Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 16
BAKSVIÐ Andrés Magnússon andres@mbl.is Forsetakosningar í Banda-ríkjunum eru í nokkruuppnámi, enda óvenju-mjótt á munum og ógjörn- ingur að segja til um hvernig fer, þótt úrslit séu ljós í flestum ríkjum. Og áfram er talið og talið, en flest bendir til að póstatkvæðin svo- nefndu, utankjörfundaratkvæði, muni ríða baggamuninn. Lengst af voru utankjörfundar- atkvæði ekki ríkur þáttur í kosn- ingum í Bandaríkjunum. Þau hefur mátt greiða ef nauðsyn ber til, fólk er sannarlega ófært um að koma til kjörfundar af ýmsum ástæðum, en þar ræddi löngum aðallega um aldr- aða og sjúklinga, hermenn fjarri heimahögum, Bandaríkjamenn bú- setta erlendis, auk fólks á ferðalög- um og þess háttar. Undanfarna áratugi hafa æ fleiri kosið að nota sér utankjörfund- aratkvæði til að komast hjá ómakinu við að fara á kjörstað á kjördag. Um liðin aldamót var hlutfall utankjör- fundaratkvæða þannig 10% en hækkaði jafnt og þétt upp í 20% í kosningunum 2016. Kórónuveiran breytir öllu En nú er ekkert venjulegt ár með heimsfaraldurinn geisandi og það allt, svo utankjörfundar- atkvæðum fjölgaði gegndarlaust. Samkvæmt stofnuninni U.S. Elections Project við Flórída- háskóla greiddu um 36 milljónir manna atkvæði hjá kjörstjórn fyrir kjörfund, en liðlega 65 milljónir með póstatkvæði, alls rúm 101 milljón at- kvæða utan kjörfundar. Endanlegar tölur liggja ekki fyrir, en talið er að í kringum 60 milljónir hafi svo farið á kjördag nú á þriðjudag. Það þýðir að um 63% greiddu atkvæði utan kjör- fundar og að 40% atkvæða komu með pósti. Það er tvöföldun frá síð- ustu forsetakosningum. Þetta er langmesta kjörsókn á síðari tímum eða um 67%. Til þessa hafa fleiri póstatkvæði ekki birst í aukinni heildarkjörsókn, sem hefur að jafnaði verið um 55% í forseta- kosningum vestanhafs. Biden hefur fengið fleiri at- kvæði í þessari kosningu en nokkur annar (Obama átti fyrra met með tæpar 70 milljónir atkvæða) og sennilega fer Trump yfir Obama líka, þegar allt er talið. Annað hlutfall í póstkosningu Líkt og vikið er að í dálkinum hér til hægri er kosningafyrir- komulag með misjöfnum hætti í ríkj- unum 50, en það á sérstaklega við um póstkosningu. Þar hefur hvert ríki sína gerð kjörseðils, misjafnt er hvenær er lokað fyrir atkvæði, hvernig talningu er háttað, hvað telj- ast gildir kjörseðlar o.s.frv. Póstatkvæði auka hættu á svindli eða óeðlilegum afskiptum af því hvernig fólk greiðir atkvæði, ekki síst meðal viðkvæmra hópa. Eins sýna rannsóknir að félagsstaða hefur áhrif á það hversu hátt hlutfall póstatkvæða reynist ógilt. Það hefur þó sjaldnast mikið að segja og svindl fátítt, en gæti haft áhrif í hnífjafnri kosningu sem þessari. Enn frekar vegna þess hve póstatkvæði falla mismunandi eftir flokkum. Af einhverri ástæðu hafa demókratar jafnan verið mun dug- legri við að kjósa í pósti en repúblik- anar gjarnari að fara á kjörstað. Það er enn meira áberandi nú, enda hvatti Biden fólk til að kjósa með pósti, en Trump bað það um að fara endilega á kjörstað. Þess vegna eiga demókratar miklu meira í póst- atkvæðunum en repúblikanar og því geta þau breytt svo miklu á loka- metrunum. Póstatkvæðin kunna að ráða úrslitum AFP Póstkosning Starfsmenn kjörstjórnar í Utah koma færandi hendi með svignandi bakka, fulla af atkvæðum í forsetakosningunum til talningar. 