Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 37
MENNING 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALINánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is
SPLÚNKUNÝ MYND FYRIR
ALLA FJÖLSKYLDUNA
SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI.
MYNDIN SEM HEFUR SLEGIÐ Í GEGN
Í EVRÓPU UNDANFARNAR VIKUR.
TRYGGÐU ÞÉR
MIÐA INNÁ
SÝND MEÐ
ÍSLENSKU TALI
Hrekkjavökuvika
í Sambíóunum
Sjáðu nokkrar að frægustu Hrollvekjum allra tíma
Bassaleikarinn Ingibjörg E.Turchi hefur komið víðavið í íslensku tónlistarlífi ásíðustu árum. Sumir
þekkja hana ef til vill úr hinni ofur-
hressu ballhljómsveit Babies en
einnig hefur hún tekið að sér bassa-
leik með stjörnum á borð við Stuð-
menn, Bubba Morthens, Soffíu
Björgu og Teit Magnússon, svo eitt-
hvað sé nefnt. Hennar fyrsta frum-
samda tónlist kom út á þröngskíf-
unni Wood/Work árið 2017 en það er
hennar fyrsta breiðskífa, Meliae
sem hér er til umfjöllunar og kom
hún út í ár.
Strax í fyrsta lagi plötunnar birt-
ist þessi hlýja og mjúka bassamotta
sem umvefur eyru hlustenda og býr
undir skemmtilegt ferðalag með alls
kyns útskotum og óvæntum uppá-
komum. Fyrsta lagið, „Twin“, er
inngangur að því sem koma skal á
þessari níu laga tæplega 50 mínútna
löngu plötu. Bassinn er rauði þráð-
urinn í teppinu en samspil tromma,
saxófóns, hljómborða og gítars,
ásamt alls kyns ískri og hljóðum, er
nauðsynlegt heildarútkomunni. Elsa
smalar öllum saman og kemur á
beinu brautina aftur þegar hljóð-
færin hafa reikað um víðan völl og
allt virðist vera
að fara úr bönd-
unum. Hún hefur
töglin og hagld-
irnar, leysir upp
og bindur saman,
bregst við hinu
óvænta, breiðir út teppi og rekur
það upp, allt eftir þörfum.
Að mínu mati er Meliae engan
veginn til þess fallin að hlusta á eitt
og eitt lag, heldur er hún ferðalag,
eða kannski samansafn af tónsögum,
sem hefst með „Twin“ og lýkur með
lokalaginu „Hydra“. Ingibjörg hefur
lagt stund á og kennt forngrísku og
því eru nöfn plötunnar og sumra
laganna sótt í brunn grísku og goða-
fræði. Meliae er til dæmis nafn á
goðsagnakenndri veru sem verður
til úr blóði Úranusar og er tengt
Eskitré, sem er einmitt sama tréð
og Askur Yggdrasils, og er þekkt úr
norrænni goðafræði. Nafn lagsins
„Elefþería“ merkir frelsi á grísku,
og „Hydra“ er heiti marghöfða
skepnu sem býr svo vel að á hana
vaxa ný höfuð ef þau eru sneidd af.
Nú veit ég ekki hversu djúpt
þetta er hjá Elsu, en vel mætti setja
þetta í samhengi við goðsagnir sem
gjarnan eru táknmyndir fyrir hið
raunverulega í mannheimum. Það
gefur auga leið að ekki er hægt að
leika svona tilraunakenndan djass
öðruvísi en að tileinka sér frelsið og
hin marghöfða skepna sem er
ódrepandi því á hana vaxa ávallt ný
höfuð er gott tákn fyrir það að gef-
ast aldrei upp og að tileinka sér
aðlögunarhæfni. Allt þetta eru þó
einungis vangaveltur mínar sökum
forvitni og þrá til að skyggnast und-
ir yfirborðið og uppgötva. Að öllum
líkindum er það kannski einmitt það
sem Elsa er að benda á með því að
nota óræð nöfn. Það dýpkar og bæt-
ir við. Útkoman er vægast sagt
framandi og spennandi en samt
jarðtengd, og jafnvel umslag plöt-
unnar styður við þá hugmynd þar
sem sjá má tré umvafið þoku. Í ár-
ferði dagsins í dag þar sem gott er
að kunna að ferðast innanhúss er
prýðishugmynd að skella svona
verki á fóninn.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Ferðalag „Að mínu mati er Meliae engan veginn til þess fallin að hlusta á
eitt og eitt lag, heldur er hún ferðalag, eða kannski samansafn af tónsögum,
sem hefst með „Twin“ og lýkur með lokalaginu „Hydra“,“ skrifar gagnrýn-
andi um fyrstu breiðskífu Ingibjargar Elsu Turchi, Meliae.
