Bæjarins besta


Bæjarins besta - 21.03.1990, Síða 4

Bæjarins besta - 21.03.1990, Síða 4
4 BÆJARINS BESTA Til umræðu: Elliheimilismálið rúllar áfram innan bæjarherfisins TiIIögur á tillögur ofan en lítil umfjöllun. Verður ákveðið að fara í framkvæmdir innan fárra ára eða fara tillögurnar ofan í skúffu aftur vegna peningaskorts? NYJAR MYNDIR VIKULEGA THE LAST ELECTRIC KNIGHT „Afi minn fékk opinberun. Þú verður verndari minn þegar hann deyr.“ Þessi orð segir Ernie Lee við hinn hranalega leynilög- reglumann þegar, Jake Rizzo. Ernie sem er frá Asíulöndunum er þrátt fyrir smæð sína fulllærður i karate. Og eftir að afi hans dó er hann síðasti riddarinn í The Panther Ohm. Jake er einhleypur og alls ekki reiðubúinn að taka á sig ábyrgð sem þessa. En þegar hæfileikar Ernie koma íl jós hafa málin tekið aðra stefnu og spurningin er nú, hver skal vera verjandi hvers? PHYSICAL EVIDENCE Hvað gerði Joe Paris nóttina sem Jake Farley var myrtur? Paris er leynilögreglumaður sem hefur verið vikið frá störfum og vegna ölvunar man hann ekkert hvað gerðist um nóttina sem Farley var myrtur. En Paris hafði góða ástæðu til að myrða hann og það höfðu margir undirheimamenn. En samt benti allt til að Paris hefði myrt hann að yfirlögðu ráði. Ef Paris er saklaus, hvers vegna braust hann þá inn til lögmannsins til að leita upplýsinga? JR-VIDEO VIÐ NORÐURVEG S 4299 REINARGERÐ nefndar um öldrunar- mál sem lögð var fram fyrir nokkru vakti mikla athygli, sérstaklega það sem þar kom fram um aðbúnað vistmanna og starfsmanna Elliheimilis ísafjarðar. Húsið stenst ekki reglugerðir um brunavarnir, í eldhúsinu er skordýra- plága, hreinlætisaðstaða er í algjöru lágmarki og helm- ingur vistmanna á efri hæð eru fangar í hcrbergjum sín- um á efri hæð því engin lyfta er í húsinu og þeir geta ekki gengið niður krappan stig- ann. Fólk hryllti sig við lestur- inn, almenningur jatnt sem þeir sem stjórna fjármagns- streyminu og allir eru sam- mála um að eitthvað verði að gera. Þó er ekki verið að segja ísfirðingum neinar nýj- ar fréttir. Umræða um elli- heimilið hefur átt sér stað af og til í gegnum árin en logn- ast jafnóðum út af eftir nokkra mánuði og tillögur um úrbætur hafa farið ofan í skúffur og rykfallið þar fram að næstu kosningum. Sumar þeirra hafa nú verið dregnar upp á ný í kjölfar greinar- gerðar nefndarinnar og nýjar hafa einnig komið fram. Tillögur á tillögur ofan Reyndar lagði meirihluti bæjarstjórnar fram tillögu að byggingu öldrunarheimilis á ísafirði skömmu áður en greinargerðin var birt. Al- þýðuflokksmenn áttu þessa tillögu að mestu og ýmsir voru undrandi á því að ekki skyldi vera beðið með hana þar til forstöðumaður öldr- unarmála og félagsmála- stjóri hefðu lokið skýrslu- gerð sinni. Tillagan var ekki borin undir atkvæði heldur vísað til öldrunarráðs til frekari umfjöllunar. Þar hef- ur hún verið síðan og óvíst hvenær álit öldrunarráðs berst bæjarstjórn. Eins ogBB hefur skýrt frá eru í umræddri greinargerð þrjár tillögur og mælir nefndin sérstaklega með því að innréttuð verði þjónustu- deild fyrir aldraða á fyrstu hæð í Hlíf II. Þá