16 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Fyrir umtveimurvikum virt- ist sem fríverslunar- viðræður Breta og Evrópusambands- ins hefðu siglt í strand, og gengu Bretar svo langt að segja tilgangslaust að halda þeim áfram. „Viðræðuslitin“, ef þau geta kallast það, höfðu þau áhrif að Michel Barnier, aðalsamningamaður Evrópu- sambandsins, virtist skipta um skoðun og hét því að ef við- ræður hæfust aftur mætti fara að ræða fleiri hluti en fisk- veiðiréttindi og samkeppnis- reglur. Þau tvö atriði hafa enda ver- ið ásteytingarsteinar frá upp- hafi viðræðnanna, en ljóst var þegar í vor, að afarkostir Evr- ópusambandsins í þeim efnum myndu seint leiða til niður- stöðu sem fullvalda ríki eins og Bretland gæti sætt sig við. Voru nokkrar vonir bundnar við það, að Barnier hefði loks áttað sig á því, að Bretar væru nú í raun aftur fullvalda, og að því yrði reynt að finna nálgun sem gæti þjónað báðum. Nú, tveimur vikum síðar, viðurkenndu hins vegar bæði Barnier og David Frost, samn- ingamaður Breta, að enn væri töluverður ágreiningur á milli aðila um þessi efni, sem og kröfur Evrópusambandsins um hvernig skorið yrði úr deil- um sem upp kynnu að koma. Var það afstaða Barniers að án þessara atriða yrði ekki hægt að semja, en Frost benti á, að sam- komulag yrði ekki gert ef ekki væri tekið fullt til- lit til fullveldis Breta. Komið er að elleftu stundu, eigi fríverslunarsamningur yf- irhöfuð að nást. Það er eitt að koma sér saman um sam- komulagsdrög og undirrita þau, en þá tekur við staðfest- ingarferlið, þar sem öll Evr- ópusambandsríkin 27 þurfa að samþykkja samkomulagið. Öllu þessu þarf að vera lokið fyrir 1. janúar næstkomandi. Satt að segja kemur á óvart, að þegar svo skammur tími er til stefnu, og viðræðunum hef- ur þegar verið „slitið“ einu sinni, að Barnier og félagar hans berji enn höfðinu við steininn. Ef til vill er of langt gengið að segja að þessum tveimur vikum hafi verið sóað, en allar líkur eru þó á því að undanþágutími Breta renni út um áramótin án samnings. Slík niðurstaða kæmi sér illa fyrir alla, ekki síst ríki Evr- ópusambandsins sjálf, sem og önnur ríki sem treysta á greið viðskipti við Breta. Þeirra á meðal eru Íslendingar, sem hafa þó komið sinni ár betur fyrir borð. Áfram þarf þó að huga vel að því að hagsmunir okkar séu varðir í þeim ólgusjó sem fram undan er. Fögur fyrirheit Barniers um bót og betrun hafa engu skilað} Höfðinu barið við stein Sigríður And-ersen alþing- ismaður skrifar á vefsíðu sína um aðvaranir Jonat- hans Sumptions, lávarðar og fyrrverandi dómara við hæstarétt Breta, vegna að- gerða hins opinera gegn kór- ónuveirunni. Tilefnið var sam- þykkt breska þingsins á reglum forsætisráðherra um allsherjarlokun í Bretlandi næstu vikur. Sigríður hefur eftir Sump- tion að breska ríkið hafi aldrei áður notað aðra eins valdbeit- ingu gegn borgurum sínum og nú á tíma kórónuveirufarald- ursins. Hún segir hann ekki draga í efa að faraldurinn sé skæður en að hann sé ekki í neinum vafa um að þegar frá líði verði aðgerðirnar gegn honum minnisvarði um alls- herjargeðshræringu og afglöp stjórnvalda. Sumption telji stjórnvöld hafa farið út fyrir heimildir sínar og hætt sé við að þó að heimildirnar verði settar í lög vegna kórónuveirunnar kunni þær síðar að verða nýttar í öðr- um tilgangi. Í þessu samhengi hefur Sig- ríður eftir Sumption lávarði að hryðjuverkalöggjöfin frá 2000 og 2006 hafi ekki aðeins verið nýtt til baráttunnar gegn hryðjuverkum heldur í margvíslegum öðrum tilgangi, meðal annars til að frysta „eignir íslensks banka í þágu breskra innstæðueigenda“. Sigríður segir „áhugavert fyrir okkur Íslendinga að beiting hryðjuverkalaganna gegn Landsbankanum og raunar íslenska ríkinu sé nefnt af fyrrum hæstarétt- ardómara Breta sem dæmi um hvernig valdheimildir hafi verið nýttar í allt annað en þeim var ætlað“. Allt er þetta mjög umhugs- unarvert enda verður alltaf að fara varlega í að færa ríkis- valdinu aukin völd á kostnað borgaranna. Óvænt tengsl tveggja vágesta}Icesave og kórónuveiran A ð gera hlutina saman er svo miklu betra en að sitja einn að málum. Við í