Morgunblaðið - 04.11.2020, Page 23

Morgunblaðið - 04.11.2020, Page 23
ÍÞRÓTTIR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 Kvennalið KA/Þórs mun ekki taka þátt í Evrópubikar kvenna í hand- bolta eins og til stóð. Handbolti.is greindi frá því í gær að liðið væri hætt við þátttöku vegna stöðunnar í baráttunni við kórónuveiruna. KA/Þór átti að mæta ítalska lið- inu Jomi Salerno í 3. umferð keppn- innar og átti fyrri leikurinn að fara fram ytra 14. eða 15. nóvember og seinni leikurinn á Akureyri viku síðar. Forráðamenn Akureyrarliðs- ins freistuðu þess að kaupa útileik- inn svo báðir leikir færu fram hér á landi, en þær viðræður sigldu í strand. Ljóst er að niðurstaðan er mikil vonbrigði fyrir KA/Þór sem stefndi á þátttöku í Evrópukeppni í fyrsta skipti í sögunni. Neyðast til að hætta við þátttöku í Evrópukeppni Ljósmynd/Sigfús Gunnar Akureyri Landsliðskonan Rut Jóns- dóttir leikur nú með KA/Þór. HANDBOLTI Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Íslenska karlalandsliðið í hand- bolta mætir Litháen í 4. riðli í und- ankeppni EM í áhorfendalausri Laugardalshöll klukkan 19:45 í kvöld. Lokamót Evrópukeppninnar fer fram í Ungverjalandi og Sló- vakíu í ársbyrjun 2022. Undirbún- ingurinn fyrir leikinn hefur verið óhefðbundinn vegna stöðunnar í samfélaginu, en fyrst um sinn var óvíst hvort leikurinn gæti farið fram vegna baráttu stjórnvalda við kórónuveiruna. Þá átti Ísland að leika við Ísrael á laugardag í sömu undankeppni en þeim leik var frestað þar sem ísraelska liðið kemst ekki til landsins vegna út- göngubanns þar í landi. Um tíma var óvíst hvort leikmenn sem leika í Þýskalandi fengju leyfi félagsliða sinna til að mæta í leikinn, en að lokum var það mál leyst. Þá hafa miklar breytingar orðið á landsliðs- hópi Íslands frá því að hann var fyrst kynntur 16. október síðastlið- inn. Miklar breytingar Ólafur Andrés Guðmundsson, Oddur Gretarsson, Bjarki Már El- ísson, Kristján Örn Kristjánsson og Arnór Þór Gunnarsson eru allir búnir að draga sig úr hópnum. Sá síðastnefndi er hins vegar kominn inn í hópinn á nýjan leik eftir að Sigvaldi Björn Guðjónsson féll úr leik á síðustu stundu. Magnús Óli Magnússon, Óðinn Þór Ríkharðs- son, Orri Freyr Þorkelsson og Há- kon Daði Styrmisson eru komnir inn í hópinn. Magnús, Orri og Há- kon hafa ekki leikið með A- landsliðinu áður og verður áhuga- vert að sjá hvernig nýliðarnir koma inn. Verður sérstaklega spennandi að sjá leikmenn íslensku félagsliðanna mæta til leiks, þar sem hlé hefur verið á Íslands- mótinu frá því í byrjun síðasta mánaðar og leikformið því lítið sem ekkert. Magnús Óli leikur með Val, Orri Freyr með Haukum og Hákon Daði ÍBV. Þá leikur Björgvin Páll Gústavsson, annar markvarða liðs- ins, með Haukum. Áföll hjá Litháen Það hafa ekki aðeins orðið áföll hjá Íslandi því þau hafa einnig herjað á Litháen. „Við erum í annarri stöðu núna en þegar við mættum íslenska landsliðinu fyrir rúmum tveimur árum en á móti kemur að það hafa líka orðið breyt- ingar á íslenska liðinu á síðustu stundu. Við verðum að sjá til hvernig gengur en undirbúning- urinn hefur ekki verið eins og best verður á kosið,“ var haft eftir Min- daugast Andriuska landsliðs- þjálfara Litháens á heimasíðu handknattleikssambandsins þar í landi. Línumaðurinn Tadas Stan- kevicius, Jonas Truchanovicius, Gerdas Babarskas og Benas Pet- reikis eru allir fjarverandi hjá Litháen. Mindaugas Dumcius, fyrr- verandi leikmaður Akureyrar, er hins vegar klár í slaginn en hann leikur nú með Elbflorenz í Þýska- landi. Ísland og Litháen mættust síðast í umspili um sæti á lokamóti HM sem fór fram í Danmörku og Þýskalandi í janúar á síðasta ári. Gerðu liðin 27:27-jafntefli ytra 8. júní 2018 þar sem Arnór Þór Gunnarsson jafnaði fyrir Ísland úr víti í blálokin. Virtist Litháen fyrst um sinn hafa unnið 28:27-sigur, en vegna mistaka dómara var mark skráð sem ekki átti að standa og úrslitunum breytt í 27:27. Fimm dögum síðar vann Ísland 34:31- heimasigur og tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu. Markvörð- urinn Giedrius Morkunas, sem lék um árabil með Haukum, reyndist íslenska liðinu erfiður í einvíginu og varði alls 24 skot. Hann er í hópnum hjá Litháen, eins og Vilius Rasimas, markvörður Selfoss. Litháen hefur aðeins tvívegis kom- ist á stórmót; HM í Japan 1997 og EM á Ítalíu 1998. Möguleikarnir afar góðir Íslenska liðið er nokkuð breytt frá leikjunum fyrir rúmum tveimur árum. Aðeins einn af fjórum markahæstu leikmönnum Íslands í seinni leiknum eru með að þessu sinni, en