Morgunblaðið - 04.11.2020, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.11.2020, Blaðsíða 24
24 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 4. NÓVEMBER 2020 Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Dúettinn Ultraflex, skipaður íslensku tón- listarkonunni Special-K og hinni norsku Farao, gaf í liðinni viku út sína fyrstu breiðskífu, Visons of Ultraflex, sem hefur að geyma átta lög sem vænlegt er að skokka við eða gera líkamsæfingar. Special-K, réttu nafni Katrín Helga Andrésdóttir, segir þær Farao, réttu nafni Kari Jahnsen, hafa kynnst þegar þær voru fengnar til að semja verk fyrir tvær tón- listarhátíðir, Extreme Chill í Reykjavík og Insomnia í Tromsö. Há- tíðahaldarar vildu fá ís- lenskan og norskan tón- listarmann til að semja verk saman. Úr varð dúettinn Ultraflex. Katrín segir þær Farao hafa komið til Íslands og þær hafi haft mjög skamman tíma til að setja saman heilt tónleika- prógramm. „Við þurftum að ákveða þetta hratt og hafa skýrt þema til að vinna með,“ segir Katrín. Farao hafi fengið æði fyrir sovéskri diskótónlist frá níunda áratugnum og þá tónlist sem var sérstaklega samin fyrir sjónvarpsleikfimi. „Margir lærðir tón- listarmenn úr djassi og klassík voru fengn- ir til að semja diskótónlist við þessa sjón- varpsleikfimi og hún varð að útgangs- punkti hjá okkur. Við notuðum mynd- böndin sem „visúala“ á tónleikunum og gerum enn, dönsum og gerum hreyfingar í takt við vídeóin og svo er tónlistin inn- blásin af sovétdiskói og diskói yfirhöfuð og raftónlist.“ Átta lög á níu dögum Katrín segir þær Kari í raun hafa lagt grunninn að öllum átta lögum plötunnar á rúmri viku á Íslandi. „Á níu dögum sömd- um við átta lög og svo þurftum við líka að læra dansana og klippa vídeóin. Svo krass- aði harði diskurinn í tölvunni minni þannig að þetta var mjög stressandi. Við eyddum svo sem níu dögum á Íslandi og svo viku í stúdíói í Tromsö,“ segir Katrín. Á Extreme Chill var aðeins eitt lag með sungnum texta en textar við nokkur lögin bættust við í Tromsö og við þau sem eftir voru í stúdíói Kariar í Berlín þar sem Ultraflex var að störfum í um tvo mánuði. Katrín er spurð hvort þær Kari komi úr ólíkum áttum tónlistarlega. „Við komum svolítið úr ólíkum áttum en erum með nokkra sameiginlega snertifleti. Kari hefur hlustað mikið á diskó og elektróník en ég er með klassískan bakgrunn, er klassískur píanóleikari og er í Reykjavíkurdætrum þannig að ég er meira með hipphoppið og hlusta mikið á jaðartónlist. Við mætumst svo einhvers staðar í poppinu,“ svarar Katr- ín. Verkaskiptingin í dúóinu sé alveg skýr; Kari taktasmiðurinn, „beat master“, og sjái um bassalínur en hún sjái um textana og sjónræna þáttinn. „Saman gerum við svo laglínurnar og hljómagangana,“ bætir Katrín við. Hlébarðar í Berlín Á ljósmyndum sem bárust blaðamanni má sjá þær vinkonur í mjög svo áberandi heil- göllum með hlébarðamynstri. Ljósmynd- arinn er Okay Kaya, norskur listamaður, tónlistarkona og fyrirsæta. „Hún gerði tón- listarmyndbandatrílógíu fyrir okkur í Berlín í sumar þegar var smá Covid-hlé,“ útskýrir Katrín. Eitt þeirra sé nú orðið að 15 mín- útna stuttmynd en í því voru þær vinkon- urnar í hlébarðagöllunum sem Kari fann á netinu. Í þessum göllum fóru þær m.a. í verslunarmiðstöð og lystigarð og tóku svo upp myndband í Vestmannaeyjum líka í göllunum. „Við vorum bara með síma- myndavélar og tókum upp fullt af efni sem við eigum eftir að klippa saman í tónlistar- myndband,“ segir Katrín. Eins og staðan er verður lítið um tón- leikahald næstu vikur eða mánuði vegna farsóttarinnar og segir Katrín að þær Kari séu bókaðar á eina hátíð í Noregi í febrúar. Fyrir hana þurfa þær að semja nokkur lög og munu því fara í lagasmíðabúðir í upphafi árs 2021. Illa dulbúnar myndlíkingar