Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 VINNINGASKRÁ 249 10161 18389 28990 42277 52151 62922 73674 380 10324 18411 29535 42313 52203 63235 73699 1116 10679 18570 29548 42619 52493 63788 73856 1144 10867 18777 29881 43055 53055 64797 73861 1379 10971 18809 29976 43550 53171 65283 73988 1544 11640 19424 30047 44093 53271 65297 75221 1832 12176 19525 30121 44462 53386 66333 75226 1867 12258 19748 30692 44537 54162 66444 75499 2146 12576 20208 30775 44747 54925 66500 75601 2701 12687 20441 31307 45362 55332 66509 75753 2705 12942 20762 31608 45668 55339 66822 75865 2801 13015 20973 31720 46579 55750 66904 76269 2955 13105 21003 32918 46628 55986 66967 76715 3056 13311 21484 32941 46661 56203 67041 76770 3200 13386 21748 33024 46903 56296 67155 76825 3607 13723 21922 33315 47393 56511 67809 76965 3691 14205 21953 34169 47408 56974 67979 77037 3839 14395 22535 34302 47515 57407 68523 77151 3876 14887 22778 34663 47577 57506 68638 77152 4660 15195 23272 35812 47837 58207 68894 77231 4664 15410 23949 35881 48267 58228 69160 77376 4708 15664 24273 35901 48448 58421 69586 77600 4960 16352 24331 36052 49206 59513 69905 77757 5557 16460 24627 36650 49472 59745 69986 78133 6114 16743 24651 37344 49864 59849 70025 78140 6223 17392 24785 37499 50235 59949 70261 78335 7330 17471 24933 37722 50399 60019 70420 78339 7570 17591 25226 37796 50444 60134 70544 78584 7879 17777 25292 37798 50494 60219 71643 78673 8232 17861 25722 38259 50531 60546 72037 79400 8507 18015 26228 38624 50596 60553 72039 79609 8559 18074 27005 39017 50653 60801 72668 8982 18129 27248 39071 51336 60872 72924 9306 18219 27258 39092 51444 61916 72931 9381 18246 27930 39577 51509 62049 72950 9486 18285 28876 40200 51726 62561 72994 9644 18342 28896 41938 52080 62693 73500 990 14985 23434 38501 44435 52821 63591 74921 2153 15439 24389 38555 44570 53008 66463 75182 4163 15460 24912 39066 45034 53256 68128 75255 4296 15968 24979 39148 45501 54507 69696 75917 5072 17669 25814 40794 45840 55077 69780 76042 5149 18062 27269 40946 45988 58012 70754 76300 5850 19006 27981 41051 47583 58276 71168 76551 6240 19967 29859 41153 47831 59062 71778 76993 6629 21279 33879 41501 48277 59392 71942 77387 7060 21293 34756 41676 49604 59467 73170 11184 21951 35089 43129 49695 60840 73395 13659 23126 37270 43399 50066 60976 73635 14594 23390 37739 44334 52639 63487 74459 Næstu útdrættir fara fram 12., 19., 26. nóv & 3. desember 2020 Heimasíða: www.das.is Vinningur Kr. 12.000 Kr. 24.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 25.000 Kr. 50.000 (tvöfaldur) Vinningur Kr. 150.000 Kr. 300.000 (tvöfaldur) 2383 15331 15692 24661 48639 Vinningur Kr. 50.000 Kr. 100.000 (tvöfaldur) 2514 9480 26317 37172 44291 66382 3563 12925 26390 40936 60269 70533 4441 19925 30330 41053 62067 72252 7276 20042 32553 43272 64735 76022 Aðalv inningur Kr. 4.000.000 Kr. 8.000.000 (tvöfaldur) 4 0 2 9 4 27. útdráttur 5. nóvember 2020 Stefán Gunnar Sveinsson sgs@mbl.is Joe Biden, forsetaframbjóðandi demókrata, virtist færast nær því í gær að ná tilskildum fjölda kjör- manna, þegar nýjar tölur bárust frá Nevada-ríki um kvöldmatarleytið að íslenskum tíma, sem sýndu aukna forystu hans þar. Óvissan sem skap- ast hefur í kjölfar kosninganna hef- ur leitt af sér óróa innan Bandaríkj- anna, og hafa stuðningsmenn beggja frambjóðenda gripið til mót- mælaaðgerða vegna eftirmálanna. Þá hefur framboð Donalds Trump Bandaríkjaforseta sent frá sér nokkrar kærur í ríkjunum sem enn eiga eftir að greina frá nið- urstöðum kosninganna, með þá von að þær geti tryggt forsetanum sig- ur. Nevada líklega til Bidens Ein þeirra var í Nevada, en framboð Trumps hélt því fram í gær að þar hefðu framliðnir kosið í mikl- um mæli, án þess þó að setja fram nein gögn máli sínu til stuðnings. Vildi framboðið henda um 10.000 at- kvæðum vegna þessa. Eftir kosn- inganóttina munaði einungis um 8.000 atkvæðum, Biden í vil, þrátt fyrir að kannanir hefðu bent til þess að hann ætti að vinna ríkið auðveld- lega. Eftir því sem fleiri tölur bár- ust, breikkaði hins vegar bilið á milli Bidens og Trumps og töldu stjórn- málaskýrendur eftir það nánast formsatriði að setja ríkið og kjör- menn þess í dálk Bidens. Augu flestra beindust hins veg- ar að Arizona og Georgíu-ríki í gær, en sumir fréttamiðlar hafa þegar spáð því að fyrrnefnda ríkið endi demókratamegin. Verði það raunin hefur Biden þegar tryggt sér 270 