Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.03.1990, Side 1

Bæjarins besta - 21.03.1990, Side 1
Skálavík um helqina i Pöbbinn opinn föstudags- kvöldkl. 21-01. Lokáð laugardagskvöld - Einkasamkvæmi. ^KÁLAVÍK Bolungarvík S 7130 Læknadeilan á ísafirði: Beðið eftir svörum heUbrigöisráðherra Súgfírðingar ósáttir við að missa góða læknisþjónustu Geirs Guðmundssonar ENN hefur enginn lækn- ir verið fastráðinn í lausar stöður við heilsu- gæslustöðina og sjúkrahúsið á Isafirði. Þann 28. febrúar rann út ráðningartími þriggja ,,mánaðarlækna“ , þ.e. lækna sem ráðnir voru til skamms tíma, og um miðjan febrúar hélt Bergþóra Sig- urðardóttir í ársleyfi og fór til starfa á Dalvík. í nokkra daga var aðeins einn læknir á stöðinni en síð- an tókst að ráða fleiri ,,mán- aðarlækna" og heilsugæslu- stöðin er fullmönnuð eins og er. í millitíðinni gerðist það að eini fastráðni læknirinn fór til Suðureyrar í einn dag. Stjórnin bókaði vegna þessa að hún legði áherslu á að stöðin yrði ekki skilin eftir læknislaus nema neyðartil- vik krefðust þess. Heilbrigðisráðherra hefur enn ekki svarað ósk stjórnar sjúkrahúss og heilsugæslu um að flytja Geir Guð- mundsson og Bergþóru Sig- urðardóttur til í starfi og hef- ur ýmislegt valdið töfinni. Meðal annars hafa Súgfirð- ingar verið ósáttir við að missa læknisþjónustu Geirs Guðmundssonar, enda mjög ánægðir með störf hans á Suðureyri. Einn fulltrúa í bæjarstjórn ísafjarðar vildi einnig ræða málið frekar og hafði sam- band við ráðuneytið og til- kynnti að umfjöllun væri væntanleg í bæjarstjórn og rétt væri að bíða með frekari ákvarðanir þangað til. Af- skipti hans komu stjórnar- mönnum sjúkrahúss og heilsugæslu í opna skjöldu. Ákveðið var að bjóða eign- araðilum stofnunarinnar til lokaðs fundar með sjúkrahússstjórninni, þ.e. bæjarstjórnum ísafjarðar og Bolungarvíkur og héraðs- nefnd ísafjarðarsýslu sem er fulltrúi smærri sveitarfélag- anna, til að skýra stöðuna. Viðbrögð við fundarboðun- inni voru þau að hætt var við umfjöllun í bæjarstjórn og enginn vildi gera . athuga- semdir við aðgerðir stjórnar- innar en Súgfirðingar vildu ræða málið. Fundinn á þó að halda þegar færð milli Suð- ísafjörður: Guöbjörg ÍS með stærstan kvóta allra fískiskipa SKUTTOGARINN Guð- björg ÍS 46 er með stærstan kvóta allra fiski- skipa í þorskígildum, sam- kvæmt úthlutun sjávarút- vegsráðuneytisins eða 4.241 þorskígildi. Næst kemur Örv- ar HU með 4.125 þorskígildi. í þriðja sæti er Akureyrin EA með 3.383 þorskígildi og Páll Pálsson ÍS 102 er í því fjórða með 3.141 þorskígildi. I fimmta sæti er Kaldbakur EA með 3.054 þorskígildi. Þessar upplýsingar koma fram í nýjasta tölublaði Fiskifrétta og þar segir m.a. að hér sé um úthlutað afla- mark áðurnefnda skipa að ræða en segi ekkert til um það hver afli þessara skipa verði í ár, því hægt er að auka rækilega við sig með kvótakaupum og kvótatil- færslum, eins og dæmin sanna. Guðbjörg ÍS 46. ureyrar og ísafjarðar leyfir. Hvert framhaldið verður er óljóst en víst er að á með- an ráðherra tekur ekki af skarið er stjórn sjúkrahúss- ins í erfiðri aðstöðu og á erfitt um vik að fastráða nýtt læknalið við stofnunina. k Bolungarvík: YERKALÝÐS- OG sjó- mannafclag Bolungar- víkur hefur samþykkt sam- komulag Alþýðusambands Vestfjarða og Vinnuveit- endafélags Vestfjarða varð- andi samninga landverka- fólks. Samkomulagið var samþykkt með tíu atkvæðum gegn einu og tveir sátu hjá. Á sama fundi, sem hald- inn var 27. febrúar, var sam- þykkt ályktun þar sem m.a. er skorað á Orkubú Vest- fjarða að endurskoða hækk- anir gjaldskrár frá 1. janúar Samningarnir samþykktir Verkalýðs- og sjómannafélagið skorar á stjórnvöld að virða sam- komulag aðila vinnumarkaðarins 1990. Þá er því beint til bæj- arstjórnar Bolungarvíkur að hækka ekki þjónustugjöld á vegum bæjarins og taka með því tillit til nýgerðra kjara- samninga. í þriðja lagi er skorað á stjórnvöld að sjá sóma sinn í því að halda aft- ur af öllum hækkunum á þjónustu á vegum ríkisins og einnig verðlagi og virða með þeim hætti það samkomulag sem gert var af hálfu aðila vinnumarkaðarins með full- tingi stjórnvalda.

x

Bæjarins besta

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.