Morgunblaðið - 06.11.2020, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2020
LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800
SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646
er bæði spennandi
og ógnvekjandi
Bókin fæst í Eymundsson
UNGMENNABÓKIN
Yfir eitt þúsund fulltrúar eru skráðir
á tveggja daga rafrænan landsfund
Samfylkingarinnar sem hefst í dag.
Mikil spenna er í kringum kjör vara-
formanns en Helga Vala Helgadóttir
alþingismaður býður sig fram gegn
núverandi varaformanni, Heiðu
Björgu Hilmisdóttur borgarfulltrúa.
Fundurinn hefst kl. 16 með setn-
ingarræðu Loga Einarssonar for-
manns. Kosningar til forystusveit-
arinnar hefjast síðdegis og eiga úrslit
í kjöri varaformanns að vera ljós fyrir
hádegi á morgun.
„Aðalatriðið er að efla innra starfið
í Samfylkingunni. Það verkefni er á
borði varaformanns og þar hef ég
mjög mikinn metnað. Ég tel að það
skipti sköpum fyrir gengi flokksins í
þing- og sveitarstjórnarkosningum
að innra starfið verði eflt og að við
göngum í það með kröftugum hætti.
Ég hef sett plan um hvernig ég vil
gera það ef ég verð fyrir valinu. Stóra
markmiðið er svo að Samfylkingin
vinni stóran sigur í næstu þingkosn-
ingum,“ segir Helga Vala.
Hún segir tilgang framboðsins að
gefa flokksfólki val og markmiðið sé
ekki að vinna að stefnubreytingu því
það sé grasrótin í flokknum sem móti
stefnu Samfylkingarinnar og þeir
sem veljast til forystu séu málsvarar
þeirrar stefnu.
Heiða Björg segist hafa sem vara-
formaður tekið þátt í að byggja flokk-
inn upp á ný með öðrum í forystunni
að undanförnu og hún vilji fá tæki-
færi til að halda því góða starfi áfram.
„Mér finnst mikilvægt að það sé
breidd í forystu Samfylkingarinnar,
að þar sé ólíkt fólk sem starfar á mis-
munandi vettvangi að sama mark-
miði, þannig að við getum nálgast
málin út frá mismunandi sjón-
arhornum og með mismunandi
reynslu og áherslur. Þar hefur tekist
vel til hjá mér og Loga, þar sem við
erum ólíkir einstaklingar og störfum
hvort á sínum vettvanginum. Mér
hefur fundist það mikilvægt og það
hefur gefið góða raun að við getum
starfað þar saman og náð með því
meiri heildarsýn,“ segir hún.
Þær taka ekki undir að kosninga-
baráttan sé til marks um átök milli
fylkinga eða arma. Heiða Björg segir
að á síðustu árum sem hún hefur
starfað í forystunni hafi hún ekki orð-
ið vör við þá arma eða fylkingar sem
talað hafi verið um að væru í Sam-
fylkingunni. „Ég mun vanda mig við
að ýta ekki undir að neitt slíkt verði
til,“ segir Heiða Björg.
„Ég tel að framboð mitt hafi hleypt
ákveðnu lífi í flokkinn og það má m.a.
sjá af þeim fjölda framboða sem hafa
komið fram að undanförnu,“ segir
Helga Vala. „Það hefur ekki verið
jafn mikill áhugi á landsfundi lengi.
Formaðurinn okkar er mjög vinsæll
og það hefur töluvert að segja um ár-
angurinn. Hann eykur gleðina í
kringum sig og ég held að það hafi
mjög mikil áhrif á þá stemningu sem
er núna í aðdraganda landsfund-
arins,“ segir hún.
Margir lýsa stuðningi
Fjölmargir hafa lýst stuðningi við
frambjóðendurna á facebooksíðum
þeirra. Meðal þeirra sem lýsa stuðn-
ingi við Heiðu Björgu eru Jóhanna
Sigurðardóttir fv. forsætisráðherra,
Kristrún Heimisdóttir lögfræðingur,
Ellert B. Schram fv. alþingismaður,
Gerður Kristný rithöfundur, Ólína
Þorvarðardóttir fv. þingmaður og
Rannveig Guðmundsdóttir fv. ráð-
herra.