kjörmenn, eða nægan meirihluta til þess að vinna kosningarnar. Mjög mjótt er hins vegar á mununum og töldu stuðningsmenn forsetans, að hann ætti mikið inni í ótöldum at- kvæðum. Kom hópur þeirra saman í fyrrinótt fyrir utan talningarstöðina í Phoenix, og kröfðust þess að taln- ingu yrði haldið áfram. Voru sumir vopnaðir, en lögreglan meinaði þeim aðgang að stöðinni án eftirmála. Kjósa þarf aftur í Georgíu Í Georgíu vildu stuðningsmenn hans hins vegar að talningin yrði stöðvuð, þar sem Trump leiddi þar með sáralitlum mun, á meðan þau póstatkvæði sem eftir var að telja komu að meginstofni frá Atlanta og öðrum borgum þar sem demókratar eru í miklum meirihluta. Þar vonaðist kjörstjórn til þess að talningu lyki í gærkvöldi, en þeg- ar var ljóst að kjósa yrði aftur um bæði þingsæti ríkisins í öldunga- deildinni í janúar, þar sem enginn frambjóðandi fékk meira en 50% at- kvæða, en Georgía er eina ríkið sem hefur þann háttinn á. Rudy Giuliani, lögmaður Trumps, flaug til Pennsylvaníu á miðvikudag þar sem hann ásakaði demókrata um kosningasvindl. Sagðist hann hafa efesemdir um framkvæmd kosninganna og fullyrti að 120 þúsund atkvæðaseðlar hefðu óvænt fundist í Wisconsin. Auk þess taldi hann eftirlitsmönnum repú- blikana hafa verið haldið frá taln- ingu í fleiri ríkjum. AFP Óvissa Stuðningsmenn Bidens í Seattle, Portland og New York héldu mótmæli í fyrrinótt og kröfðust þess að öll atkvæði yrðu talin. Stuðningsmenn Trumps mótmæltu á sama tíma í Michigan og Arizona meðal annarra ríkja. Tekist á um talningu en Biden færist nær  Stuðningsmenn beggja frambjóðenda efna til mótmæla Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin WHO varaði við því í gær að hún hefði orðið vör við „sprengingu“ nýrra tilfella í Evrópu, á sama tíma og andlátstíðnin af völdum kórónu- veirunnnar væri einnig að aukast. Útgöngubann tók gildi á Englandi í gær, og er fólki gert að dveljast heima fyrir nema það eigi brýnt er- indi út fyrir hússins dyr, og forðast um leið samneyti við fólk sem til- heyrir ekki heimili þeirra. Gerir rík- isstjórn Bretlands ráð fyrir að bann- ið muni vara fram í byrjun desembermánaðar. Rúmlega 11,6 milljónir tilfella kór- ónuveirunnar hafa nú greinst í Evr- ópu, fleiri en í nokkurri annarri heimsálfu. Þá hafa rúmlega 293.000 látist í ríkjum Evrópu. Til saman- burðar hafa 11,4 milljónir smitast af veirunni í Rómönsku-Ameríku, en fjöldi dauðsfalla þar er heldur meiri en í Evrópu, eða um 407.000 talsins. Evrópa var í brennidepli farald- ursins í fyrri bylgju hans í vor. Eftir fremur rólegt sumar hefur seinni bylgjan í haust hins vegar verið einkar skæð í ríkjum álfunnar, en í síðustu viku greindust rúmlega 277.000 tilfelli að meðaltali á hverj- um degi, sem er meira en helmingur allra daglegra tilfella sem greindust í heiminum á sama tímabili. Þá hefur nýjum tilfellum, sem og dauðsföllum, fjölgað á milli vikna, en 21.500 létust af völdum veirunnar í Evrópu í síðustu viku, borið saman við rúmlega 14.400 vikuna þar á und- an. Grímur geti bjargað lífi Hans Kluge, yfirmaður Evrópu- deildar WHO, sagði í viðtali við AFP-fréttastofuna að tilfellum í álf- unni gæti fjölgað um milljón á ein- ungis örfáum dögum. Sagði Kluge að það að loka skólum ætti að vera síðasti kostur ríkja, þar sem Evrópuríkin hefðu ekki efni á að það kæmi upp „týnd“ kórónuveiru- kynslóð. Hins vegar væri núverandi ástand ekki í boði, heldur væri þörf á hnitmiðuðum aðgerðum sem auðvelt væri að herða ef þörf krefði. Kluge lagði áherslu á að ríkis- stjórnir Evrópu þyrftu að vera stöð- ugar í aðgerðum sínum, en ekki flakka milli lausna. Þá yrðu þær einnig að hafa í huga að fyrirsjáan- leiki væri kostur, þannig að almenn- ingur vissi til hvaða aðgerða yrði gripið ef faraldurinn færi yfir ákveð- in mörk. Þá lagði Kluge sérstaka áherslu á útbreidda notkun andlitsgrímna. „Með almennri grímunotkun og ströngu samkomubanni getum við bjargað 266.000 lífum fyrir næst- komandi febrúar í allri Evrópu,“ sagði hann. Flest tilfelli í Evrópu  WHO segir „sprengingu“ hafa orðið í faraldrinum í Evrópu  Rúmlega 11,6 milljónir manna hafa smitast í álfunni Kórónuveiran í Evrópu » 11,6 milljónir tilfella kór- ónuveirunnar hafa nú greinst í Evrópu. » Undanfarna sjö daga hafa bæst við að meðaltali 44.000 tilfelli á dag í Frakklandi. » Fjölgunin hefur einnig verið ör á Ítalíu, Bretlandi, Spáni og Póllandi. Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.