjall og hamhleypa; þreklegur, djarfleitur. Hann breiddi faðminn mót logni og stormum, sól og myrkri, jafnsléttu og tindum; barðist með brosi og eldmóði: svo í logni og stormum; bardagamaður að eðl- isfari. Á það reyndi sannarlega síðasta árið – en Hörður stóð meðan stætt var og Nanna stóð með honum og studdi ásamt fjöl- skyldu, börnum og vinum. Ég sá hann nánast aldrei kveinka sér, heldur brosa, yppa öxlum, brosa og berjast; ræddi aldrei um veikindi sín að fyrra bragði, svaraði naumt þeg- ar að því vék, en vék talinu að öðru. Um hann á sannlega við að þegar harðnar á dalnum ríða hetjur um héruð. Nönnu, börnunum, fjölskyldu og aðstandendum vottum við virðingu og hyllum fallna hetju. Í v.k.s. Haraldur Blöndal, María Aldís Kristins- dóttir, fjölskylda og kærleiksgrannar. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.