það er Aron Pálmarsson. Guðjón Valur Sigurðsson er hætt- ur, Theodór Sigurbjörnsson er ekki í hópnum og Ólafur Andrés Guð- mundsson er meiddur. Auk Íslands og Litháens eru Ísr- ael og Portúgal einnig í riðlinum. Möguleikar Íslands á að komast á EM eru mjög góðir en tvö efstu lið hvers riðils eru örugg með sæti á lokamótinu. Þá fara þau fjögur lið með bestan árangur í þriðja sæti síns riðils einnig á lokamótið. Þarf Ísland því að eiga martraðar- undankeppni til að fara ekki á tólfta Evrópumótið í röð. Stefnan sett á tólfta Evrópumótið í röð  Ísland byrjar undankeppnina gegn Litháen  Miklar breytingar á íslenska hópnum  Möguleikarnir mjög góðir  Mættust síðast í umspili um sæti á HM Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Negla Elvar Örn Jónsson lætur vaða að marki Litháens í umspili HM í Laugardalshöll í júlí 2018.  Íslenska kvennalandsliðið í íshokkí mætir ekki Nýja-Sjálandi eins og til stóð í B-riðli 2. deildar HM en leikið verður í Zagreb í Króatíu í mars. Nýja- Sjáland hefur ákveðið að hætta við þátttöku vegna þeirra áhrifa sem kórónuveiran hefur. Til stóð að Ísland myndi spila fimm leiki í Zagreb og er útlit fyrir að þeir verði þá fjórir. Á vef Alþjóðaíshokkí- sambandsins eru þær fimm þjóðir sem eftir voru í riðlinum á sínum stað. Ís- land mun mæta tveimur þjóðum frá öðrum heimsálfum: Ástralíu og Suður- Afríku. Þá eru gestgjafarnir Króatía í riðlinum og Tyrkland.  Hildur Björg Kjartansdóttir, einn besti leikmaður landsliðsins í körfu- knattleik undanfarin ár, verður ekki með þegar Ísland mætir Slóveníu og Búlgaríu á Krít síðar í mánuðinum í undankeppni EM. Hefur hún ekki jafn- að sig á fingurbroti sem hún varð fyrir í upphafi tímabilsins. Salbjörg Ragna Sævarsdóttir, leikmaður Keflavíkur, hefur verið kölluð inn í landsliðshópinn í hennar stað.  Rangt var farið með í blaðinu í gær þegar sagt var að Sveindís Jane Jóns- dóttir hefði ein leikmanna Pepsi Max- deildar kvenna í knattspyrnu fengið 3 M í einkunn í Morgunblaðinu á þessu ári. Cecilía Rán Rúnarsdóttir, mark- vörður Fylkis, fékk einnig 3 M fyrir frammistöðu sína í leik gegn Selfossi.  Páll Kristjánsson, formaður knatt- spyrnudeildar KR, greindi frá því í hlað- varpsþættinum Mín skoðun í gær að KR væri tilbúið með kæruna vegna ákvörðunar KSÍ um að hætta keppni á Íslandsmótinu og myndi senda hana inn. Telja KR-ingar bráðabirgða- reglugerð KSÍ brjóta í bága við lög KSÍ.  Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson er á meðal þátt- takenda á Andalucía Challenge de Esp- aña á Áskorendamótaröð Evrópu, þeirri næststerkustu í álfunni. Mótið fer fram 5.-8. nóvember. Haraldur Franklín Magnús skráði sig einnig á mótið en komst ekki inn. Er mótið það þriðja síðasta á mótaröðinni á tímabilinu, en 45 efstu kylfingar mótaraðarinnar fara á lokamótið. Guð- mundur er í 37. sæti sem stendur.  Knattspyrnusamband Íslands og Þorvaldur Örlygsson hafa komist að samkomulagi um að Þorvaldur láti af störfum sem þjálfari U19 ára landsliðs karla. Þorvaldur tók við U19 ára liðinu í árslok 2014 og hefur stýrt liðinu í 22 leikjum. Þá stýrði hann U18 ára lands- liðinu í átta leikjum.  Valur hefur að undanförnu samið við þrjá af leikmönnum karlaliðs fé- lagsins í knattspyrnu sem varð Íslandsmeistari 2020. Landsliðsmaðurinn reyndi, Birkir Már Sæv- arsson, er einn þeirra. Birkir hefur marga fjöruna sopið með Val en hann gerði fyrsta samninginn sem meistara- flokksleikmaður fyrir sautján árum. Fyrirlið- inn, Haukur Páll Sig- urðsson, hefur einnig gert nýjan samning en hann hefur verið hjá Val síðan 2009. Í gær til- kynnti Valur að Svíinn Sebastian Hedlund yrði áfram í her- búðum liðsins. Eitt ogannað Framherjinn Guðjón Baldvinsson hefur ákveðið að yfirgefa Stjörn- una samkvæmt því sem fram kemur á Facebook-síðu Stjörnunnar. Er þar birt tilkynning frá Guðjóni sem er um leið eins konar kveðja til fólks í félaginu. Þar kemur raunar ekki fram hvort hann sé að leita sér að öðru félagi eða sé hættur. Guðjón er 34 ára gamall og mörg lið í efstu deild gætu vafalítið nýtt krafta hans. Guðjón skoraði 4 mörk á Íslandsmótinu í sumar í 14 leikj- um en Stjarnan lék 17 leiki áður en keppni var hætt. Guðjón er uppal- inn í Stjörnunni en hérlendis lék hann einnig um tíma með KR. Hann á að baki 152 leiki í efstu deild og hefur skorað 61 mark. Guðjón leikur ekki fleiri leiki með Stjörnunni Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðabær Guðjón Baldvinsson seg- ist hættur hjá Stjörnunni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.