Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Síða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 13.12.2020, Síða 2
Hvað bók varstu að skrifa? Ég var að gefa út bókina Skipulag. Hún skiptist í tvo hluta, ann- ars vegar eru ráð fyrir fjölskyldur varðandi heimilið og hins veg- ar um veislur. Bókin á að auðvelda fólki að skipuleggja sig og vita hvar það eigi að byrja til að geta vaðið í verkin. Í bókinni eru gátlistar um hvernig eigi að skipuleggja tiltekt, útilegur, innkaup og veislur svo eitthvað sé nefnt. Geta allir lært að skipuleggja sig? Já, ég myndi segja að allir geti bætt sig og tileinkað sér nýjar aðferðir til að auðvelda sér hlutina. En það gerist ekki á einni nóttu. Þegar fólk fer að sjá breytingar vill það svo nýta sér ráðin aftur. Hvað finnst þér erfiðast að halda utan um á þínu heimili? Ég myndi nefna matarinnkaup og matseld. Það er alltaf spurt hvað eigi að vera í matinn og þá er gott að vera búin að plana vikuna fyrirfram og gera ráðstafanir. Er þörf fyrir svona bók? Já, því ég held að allir geti lært eitthvað af bókinni. Það er gott glugga í hana þegar á að halda veislu til dæmis. Viðburðakaflinn er stór og þar er farið yfir hvernig er best að skipuleggja brúðkaup, fermingar, útskriftir, afmæli og jól. Ég er sjálf núna að fletta helling upp í jólakaflanum. Eru þetta ráð sem þú hefur verið að gefa á Instagram? Já, ég hef verið að því í gegnum árin en með bókinni eru þau nú öll komin á einn stað. SÓLRÚN DIEGO SITUR FYRIR SVÖRUM Að vaða í verkin Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 13.12. 2020 Jólamartröðin kom snemma í ár. Hún er alltaf eins. Kominn er aðfangadagurjóla, klukkan er orðin þrjú og undirrituð uppgötvar að hún hafi gleymt aðkaupa allar jólagjafir. Í draumi er þá hlaupið út í Hagkaup í ofboði og keyptar bækur á línuna. Þegar heim er komið þarf að pakka þessu öllu inn ásamt því að fara í jólabaðið og elda jólamatinn og allt fyrir klukkan sex. Yfirleitt hrekk ég upp með andfælum áður en kirkjuklukkurnar hringja inn jólin. Hvaðan þessi jólamartröð kemur veit ég ekki en hún kemur eins og klukka á hverju ári fyrir jól. Stressið læðist svona lymskulega að manni og krist- allast í martröðum á nóttunni. Það er ekki eins og ég hafi einhvern tímann gleymt að kaupa jólagjafir! Annað sem gerist alltaf á þessum tíma árs er að rifjaðar eru upp skemmtilegar jólasögur. Allar fjöl- skyldur eiga sínar jólasögur. Sögur af brenndri rjúpusósu eða brotnum jóla- trésfæti. Sögur af misheppnuðum gjöfum, eða týndum. Sögur af köttum sem brjóta allar jólakúlur, helst þær dýru og flottu. Sagðar eru líka jóla- hrakfallaögur, eins og sagan af syn- inum sem datt með höfuðið á borð- brún hálfsex á aðfangadag og þurfti sex spor í ennið, korter í jól. Og svo sagan af því þegar tveggja ára barnið gleypti næstum litla jesúbarnið, skorið í tré. Aðeins fæturnir sem stóðu út úr munni barnsins komu upp um „átið“ og urðu Jesú til bjargar. Og barninu. Svo er það sagan af vinkonu einni sem sat aðeins of lengi á Kaffibarnum eitt Þorláksmessukvöld snemma á öldinni og gleymdi öllum jólagjöfunum á snaga bak við hurð. Það var alvörujólamartröð sem hún vaknaði upp við á aðfangadag, ásamt timburmönnum. Það er þetta með jólastressið. Það á það til að læðast inn hjá fólki þegar jólin nálgast og fólk þarf að muna eftir öllu ásamt því að vera í vinnu og sjá um heim- ili. Allt á að vera svo fullkomið og ekkert má klikka. En það klikkar alltaf eitt- hvað og það er bara allt í lagi. Það verður góð jólasaga næstu árin! Jólin koma nefnilega alveg þótt það gleymist að kaupa sultu eða fara með dúkinn í hreinsun. Og þessi jól verða örugglega með breyttu sniði vegna veir- unnar. Jólahlaðborðin geta beðið til næsta árs. Stóru jólaboðin líka. Jólin þurfa ekkert að vera fullkomin, heldur bara lágstemmd og notaleg í návist nánustu fjölskyldu. Því enginn vill fá Covid í jólagjöf! Það væri alvörujólamartröð. Af Jesúbarninu og jólamartröðum Pistill Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is ’Stressið læðist svonalymskulega að manniog kristallast í martröð-um á nóttunni. Það er ekki eins og ég hafi ein- hvern tímann gleymt að kaupa jólagjafir! Elín Ása Einarsdóttir Ég búin að kaupa allar jólagjafirnar. Þær eru tólf. SPURNING DAGSINS Ertu búin(n) að kaupa margar jólagjafir? Ragnar Már Ríkarðsson Nokkrar. Ég á ekki mikið eftir. Ég kaupi í kringum fimmtán gjafir. Anna Lind Gunnarsdóttir Eitthvað. Kannski helminginn. Viktor Örn Gunnarsson Svona helminginn, eða svona um fjórar. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri og umsjón Karl Blöndal kbl@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Árni Sæberg Ný bók Sólrúnar Diego, Skipulag, nýtist öllum sem vilja ráðstafa tímanum betur, einfalda verkefni og verða afkastameiri. Lifandi lausnir Nýir tímar í viðburðahaldi harpa.is/lifandilausnir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.