Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 11
sem fólk fær varanlega búsetu. Fram hafa komið fullyrðingar um að þar séu daggjöldin 52 þúsund þegar daggjöld hjúkrunarheimila, án húsnæðisliðar, eru um 38 þús- und. Reykjavíkurborg rekur tvö hjúkrunarheimili. Samkvæmt upp- lýsingum Regínu Ásvaldsdóttur, sviðsstjóra velferðarsviðs Reykja- víkurborgar, má ekkert út af bregða í rekstri Droplaugarstaða. Borgin greiði með rekstrinum. Seljahlíð sé of lítil eining og alltaf rekin með halla. „Almennt er rekstrargrunnur hjúkrunarheimila of lágur og alltof lítil áhersla og fjármagn sett í fé- lagslega virkni á heimilunum,“ segir Regína. Verkefnishópur seinn af stað Skerðing á greiðslum til hjúkr- unarheimilanna hefur verið metin 2,3 milljarðar kr. frá árinu 2018. Misjafnt er hvernig þeir sem fara fyrir hjúkrunarheimilunum meta stöðuna, hvort það vanti 20, 30 eða 40% upp á daggjöldin til að endar nái saman. En allir eru í vandræð- um, stórir og smáir. Stóru eining- arnar standa betur þótt það sé ekki algilt eins og sést á því að Akur- eyrarbær hefur þurft að greiða háar fjárhæðir með rekstri hjúkrunar- heimila þar í bæ. Vonandi fæst einhver botn í þetta með vinnu verkefnishóps heilbrigð- isráðherra sem falið hefur verið að greina raungögn um rekstur og rekstrarkostnað hjúkrunarheimila. Formaður hópsins er Gylfi Magn- ússon prófessor en í honum sitja einnig fulltrúar frá Samtökum fyr- irtækja í velferðarþjónustu, Sam- bandi íslenskra sveitarfélaga, Sjúkratryggingingum Íslands og heilbrigðisráðuneytinu. Verkefn- ishópurinn átti að skila niðurstöðum fyrir 1. nóvember en samkvæmt upplýsingum blaðsins er starfið enn á byrjunarstigi og niðurstaðna ekki að vænta fyrr en í fyrsta lagi í febr- úar eða mars á næsta ári. Þó hefur KPMG verið falið að greina um- rædd gögn. Afleiðingarnar af „sveltistefnu“ ríkisins sem svo hefur verið kölluð eru þær að dregið hefur verið úr þjónustu við heimilismenn. Þar er aðeins veitt grunnþjónusta. Það bitnar vitaskuld á heimilisfólkinu. Þá eru útgjöld sem geta beðið látin sitja á hakanum, svo sem viðhald á húsnæði. Það endar vitaskuld með ósköpum, eins og þekkt er. Morgunblaðið/Eggert 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 Hjúkrunarheimilin hafa orðið fyrir ýmsum skakkaföllum og auknum kostnaði í kórónuveirufaraldrinum, bæði í vor og aftur nú í haust. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu áætla að aukakostnaðurinn hafi numið 312 milljónum til loka ágústmánaðar auk 140 milljóna króna tekjutaps. Ríkis- valdið hefur ekki viljað taka þátt í þeim kostnaði þótt það styðji við sínar eigin stofnanir. Þetta gremst forsvarsmönnum hjúkrunarheimila. Gísli Páll Pálsson, forstjóri Grundarheimilanna, segir að vegna sótt- varna og veirusmita sé færra fólk tekið inn og það þýði minni tekjur. Hins vegar aukist kostnaður vegna starfsfólks sem fer í veikindaleyfi eða sóttkví og sóttvarnaráðstafana svo sem þrifa og sótthreinsunar. Gísli Páll segir grátlegt að segja frá því að fjármunirnir séu til hjá Sjúkratryggingum. Gert hafi verið ráð fyrir því í fjárlögum að greidd yrðu daggjöld fyrir notkun þessara plássa en nú vilji ríkið græða á ástandinu. Rökin séu þau að heimilin geti hugsanlega unnið þetta upp á seinni hluta ársins en það gerist ekki í þriðju bylgju faraldursins, eins og allir eigi að átta sig á. Smit hafa komið inn á fjögur hjúkrunarheimili í þriðju bylgju faraldursins en aðeins eitt í vor. Þess vegna má búast við að kostnaður- inn verði meiri í vetur en hann var á fyrri hluta ársins. Fá engar bætur frá ríkinu KÓRÓNUVEIRUFARALDUR Upplyfting Ýmislegt var gert til að brjóta upp dag- inn á hjúkrunarheimilunum og lífga upp á tilveruna hjá heimilisfólki í fyrstu bylgju kórónuveirunnar. Sönghópurinn Lóurnar söng til dæmis fyrir utan hjúkrunarheimilið Mörk við Suðurlandsbraut. Morgunblaðið/Guðlaugur J. Albertsson Skimun Sóttvarnir og forföll vegna Covid-19 og sóttkvíar á hjúkrunarheimilum kostar fjármuni eins og á öðrum stofnunum og almennum vinnustöðum.  Á morgun: Flótti sveitarfélaga frá rekstri hjúkrunarheimila og möguleikar einkaframkvæmdar við uppbyggingu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.