Blaðamaður spyr að lokum hvort lögin fjalli öll um líkamsrækt, í ljósi þess úr hvaða jarðvegi þau spretta. „Já, svona meira og minna, þetta er oft líkamsrækt sem myndlíking og illa dulbúnar myndlík- ingar fyrir eitthvað annað. Reyndar er eitt lag þarna, „Never Forget My Baby“, bara eitthvert ástarlag,“ svarar Katrín og nefnir líka „Full of Lust“ en myndbandið við það var tekið upp í líkamsræktarstöð. „Þetta er mjög góð plata til að stunda líkamsrækt við eða hlusta á meðan maður er að skokka,“ bætir Katrín við og að tónlistin sé upplífg- andi. „Hér er bara stuð og gaman.“ Ljósmynd/Okay Kaya Plata til að stunda líkamsrækt við  Sovésk sjónvarpsleikfimidiskótónlist lagði grunninn að listsköpun norsk-íslenska dúettsins Ultra- flex sem þær Special-K og Farao skipa  Hlébarðagallar, stuð og gaman, segir Special-K um dúóið Dúett Vinkonurnar í Ultraflex í pardus- göllunum sínum. Hin árlega Bókamessa í Bók- menntaborg verður með breyttu sniði í ár vegna veirufaraldursins. Hinum venjubundna viðburði í Hörpu hefur verið aflýst en þar hef- ur verið hægt að skoða nær alla bókaútgáfu ársins og hlýða á kynn- ingar og samtöl við höfunda. Les- endum er nú boðið að njóta hluta dagskrár Bókamessu á vef og sam- félagsmiðlum Bókmenntaborgar- innar. Rithöfundarnir Sunna Dís Másdóttir og Sverrir Norland munu stýra bókmenntaspjalli og verða þættirnir sendir út í streymi sunnu- daga og miðvikudaga kl. 14 og verða aðgengilegir áfram á miðlum Bókmenntaborgarinnar. Bókamessan verður í streymi í ár þess sem það er hverjum manni hollt að staldra við og átta sig á því að ekki er svo langt síðan lífið var allt annað en Rögnvaldur reg- inskytta, Rolls Royce og Rolex. Guðmundur varpar skemmtilegu ljósi á þetta og ekki skemmir mál- farið fyrir frekar en fyrri daginn. Helstu persónur eru af ýmsum Auga fyrir auga og tönnfyrir tönn koma fyrstupp í hugann eftir lesturá Síðasta barninu í þrí- leik Guðmundar S. Brynjólfssonar, en hinar spennusögurnar eru Eitr- aða barnið og Þögla barnið. Sögusviðið er fyrst og fremst Eyrarbakki og nágrenni um aldamótin 1900. Lesandinn dett- ur inn í tíðar- andann; fátækt- ina, lífsbar- áttuna, fjöl- skyldumálin, stjórnunina, baráttu góðs og ills, lög og rétt. Ákveðin hvíld er í því að yfirgefa tækniöldina um stund, ekki síst netið, og hverfa aftur í tímann auk toga; áhugaverðar, eftirtektar- verðar, skemmtilegar, einfaldar, leiðinlegar, ógeðslegar eða aumk- unarverðar, blanda sem myndar góða heild. Kár Ketilsson er síðasta sort, viðbjóður í tali og háttum enda hef- ur hann málað sig út í horn vegna aðgerða sinna. Svífst samt einskis og er ekkert nema hortugheitin. Á hinum enda skalans er bjartasta vonin, Snorri Snorrason, ungur og tápmikill drengur. Inni á milli eru rolur af ýmsu tagi og svo eru það auðvitað sýslumannshjónin, sem mest mæðir á. Ungar konur, mæð- ur þeirra og jafnvel ömmur halda til þess að gera nýlegri kvennabylt- ingu réttilega hátt á loft, en þeir sem hafa kynnst Önnu Bjarnadótt- ur sýslumannsfrú vita að kvenskör- ungar eru ekki nýir af nálinni. Hún er Hallgerður langbrók allra alda, kona sem ber af, vill allt fyrir alla gera. Kona sem tekur af skarið þegar karlarnir vita ekki sitt rjúk- andi ráð. En svo blíð og svo góð. Síðasta barnið er þægileg lesn- ing, vekur lesandann til umhugs- unar og snertir samvisku hans. Hún er einnig ágæt tenging nú- tímans við það sem liðið er og minnir um margt á sumar Íslend- ingasögur. Guðmundur „Síðasta barnið er þægileg lesning, vekur lesandann til umhugsunar og snertir samvisku hans,“ skrifar gagnrýnandi. Auga fyrir auga og tönn fyrir tönn Glæpasaga Síðasta barnið bbbmn Eftir Guðmund S. Brynjólfsson. Bókaútgáfan Sæmundur 2020. 233 bls. STEINÞÓR GUÐBJARTSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.