Meðal stuðningsmanna Helgu
Völu eru Margrét Frímannsdóttir fv.
þingm., Illugi Jökulsson blaðamaður,
Andri Snær Magnason rithöfundur,
Jóhann Ársælsson fv. þingm., Mar-
grét Sverrisdóttir fv. borgarfulltrúi,
Ólafur Darri Ólafsson leikari og Ótt-
arr Proppé fv. ráðherra. omfr@mbl.is
Spenna í kring-
um kosningu
varaformanns
Yfir þúsund fulltrúar skráðir á raf-
rænan landsfund Samfylkingarinnar
Landsfundur
» Sanna Marin, forsætis-
ráðherra Finnlands og formaður
Jafnaðarmannaflokksins í Finn-
landi, flytur ávarp á setningar-
hátíðinni síðdegis í dag.
» Yfirskrift fundarins er „Vinna,
velferð og græn framtíð“.
Heiða Björg
Hilmisdóttir
Helga Vala
Helgadóttir
Alls 25 ný smit af Covid-19 greind-
ust á landinu í fyrradag og af þeim
voru 80% meðal fólks í sóttkví. Nú
eru 762 í einangrun sýktir af kór-
ónuveirunni en voru 798 á miðviku-
dag. Á sjúkrahúsum landsins er 71
sjúklingur með kórónuveiruna, þrír
á gjörgæslu.
Á Landspítalanum eru tveir í
öndunarvél. Alls 1.538 manns eru í
sóttkví og 1.447 í skimunarsóttkví,
samtals 2.985. Í síðarnefnda hópn-
um er fólk sem þarf að fara í sóttkví
á milli skimana á landamærunum.
Tekin voru sýni úr tæplega 2.200
manns á miðvikudaginn. Staðan
batnar því lítið eitt milli daga, sbr.
að á þriðjudag voru ný smit 29 og
1.851 í sóttkví.
Alls eru nú fimm börn yngri en
eins árs í einangrun og 77 á aldr-
inum 1-12 ára. Alls 31 eitt barn 13-
17 ára var með Covid í fyrradag.
Fólk með kórónuveiruna er annars
á öllum aldri, þar af 40 á níræðis-
aldri og 22 yfir nírætt, skv. covid.is.
Best er staðan á Austurlandi; þar
eru tvö smit og einn í sóttkví.
Alls 50 konur á meðgöngu hafa
smitast af Covid hér á landi og eru
dæmi þess að konur hafi verið með
virkt smit í fæðingu. Þetta kom
fram í máli Huldu Hjartardóttur,
yfirlæknis fæðingarþjónustu Land-
spítala, á upplýsingafundi almanna-
varna í gær. Hulda sagði að ekki
væri aukin hætta á smiti hjá þung-
uðum konum, þótt merki væru um
að þær veiktust verr en aðrar konur
á barneignaaldri.
Átján eru látnir
Einn lést af völdum Covid sl. mið-
vikudag. Viðkomandi var á tíræð-
isaldri og var á Landspítalanum.
Átján hafa látist af völdum Covid á
Íslandi, tíu í fyrstu bylgju farald-
ursins og átta í þriðju bylgjunni,
þeirri sem nú gengur yfir.
sbs@mbl.is
25 ný smit og 762 sýkt-
ir af veiru í einangrun
Fimm börn yngri en eins árs eru í einangrun
Kórónuveirusmit á Íslandi
Staðfest smit frá 30. júní
5.017 staðfest smit
Heimild: covid.is
Nýgengi innanlands 4. nóvember:
181,1 nýtt smit sl. 14 daga á 100.000 íbúa
Nýgengi, landamæri:
18,8 14 daga nýgengi
71 einstaklingur er á sjúkrahúsi,
þar af 4 á gjörgæslu
25 ný inn an lands smit greindust 4. nóvember
1.447
í skimunarsóttkví
100
80
60
40
20
0
1.538 einstaklingar eru í sóttkví
762 eru með virkt smit og í einangrun
júlí ágúst september október
Fjöldi smita
innanlands
Fjöldi smita á
landamærum18 einstaklingar eru látnir
Ljósmynd/Almannavarnir
Sviðsmynd Þríeykið víðfræga og góður gestur á fréttamannafundi í gær,
Hulda Hjartardóttir, yfirlæknir fæðingarþjónustu Landspítalans.