stjórnarandstöð- unni á Alþingi höfum mikið talað fyrir samráði og hvatt ríkis- stjórnina til þess að efna þau orð í stjórnar- sáttmála að efla Alþingi og auka samráð milli flokka. Því miður hefur samráðið þar helst falist í því að ráðherrar senda okkur boð á kynningarfundi sína og kalla það samráð en ég held að þar megi gera betur. Að sama skapi hef ég talað mikið fyrir hvers konar samfélagsþátttöku og mikilvægi hennar. Það að taka þátt í samfélagsverk- efnum auðgar hvort tveggja líf þátttakenda sem og samfélagið allt, hvort sem um er að ræða þátttöku í hverfisráðum, íþrótta- félögum, kórastarfi, leikhópum eða stjórn- málaflokkum. Frá því í síðasta hruni hefur umræða um stjórnmál og stjórnmálaflokka því miður verið ansi neikvæð. Við höf- um horft á tortryggni aukast út í það lýðræðislega starf sem unnið er inni í stjórnmálaflokkum og jafnframt fylgst með trausti á stjórnmálum og kjörnum fulltrúum á þingi og sveitarstjórn minnka. Með aukinni þátttöku almennings í hvers kyns stjórn- málastarfi er ég handviss um að virðingin og traustið til þessa hópverkefnis sem stjórnmálastarf er eykst. Það er nefnilega mjög gefandi og skemmtilegt að láta sig sam- félagsmál varða, en það er einmitt það starf sem innt er af hendi í stjórnmálaflokkum. Þar fer fram lýðræðisleg um- ræða um allt mögulegt er varðar samfélag okk- ar innan lands sem utan. Innan Samfylkingarinnar starfa fjölbreyttar málefnanefndir en einnig ungliðahreyfing, hreyfing eldri borgara, kvennahreyfing og jafnvel ferðafélag svo eitthvað sé nefnt. Það sem sameinar þessa ólíku hópa eru hugsjónir jafnaðarmanna, sem eiga rætur langt aftur í tímann. Jafnaðarmannahugsjónin er grunnur- inn að öllu okkar starfi, nútíminn er svo sá veruleiki sem við vinnum í með jafnaðarmanna- hugsjónina að leiðarljósi fyrir framtíðina. Það er þetta sem gerir samstarf grasrótarinnar svo nærandi. Það er samveran og samvinnan að þeim málefnum sem við viljum setja á oddinn hverju sinni sem gerir þetta starf svo mik- ilvægt. Hver einasti hlekkur starfsins skiptir jafn miklu máli, hvort sem um er að ræða skipulagningu og þátttöku á fundum, útbreiðslu kosn- ingaáherslna í aðdraganda kosninga, kaffiuppáhellingar og vöfflubakstur, samtal í málefnastarfi eða það að standa í pontu Alþingis eða sveitarstjórnum. Við skiptumst á og gerum þetta saman í fjölbreyttum félagsskap. Hvort sem fólk aðhyllist stefnu Samfylkingarinnar eða annarra stjórnmálaflokka vil ég hvetja fólk til þátttöku. Fjarfundarformið er komið til að vera og þannig geta líka þeir sem eiga erfiðara með að komast að heiman tekið fullan þátt í starfi stjórnmálaflokka. Látum okkur sam- félagið varða og tökum þátt í því. helgavala@althingi.is Helga Vala Helgadóttir Pistill Sam-félag Höfundur er þingman Samfylkingarinnar. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Forsetakosningar í Bandaríkj- unum eru ekki beinar, heldur er kosið í hverju ríkjanna 50 (auk Washington DC) til kjörmanna ríkisins, sem síðan velja for- seta. Sigurvegari í hverju ríki (með tveimur undantekningum) hirðir alla kjörmenn þess Þar sem það eru ríkin sem velja fulltrúa, þá kemur alrík- isstjórnin ekki að skipulagi eða framkvæmd kosninganna. Reglur og framkvæmd geta því verið með mjög misjöfnu móti. Hvort sækja þarf um póst- atkvæði, hvort gefa þurfi skýr- ingar eða ekki (faraldurinn dugði sem skýring nú), hvernig atkvæðið er vottað, hvernig því skal skilað, hvenær það þarf að hafa borist eða verið sent, og eins hvernig talið er, í höndum, með vél eða blandi beggja. Hefðir eru sömuleiðis mis- jafnar, á vesturströndinni er póstkosning mjög algeng en fá- tíð í Suðurríkjunum. Misjafnar eftir ríkjum PÓSTKOSNINGAR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.