Jarðbundnar og goð-
sagnakenndar tónsögur
Framsýnn tilraunadjass
Ingibjörg Elsa Turchi –Meliae
bbbbb
Fyrsta breiðskífa Ingibjargar Elsu
Turchi. Ingibjörg leikur á rafbassa en
aðrir flytjendur eru Hróðmar Sigurðs-
son á rafgítar, Magnús Trygvason Elías-
sen á trommur og slagverk, Magnús Jó-
hann Ragnarsson á flygil, rhodes-píanó,
mellotron og víbrafón og Tumi Árnason
á tenórsaxófón, klarínett og elektrónik.
Upptökur fóru fram í Sundlauginni 27. –
28. september 2019 og Birgir Jón Birg-
isson stjórnaði upptökum. Um hljóð-
blöndun og hljómjöfnun sá Ívar Ragn-
arsson. Plötuumslag var í höndum
Klöru Arnalds. Reykjavík Record Shop
gaf út hinn 2. júlí 2020.
RAGNHEIÐUR
EIRÍKSDÓTTIR
TÓNLIST
Verk suðurafrísku myndlistarkonunnar Zanele Muholi hafa vakið mikla at-
hygli í listheiminum á síðustu árum, meðal annars á aðalsýningu síðasta
Feneyjatvíærings. Muholi vinnur með svarthvítar ljósmyndir, sem sýna
hana sjálfa í ýmsum og ólíkum aðstæðum, og eru iðulega sýndar í yfir-
stærðum.
Stór sýning á verkum Zanele Muholi frá síðustu árum verður opnuð í
dag í Tate Modern-safninu í London. Mörg verkanna eru úr myndröð sem
Muholi vinnur enn að og verkin fjalla um líf svartra lesbía og hinsegin fólks
í Suður-Afríku í dag.
Sýning á verkum Muholi í Tate Modern
AFP
Aðdáun Gestir í Tate Modern í London virða fyrir sér verk eftir suðurafríska listamanninn
Zanele Muholi úr myndaröðinni Somnyama Ngonyama.
Ævar Þór Bene-
diktsson rithöf-
undur og leikari
hefur í ljósi að-
stæðna ákveðið
að byrja aftur
með daglega
upplestra úr
bókum sínum á
facebooksíðunni
Ævar vísinda-
maður.
Þegar fyrsta bylgja kórónu-
veirufaraldursins, með tilheyer-
andi samkomutakmörkunum, gekk
yfir í vor las Ævar Þór upp fyrstu
þrjár bækurnar af fimm í bóka-
flokknum Bernskubréf Ævars vís-
indamanns. Þetta eru bækurnar
Risaeðlur í Reykjavík (sem lesin
var í átta hlutum), Vélmenna-
árásin (lesin í níu hlutum) og Gest-
ir utan úr geimnum (lesin í 12
hlutum). Fyrr í vikunni hóf Ævar
Þór síðan upplestur sinn úr fjórðu
bók flokksins sem nefnist Ofur-
hetjuvíddin. Allir upplestrarnir
byrja kl. 13 daglega, en þau sem
missa af beinni útsendingu geta
horft á myndböndin hvenær sem
er á facebooksíðu Ævars vísinda-
manns.
Ævar vísindamaður les upp daglega
Ævar Þór
Benediktsson