Oddur Þórðarson
oddurth@mbl.is
Ákveðið var á fundi Veiðifélags Lax-
ár í Aðaldal að áin yrði seld í heild
sinni. Þá var ákveðið að breyta
skipulagi veiðileyfa fyrir árið 2021 á
þá leið að stöngum í ánni verði fækk-
að úr 17 í 12, um 30% fækkun sem
þykir umtalsverð og til þess fallin að
bæta gæði veiða í ánni.
Utan samstarfs þeirra jarða sem
taka þátt í þessum breytingum eru
jarðirnar Árbót og Jarlstaðir. Stefnt
er að því að reka tvö veiðihús við
ána, veiðihúsið í Nesi annars vegar
og veiðihúsið Vökuholt á Laxamýri
hins vegar.
Gæði árinnar aukast
„Gert er ráð fyrir að veiðimenn
muni veiða alla ána á þremur dög-
um, en um 70 ár eru síðan hægt var
að veiða Æðarfossana, Mjósund,
Brúarsvæðið, Núpafossbrún; Höfða-
hyl, Presthyl, Vitaðsgjafa, Hólma-
vaðsstíflu og Óseyrina í einum veiði-
túr,“ segir í tilkynningu til fjölmiðla.
Þá segir einnig að horft sé til þess
að bæta gæði veiðanna í ánni enda
hafi veiðin verið erfið undanfarin ár.
Afstaðið veiðisumar hafi þó kynt
undir vonum um gott stórlaxasumar
á næsta ári og því er horft til alls
konar smærri framkvæmda í ánni til
þess að vernda stofninn.
Selja Laxá í Aðal-
dal í heild sinni
Stefnt að rekstri tveggja veiðihúsa
Jón Atli Benediktsson, rektor Há-
skóla Íslands, hefur verið kjörinn
forseti Aurora-háskólanetsins og
mun leiða það næstu tvö ár. Hann
tekur við forsæti af David Rich-
ardson, rektor East Anglia-
háskólans á Englandi.
Ársfundi Aurora-netsins lauk í
gær en hann fór fram með rafræn-
um hætti. Netið er skipað níu evr-
ópskum háskólum sem eiga það
sameiginlegt að vera framúrskar-
andi í rannsóknum samhliða því að
leggja ríka áherslu á samfélagslega
ábyrgð og fjöl-
breytileika nem-
enda en þeir eru
í heildina á
þriðja hundrað
þúsund, segir í
tilkynningu HÍ.
„Alþjóðlegt
samstarf skiptir
okkur í Háskóla
Íslands miklu
máli og höfum
við notið afar góðs af Aurora-
netinu á undanförnum fjórum ár-
um. Ég hef setið í stjórn háskóla-
netsins sl. þrjú ár og hlakka mjög
til að stýra því næstu tvö árin,“ seg-
ir Jón Atli í tilkynningunni.
Háskólarnir í netinu eru, auk HÍ:
Vrije-háskólinn í Amsterdam, East
Anglia-háskólinn á Englandi, Há-
skólinn í Duisburg-Essen í Þýska-
landi, Háskólinn í Innsbruck í Aust-
urríki, Háskólinn í Napolí –
Federico II á Ítalíu, Roviri i Virgili-
háskólinn í Tarragona á Spáni, Há-
skólinn í Aberdeen og Háskólinn í
Grenoble-Alpes í Frakklandi.
Rektor Háskóla Íslands kjörinn forseti Aurora-háskólanetsins
Jón Atli
Benediktsson