eru nefndir möguleikar á nýbyggingu eða að vistmenn verði lagðir inn á langlegudeild á sjúkra- húsinu þegar 5. áfanga þar er lokið. Síðan hefur tillögu Sjálfstæðisflokksins um öldr- unar- eða hjúkrunarheimili á tveimur efstu hæðunum í RITSTJ Ó KN Að þreyja Þorrann Sagan hermir að fyrir mörgum árum hafi ungur mað- ur komið inn á vertshús hér í bæ síðla hausts. Hann var kappklæddur að þeirrar tíðar hætti. Veitingamaðurinn, sem var við aldur og lífsreyndur eftir því, virti unga manninn fyrir sér, einkum klæðaburðinn. Þegar hann hafði lokið afgreiðslu sagði hann við unga manninn: Og í hverju ætlar þú *vo að vera á Þorranum og Góunni, væni minn? Það hefur löngum verið áhyggju- og umhugsunarefni hvernig þreyja skyldi Þorrann og Góuna. í hugum eldra fólks hafa þessi óaðskiljanlegu nöfn tengst lífsbarátt- unni, baráttunni við óblíð náttúruöfl. Á þessum árs- tíma er oftar en ekki allra veðra von, gæftir stopular og hvort heldur er til lands eða sjávar setja átökin við höf- uðskepnurnar mark sitt á manninn. Vestfirðingar hafa svo sannarlega mátt taka á honum stóra sínum til að þreyja Þorrann og Góuna að þessu sinni. Látlaus ótíð og gífurlegt fannfergi hafa sett svip sinn á mannlífið svo mjög, að þreyta er í mörgum og víða gætir vonleysis. En Vestfirðingar hafa í aldir mátt takast á við höfuðskepnurnar og hafa hingað til ekki lát- ið deigan síga. Þeir hafa öðrum fremur þurft að halda í hið fornkveðna, að öll él birtir upp um síðir. Svo mun enn fara. Og nú eru komin vorjafndægur og Einmánuður geng- inn í garð. Hann er undanfari Hörpu, boðbera sumars- ins. Og enda þótt Einmánuður heilsi að þessu sinni sem Þorraþræll væri, þá segir koma hans okkur, að glímunni við Þorrann og Góuna sé lokið að sinni. En líkt og Vestfirðingar hafa þraukað til þessa þá munu þeir áfram takast á við óblíð öfl hvort heldur þau eru mögnuð þeim til höfuðs af veðurguðunum eða seið- urinn gerður af manna völdum. Af óáran þeirri hinni síðari hafa Vestfirðingar ekki farið varhluta af frekar en ótíðinni. Það hefur verið sagt að lesa megi veðurfarið af skaps- munum Vestfirðinga öðrum fremur. Kannske er það þess vegna sem þeir hafa neitað að gefast upp fyrir seið- skrattanum í hvaða líki sem hann hefur birst. s.h. BÆJARINS BESTA, óháð vikublað á Vestfjörðum. Útgefandi: H-PRENT sf, Suðurtangi 2, 400 ísafjörður, S 94-4560. Ritstjórar og ábyrgðarmenn: Sigurjón J. Sigurðsson S 94-4277, S 985-25362 og Halldór Sveinbjörnsson s 94-4101, S 985-31062. Blaðamaður: Vilborg Davíðsdóttir S 94-3936. Útgáfudagur: Miðvikudagur. Upplag: 3800 eintök. Ritstjórnarskrifstofa og auglýsingamóttaka að Suðurtanga 2, sími 94-4570. Telefax S 94-4564. Setning, umbrot og prentun: H-PRENT sf, Suðurtangi 2,400 ísafjörður. BÆJARINS BESTA er aðili að Samtökum bæjar- og héraðsfréttablaða og Upplagseftirliti Verslunarráðs. Eftirprentun.Jnljóðritun^jnotkun Ijósmynda og annars efnis er óheimil nema heimilda sé getið.

x

Bæjarins besta

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarins besta
https://timarit.is/publication/1104

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.